Morgunblaðið - 30.09.1987, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1987
félk í
fréttum
og hann er ekkert að flíka einkalífi
sínu. Frægðin hefur ekki stigið
honum of mikið til höfuðs, og hann
hefur ennþji. gott samband við ætt-
ingja sína og gamla vini, og lætur
þá njóta góðs af auði sínum.
Eddie lokar sig ekki inni í lúxus-
villunni sinni í New Jersey, en fer
oft út í gönguferð eða að kaupa í
matinn, jafnvel þó að stundum flyk-
kist fólk að honum til að biðja um
eiginhandaráritanir, eða bara til að
sjá goðið. Þessar ferðir meðal alm-
úgans hjálpa Eddie að sjá hlutina
í réttu ljósi, t.d. segist hann oft
hafa lent í því að hvítt fólk hafí
kallað hann ónefnum, en síðan
roðnað niður í tær þegar það hafí
uppgötvað að það var að móðga
kvikmyndastjömu. „Það er erfítt
að slá í gegn í Hollywood," segir
Eddie, „en það er ennþá erfíðara
ef þú ert svartur."
Eddie segist alveg treysta sér til
að leika alvarleg hlutverk, en hann
er ekki viss um að áhorfendur geti
nokkum tíma tekið hann alvarlega.
„Getur nokkur maður hugsað sér
að sjá mig í ástarsenu án þess að
ég segi brandara á eftir?" spyr
Vinsælasti
leikarií
heiminum I
dag.
hann. Hann lætur neikvæð ummæli
gagnrýnenda um „Lögguna í Be-
verly Hills 2“ sem vind um eyru
þjóta, og segist ætla að halda áfram
að leika Alex Foley á meðan áhorf-
endur hafí ennþá gaman af að sjá
hann. „Helsti hæfileiki minn er sá
að ég get fengið fólk til að hlægja,
og ég sé enga ástæðu til að hætta
því. Hins vegar hefði ég einnig
gaman af að leikstýra, og að skrifa
kvikmyndahandrit. Ég hef reyndar
skrifað tvö slík, en ennþá er ekkert
ákveðið um hvort eða hvenær það
verði farið í að taka kvikmynd eftir
þeim."
Það virðist hins vegar vera alveg
sama hverju Eddie Murphy kemur
nærri, það verður allt að gulli. Hann
hefur sungið inn á plötu, og nú í
augnablikinu vinnur hann að ann-
arri. Gagnrýnendur hafa lýst því
yfír að Eddie sé alveg gjörsneyddur
öllum hæfíleikum í sönglistinni, en
Eddie hlær jafn mikið að þeim og
að þeim sem saka hann um ein-
hæftii í leiklistinni. Hann er vinsæl-
asti leikari í heiminum í dag, og
það er ekkert útlit fyrir að vinsæld-
ir hans dali í bráð.
Morj^unblaðið/Bjami
Reyklausi bekkurinn úr Rasmus Rask-skólanum í Óðinsvéum. Lengst til vinstri er Finn Wisnew-
ski, annar kennarinn, og sitjandi til hægri (með gleraugu) er Bodil Dahl.
íslandsferðin stóð í tvær vikur,
frá 16. til 29. september, og fóru
dönsku krakkamir m.a. í fímm
daga rútuferð, þar sem þau heim-
sóttu Akureyri, Mývatn, og fleiri
staði, og svo voru þau tvo daga
á sveitabæjum í Borgarfírði. Þau
heimsóttu nokkra skóla, og héldu
þar fyrirlestra um Óðinsvé og
H.C. Andersen. Á meðan þau
dvöldu hér á höfuðborgarsvæðinu
gistu þau hjá pennavinum sínum
úr Þingholtsskóla, sem fá greið-
ann svo væntanlega endurgoldinn
þegar þeir sækja Óðinsvé heim
næsta vor, þó að enn sé ekki full-
ljóst hvort af þeirri ferð verður.
Eins og áður sagði, þá er 9.-X
reyklaus bekkur, en aðspurð
sögðu krakkamir að það væri
frekar sjaldgæft í 9. bekk í Dan-
mörku. Þau sögðu íslendinga
reykja minna en Dani, og voru
hrifín af ströngum tóbaksvamar-
lögum á íslandi, en í Danmörku
er ekki bannað að reykja í bönkum
og á opinberum vinnustöðum, og
engin aldurstakmörk em á tó-
bakskaupum. Finn Wisnewski,
annar kennari unglinganna, sagði
að tóbaksvamarstarfíð væri ekki.
eins öflugt í Danmörku og hér á
landi, og það væri eingöngu feng-
ist við það í hveijum skóla fyrir
sig, en ekkert um að utanaðkom-
andi aðilar kæmu með áróður í
skólana, eins og Krabbameins-
félagið gerir hér á landi. Reyking-
ar meðal skólabama hafa þó
dregist verulega saman í Dan-
mörku í mörg ár, eins og á íslandi.
