Morgunblaðið - 17.09.1987, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1987
V . ' ■
&££'
■s 1.. 'V . ttr'. kt ^S'-í "í'--,
Heimsókn páfa til Bandaríkjanna:
Jafnvel Hollywoodsljörn-
ur falla í skugga páfa
Los Angeles, Reuter.
ÞRÁTT fyrir að færri komi tíl að
hylla Jóhannes Pál páfa II nú en
gerðu þegar hann heimsótti
Bandaríkin skömmu eftir að hann
varð páfi 1979, má segja að tíl-
Reuter
Meira en 100.000 manns komu
til að hlýða á páfa á Ólympíuleik-
vanginum í Los Angeles.
Jóhannes Páll páfi II hlýðir á
gítarleik Tony Mendelez, sem er
handalaus vegna þess að móðir
hans neytti lyfsins Thalidomids
meðan hún gekk með hann.
standið og skrautsýningarnar bætí
upp mannfæðina ef kalla má tug-
þúsundirnar svo. Út yfir allt tók
glysið er páfi kom tíl Hollywood,
„fæðingarborgar kvikmynda-
stjarnanna" sem nú hefur upp-
götvað nýja afar hæfileikaríka
stjörnu.
í Bandaríkjaför páfa, sem nú hefur
staðið í sjö daga, er beitt öllum brögð-
um nútímafjölmiðlunar til að fá sem
flesta til að fylgjast með hans heilag-
leika á sjónvarpsskjánum. Þykir
sumum að nóg sé komið af því góða
og spyija hvort það sæmi hans heilag-
leika að taka þátt í skrautsýningum
sem þessum.
í Hollywood ávarpaði Jóhannes
Páll páfi 8.000 ungmenni á íþrótta-
leikvangi. Var samkomunni sjón-
varpað til þriggja stórborga beint í
gegnum gervihnött undir yfirskrift-
Suður-Kórea:
Síðustu hindntn úr vegi
í stjórnarskrárviðræðum
Seoul, Reuter.
ÞINGMENN í Suður-Kóreu geta
nú greitt atkvæði um nýja stjóm-
arskrá eftir að tveir stærstu
stjóramálaflokkar landsins kom-
ust að samkomulagi um tilhögun
kosningadaga og ruddu þar með
úr vegi síðustu hindrun þess að
þingið geti greitt atkvæði um
stjómarskráruppkastið.
Uppkast að nýrri stjómarskrá
fyrir Suður-Kóreu átti að koma til
atkvaeðagreiðslu I þinginu í síðustu
viku en þá kom babb í bátinn er
tveir stærstu flokkar landsins gátu
ekki komið sér saman um hvenær
þingkosningar skyldu fara fram.
Þetta ósætti flokkanna er nú úr
sögunni eftir að þeir samþykktu að
þingkosningar verði haldnar í apríl
á næsta ári ef forsetaframbjóðandi
stjómarandstöðunnar vinnur for-
setakosningamar sem fram fara í
febrúar. Kosningar fara hins vegar
fram í desember verði maður stjóm-
arflokkanna, Roh Tae-woo, sigur-
vegari í forsetakosningunum í
febrúar. Roh Tae-woo er sá forseta-
fi-ambjóðandi sem núverandi forseti
Suður-Kóreu Chun Doo Hwan hefur
talið sjálfkjörinn eftirmann sinn.
Tillögumar að nýju stjómar-
skránni fela m.a. í sér að kosið
verður til forseta í fijálsum kosn-
ingum í fyrsta skipti í 16 ár. Því
er mikilvægt að þingið samþykki
uppkastið þannig að hægt sé að
ganga til forsetakosninga á réttum
tíma en úrslit forsetakosninganna
skera hinsvegar úr um hvenær
gengið verður til þingkosninga.
inni „Papal Spacebridge ’87“ eða
„Bifröst páfa ’87“ á íslensku. Er
páfi gekk inn á rautt plussklætt svið-
ið söng mannsöfnuðurinn „He’s Got
the Whole World in His Hand“ og
vaggaði í takt við lagið. — Rétt eins
og hér væri á ferðinni Madonna
(rokksöngkonan) eða önnur viðlíka
stjama. Eftir að hafa ávarpað samko-
muna settist páfi og svaraði spum-
ingum ungmenna sem sérstaklega
höfðu verið valin til þess að ræða við
hann í útsendingunni. Var páfi mjög
persónulegur og minntist uppvaxtar-
ára sinna í Póllandi og sagði að köllun
hans hefði orðið honum til bjargar í
hörmungum seinni heimsstyijaldar-
innar. Því næst lék handalaus ungur
maður á gítar með tánum og viknuðu
viðstaddir er páfi gekk af sviðinu og
blessaði unga manninn að leik lokn-
um.
