Morgunblaðið - 30.09.1987, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1987
Bensínlítil
vél í vanda
SVISSNESK PA-28-vél sendi um
fimmleytíð i gær út neyðarkall
þar sem vafasamt var hvort elds- -
neytisbirgðir vélarinnar myndu
endast til Reykjavíkurflugvallar.
Vélin hafði misst niður hjólin og
eldsneytisneysla þvi óeðlilega
mikil vegna aukinnar loftmót-
stöðu.
Þyrla Landhelgisgæslunnar,
TF-SIF, flugvél Flugmálastjómar
°g þyrla og Herkúles-vél frá varnar-
liðinu voru sendar til móts við
flugvélina. Betur fór þó en á horfð-
ist. Vélin náði upp hjólunum og lenti
heilu og höldnu á Keflavíkurflug-
velli um sexleytið.
Mosfellsbær:
Heimamenn
Hlíðarendi
íþróttasvæði VALS
Ný umferðarmannvirki við Miklatorg og Skógarhlíð
Morgunblaðið/ GOl
ESKHUÐ
Miklatorg
SKÓGARHLIÐ
^ Shell
PSIökkvi-
I stöð
stöðin
Bústaðavegur
ábrú yfirflutta
Miklubraut
Nýtt framhald
Bústaðavegar
Öskjuhlíð
Aö Loftleiöum
200 m
i
Gatnadeild Reykjavíkurborgar:
Tillaga um tengingu Bú-
staðavegar við Miklatorg
Áætlaður kostnaður 100 til 110 milljónir
teknir fyrir
hraðakstur
LÖGREGLAN í Hafnarfirði
stöðvaði á stuttum tima í gær-
kvöldi þrjá ökumenn úr Mosfells-
bæ fyrir of hraðan akstur. Þeir
voru á 80 tíl 100 kflómetra hraða
á þeim vegarkafla Vesturlands-
vegar, sem liggur í gegn um
bæinn, en þar er hámarkshraði
60 kílómetrar. Þá var leigubfl-
stjóri í Reykjavík tekinn á yfir
100 kflómetra hraða.
Þess má geta að mikill fjöldi fólks
úr Mosfellsbæ gekk um helgina
eftir umræddum vegarkafla til að
vekja athygli á hraðakstri um hann
og mikilli slysahættu af þeim sök-
TILLAGA gatnamálastjóra um
framhald Bústaðavegar í Öskju-
hlið verður lögð fyrir borgarráð
á næstunni vegna fjárlagagerðar
fyrir árið 1988. Áætlaður kostn-
aður við framkvæmdina er 100
til 110 milljónir króna og er
stefnt að útboði á fyrsta áfanga
verksins fyrir næstu áramót að
sögn Inga Ú. Magnússonar
gatnamálastjóra. Verkinu á að
vera lokið um áramótin 1988—89.
„Við höfum 5 milljóna króna fjár-
veitingu til byijunarframkvæmda á
þessu ári og munum í næsta mán-
uði hefjast handa við Bústaðaveg-
inn efst í Öskjuhlíðinni þar sem frá
var horfið," sagði Ingi. „Síðan er
meiningin að leggja til við borgar-
ráð að gert verði ráð fyrir 100 til
110 milljónum króna til fram-
kvæmdanna í flárhagsáætlun
borgarinnar fyrir árið 1988.“
Aætlaður kostnaður vegna
gatnagerðar frá Öslq'uhlíð að um-
ferðarslaufum við Miklatorg er á
bilinu 60 til 70 milljónir króna.
Kostnaður við brú að Miklatorgi er
áætlaður um 40 milljónir króna, en
Bústaðavegur verður á brú jrfir
Miklubraut og tengist Snorrabraut.
Miklabraut verður færð í sveig í
átt að flugvellinum suður fyrir hús
Tannlæknadeildar Háskóla íslands
og Umferðarmiðstöðina og tengist
síðan Hringbraut á móts við Hljóm-
skálagarðinn og seinna Sóleyjar-
götu.
Mannvirki og hús við Vatnsmýr-
arveg 30, 31, 33, 35, 37 og 38, en
þau eru á svæði sem nokkrar bif-
reiðasölur hafa nú til umráða, munu
væntanlega víkja vegna fram-
kvæmdanna. Það verður einnig
hlutskipti eldri umferðarmannvirkja
á svæðinu.
um.
Japansmarkaður:
Mikil aukning í
sölu á frvstri sfld
Flosi af Þjóðvilja
MIKILVÆGI Japansmarkaðar
fyrir (slenzkar sjávarafurðir
eykst stöðugt og hlutdeild íslend-
inga á þeim markaði hefur
margafaldazt á síðustu árum þó
hún sé enn smá, um 1%. Á síðustu
árum hefur aukningin orðið mest
í frystri sild, loðnu og loðnu-
hrognum, karfa og rækju. Útlit
er fyrir að enn getí orðið um
verulega aukningu á sölu frystr-
ar sfldar til Japans.