Það var greinilegt að dönsku
krakkamir höfðu skemmt sér
stórvel héma á íslandi, og það
kjaftaði á þeim hver tuska þegar
blaðamaður spurði hvað hefði
komið þeim mest á óvart í ferð-
inni. Sum nefndu Bláa lónið og
allar útisundlaugamar, önnur
vom hissa á því hvað það væri
mikið frelsi meðal nemenda hér,
þannig að þeir gætu farið í skól-
ann á kvöldin og hlustað á tónlist,
og einhver minntist á það að
íslensk böm færa úr skónum áður
en þau fæm inn í skólastofumar.
Þá sagði ein stelpan að sér þætti
ógurlega gaman að hlusta á
íslensku talaða, því það væri eins
og íslendingar töluðu með nefinu.
nefndur til Emmy-verðlauna fyrir
hlutverk sitt þar þegar hann var
aðeins 21 árs. Ári síðar lék Eddie
í sinni fyrstu kvikmynd, „48
klukkustundir", á móti Nick Nolte,
og vakti þá mikla lukku fyrir hlut-
verk sitt sem kjaftfor og snaggara-
legur smákrimmi.
Hlutverk Eddies hafa alltaf verið
svipuð upp frá því, enda kaupa
áhorfendur sig inn fyrst og ffernst
til að sjá hann rífa kjaft á sinn
einstaka og ósvíftia hátt. Mynd-
band sem tekið var upp á sviðs-
skemmtun Eddies var klippt
sundur og saman til að forða því
frá að fá klámmyndastimpil
vegna klúryrða, og þykir þó
mörgum nóg um orðbragðið
samt. Eddie viðurkennir það
fúslega að vera orðljótur í raun-
vemleikanum, eins og á hvíta
tjaldinu; „ef ég væri faðir, þá
myndi ég harðbanna bömun-
um mínum að hlusta á mig“
segir hann.
Á móti kemur að Eddie
hefur fáa aðra lesti; hann
hvorki reykir, drekkur, né
notar eiturlyf. Hann hefur
átt í mörgum ástarsam-
böndum, en ekki með
neinum frægum stjömum,
Eddie Murphy er án nokkurs vafa
vinsælasti kvikmyndaleikari í heim-
inum í dag. Mynd hans „Löggan í
Beverly Hills 2“ hefur halað inn
yfír 150 milljónir dollara á mettíma,
og það virðist engin lát vera á að-
sókninni þó að gagnrýnendur víðast
hvar hafí hakkað myndina í sig, og
segja að myndin sé „endurtekið
efni“.
Eddie hefur skotist hratt upp á
stjömuhimininn; hann er aðeins 26
ára gamall, en hefur þegar leikið í
fímm feykilega vinsælum kvik-
myndum. Hann byijaði að koma
fram aðeins fímmtán ára gamall í
hverfínu sem hann bjó í á Long
Island í New York, og hann varð
stjama í gamanmyndaþáttunum
„Saturday Night Live", og var til-
Orðljótur
og ofurvinsæll
Reyklaus
bekkurí
Islandsferð
að er að verða töluvert vin-
sælt að nemendur frá
Norðurlöndunum komi í heimsókn
til íslands, og er þá stundum um
gagnkvæm nemendaskipti að
ræða. Hér var nýlega staddur
hópur danskra unglinga á aldrin-
um 14-15 ára, sem hafa verið í
sambandi við nemendur í Þing-
holtsskóla í Kópavogi, og stendur
það svo til að Islendingamir end-
urgjaldi heimsóknina næsta vor.
Dönsku krakkamir em í reyklaus-
um bekk, og af því tilefni bauð
Krabbameinsfélag Reykjavíkur
þeim í heimsókn, og afhenti þeim
viðurkenningarskjal eins og
tíðkast að gefa reyklausum bekkj-
um hér á landi, og þar hitti
Morgunblaðið þau að máli.
Þau sögðu að ferðin hefði tek-
ist vonum framar, og að gestrisni
íslendinga væri ótrúleg, og hefði
gert ferðina ógleymanlega. Þegar
blaðamaður spurði hvað hefði ver-
ið eftirminnilegast sögðu stelp-
umar, sem em í miklum
meirihluta í 9.-X, að strákamir á
íslandi væm æðislega sætir.
Strákamir vom ekki á því að það
væri neinn hörgull á sætum strák-
um í Danmörku, og bentu á sjálfa
sig sem dæmi, og þeir komu því
líka að að íslenskar stelpur væm
mjög sætar. Nemendumir í
Rasmus Rask-skólanum í Óð-
insvéum hafa verið að undirbúa
íslandsferðina í nokkur ár, og kom
kennari þeirra, Bodil Dahl, þeim
í samband við íslensku nemend-
uma, en Kópavogur er vinabær
Óðinsvéa, og því var Þingholts-
skóli fyrir valinu. Dönsku krakk-
amir hafa lagt mikið á sig til að
komast hingað, t.d. með því að
selja jólatré og að taka ýmis auka-
störf, og því var spennan mikil
loksins þegar draumurinn rættist,
og þau ferðuðust í tvær vikur am
„sögueyjuna“.