Morgunblaðið - 29.08.1987, Blaðsíða 32
V8er T8Ú0Á .es auoAaflAO'iiAJ gkia iíi/ji;íhom
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. AGUST 1987
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
NámskeiÖ
í dag ætla ég að halda áfram
að fjalla um þekkta stjömu-
spekinga 20. aldar. í síðasta
þætti minntist ég lítillega á
Michel Gauguelin og verk
hans, í dag ætla ég að fjalla
um Stephen Arroyo.
Stephen Arroyo
Arroyo er sálfræðingur
menntaður frá Ríkisháskóla
Kalifomíu í Sacramento og
hefur auk þess gráðu í hjóna-
og fjölskylduráðgjöf. Það má
kannski segja að hann sé per-
sónugervingur fyrir þá þróun
sem átt hefur sér stað undan-
fama áratugi i stjömuspeki.
Á ég þar við að hugsandi og
vel menntaðir menn hafa snú-
ið sér að stjömuspeki og átt
þátt í að móta hana og færa
til nútímans.
M.A. ritgerð
Fyrsta bók Arroyo heitir Ast-
rology, Psychology and the
Four Elements (CRCS 1975).
Hún er upphaflega skrifuð
sem hluti af M.A. ritgerð
Arroyo, en síðar breytt og
aðlöguð að almennum bóka-
markaði.
SálfrœÖi
Það merkasta við þessa bók
er kannski það að í henni fjall-
ar hann töluvert um almenna
þekkingarfræði, sálfræði og
stjömuspeki. Hann tengir
þessa þætti saman, talar um
þær efasemdir sem menn hafa
gagnvart stjömuspeki og
bendir á það hvemig við get-
um notað hana á skynsamleg-
an hátt.
MaÖur er orka
Að öðm leyti fjallar Arroyo í
þessari bók um frumþættina,
eld, jörð, loft og vatn, um
stjömumerkin og sálfræði
einstaklingsins. Grunnhug-
myndin sem alls staðar skín
í gegn er sú að hver maður
hefur ákveðið orkusvið sem
hann getur unnið með ef hann
lærir að þekkja sjálfan sig.
Leit mannsins
Önnur merk bók eftir Arroyo
er Astrology, Karma & Trans-
formation (CRCS 1978). Hún
flallar um Satúmus, Úranus,
Neptúnus og Plútó og afstöð-
ur þessara piáneta við per-
sónulega þætti í kortinu. Þessi
bók Qallar einnig um leit
mannsins að æðri tilgangi, en
einnig útskýrir hún hin ýmsu
tímamót sem hver maður þarf
að takast á við á ævi sinni,
svo eitthvað sé nefnt.
Samskipti
Þriðja bók Arroyo heitir Rel-
ationships & Life Cycles
(CRCS 1979). Hún er byggð
á fyrirlestrum og námskeiðum
og fjallar um mannleg sam-
skipti. M.a. er töluvert fjallað
um Venus og Mars og kynlíf
og almennt um það hvemig
bera eigi saman einstaka
þætti í stjömukortum tveggja
einstaklinga.
AÖrar bœkur
Auk þessara bóka hefur Arro-
yo geflð út bók fyrir stjömu-
spekinga, bók sem fjallar um
starf stjömuspekingsins, um
siðfræði, um aðferðir til að
ná til fólks og þær hættur sem
geta leynst á vegi stjömu-
spekinga. Þessi bók heitir The
Practice & Profession of Ast-
rology. Auk þess hefur verið
gefln út bók, The Jupiter/
Satum Conference Lectures
sem inniheldur fyrirlestra
Arroyo og Liz Greene frá
1981. Bækur Arroyo em vel
skrifaðar, skemmtilegar og
ftóðlegar, enda hafa þær not-
ið mikilla vinsælda og átt
drjúgan þátt í því að vekja
áhuga almennings á skyn-
samlegri stjömuspeki.