Páfa hefur tekist með framgöngu
sinni í fjölmiðlum og á stórsamkom-
um þar vestra að hrífa með sér fólk
á öllum aldri og úr öllum trúflokkum.
Virðist svo sem dæmið hafi gengið
upp hjá þeim sem vildu að páfi næði
til fjöldans með nýjum hætti. 1 breska
blaðinu The Times er komist svo að
orði að hann hafi til að bera „raf-
magnaðan persónuleika" og sé
engum líkur. Þrátt fyrir að Banda-
ríkjamönnum hafi þótt páfi harðorður
í sinn garð á stundum það sem af
er heimsókninni hafi hann svo sann-
arlega hitt í mark. Hann hafi fallið
fullkomlega í þá skrautumgjörð sem
Bandaríkjamenn einir geti látið sér
detta í hug að setja um hans heilag-
leika páfann.
Filippseyjar:
Aquino skipar
nýja ráðherra
Manila, Reuter.
CORAZON Aquino, forsetí Filippseyja, skipaði í gær nýjan fjármála-
ráðherra og er búist við frekari breytingum á stjórninni á næstu
dögum. Salvador Laurel, varaforseti, sem einnig var utanrikisráð-
herra, sagði í gær af sér síðarnefnda embættinu og ætlar ekki að sitja
í stjórainni.
Laurel, sem ætlar að gegna vara-
forsetaembættinu áfram, fór hörð-
um orðum um Aquino þegar hann
sagði af sér utanríkisráðherraemb-
ættinu. Sakaði hann hana um að
sitja með hendur í skauti og hafast
ekki að þótt kommúnistar færu með
báli og brandi um ýmis héruð lands-
ins. „Astandinu má líkja við hús, sem
er að brenna en enginn til að slökkva
eldinn," sagði Laurel. Aquino hefur
vísað þessum orðum á bug og til að
blíðka herinn skipaði hún í gær fyrr-
um varaforseta herráðsins yfirmann
tollgæslunnar. Hefur það embætti
löngum þótt bjóða heim spillingu og
misnotkun.
Nýi fjármálaráðherrann er Vic-
ente Jayme, áður ráðherra opinberra
framkvæmda, og við utanríkisráð-
herraembættinu tók Manuel Yan,
aðstoðarutanríkisráðherra.
f sraelsher í Líbanon:
Þrír hermenn felldir
Tel Aviv, Jerúsalem, Reuter.
SKÆRULIÐAR drápu þijá ísra-
elska hermenn og særðu fjóra á
þriðjudagskvöld í verstu átökum
sem hafa átt sér stað i Suður-
Líbanon síðan ísraelar drógu sig
tíl baka á þessu svæði árið 1985.
ísraelskar hersveitir réðu hlíðum
Hermon-flalls norðaustur af ísraelska
landamærabænum Metulla þegar
skæruliðar „líbönsku þjóðarand-
spymunnar" hófu skothríð af stuttu
færi. ísraelsmenn svöruðu með
öflugri skothríð og sendu hersveitir
á vettvang með fulltingi þyrlusveitar.
ísraelar héldu uppi leit að skæruliðum
í sex klukkustundir, að sögn ísraelska
útvarpsins. Leitarflokkamir náðu ein-
um særðum skæruliða sem sagðist
tilheyra „líbanska þjóðarhemum"
sem er vinnstrisinnaður minnihluta-
hópur í Líbanon. Þetta er í fyrsta
skipti sem samtökin gera árás á ísra-
e! svo vitað sé.
Heræfingar NATO á norðurslóðum:
Mest áhersla lögð á að
verja fremstu víglínu
NÚ STANDA yfir flotaæfingar Atlantshafsbandalagsins á Norður-
Atlanshafi og heita þær „Ocean Safari ’87“. Æfingamar eru
hálfnaðar og hefur áhersla verið lögð á aðgerðir gegn tundurdufl-
um á Ermarsundi auk hefðbundinna aðgerða á Atlantshafi.
