Morgunblaðið - 17.09.1987, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1987
Við höfum í tvígang eða
þrígang gert samninga,
þar sem ábyrgðin á fram-
kvæmdinni hvíiir í grundvallar-
atriðum á þremur aðilum,
ríkisstjórn, atvinnurekendum
og verkalýðshreyfingu. Það
blasir við að aðeins einn aðili
hefur staðið við sitt og það er
verkalýðshreyfingin," sagði
Asmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, um tilboð vinnuveitenda á
blaðamannafundi eftir fund
aðila i gær.
„Atvinnurekendur hafa velt út
meiri kauphækkunum en ráð var
fyrir gert og barma sér mjög yfir
því núna. Ríkisvaldið hefur hvorki
ráðið við fjárlagahallann eða haft
stjóm á peningamálunum til þess
að halda stöðugleika í efnahagslíf-
inu. Við höfum ítrekað sagt að
það stefni hér í óefni af þessum
Morgunblaðið/Bjami
Gunnar J. Friðriksson, formaður VSÍ, kemur tii fundarins í
húsnæði ASÍ seinnipartinn í gær.
Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ:
Aðems verkalýðs
hreyfingin hef-
ur staðið við sitt
Viljum reyna að tryggja núverandi kaupmátt, segir
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdasljóri VSI
sökum. Það hefur verið þannig í
gegnum árin að það er eins og
vekjaraklukkan hringi þegar
kaupið á að fara að hækka, en
enginn tekur eftir því þegar verð-
bólgan ríður yfir," sagði Asmund-
ur ennfremur.
Hann sagðist í stöðunni ekki
geta séð að að mikil hjálp væri í
þessum tillögum vinnuveitenda.
Sú blanda af krónutölu- og pró-
sentuhækkun, sem lögð væri til
1. október hefði sína kosti, en hún
hefði ekki átt upp á pallborðið hjá
atvinnurekendum á liðnum árum
og því fyndist honum þetta ekki
trúverðugt. í tillögum vinnuveit-
enda væri gert ráð fyrir að
krónutölureglan skerti aldurs-
hækkanir og bónusinn tæki mun
minni hækkunum en grunnlaunin.
Þá væri f þessum samningi gert
ráð fyrir að binda samninga út
næsta ár með þeim fyrirvörum
að það verði tekið á þeim fast-
launasamningum, sem ekki hafí
verið staðið við að gera á liðnu
samningstímabili. í sumar hefðu
vinnuveitendur hins vegar gengist
inn á að taka upp viðræður um
almenna endurskoðun á samning-
um, en ekki bara á þeim fast-
launasamningum sem viðræður
stóðu yfir um samkvæmt desemb-
ersamningunum. Ástæðan hefði
verið sú að misgengið væri það
alvarlegt að óhjákvæmilegt hefði
verið að skoða málið í víðara sam-
hengi. Samkvæmt tillögu atvinnu-
rekenda myndu t.a.m. samningar
fiskvinnslufólks verða fastir til
ársloka 1988. Engin kauptrygg-
ingarákvæði væru í samningnum
og hann gæti í fyrsta lagi verið
laus í september á næsta ári.
Viðbrögð Alþýðusam-
bandsins vonbrigði
„Viðbrögð Alþýðusambandsins
eru mér vonbrigði. Við lögðum
þetta fram í góðri trú og treystum
því að þeir væru til viðræðna um
að draga úr áhrifum þess að
hækkunin 1. október gengi upp
allan launastigann. Við álitum að
við kæmum vel til móts við þá
með því að fullar bætur kæmu á
lægstu launin," sagði Gunnar J.
Friðriksson, formaður VSÍ.
Hann sagði að miðað við við-
brögð ASÍ væri ólíklegt annað en
fullar verðbætur kæmu á öll laun
1. október. Reynslan sýndi að slík
hækkun færi út í verðlagið og
allar þjónustugreinar myndu ör-
ugglega hækka sitt verðlag í
kjölfarið. Það væri hins vegar
mismunandi hvað framleiðslu-
greinamar gætu hækkað og þetta
myndi til dæmis setja samkeppn-
isiðnað í talsverðan vanda, sem
og útflutningsgreinamar.
Aðspurður um þau orð Ás-
mundar að atvinnurekendur hefðu
brugðist eftir kjarasamningana,
eins og ríkisvaldið, sagði Gunnar:
„Við álítum að í aðdraganda og
í kjölfar kosninganna hafi margt
farið hér úr böndunum. Við höfum
treyst á mikið meiri stöðugleika
í efnahagslífinu og í ríkisfjármál-
um. Þegar ríkissjóður er rekinn
með miklum halla, ég tala nú
ekki um í svona góðæri, hlýtur
það að auka á þensluna. Það að
einstaka atvinnurekendur hafi
þurft að láta undan þrýstingi um
að auka kaupið umfram samninga
helgast af spennunni á vinnu-
markaði. Menn hafa séð sig
tilneydda að koma til móts við
kröfur einstakra launþega beinlín-
is til þess að halda fólkinu og
ekki dugað til, því öllum er kunn-
ugt um að það vantar fólk í fjölda
starfa."
