Morgunblaðið - 17.09.1987, Blaðsíða 64
Framtíð
ER VIÐ SKEIFUNA
aaaa
$SUZUKI
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
ASI hafnar tillögri VSI um kjarasamning fyrir næsta ár:
Krónutöluhækkiui 1. okt-
óber kemur til greina
- segir Guðmundur J. Guðmundsson, formaður VMSÍ
ALÞÝÐU S AMB AND íslands
hafnaði í gær tillögu Vinnuveit-
endasambands íslands og Vinnu-
málasambands samvinnufélag-
anna að kjarasamningi fyrir
næsta ár og Ásmundur Stefáns-
son, forseti ASÍ kvað hana þannig
úr garði gerða að hún gæti ekki
orðið grundvöllur að viðræðum
aðila. Hann sagði Alþýðusam-
bandið ekki hafa umboð frá
landssamböndum ASÍ til við-
ræðna um kjarasamning og tilboð
VSÍ og VMS gæfi ekki ástæðu til
þess að leita eftir slíku umboði.
Hann byggist við að viðræður um
kjarasamning fyrir næsta ár yrðu
i höndum landssambanda ASÍ.
Hins vegar sagði Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður VMSÍ,
að hann vildi ekki fyrirfram úti-
loka að einhverskonar krónutölu-
hækkun á laun í stað sömu
A^rósentuhækkunar á öll laun,
'“kæmi til greina varðandi ákvörð-
un Launanefndar um visitölubæt-
ur 1. október.
Tillögur VSÍ og VMS fela í sér
meðal annars að öll laun hækki um
1,5% 1. október, eins og samningur-
inn í desember kveður á um. Til
viðbótar hækki mánaðarlaun fyrir
dagvinnu að viðbættum álögum um
1.600 krónur. Sú hækkun kemur í
stað 5,65% verðbóta, sem er í verka-
hring Launanefndar aðila að taka
ákvörðun um. Grunntölur afkasta-
hvetjandi launakerfa hækki um
3,25% í stað fyrrgreindra hækkana.
Lágmarkslaun ófaglærðra verði 30
þúsund krónur frá 1. október og
faglærðra 38.900 krónur. Þá hækki
—-Aaun 1. janúar um 3%, 1. apríl um
2%, 1. júlí um 1,5% og 1. október
um 1,5%. Þá skal lokið gerð fast-
launasamninga, sem gera skyldi
samkvæmt ákvæðum desember
samninganna, fyrir 1. nóvember
næstkomandi. Hækki vísitala fram-
færslukostnaðar umfram 10% á
tímabilinu frá október í ár til júlí
1988 getur ASÍ krafist endurskoð-
unar. Takist ekki samkomulag getur
hvor aðila sagt launalið samningsins
lausum með mánaðar fyrirvara,
þannig að hann verði laus 1. septem-
ber.
„Við lögðum fram þessar tillögur
sem umræðugrundvöll, af ótta við
að verði ekkert að gert stefni verð-
^Mfcbólgan í 30% og upp á við um
áramót. Tillögur okkar miða hins
vegar að því að verðbólgan verði
Maður misstí
handlegg
í múrdælu
VINNUSLYS varð í Selásdal, við
Vallarás, um klukkan 17.00 í
^jærdag. Maður, sem var að vinna
^þar við byggingu fjölbýlishúss,
missti handlegg er hann féll í
dælu sem notuð er við múrhúðun.
Talsverðum erfiðleikum var
bundið að ná manninum úr dælunni
og þurfti að logskera dæluna í sund-
ur til að losa hann. Maðurinn var
fluttur á slysadeild þar sem gert
var að meiðslum hans og mun líðan
hans vera eftir atvikum.
komin niður í 12% eftir 12 mánuði
og stefni niður á við,“ sagði punnar
J. Friðriksson, formaður VSÍ, þegar
tillögur VSÍ og VMS voru kynntar.
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, og Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdasijóri VSÍ, hafa verið
skipaðir í Launanefnd aðila fyrir
Bjöm Bjömsson og Vilhjálm Egils-
son, sem hafa horfíð til annarra
starfa. Launanefnd _ kemur saman
síðar í þessarí viku. Ásmundur Stef-
ánsson kvaðst ekki sjá neinar
forsendur til annars en fullar vísi-
tölubætur kæmu á laun 1. október.
Sjá ummæli forystumanna ASl,
VMSÍ og VSÍ á bls. 2. og for-
ystugrein á miðopnu.
