Morgunblaðið - 17.09.1987, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1987
51
Kveðjuorð:
Hörður Guðmunds-
son Sauðárkróki
Fæddur 23. mars 1928
Dáinn 22. ágúst 1987
Það er hollt að hafa áct
heiðra drauma vökunætur,
séð með vinum sinum þrátt
sólskinsrönd um miðja mátt,
aukið degi æviþátt
aðrir þegar stóðu á fætur. (StG.St.)
Já hann var maður morgunsins.
Hversu oft hafði hann ekki „aukið
degi æviþátt" þegar aðrir risu á
fætur.
Svo var einnig 22. ágúst sl. Glað-
ur og reifur fór hann með sínum
góða veiðifélaga í sína síðustu veiði-
ferð, dagurinn lofaði líka góðu, tveir
fískar komnir á land þegar kallið
kom, snöggt og ótímabært. „Dauð-
inn missir aldrei fiska sína.“ Upp í
hugann koma ótal minningar frá
liðnum árum, hve oft höfðum við
ekki farið saman í veiði, stundum
Minning:
Hermann S. Aðal-
björnsson á Hóli
Fæddur 16. febrúar 1932
Dáinn 5. ágúst 1987
Það var einmuna veðurblíða þann
15. ágúst en við nutum hennar
ekki sem skyldi, það var sorg og
söknuður í hjörtum Tjömesinga er
þeir voru að fylgja Hermanni Snæ-
land Aðalsteinssyni bónda á Hóli
hans síðustu ferð. Hann mætti hinu
hinsta kalli að kvöldi þann 5. ágúst
eftir góðan þurrkdag. Þannig held
ég að Hermann hafí óskað sér að
mæta kallinu, á fullu í starfi við
búskapinn.
í 15 ár barðist Hermann við
þennan sjúkdóm, en ætíð var ró-
semin og æðruleysið ríkjandi,
góðlátleg kímni alltaf tiltæk hversu
illa sem horfði. Þá héldum við að
Hermann mundi hrista þetta allt
af sér, þessvegna kom fregnin sem
reiðarslag fyrir sveitina. Hermann
var aðeins 55 ára.
Ég kynntist Hermanni fyrst að
ráði þegar hann fékk mig til að
salta hrogn í Tungulendingu vorið
1962. Ég kunni ekkert til verka en
hann studdi mig drengilega á allan
þann hátt er hann gat. Vandamálin
er virtust svo stór urðu að engu er
Hermann var mættur með sína
hagfæru en föstu skapgerð, skopað-
ist góðlátlega að vandamálunum
eða þeim er mikluðu vandann fyrir
sér, ætíð tilbúinn til að fóma sínum
tíma í þágu útgerðarinnar. Útgerð
átti sterk ítök í Hermanni sem kom
hvað best fram þegar hann var
hættur útgerð, þá var áhuginn eftir
sem áður við að endurbæta aðstöð-
una eftir því sem kostur var á.
Hermann hóf búskap á Hóli 1954
ásamt eiginkonu sinni Guðbjörgu
Guðmundsdóttur. Hófu þau þegar
endurbætur á jörðinni, byggðu upp
öll útihús og síðast mjmdarlegt
íbúðarhús.
Það kom fljótt í ljós að þar fór
maður sem var annt um búpening
sinn, natni við skepnumar var ein-
stök, fóðraði ær svo sterkt að
sumum þótti nóg um en það kom
fljótt í Ijós að góðar afurðir komu
í kjölfarið. Það er minn gmnur að
fleiri en ég hafí tekið bóndann á
Hóli sér til fyrirmyndar hvað fóðrun
og umgengni snerti. Guðbjörg stóð
dyggilega við hlið bónda síns í blíðu
og stríðu, vom þau sérlega samhent
við skepnuhirðingu, Guðbjörg átti
áreiðanlega sinn þátt í að viðhalda
blómlegum bústofni á Hóli. Her-
mann var þátttakandi í öllu félags-
starfí í sveitinni (kvenfélaginu? —
einnig þar var hann sterkur bak-
hjallur) driffjöður í öllu, hvort
heldur var í leik eða veraldlegu
vafstri, hann lét sér ekkert mann-
legt óviðkomandi. Hermann var
oddviti Tjömeshrepps frá 1982.