Tillagan frumhlaup
„Þetta tilboð kom mér ákaflega
mikið á óvart. Ég bjóst við að
þeir vildu ræða um einhveija
skerðingu á vísitölubótum 1. októ-
ber. Þess í stað koma þeir með
þessa hrikalegu tillögu um kjara-
samninga fyrir næsta ár, sagði
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður VMSÍ í samtali við
Morgunblaðið.
„Hins vegar er tillaga þeirra
um krónutöluhækkun 1. október
ekki að öllu leyti forkastanleg, en
það eru launanefndir hjá opin-
berum starfsmönnum, háskóla-
mönnum og bankamönnum. Hvað
gera þær? A Alþýðusambandið að
afsala sér einhveijum verðbótum
og síðan neita hinir að afsala sér
því sama? í annan stað hefur laun-
amisrétti aukist gífurlega á þessu
ári vegna þessa að miklar yfir-
borganir hafa verið í einstökum
greinum vegna þenslunnar. í öðr-
um greinum hefur nær engin
yfirborgun verið. Hvaða trygg-
ingu getum við gefið fyrir því að
þetta nái bara til þeirra sem ekki
eru yfirborgaðir. Reynsla okkar á
þessu ári er sú að það sé engu
að treysta," sagði Guðmundur.
Hann sagði það að sínu viti
frumhlaup að koma með jafn viða-
miklar tillögur, sem fælu í sér
miklar efnislegar breytingar, til
viðræðu án nokkurs fyrirvara.
Aukning- kaupmáttar
meiri en þekkist
annars staðar
„Það sem við vinnuveitendur
gerðum í dag var að leggja fyrir
Alþýðusambandið mat okkar á því
hvað væri mögulegt. Við teljum
að með samstilltu átaki sé mögu-
legt á næsta ári að veija þann
mikla kaupmáttarauka, sem orðið
hefur í þessu þjóðfélagi á síðustu
tveimur árum. Sá kaupmáttarauki
er meiri en þekkist í nokkru öðru
þjóðlandi, sem við höfum heyrt
um bæði fyrr og síðar. Samkvæmt
upplýsingum Kjararannsóknar-
nefndar framan af þessu ári og
síðar samkvæmt launakönnunum
Vinnuveitendasambandsins og
Vinnumálasambandsins, er allt
sem bendir til þess að kaupmáttur
um þessar mundir sé 34% hærri
heldur en hann var í byijun árs
1986,“ sagði Þórarinn V. Þórar-
insson, framkvæmdastjóri VSÍ.
Hann sagði að ef vísitala yrði
keyrð yfír allt kaugjald 1. októ-
ber, þá væri ekki hægt að halda
áfram á sömu braut. Vinnuveit-
endur vildu nota það svigrúm sem
væri fyrir hendi til þess að bæta
stöðu lágtekjufólksins. Þeir vildu
tryggja kaupmátt allra og þó sérs-
taklega lágtekjufólksins.
„Við komum ekki með neina
úrslitakosti hingað. Við erum að
lýsa því hvemig möguleikamir
blasa við af okkar hálfu. Við ráð-
um ekki gangverki efnahagslífs-
ins. Þar koma margir þættir til.
Það emm ekki við sem fellum
gengið og það er ekki ríkisvaldið.
Gengið fellur af sjálfu sér, þegar
launa- og kostnaðarhækkanir hér
innanlands verða miklu meiri en
tekjumar erlendis gefa tilefni til.
Það er mat okkar að þetta sé eina
leiðin til þess að komast framhjá
því,“ sagði Þórarinn.
Hann sagðist gera sér fulla
grein fyrir því að ASÍ væri þann-
ig félagsskapur að það hefði ekki
umboð til að semja um kaup og
kjör nema stundum. „Það virðist
vera reynslan hér í dag að Al-
þýðusambandið hafi ekki umboð
til þess að leita að skynsamlegri
leið til þess að tryggja kaupmátt
alls almennings í landinu,“ sagði
Þórarinn.
Krefst skaðabóta
vegna alnæmis-
smits eftír blóðgjöf
KONA, sem smitaðist af alnæmi eftir blóðgjöf á sjúkrahúsi, hefur
leitað til lögmanns með það fyrir augum að krefjast skaðabóta af
ríkinu. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður konunnar, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að engin bótakrafa hefði enn verið lögð
fram enda gerði hann sér vonir um farsæla lausn þessa máls án þess
að til málaferla kæmi. Guðjón Magnússon, sem gegnir embætti land-
læknis í fjarveru Ólafs B. Ólafssonar, kvaðst ekki telja óeðlilegt að
konunni yrðu greiddar bætur vegna þessa máls, enda væru fordæmi
fyrir því erlendis.
