Morgunblaðið - 17.09.1987, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1987
23
Ekki mátti á milli sjá hvort var vinsælla á sjónvarpssskerminum,
Oliver North eða heimsókn Bolshoi-balletflokksins.
undra þar sem fá ballettfélög hafa
náð jafnlangt og ABT.
Sýningarskrá bar mikinn keim
af þeim breytingum er orðið hafa
síðan Mikhael Baryshnikov tók við
stjóm félagsins 1980. Paquita var
fyrst á dagskrá, sviðsett af fyrrver-
andi samstarfsmanni Baryshnikovs
hjá Kirov-ballettinum, Natalia Mak-
arova. Aðaldansarar vora Marianna
Tcherkassy (hefur verið með félag-
inu frá 1970 og aðaldansari frá
1976) og Richardo Bustamante.
Alan Kriegsman aðalgagnrýnandi
Washington Post ritar að sýningu
lokinni að þrátt fyrir að Barys-
hnikov standi við stjómvölinn líkist
ABT ekki fremur Kirov en Hvíta
húsið Kremlarhöll. Hann talar um
amerískan keim sýningar en af-
burðadans ballettfélaga.
Sjálfsagt hefur sólin þegar verið
sest er næsta atriði byijaði en það
var einmitt Sólsetur með róm-
antísku og sorglegu ívafí stríðsár-
anna. Sólsetur og síðasta atriði
kvöldsins, Fiðlukonsert Stravinsky,
era nútímaballettar samdir með hóp
af dönsuram í huga og 17. júní
síðastliðinn vora einmitt 15 ár síðan
New York City Ballet framsýndi
Fiðlukonsertinn.
Marianna Tcherkassky sýndi af-
burðadans í Paquita.
Robert Hill, John Summers, Jo-
han Renvall (allir sólóistar hjá
ABT), Dana Stackpole og Kathleen
Moore sýna öll mikil tilþrif í þessu
lokaatriði sýningarinnar. Þegar
leikhúsgestir höfðu fengið tækifæri
til að súpa á kampavínsglasi og
horfa á snekkjur höfuðborgarbúa
liðast eftir Potomac-ánni af svölum
minnisvarðans, var loks komið að
því sem flestir höfðu beðið spenntir
eftir. Enginn varð vonsvikinn að sjá
glæsilegt par, Cheryl Yeager (fyrr-
verandi nemandi Maryland-ballett-
skólans, sem áður hefur verið fjallað
um) og Julio Bocca líða eftir sviðinu
í Sylvia, Pas de Deux. Julio Bocca,
sem uppranalega kemur frá Buenos
Aires varð einn af aðaldönsuram
Julio Bocca, einn efnilegasti
dansari í ABT.
ABT 1986. Cheiyl Yeager hefur
dansað sem sólóisti síðan 1981.
Það fer ekki fram hjá neinum,
sem horfir á Bocca svífa um loftið
eins og fugl, að hér er enginn með-
aldansari á ferð. Kriegsman notar
orðið Wunderkind um Bocca og
segir að það verði spennandi að
fylgjast nánar með ferli hans á
næstunni sem óhætt er að taka
undir. Cheryl Yeager tókst að taka
meiriháttar áhættur og sýna hversu
miklum hæfíleikum hún er gædd,
þökk sé öraggum stuðningi Bocca.
Rétt eftir að sýningum ABT-
ballettflokksins í Kennedy-menn-
ingarmiðstöðinni lauk, lagði
Bolshoi-flokkurinn höfuðborgina að
fótum sér. A tímabili var erfítt að
Úr „The leaves are fading“.
gera sér grein fyrir hvort væri vin-
sælla á sjónvarpsskerminum,
framburður Olivers North eða heim-
sókn þessa merkilega flokks.
Undirritaðri gafst því miður ekki
tækifæri til að sjá Bolshoi að þessu
sinni en vonandi kemur annað tæki-
færi og því má bæta við að lokum,
að áhugamenn um listdans ýmiss
konar, sem era á ferð í höfuðborg-
inni mega engan veginn láta hjá
líða að heimsækja Kennedy-minnis-
varðann, að minnsta kosti lofar
efnisskrá næsta árs góðu.
Engin skip á
loðnuveiðum
ENN hafa engin loðnuskip haldið
til veiða. Loðnan heldur sig nú
vestan miðlínu milli Grænlands og
íslands og hafa færeysk loðnuskip
verið þar að veiðum.
Lágmarksverð á loðnu var fyrir
skömmu ákveðið 1.600 krónur á
hveija lest miðað við ákveðið inni-
hald fítu og þurrefnis. Krossanes-
verksmiðjan við Eyjafjörð hefur hins
vegar boðið 3.000 krónur fyrir lestina
í fyrsta farminum, sem þangað berst
og síðan stiglækkandi verð niður í
tæpar 2.000 krónur út þennan mán-
uð. Þrátt fyrir þetta hafa engin skip
haldið til veiða og veldur flarlægðin
á miðin þar nokkra.
Aukafjár-
veiting til
Viðeyjarstofu
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
21 milljón króna aukafjárveit-
ingu til endurbyggingar á
Viðeyjarstofu, en þegar hafa
verið veittar 20 milljónir til fram-
kvæmdanna á þessu ári.
Að sögn Davíðs Oddssonar
borgrastjóra er fjárveitingin ætluð
til Viðeyjarstofu, nýbyggingar
norðan við stofnuna og í fomleifa-
gröft. Til annarra framkvæmda,
hafnargerðar, rafmagns- og vatns-
lagna er veitt sérstaklega.
Tilboð í Suður-
landsveg um
Mýrdalssand:
Lægsta til-
boðið 59,4%
OPNUÐ hafa verið tUboð í 23,6
km vegarkafla á Suðurlandsvegi
um Mýrdalssand, fyllingu og
burðarlög. Ákveðið var að taka
lægsta tilboðinu sem var frá
Páli Siguijónssyni, Galtalæk, og
hljóðaði upp á 6,934,110 krónur
eða 59,4% af kostnaðaráætlun.
Alls bárast átján tilboð í verkið.
Það hæsta var 32,859,700 en það
lægsta 6,934,110 krónur eins og
áður sagði. Kostnaðaráætlun var
11,675,200 krónur. Verkinu skal
lokið 1. júlí 1988.
ŒIKNAÐU MEÐ STÍL!
í ítölsku Tecnostil teikniboröunum oc;
-vélunum felst snilldarhönnun sem kémur
íslenskum teiknurum - nemum jafnt sen i
atvinnumönnum - til góða. Þar sameinast
nákvæmni, fjölhæfni og þægindi í notkun
um aö gera þér sem auðveldast að teikna
sem best. Með Tecnostil gengurðu að
gæðunum vísum -verðið er óvænt
ánægja!
Magnum80x140cm.
Plata hallanleg í 85°
Hækkun/laekkun
Exact200teiknivél.
Kr. 44.695,-
Student 1
Hallanleg plata í 85°
Hækkun/lækkun
Exact/Full TG/b teiknivél
Kr. 32.508,-
Kit 75x105 cm.
Hallanleg plata
Léttogmeöfærilegt
TS/1 teiknivél
Kr. 18.437,-
0mni80x140cm.
Hallanleg plata 135°
Hækkun/lækkun
Kr. 11.258,-
ÍTÖLSK
HÖNNUN FYRIR
ÍSLENSKA HÖNNUÐI
FAST EINGÖNGU í
v? RITFANGAVERSLUN
MÁLS OG
MENNINGAR
</
Mál IMIog menning
Ritföng. Síðumúla 7-9. Sími 68 9519.
!
í
:
'
e