Ég vonast til að þeir sem betur
kunna að stýra penna geri lífshlaupi
Hermanns ítarlegar skil. Þetta em
aðeins fátækleg kveðjuorð.
Ég sendi eiginkonu, fósturdóttur
og §ölskyldu hennar innilegar sam-
úðarkveðjur.
Blessuð sé minning þessa ágæta
drengs.
Jóhannes Jóhannesson
tveir saman en oftar þó með fjöl-
skyldunum, hann var veiðimaður
af lífí og sál, ávallt tilbúinn að lið-
sinna. Fyrir þessar stundir allar
þökkum við, þær em geymdar en
ekki gleymdar.
Hörður var fæddur 23. mars á
Svaðastöðum í Skagafirði.
Foreldrar hans vom hjónin Hólm-
fríður Jónasdóttir Jónassonar frá
Hofdölum og Guðmundur Jósafats-
son Guðmundssonar frá Krossanesi.
Hann fluttist til Sauðárkróks með
foreldmm sínum árið 1933 og átti
þar heima alla tíð. Hann giftist
ungur eftirleifandi konu sinn Sól-
borgu Valdimarsdóttur Konráðs-
sonar, og eignuðust þau tvær
dætur, Brynju sem gift er Kristni
Guðjónssyni og eiga þau tvo syni,
Hörð Guðjón og Vilhelm og Ingi-
björgu Hólmfííði, hennar dóttir er
Inga Sólborg.
Ungur hóf hann að stunda sjó-
inn, fór á vertíðar og síldveiðar á
sumrin. Héðan frá Sauðárkróki réri
hann á trillunni sinni um tíma, var
með bát í eigu Fiskiðjunnar og
reyndist allstaðar traustur sjómað-
ur. En eftir að hann kom í land
stundaði hann vélgæslu hjá Rarik
við Gönguskarðsárvirkjun nokkur
ár, en fer síðan að starfa við versl-
un lengst af hjá Kaupfélagi
Skagfírðinga en síðustu árin hjá
ÁTVR.
Nú að leiðarlokum þakka ég og
fjölskyldan öll allar ógleymanlegu
stundimar og biðjum þann sem yfír
öllu vakir að styrkja ástvini hans.
Far þú í firði, friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt. (V.Br.)
Stefán Guðmundsson og fjölskylda
Birtíng afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjóm blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek-
in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð
eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir
ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist
undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar af-
mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð
og með góðu línubili.
+
Kveðjuathöfn um móður okkar,
VILBORGU TORFADÓTTUR
frá Lambavatni,
sem lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 12. september, verður
í Hallgrímskirkju föstudaginn 18. september kl. 13.30. Jarðsett verö-
ur frá Saurbæjarkirkju á Rauðasandi fimmtudaginn 24. september
kl. 14.00.
Tiyggvl Eyjólfsson,
Valtýr Eyjólfsson,
Gunnar Eyjólfsson.
Ingvar Arnar-
son — Kveðjuorð
Fæddur 15. mai 1970
Dáinn 6. september 1987
Hann Ingvar er dáinn. Aðeins
17 ára gamall er hann hrifinn burt
frá bjartri framtíð sem gaf svo góð
loforð. Sunnudagsmorguninn 6.
september barst mér sú hörmulega
frétt. Upp í hugann streyma minn-
ingar um einstakan pilt sem átti
svo fáa sína líka. Kvöldið áður hitti
ég Ingvar hressan og kátan með
sitt töfrandi bros sem ósjaldan kom
mér í gott skap. En vegir guðs eru
órannsakanlegir og bilið milli lífs
og dauða oft ótrúlega stutt. Mig
langar til að þakka Ingvari fyrir
samfylgdina og trúi að honum hafí
verið ætlað stórt hlutverk þama
fyrir handan.