!!!!!!?!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!^!!!!!!!!!!!?f?!!!!!!!!!!!!!!!!!!^!^!!!!!!!!!!!!!!?!!?!^l!!!!!!!!!!!!!!?!!!!?!!!!!!!!!!!,
GARPUR
TOMMI OG JENNI
DRÁTTHAGI BLÝANTURINN
FERDINAND
45 D
PIB
<5//.
SMÁFÓLK
Afsakaðu, herra.
A RECENT REPORT
SMOWEPTHATMANV
ATTORNEYS ARE NO
L0N6ER PRACTICIN6 LAW
í nýlegri skýrslu segir að
margir lögfræðingar séu
hættir að sinna lögmanns-
störfum.
UAVE VOU FOUNP
ANVTHIN6 THAT 15 MORE
IMPORTANT TO YOU THAN
PRACTICIN6 LAWT
Hefurðu kynnzt nokkru
sem er þér meira virði en
lögmannsstörfin?
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
„Hvemig er hægt að tapa svo
gráupplögðu spili?" spurðu furðu
lostnir áhorfendur í sýningar-
salnum á EM í Brighton þegar
eftirfarandi stöðumynd kom á
tjaldið:
Norður gefur; AV á hættu.
Norður
♦ D752
VÁ97
Vestur ♦ 73 ♦ D754 Austur
♦ 6 ♦ G104
VG2 llllll VD865
♦ D1096542 ♦ KG8
♦ K32 * Á108
Suður
♦ ÁK983
VK1043
♦ Á
*G96
Spilið kom upp í leik Póllands
og Ítalíu og urðu suðurspilaram-
ir á báðum borðum sagnhafar í
fjórum hjörtum. Niðurstaðan úr
lokaða salnum var 50 í AV, sem
þótti tíðindum sæta. Væntu
menn þess að ítalinn Mosca, sem
stýrði spilinu í opna salnum og
þar með á tjaldinu, myndi geta
varpað ljósi á tapleiðina!
En það gerði hann ekki.
Mosca fékk út tígul, tók þrisvar
tromp og endaði í blindum, stakk
tígul og spilaði svo litlu laufi á
drottningu blinds. Slétt staðið,
því vömin fékk aðeins tvo slagi
á lauf og einn á hjarta.
Það var ekki fyrr en í móts-
blaðinu daginn eftir, sem áhorf-
endur fengu lýsingu á því
hvemig pólski sagnhafinn Mos-
zczynski hafði tapað spilinu.
Eins og Mosca fékk hann út
tígul, tók þrisvar tromp og stakk
tígul heima. En nú skildu leiðir.
I þessari_ stöðu stpilaði Mos-
zczynski ÁK og þriðja hjartanu.
Með hjartanu 3—3 er spilið í
höfn, því þá þarf vömin að
hreyfa laufið eða spila tigli út í
tvöfalda eyðu.
En austur gat spilað sig út á
hjarta og nú var laufíferðin í
höndum sagnhafa. Sannað var
að vestur átti aðeins þijú spil í
hálitunum, svo hann var mun
líklegri til að vera með lengd í
laufi. Því spilaði Moszczynski
laufgosanum. Og þar með var
draumurinn búinn.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á millisvæðamótinu í Zagreb í
Júgóslavíu kom þessi staða upp í
viðureign alþjóðlega meistarans
Ehlvest, Sovétrikjunum, og stór-
meistarans Granda Zuniga,
Perú.
23. Bg3! - Hd6, 24. Re5!
og svartur gafst upp, þv( hvítur
hótar bæði 24. Rxc6+ og 24.
Rxf7. Eftir 24. Bxd6? - exd6
hefði svartur hins vegar fengið
spil fyrir skiptamuninn. Þegar
aðeins tvær umferðir vom eftir á
mótinu áttu þessir tveir ungu
skákmenn góða möguleika á að
komast áfram. Miklu rejmdari
menn, svo se þeir Polugajevsky,
Miles og Torre, voru hins vegar
úr leik.