Tilgangur æfinganna er að sýna fram á herstyrk NATO á Atlants-
hafi, auk þess að auka viðbragðsflýtí flotanna. Mest áhersla er
lögð á að stöðva hugsanlega framsókn Rauða flotans hið fyrsta,
helst út af Norður-Noregi, en í versta falli í GIUK-hliðinu svo-
nefnda, sem liggur miUi Grænlands, íslands og Bretlands. Er það
gert í því skyni að veija skipalestir yfir Atlantshaf, þvi taUð er
að úrsUt hugsanlegra styijaldarátaka í Evrópu muni ráðast af
birgðaflutningum yfir hafið.
Ocean Safari hófst fyrir rúmum
tveimur vikum þegar bandarísk
flotadeild sigldi yfir hafíð ásamt
kanadískri flotasveit til Noregs-
hafs. Þar mættu skipin ímynduðum
óvini, sem kom frá Kóla-skaga.
Að sögn Roy Breivik, flotaforingja
í norska hemum, er þetta í sam-
ræmi við þá stefnu Atlantshafs-
bandalagsins að veijast ágangi
Rauða flotans eins norðarlega og
unnt er og hefur mikilvægi þessa
síst minnkað í ljósi hinnar gífurlegu
hemaðaruppbyggingar Sovét-
manna á norðurhöfum.
Þá vom nokkrar skipalestir
flutningaskipa feijaðar yfir hafið í
fylgd annarra flotadeilda NATO,
en bresk, frönsk og hollensk her-
skip æfðu hemað gegn kafbátum.
Á fréttamannafundi í Briissel fyrir
æfingamar sagði Breivik að einn
helsti tilgangur æfinganna væri að
láta reyna á mátt NATO til þess
NATIS
Bresk Harrier-þota af skipi hennar hátignar Illustrious fylgir
hér sovéskri eftírlitsvél af gerðinni Tu-16, en NATO kallar Bad-
ger. Á striðstimum yrði hún notuð sem sprengiflugvél og getur
hún borið jafnt, efna- og kjarnorkuvopn sem hefðbundnar
sprengjur. Hún hefur mikið flugþol og getur t.a.m. flogið báðar
leiðir frá Kóla-skaga til íslands án eldsneytistöku á leiðinni.
að veija flutningaleiðina yfir Atl-
antshaf á hættutíma.
Áhugi Sovétmanna
Æfingamar hafa vakið talsverð-
an áhuga Sovétmanna eins og
vænta mátti og hafa NATO-menn
þurft að stugga við nokkrum flug-
vélum á þeirra vegum sem og
nokkmm grunsamlegum fiskveiði-
skipum, sem hafa lítið sinnt
togveiðum en hafa hins vegar ótrú-
lega fullkominn Qarskiptabúnað,
sérstakiega hvað varðar móttöku.
Breivik segir þetta ekki óvanalegt:
„Varsjárbandalagið hefur fylgst
grannt með öllum meiriháttar
flotaæfingum NATO. Þessar sýn-
ingar á flotamætti bandalagsins
og samvinnu em Sovétmönnum og
bandamönnum þeirra þörf áminn-
ing um styrk og samvinnumátt
NATO.“ Breivik gekk lengra og
sagði að þessi þáttur væri enn
mikilvægari nú þegar litið væri til
afvopnunarviðræðnanna í Genf.
„Náist sáttmáli um að fjarlægja
allar skamm- og meðaldrægar
kjamorkuflaugar í Evrópu verður
fælingarmáttur hefðbundins
vopnabúnaðar, eins og notaður var
í „Ocean Safari ’87“, enn mikilvæg-
ari.“
Spánverjar taka
þátt í æfingnnum
Meira en 150 skip og 250 flug-
vélar ffá Bandaríkjunum, Belgíu,
Bretlandi, Frakklandi, Hollandi,
Ítalíu, Kanada, Noregi, Portúgal,
Spáni og Vestur-Þýskalandi taka
þátt í „Ocean Safari ’87“. Þetta er
í fyrsta sinn, sem Spánveijar taka
þátt í flotaæfmgum NATO, en her-
afli þeirra er ekki undir sameigin-
legri herstjóm NATO frekar en sá
franski. Þeir líkt og Frakkar leggja
þó áherslu á að herir þeirra séu
þjálfaðir í samvinnu við heri hinna
NATO-þjóðanna, a.m.k á svæðum,
sem em öryggishagsmunum
ríkjanna mikilvæg.
111 ........