Morgunblaðið - 30.09.1987, Blaðsíða 47
Kaupmannahöf n
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1987
47
munu verða í Bádteatret til 17.
október.
-G.L. Ásg.
Bádteatret ! Nýhöfn þar sem verkið er sýnt.
GEiSLAVORN
SEM SLÆRTVÆR
ELLGLJR í EINL LIÖGGI!
Auóveld í uppsetningu. Engir vírar. Gott verö.
Heildsali:
T /T~ L/ Nl I Grensásvegi 7.
108 Reykjavík.
Box 8294.
S 681665. 686064
Endursöluaðilar:
Bókabúð Braga Penninn
Einar J. Skúlason Skrifstofuvélar
Griffil! Tölvuvörur
Mái & Menning Örtölvutækni
Morgunblaðið/PPJ
Þorsteinn Guðmundsson, einn eigandi Vesturflugs, og Sveinn Einars-
son, aðaleigandi Flugfars.
Yesturflug og flugfar
flylja í nýtt húsnæði
NÝLEGA tóku flugskólinn Vest-
urflug hf. og leiguflugfélagið
Flugfar hf. i notkun nýtt og
glæsilegt húsnæði á Reykjavík-
urflugvelli, en til þessa hefur
starfsemi fyrirtækjanna farið
fram í gömlu húsi, Breiðabóli,
sem er langt inn á flugvallar-
svæðinu, norðan við flugskýli
Flugleiða.
Nýja húsið, sem er staðsett rétt
norðan við vöruafgreiðslu Flug-
leiða, er 115 m2 að stærð og skiptist
í afgreiðslusal flugskólans, skóla-
stofu, kennaraherbergi, afgreiðslu-
sal leiguflugsins og skrifstofu fyrir
bæði fyrirtækin. Flugskólinn Vest-
urflug rekur tvær Beechcraft
Skipper tveggja sæta kennsluflug-
vélar og eina fjögurra sæta Cessna
172 Skyhawk. Skólastjóri Vestur-
flugs er Pétur Jónsson.
Flugfélagið Flugfar stundar al-
mennt leiguflug með 9 farþega
flugvél af gerðinni Cessna 402C.
Framkvæmdastjóri Flugfars er
Sveinn Einarsson. Við þessa breyt-
ingu batnar aðstaða beggja fyrir-
tækjanna til muna og eru fyrirtækin
ekki lengur staðsett langt fyrir inn-
an girðingu þar sem erfítt er að
rata. Það er ennfremur mikill kostn-
aður fyrir flugskólann að geta nú
haldið bókleg námskeið í eigin hús-
næði jafnframt því sem nú gefst
möguleiki á að bjóða upp á minni
og sérhæfðari námskeið.
VÖRN SEM HINDRAR
SPEGLUN OG GEYSLUN
FRÁ TÖLVUSKJÁM
Lokaæfing Svövu Jakobs-
dóttur sýnd í Bádteatret
Jónshúsi, Kaupmannahöfn.
LEIKRIT Svövu Jakobsdóttur,
Lokaæfing, var frumsýnt á
dönsku í Bádteatret í Nýhöfn
föstudaginn 18. september. Heit-
ir það Generalpröven í þýðingu
leikstjórans, Vibeke Bjelke. Aðal-
leikendur eru Hans Henrik
Voetmann og Christina Kröll.
Höfundi, leikstjóra og leikendum
var vel fagnað í sýningarlok og
þeim færðir blómvendir.
í tilefni af sýningunum á Loka-
æfingu var boðað til blaðamanna-
fundar í Bádteatret. Það er lítið
leiksvið um borð í skipi, sem liggur
við landfestar við hús nr. 14 í Ný-
höfninni. Á fundinum kom fram,
að aðeins er ár síðan leikhópurinn
í þessu sérstæða leikhúsi fór að
tala um leikritið. Fengu þau hug-
myndina, er Hans Henrik Voet-
mann hitti Stefán Baldursson á
norrænni leikhúsráðstefnu, en Stef-
án benti á Lokaæfingu sem
áhugavert og hentugt leikhúsverk
fyrir lítið svið. Voetmann minnti
einnig á, hversu miklu meiri hlut
leikarar smærri leikhúsa eiga í
ákvarðanatöku um leikritaval og
stjómun. Em allir leikararnir, en
aukahlutverk leikur Rikke Steffens-
en, ánægðir með verkið og ekki
sízt leikstjórinn, Vibeke Bjelke, sem
þýddi leikritið eftir dönsku og ensku
vinnuhandriti og felldi það að
dönsku nútímamáli og umræðu.
„Það er margt við Lokaæfingu,
sem hreif mig strax,“ segir Vibeke
Bjelke. „Við sjáum þörf hjónanna á
að loka sig úti frá umheiminum,
hvemig allt heimsmat þeirra breyt-
ist smátt og smátt og hversu
skammt tæknin nær, þegar allt
kemur til alls. Hið andlega hungur
kvelur þau niðri í byrginu og smá-
vægilegir hlutir taka að skipta
meginmáli. Og svo spurningin,
hvers er að vænta, þegar upp er
komið?“
Svava Jakobsdóttir segir þessa
gerð leikritsins nokkuð breytta frá
upphaflegri mynd, er það var leikið
Tölvuskjáir gefa frá
sér geisla sem þreyta
augun og erta húðina.
Lausn á þessum vanda er:
POWER SCREEN, jarðtengd skjásía sem varnar
því að óhreinindi og geislar streymi frá skjánum.
Jafnframt brýtur hún niður Ijósið sem þýðir
að glampi á skjánum er úrsögunni.
Þetta er eitthvað fyrir þig!
Leikarar ásamt höfundi, talið frá vinstri: Rikke Steffensen, Christ-
ina Kröll, Svava Jakobsdóttir og Hans Henrik Voetmann.
Hans Henrik Voetmann og Christina Kröll í hlutverkum sínum í
Lokaæfingu.
á Litla sviði Þjóðleikhússins 1983
og við opnun Norðurlandahússins í
Þórshöfn. Svava endurskoðaði
verkið og er nýja gerðin nú leikin
í fyrsta sinni. Þanig mun Leikfélag
Akureyrar sýna það í vetur og enn
fremur er á döflnni ensk leikgerð.
Höfundinum fínnst vel hafa tekizt
til um uppsetningu verksins og leik-
sviðsgerð Piu Maanssen og róma
mjög leik allra leikaranna, en aðal-
hlutverkin tvö krefjast mikilla
átaka.
Það var lokaæfíng í tvennum
skilning síðustu dagana fyrir frum-
sýninguna, er lesendum City Avisen
gafst kostur á að sjá leikritið fyrir
lækkað gjald og notfærðu margir
sér það. Sýningar á Generalpröven