Morgunblaðið - 17.09.1987, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1987
St)örnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Meyjan í vinnu
í dag ætla ég að fjalla um
Meyjarmerkið (23. ágúst—23.
september) í vinnu. Að vanda
er athygli lesenda vakin á því
að hver maður á sér nokkur
stjömumerki. Eftirfarandi er
því umflöllun um hið dæmi-
gerða Meyjarmerki og á ekki
við um allar Meyjar, þar sem
önnur merki geta sett strik í
reikninginn hjá hveijum og
einum.
Vinnukraftur
Óhætt er að segja að hin
dæmigerða Meyja sé góður
vinnukraftur. Hún er dugleg,
samviskusöm, vandvirk,
áreiðanleg og stundvís. Meyj-
an leggur metnað sinn í að
skila hveiju verki vel unnu,
enda er fullkomnunarþörf
meðal eiginleika hennar. Þó
þessi samviskusemi og vand-
virkni sé á mismunandi
stigum hjá einstökum persón-
um í merkinu, má segja að
hún sé gegnumgangandi.
Þær Meyjar fínnast sem
kasta til höndunum en ástæð-
an er þá yfirleitt sú að áhugi
er lítill og almenn uppgjöf,
skipbrot eða leiði farin að
setja strik í reikninginn.
Nákvœmnisverk
Hin dæmigerða Meyja nýtur
sín best í störfum sem kreij-
ast nákvæmni og eftirtektar-
semi. Meyjan hefur hæfileika
til að sundurgreina í smáein-
ingar, hefur auga fyrir tölum
og hefur t.d. ágætis bók-
haldshæfileika. (Að sjálf-
sögðu hafa ekki allar Meyjar
áhuga á bókhaldi þó skap-
gerðin gefi hæfileika á því
sviði). Prófarkalestur, mál-
fræði o.þ.h. er einnig á
hæfileikasviði merkisins.
Handlagni
Margar Meyjar eru handlagn-
ar. Góðir iðnaðarmenn og
rómaðar hannyrðakonur eru
því oft í Meyjarmerkinu.
Starfsvettvangur
Eins og gengur og gerist velja
Meyjar sér nokkur starfssvið.
Mín reynsla af áhugasviði
merkisins er eftirfarandi: í
fyrsta lagi má nefna tungu-
málasvið, málvísindi, kennslu
eða rannsóknir. í öðru lagi
eru Meyjar oft á verslunar-
og viðskiptasviðum. Starfa
sem viðskiptafræðingar, sölu-
menn eða skrifstofumenn. I
þriðja lagi má nefna þjón-
ustu- og líknarstörf, s.s.
framreiðsiu í veitingahúsum
eða störf i heilbrigðisgeiran-
um. í fjórða lagi eru síðan
iðnaðarmenn. Segja má að
hér birtist nokkur andlit
Merkúrs, stjómanda Meyj-
unnar Rökhugsun, miðlun,
þjónusta og handfimi.
Veikleiki
Veikleiki Meyjunnar í starfi
er sá hefðbundni að týna sér
í smáatriðum. Meyrjan gerir
sér vinnu oft erfiða, er of
lengi að dunda við smáatriði
og vandar sig of mikið. Hana
skortir einnig oft yfirsýn og
hæfileika til að gera greinar-
mun á aðal- og aukaatríðum.
Sjálfgagnrýni (og gagnrýni á
aðra) getur einnig dregið úr
henni.
Styrkur
Styrkur Meyjunnar er fólginn
í því að hún er jarðbundin og
raunsæ. Meyjan gengur sjald-
an of langt eða gerir
óraunsæjar áætlanir. Hún er
skynsöm og á jörðinni. Hugs-
un hennar er að öllu jöfnu
skörp og hún hefur hæfileika
til að kryfja mál til mergjar,
sundurgreina einstök atriði
og fiokka niður. Þessi atríði
gera að verkum að Meyjan
spjarar sig yfirleitt vel í vinnu
og þykir eftirsóknarverður
starfskraftur.
llFV&e&V/Z fiAVMDÓRtyNVHeS
ER-h VEÍZÐ) Fyí&e UTtol !&ÚÐ KDH-
VH0S.