Dregið fyrir
í Þverá
Um 30 punda hængur náðist
í Drangshyl í Þverá þegar
starfsmenn frá laxeldisfé-
laginu Laxeyri í Borgarfirði
drógu þar fyrir lax til undan-
eldis. Fjórmenningarnir á
myndinni halda glaðbeittir á
tveimur 20 punda fiskum,
sem náðust í Klapparfljóti.
Ef til vill eru þarna komnir
kunningjar einhverra veiði-
manna frá síðasta sumri.
Aðalfundur Arnarflugs hefst á morgun;
Morgunblaðið/Bjöm Guðmundason
Tapið 1986 nemur tæp-
um 170 milljónum króna
Reiknum með að verða réttu megin við strikið í ár
- segir Kristinn Sigtryggsson framkvæmdastjóri
TAP Arnarflugs árið 1986 nemur tæpum 170 milljónum króna, að
því er Kristinn Sigtryggsson framkvæmdastjóri sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, en aðalfundur félagsins hefst á Hótel Sögu á
morgun klukkan 17.00. Samkvæmt lögum félagsins er gert ráð fyr-
ir að aðalfundur skuli haldinn fyrir lok júnímánaðar ár hvert, en
að sögn Kristins var ákveðið að fresta honum þar til bráðabirgðaupp-
gjör fyrir fyrstu sex mánuði þessa árs Iægi fyrir.
,Við erum svolítið á eftir áætlun
miðað við samþykktir félagsins og
ástæðan er ekkert leyndarmál,"
sagði Kristinn. „Árið í fyrra var
afar slæmt og menn höfðu heyrt
ávæning af því. Við vildum sjá
hvemig þróunin yrði á þessu ári
áður en við héldum þennan fund í
trausti þess að geta lagt fram ein-
hvetjar jákvæðar upplýsingar í
leiðinni og samkvæmt uppgjöri
fyrstu 6 mánuði þessa árs höfum
við staðist okkar áætlanir. Að vísu
er alltaf tap á þessum tíma en aðal-
atriðið er að áætlanir standist og
hagnaðurinn kemur allur á sumar-
mánuðunum, júlí og ágúst. Rekstur-
inn nú í ár stefnir í að verða mjög
nálægt áætlun, sem gerir ráð fyrir
að við verðum heldur fyrir ofan
strikið. Við þylqumst sjá það núna,
að við séum á þeim vendipunkti sem
ætlast var til, þótt skellurinn 1986
hafí orðið mun meiri en menn reikn-
uðu með. Við vonumst því til að
geta farið að sjá eitthvað jákvæðara
strax á næsta ári.“
Kristinn sagði að helsta skýring-
in á tapinu 1986 væri að félagið
hefði verið í verkefnum sem það
réði ekki við, hvorki fjármálalega
né stjómunarlega, það er erlendu
leiguverkefnin, einkum pflagríma-
flugið. Hann kvaðst hafa gert 9
mánaða uppgjör þegar hann kom
til Amarflugs síðastliðið haust, og
hefði það leitt í ljós að tapið yrði
mun meira, en menn höfðu reiknað
með. „Menn höfðu reiknað með að
árið 1986 yrði með 60 til 70 milljón
króna tapi. Þetta uppgjör leiddi hins
vegar í ljós að tapið yrði yfír 100
milljónir. Mér reiknaðist til, miðað
við áætlun fyrir síðasta ársfjórð-
unginn, að tapið yrði 120 til 130
milljónir króna. Þegar öll kurl komu
til grafar reyndist það hins vegar
vera 155 milljónir og síðan ákváðum
við að afskrifa, eða taka til hliðar
fyrir hugsanlegu tapi á viðskipta-
kröfum, tæpar 14 milljónir króna.
Það liggur ekki fyrir að neitt af
þessum 14 milljónum sé tapað fé,
heldur er þetta bara tala sem við
tökum til hliðar vegna óvissunnar.
Á það ber að líta í þessu sam-
bandi, að þegar hætt er í svona
rekstri, eins og DC-8 rekstrinum,
kemur kostnaður í ljós sem hefði
ekki orðið ef við hefðum haldið
áfram í sömu verkefnum," sagði
Kristinn.
Á fyrri hluta þessa árs var ákveð-
ið að auka hlutafé í Amarflugi um
130 milljónir. Að sögn Kristins er
söfnun þess hlutafjár langt komin,
en um 113 milljónir hafa nú safn-
ast í auknu hlutafé.