Forsaga málsins er sú, að kon-
unni var gefið blóð á sjúkrahúsi
seinni hluta ársins 1984, eins og
áður hefur verið greint frá í fréttum.
Reglulegar skimprófanir á blóði í
Blóðbankanum hófust hins vegar
ekki fyrr en f október 1985. Að sögn
Ólafs Jenssonar, yfirlæknis í Blóð-
bankanum, voru þá rannsökuð sýni
nokkra mánuði aftur í tímann og í
sýni frá því í maí 1985 kom fram
jákvæð svörun með tilliti til alnæmis-
mótefna. Þetta sýni hafði ekki verið
notað í lækningaskyni, en þegar
saga blóðgjafans var könnuð kom í
ljós að hann hafði gefíð blóð árið
1983, og var það blóð notað í um-
ræddu tilviki með þeim afleiðingum
að konan smitaðist af alnæmisveir-
unni. Eftir því sem næst verður
komist mun konan ekki bera nein
einkenni sjúkdómsins.
Félagsmálaráðherra um húsnæðislán:
Breytingar aðeins
lauslega ræddar
„ÞAÐ ER ljóst að við þurfum að hækka vexti af húsnæðislánum ef
vaxtagreiðslur eiga að nýtast þeim sem þurfa á þeim að halda, það
er svokölluðum forgangshópum," sagði Jóhanna Sigurðardóttir, fé-
lagsmálaráðherra, þegar Morgunblaðið spurði hana álits á ummælum
Friðriks Sophussonar, iðnaðarráðherra, á fundi hjá iðnrekendum í
fyrradag, þess efnis að fyrir dyrum stæði veruleg hækkun vaxta af
húsnæðislánum. Sagði Jóhanna að til forgangshópa teldi hún þá sem
væru að kaupa íbúð í fyrsta sinn eða stækka við sig hóflega vegna
fjölgunar í fjölskyldu eða af svipuðum ástæðum.
Iðnaðarráðherra sagði þessa
vaxtahækkun verða afturvirka og
einnig ná til þeirra sem þegar hefðu
fengið lánsloforð. Vaxtahækkanim-
ar sagði hann væntanlega koma til
framkvæmda í tengslum við breyt-
ingar á lögum um Húsnæðisstofnun
ríkisins sem nú stæðu fyrir dyrum.
„Þetta mál hefur einungis verið
lauslega rætt í ríkisstjóminni og
engin ákvörðun eða afstaða verið
tekin til þess og ekki hefur það
heldur verið rætt í Húsnæðisstofn-
un. Það var ekki hugmyndin að
málið yrði kynnt með þessum hætti
og það er auðvitað alvarlegt mál
þegar ráðherra kynnir jafn við-
kvæmt mál og vaxtamálin með þeim
hætti sem hann gerði áður en þau
hafa fengið umfjöllun í ríkisstjóm
og afstaða verið tekin þar;“ sagði
Jóhanna Sigurðardóttir. „Eg legg
áherslu á að vextir muni ekki hækka
hjá forgangshópum þannig að um
breytilega vexti verður að ræða.
Þetta er mjög flókið mál í fram-
kvæmd og ljóst að ekki er hægt að
koma á jafnvægi í húsnæðiskerfinu
með því að hækka vexti af öllum
lánum. Sem dæmi má nefna að þeg-
ar verið er að skipta um eigendur
að íbúðum lenda niðurgreiðslur
vaxta af áhvílandi lánum oft hjá
þeim sem ekki þurfa á þeim að
halda og hafa jafnvel ekki lánsrétt-
indi í húsnæðiskerfinu.
Útreikningar sýna að innan ára-
tugar mun Byggingarsjóður hafa til
útlána um 60 milljarða króna af fé
frá lífeýrisjóðunum og innan tveggja
áratuga má áætla að 3A vaxtaniður-
greiðslna lendi hjá öðmm en þeim
sem þurfa nauðsynlega á þeim að
halda. “
Polanski á
kvikmynda-
hátíðina
ROMAN Polanski, kvikmynda-
leikstjóri, kemur á kvikmynda-
hátíð Listahátiðar í Reykjavík
í næstu viku. Polanski hefur
leikstýrt fjölmörgum þekktum
kvikmyndum og verða tvær
þeirra sýndar á hátiðinni,
„Knife in the water“ og
„Tess“.
blaoB
VBBKIPfyXMHNULÍF
bladC