Morgunblaðið - 17.09.1987, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1987
43
þó misskilja þessi orð á þann veg
að verið sé að leggja til að hætta
alfarið víðavangshlaupi fyrir
íslenska hesta. Hér er aðeins bent
á að ekki eigi að neyða menn með
góða sýningarhesta í þessa grein.
Önnur höndin á
tölthornið
Hápunktur þessara móta er og
hefur alltaf verið töltkeppnin. Það
þykir eftirsótt að komast í úrslit
töltkeppninnar og toppurinn er að
vinna hana. En töltkeppnin er einn-
ig spennandi fyrir þær sakir að hún
er síðasta greinin sem kemur inn í
stigakeppnina. Að lokinni tölt-
keppni fara línur að skýrast nokkuð
en eins og áður var getið á skeiðið
eftir að koma meira við sögu.
íslendingamir biðu spenntir eftir
Sigurbimi því hann átti að sjá um
að vinna tölthomið og nú var lag.
Ekki brást hann vonum manna í
forkeppninni því hann virtist nokk-
uð ömggur með fyrsta sætið ef
marka má stigin. Það sem kom
kannski öllu meira á óvart var
frammistaða Hafliða en hann náði
fimmta sætinu og var hann þar
með kominn í A-úrslitin. Sævar
hafnaði í áttunda sæti með 80 stig,
Sigurður Sæmundsson í sextánda
sæti með 73,20 stig og margir
fylgdust af athygli með Spóa og
Reyni. Þótt ekki fari mikið frægðar-
orð af Spóa þá skipti miklu máli
að vel tækist til og Reynir fengi sem
flest stig í safnið því hann stóð í
ströngu í stigakeppninni. Reynir og
Els van der Taas voru hnífjöfn í
töltinu með 64,2 stig en aðalkeppi-
nautur þeirra Jóhannes Hoyos hlaut
71,6 stig. Var hann þar með kom-
inn með forystuna 237,54 stig en
Reynir var með 231,19 stig og sú
hollenska með 229,69. Nú var að
duga eða drepast hjá Reyni í skeið-
inu og ljóst að hann þurfti að ná
fullu húsi út úr skeiðinu sem er 120
stig en til þess þurfti hann að ná
22,0 sek. eða innan við það. Má
af því sjá að mikil pressa hefur
verið á Reyni á þessum tíma því
hann hafði lofað þremur titlum og
það opinberlega.
Þjóðverjar með tvöfalt
í „kúrnum“
í forkeppni hlýðnikeppninnar var
keppt í svokölluðuðum B-dressur
en í úrslitum var keppt í Kiir. Þar
þarf keppandinn að raða æfíngum
sjálfur saman og ræður hann hversu
þungar æfíngamar eru. Undir er
leikin tónlist sem á að falla vel að
útfærslu æfínganna. Eins og áður
segir komst Hafliði í úrslitin en
hann hafði ekki átt von á því og
var þar af leiðandi ekki með tilbúið
prógramm og því síður að hann
hafí valið sér tónlist. Þurfti nú snör
handtök bæði við röðun æfínga og
eins með útvegun tónlistar. Fengnir
voru nokkrir snjallir söngvarar úr
hópi íslendinganna og sungu þeir
„Ríðum, ríðum" sem nýtur feyki-
legra vinsælda meðal útlendinga.
Vakti þetta tiltæki mikla kátínu
meðal áhorfenda og hefði Hafliði
vafalaust sigrað ef dæmt hefði ver-
ið eftir undirtektum. En ekki var
það svo og lyktir mála urðu þær
að Þjóðveijar voru í tveimur efstu
sætunum. Helmut Lange sigraði,
Karly Zingsheim varð annar og
fyrrverandi Evrópumeistari, Lone
Jensen frá Danmörku, varð þriðja.
. . . og tvöfalt hjá
íslendingum í
gæðingaskeiði
Síðast á dagskrá laugardagsins
var gæðingaskeiðið og þar stóðu
þeir sig með miklum ágætum Erling
og Reynir sem varð í fyrsta sæti
og Erling í öðru. Ekki breytti þessi
árangur neinu fyrir Reyni í stiga-
keppninni þar sem hann hafði hlotið
fleiri stig úr 250 metrunum, en það
er betri árangur úr skeiðgreinunum
sem kemur til stigasöfnunarinnar.
Það voru því ánægðir íslendingar
sem gengu til náða á laugardags-
kvöldið, því staðan var slík að ekki
var annað hægt en að vera glaður.
Þegar hér var komið áttu íslending-
ar möguleika á að vinna sex
HM-titla ef allt gengi upp á sunnu-
deginum.
Erling og Þrymur stóðu sig með mikilli prýði í gæðingaskeiðinu og
voru þar öruggir í öðru sætinu.
Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson
íslendingar sem sóttu mótið voru á ýmsum aldri. Einhverjir yfir
sjötugt en yngst allra hefur án efa verið dóttir Sigurðar Sæmunds-
sonar og Lisbetar konu hans, hún Elín Hrönn, aðeins fimm mánaða
gömul. Hér situr hún hjá foreldrum sinum og stóru systur, henni
Katrínu. Ekki er ráð nema i tima sé tekið.
TVÍEFLD ÞJÓNUSTA
SIDAL OG SINDRA STALS
Á liönu ári geröist Sindra Stál hf. umboðsaöili Sidal A/S
í Danmörku og Belgíu. Þetta samstarf eykur enn styrk
okkar og fjölbreytni í álbirgöahaldi.
Öflug og skjót afgreiösla á sérpöntunum vegna ýmissa
verkefna.
Ál er okkar mál.
SINDRA^SIÁLHF
BORGARTÚNI31, SÍMAR 27222 & 21684