Með þessum fátæklegu orðum
kveð ég þennan einstaka pilt sem
skipaði svo sérstakan sess í hugum
okkar sem hann þekktum. Foreldr-
um hans, systkinum og öllum
ástvinum votta ég mína dýpstu
samúð. Björt minning um góðan
dreng mun lifa í huga mínum um
komandi framtíð.
Sigga Helga
Sunnudaginn 6. september barst
mér sú sorglega fregn að vinur
minn Ingvar hefði látið lífíð í
hörmulegu slysi snemma morguns.
Sú hugsun var sorgleg, aðeins
nokkrum tímum áður hafði ég hitt
hann svo hamingjusaman og glað-
an. Það gekk allt svo vel hjá honum.
Ég kynntist Ingvari fytT á þessu
ári. Ekki man ég eftir honum öðru-
vísi en brosandi og í svo góðu skapi
að hann smitaði út frá sér. Ef mað-
ur var niðurdreginn eða í slæmu
skapi var nóg að hitta hann. Ingvar
gat alltaf komið manni til að brosa.
Hugmyndaflug hans var svo ríkt
og skemmtilegt að það var aldrei
að vita hvað honum dytti næst í
hug. Þegar svona ungur og lífsglað-
ur drengur eins og hann er hrifínn
á brott þegar allt gengur svo vel,
hlýtur eitthvað mikið að búa undir.
Ég trúi því að fyrir handan sé hon-
um ætlað annað verkefni. Því miður
voru kynni mín af Ingvari stutt og
ég er þakklát fyrir að hafa fengið
tækifæri til að kynnast honum.
Hann var sú manngerð sem hægt
var að treysta á og tala við um
allt milli himins og jarðar.
Minningin um Ingvar mun ávallt
lifa í huga mínum. Þeir deyja ungir
sem guðimir elska. Ég votta for-
eldrum hans, systrum og vinum
mína dýpstu samúð í sorg þeirra.
Freydís
+
ÖGMUNDUR GUÐMUNDSSON
fyrrum bóndi,
Þórarinsstöðum,
Hrunamannahreppi,
verður jarösunginn frá Hrunakirkju laugardaginn 19. september
kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Jóhanna Guðmundsdóttir,
Steinunn Þorsteinsdóttir, Hreinn Gunnarsson.
+
Eiginmaður minn, sonur minn, faðir okkar og tengdafaöir,
JÓHANN ÁGÚST GUNNARSSON
rafvirkjameistari,
Huldulandi 6,
verður jarðsunginn föstudaginn 18. september kl. 13.30 frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík.
Ingibjörg Sigurðardóttir, Aðalheiður Jóhannsdóttir,
Aðalheiður Jóhannsdóttir,
Erla Björg Jóhannsdóttir, Karl Jón Karlsson,
Berglind Jóhannsdóttir.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
dóttur okkar, eiginkonu, móður og tengdamóður,
ERLU B. JÓNSDÓTTUR,
Neskaupstað.
Jón Davíðsson,
Hans Sigfússon,
Helgi Hansson,
Sigfús Hansson,
Gyða Þorleifsdóttir,
Davíð Hansson,
Jón Hansson,
Guðný R. Guðnadóttir.
+
Þökkum innilega hluttekningu og vináttu við andlát og útför
EDDU S. BJÖRNSDÓTTUR
læknls.
Árni Leifsson, Inga Hlldur Haraldsdóttir,
Björn Leifsson,
Helga Leifsdóttir, Francois Goulay,
Una Jóhannesdóttir,
Sigurður Björnsson, Guðný Kristjánsdóttir,
Jóhannes Björnsson, Margrót Ingvarsdóttir.
SAJT