Morgunblaðið - 17.09.1987, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1987
31
Reuter
Nauðlendingá hraðbraut
Lítíl einshreyfils flugvél hefur sig á loft af hrað- eldsneyti hennar þraut. Eftir að hafa fengið
braut í Hollandi á mánudagsmorgun. Flugmaður áfyllingu lokaði lögregla hraðbrautinni svo flug-
vélarinnar varð að nauðlenda á veginum þegar maðurinn gæti haldið ferð sinni áfram.
Fm 17. seBtember
NÝTT 624040 simanumer
NÝn húsnæði Suðurgata 7
VERTU VELKOMIN
FERÐASKRIFSTOFAN
simi 624040
Suðurgata 7
Allra
val
Færeyjar:
Moonist-
ar valda
fjaðrafoki
Færeyjar, frá Snorra Halldórssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
DAGINN fyrir kosningamar í
Færeyjum þann 8. september
kom fyrrverandi meðlimur
Moon-samtakanna, Edward
Mignot, fram í danska sjónvarp-
inu og sagði annan hvorn tveggja
færeyskra þingmanna, Ola
Breckmann eða Pauli Ellefsen,
sem ekki hlaut endurkjör, til-
heyra samtökunum. Þingmenn-
irnir tveir hafa neitað öllum
slíkum tengslum en getur hafa
verið að þvi leiddar að einbver
hafi viljað koma höggi á þing-
mennina með því að senda
Mignot í sjónvarpið.
í Dagblaðinu, málgagni Breck-
manns var á mánudag fjallað á
forsíðu um yfírlýsingar Moonistans
fyrrverandi. Margt virðist benda til
að honum hafí verið borgað fyrir
að bendla Breckmann og Ellefsen
við sértrúarhópinn og það daginn
fyrir kosningamar til Þjóðþingsins.
Danskur blaðamaður hefur bent
á hugsanlega ástæðu sem kann að
liggja að baki þessa. Hann sagði
að foreldrar unglinga í Moon-söfn-
uðinum hefðu haft samband við
þingmennina til að fá þá í lið með
sér við að fá böm sín laus. Því
kynni söfnuðurinn að vilja ná sér
niðri á Breckmann og Ellefsen með
þessum sérstæða hætti. Þingmenn-
imir tveir segja á hinn bóginn að
þótt þeir hafí vissulega lesið um
söfnuð þennan hafi foreldrar ekki
leitað til þeirra.
Fram hefur komið að Moon-
samtökin reyna nú í auknum mæli
að öðlast pólitísk áhrif í Vestur-
Evrópu og þá einkum á hægri væng
stjómmálanna. Þetta hefur rennt
stoðum undir getgátur manna um
Breckmann sem vænlegt fómar-
lamb þeirra, en hann hefur sagst
vera 100 prósent andkommúnískur.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
ÞEIR STÆRSTU
Sanítas
stöðug sókri
■-