í blaðinu Frost, sem gefið er út
af Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna,
er umfjöllun um hlutdeild SH á
þessum markaði. Þar kemur fram
að útflutningur fyrirtækisins á físki
til Japans hefur Qórtánfaldazt síðan
árið 1983. Þá var hann 1.102 lestir
en á síðasta ári 11.528 og um mitt
þetta ár 14.559 lestir.
í blaðinu er hver fískitegund tek-
in fyrir sig og þar segir meðal
annars um frysta síld: „Allt útlit
er fyrir, að salan aukist enn mikið
í ár því markaðurinn í Japan hefur
opnast vegna nýrra innflutnings-
kvóta. Aukning innflutningskvóta
þýðir náttúrulega, að framboðið
mun stóraukast, sem hefur aftur
áhrif á verðið. Það er þó ekki
ástæða til að óttast að við fáum
ekki viðunandi verð fyrir síldina.
Þessir auknu möguleikar á sölu
heilfrystrar sfldar er mjög jákvæð
þróun- á sama tíma og óvissa ríkir
um langtíma söluhorfur saltsfldar
og frystrar sfldar á Evrópumarkað."
Þá segir einnig að íslenzka
haustsfldin þyki feit og bragðgóð
og sé því sett I verðmestu verkun-
ina. Einnig séu vonir bundnar við
að hægt verði að nýta sumarsíldina
fyrir Japansmarkað. Hún sé með
hrognum og því hugsanlega verð-
mætari fyrir vikið. Síðastliðin
sumur hafí verið gerð tilraun til að
veiða hrognasfld, en án árangurs.
Samningar um sölu við tvö fyrir-
tæki í Japan hafí verið tilbúnir, en
því miður ekki orðið að neinu, þvl
sfldin hafí ekki fundizt. Vitað hafí
verið um mikið af henni í sjónum,
en með aðeins tvo báta að leit,
hafí dæmið ekki gengið upp.
Baltic í vand-
ræðum við
Surtsey
BALTIC, leiguskip Eimskipafé-
lags íslands, varð fyrir vélarbilun
skammt frá Surtsey f gær. Skipið
náði ekki að festa akkeri og rak
f átt að eyjunni.
Varðskipið Týr var sent til aðstoð-
ar þar sem búist var við vondu veðri
og taíin hætta á að akkeri skipsins
gæti slitnað. Skipinu tókst um síðir
að festa akkeri og ætluðu skipveijar
á Baitic að reyna að gera við aðalvél
skipsins f gærkvöldi.
yfir á Alþýðublað
FLOSI Ólafsson, leikari og
dálkahöfundur, hefur nú haft
vistaskiptí fyrir greinaskrif sín.
Síðasti Vikuskammtur birtist i
síðasta sunnudagsblaði Þjóð-
viljans, en næsta grein verður
f helgarblaði Alþýðublaðsins.
Flosi segir að greinarnar f Al-
þýðublaðinu verði væntanlega
með svipuðu sniði og í Þjóðvilj-
anum og það helgist af
meðfæddri fhalds- og aftur-
haldssemi hans.
Þjóðviljinn kveður Flosa á forsí-
ðu laugardagsblaðsins undir
yfirskriftinni „0, Flosi! og segir
svo: „Mikill harmur er kveðinn
að lesendum Þjóðviljans og starfs-
mönnum: Flosi skrifar í dag
síðasta Vikuskammt sinn í Sunnu-
dagsblaðið." í niðurlagi síðasta
Vikuskammtsins í Þjóðviljanum
segir Flosi: „Stundum hefur það
verið sagt um okkur, sem skrifað
höfum í Þjóðviljann að við værum
nytsamir sakleysingjar, en þá
vaknar bara sú spuming: Nyt-
samir hveijum?“
Morgunblaðið innti Flosa eftir
ástæðu vistaskiptanna: „Það er
sennilega grái fíðringurinn, sem
veldur þessu. Það kemur viss óeirð
í menn á ákveðnum aldri og það
ættu allir að kannast við. Ég byij-
aði að skrifa þessa pistla undir
handaijaðri manna þama, sem
annaðhvort eru dánir eða orðnir
gamlir fauskar eins og ég. Ég fínn
að það liggur f loftinu að ungt
fólk vill taka við flokknum og
blaðinu og þá er ógeðfellt að vera
dragbítur á því, er það hyggst
leggja á brattann. Ég vildi bara
verða fyrri til og fara áður en
mér yrði sparkað fyrir að vera
búinn að vera, ekki bara þijú
kjörtfmabil, heldur Qögur.
Kosturinn við Alþýðublaðið er
sá, að það sér ekki nokkur mað-
ur. Þess vegna er þar hægt að
láta allt vaða, án þess að valda
með því umtalsverðu uppnámi.
En þetta er auðvitað sagt í trún-
aði og ég vona að það fari ekki
lengra.
Ætli þessar greinar í Alþýðu-
blaðinu verði ekki með svipuðu
sniði og áður. Það helgast af
meðfæddri íhalds- og afturhalds-
semi minni," sagði Flosi.