VÖRÞOR KE/yHJR EKX/ AUG/f /J
SKUQGALEOA VERtJ S&H LjCÐlSr
EFTTRG4MS/W4l\l BSHI
■ ■ W///' I ////" I ■«T-rí . LJ-L ILZGJ y/
GRETTIR
2
__
TOMMI OG JENNI
m tTT*t?T mniii!!?!!?????!
!!!!!i!i‘!i!!!!i!!!!!!l!!i!l!!!!!!!!?!i1.!!ií!i!!i!!!H!!!i!?n:*TT
SMAFOLK
I THINK ILL A5K THAT
LITTLE REP HAIREP 6IRL
IF I CAN WALK HOME
FROM 5CH00L WITH HER..
I THINK l'LL 5U66E5T
THAT MAYBE15H0ULP
HOLP HER HANP...
I THINK I LL WALK
VERY 5L0W IN CA5E I
EUMP INTO A TREE..
Ég held ég bjóði þessari Ég held að ég segi eitthvað Ég held að ég leggi til að
litlu rauðhærðu að fylgja um kuldann ...
henni heim úr skólan-
ég ætti kannski að halda í
hendina á henni...
Ég held að ég gangi mjög
hægt ef ég skyldi rekast á
tré...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
ísland græddi 7 punkta í
fyrsta spili í leiknum við Ung-
veija á EM fyrir að spila
nákvæmarí vöm en mótheijam-
ir
Norður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ 92
♦ K108643
♦ Á
♦ G853
Vestur Austur
♦ 43 ...... ♦ÁKGIO
♦ ÁDG92 V7
♦ K95 ♦ 7632
♦ 76 +ÁKD9
Suður
♦ D8765
♦ 5
♦ DG1084
♦ 104
Sagnir gengu eins á báðum
borðum. Norður vakti á tveimur
veikum hjörtum, austur doblaði
til úttektar, en vestur breytti því
að sjálfsögðu í sekt með passi.
Jón Baldursson og Sigurður
Sverrisson vom með spil AV á
öðm borðinu. Sigurður í austur
spilaði út laufkóng. Hann tók
næst spaðakóng, laufás og spil-
aði trompi.
Jón drap á hjartaás og spilaði
laufi. Sigurður átti þar tvo slagi,
tók svo spaðaás og losaði sig út
á tígli.
Sagnhafi hefði nú getað
sloppið 4 niður með því að spila
smáu hjarta, því þá hefði Jón
aðeins fengið þijá trompslagi.
En hann lagði niður hjartakóng-
inn og Jón hlaut að fá þijá slagi
á DG9 í trompinu. 1.100 til ís-
lands.
Vömin gekk eins fyrir sig á
hinu borðinu fyrstu þijá slagina.
En þegar austur spilaði trompi
lét vestur drottninguna. Það var
feitur biti fyrir kónginn og eftir
það gat vestur aðeins fengið
þijá slagi á tromp. 800 til AV
og 7 IMPa gróði.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á meistaramóti Leningrad-
borgar í ár kom þessi staða upp
í skák þeirra Trajto og alþjóðlega
meistarans Zeitlin, sem hafði
svart og átti leik.
Svartur hafði fómað skiptamun
fyrir sóknarfæri og nú lýkur hann
skákinni með laglegri fléttu: 26.
- Bxg2+!, 27. Kxg2 - Rh4+
og hvítur gafst upp, því hann er
óveijandi mát eftir bæði 28. Kf2
— Df6+ og 28. Khl - Dd5+!
Skákmeistari Leningrad varð Ep-
ishin, ungur meistari, sem hlaut
llVs v. af 16 mögulegum. Ermol-
inski varð annar með IOV2 v., en
hinn þekkti stórmeistari, Mark
Taimanov, varð f 4.-5. sæti með
9V2 v.