Morgunblaðið - 30.09.1987, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1987
Hraðamœlingar við Breiðagerðisskóla.
Morgunblaðið/ Bjami
„Það
stoppar
alltaf
einhver“
LÖGREGLAN í Reykjavík stend-
ur fyrir átaki til að fækka slysum
í umferðinni, eins og fram hefur
komið. Hraðamælingar eru einn
veigamesti þáttur átaksins og
eru lögreglumenn nú að störfum
með ratsjár sínar viðs vegar um
borgina, meðal annars í nágrenni
grunnskólanna.
Lögreglumennimir ólafur Egils-
son og Ölafur Logi Ámason voru
við hraðamælingar í Breiðagerði
þegar Morgunblaðsmenn áttu þar
leið hjá í gær. Þeir kváðust leggja
sérstaka áherslu á mælingar við
skóla um þessar mundir enda væri
skólaárið nýhafið og nauðsynlegt
að vekja athygli ökumanna á því
að böm væru meira á ferð í um-
ferðinni en undanfama mánuði.
Þeir töldu að áróðurinn síðustu vik-
ur hefði haft áhrif á ökumenn en
þó væm enn alltof margir sem ekki
Iétu segjast og ækju langtum hrað-
ar en aðstæður leyfðu.
Við Reykjaveginn stóð Stefanía
Ragnarsdóttir 8 ára og beið færis
að komast yfir á gangbraut. Hún
sagðist vera i Laugamesskóla en
sjaldan þurfa að fara yfir Reykja-
veginn, bara þegar hún færi í
heimsókn til afa síns eins og núna.
Hún sagðist alltaf líta til beggja
Morgunblaöið/Bjami
Stefanía Ragnarsdóttir á leið til
afa síns.
hliða og bíða eftir að bílamir stopp-
uðu áður en hún færi út á götuna,
þá gengi ferðalagið vel.
Baldvin Páll Rúnarsson, Hreinn
Gylfason og Gunnar Þorvaldsson, 8
ára nemendur í Laugamesskóla,
voru á heimleið úr skólasundi þegar
við ræddum við þá. Þeir eiga heima
í Teigahverfí og voru ekkert á því
að viðurkenna að erfítt væri að
bjarga sér í umferðinni. „Það stopp-
ar alltaf einhver," sagði Gunnar,
og í þeim orðum töluðum stöðvuðu
bflar við gangbrautina á Reykja-
vegi, strákamir litu til hægri og
vinstri og flýttu sér heim í skjól
fyrir slagviðrinu.
Það var afskaplega
gott að koma heim
Rætt við Vigdísi Finnbogadóttur forseta íslands
FORSETI íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, hefur gert víðreist að
undanförnu. Hún var fyrst erlendra
þjóðhöfðingja til þess að fara í opinbera
heimsókn til Færeyja í byijun
september. Næst var ferðinni heitið til
Japan þar sem hún var talsmaður
Norðurlandanna við opnun
menningarkynningarinnar
Scandinavia Today þar í landi. Þaðan
hélt hún til Bordeaux í boði J. Chaban
Delmas borgarstjóra og þingmanns til
að vera við kynningu á Isiandi,
íslenskum vörum og menningu. Fieiri
ferðalög eru á döfinni hjá
forsetanum þvi á mánudaginn heldur
hún í opinbera heimsókn til Ítalíu í boði
Cossigi forseta.
Þessi ferðalög hófust með opin-
berri heimsókn til Færeyja í
byijun mánaðarins, sagði forsetinn
í samtali við Morgunblaðið. „Ferðin
var mjög eftirminnileg fyrir margra
hluta sakir. Gestrisni Færeyinga er
einstök og þeir tóku vel á móti fyrsta
erlenda þjóðhöfðingjanum sem
heimsótti þá. Þeir eru líka snjallir
Færeyingamir og buðu okkur að
heimsækja fólk, sem býr á afskekkt-
ustu stöðunum á eyjunum. Með
þesssu móti tryggðu þeir að öll þjóð-
in yrði þátttakandi í þessari heim-
sókn.
Skemmtilegt að búa
á japanska visu
Um miðjan mánuðinn hélt forset-
inn til Japan, en Norðurlöndin fimm
höfðu óskað eftir því að Vigdís Finn-
bogadóttir yrði talsmaður þeirra við
opnun menningarkjmningarinnar
Scandinavia Today í Japan.
„Heimsóknin vakti mikla athygli
ef dæma má af frásögnum og mynd-
um í blöðum," sagði Vigdís. „Á
blaðamannafundunum sem haldnir
voru tók ég eftir því að Japanir eru
ekkert frábrugðnir öðrum þjóðum
að því leyti að þeir vilja gjaman
heyra minnst á þá sjálfa þegar verið
er að kynna önnur lönd. Það féll líka
í góðan jarðveg að við sögðumst
vera komin til þeirra vegna þess að
við vildum að menningar þjóðanna
mættust á miðri leið. Ég held að
Japönum hafi þótt vænt um að heyra
þetta. Þrátt fyrir að borgir þeirra
séu byggðar á vestræna vísu halda
þeir fast í sérkenni menningar
sinnar.
Ferðin var óglejrmanleg á margan
hátt. Eitt af þvi skemmtilegasta sem
ég gerði var að búa á japanska vísu
á hóteli í Kyoto. Þegar við komum
þangað var ég orðin svolítið lúin og
var hrædd um að það jrrði erfitt að
hvflast við þessar aðstæður. En það
var öðru nær. Það fór mjög vel um
mig og ég hefði ekki viljað missa
af þessu fyrir nokkum mun. Maður
getur ímyndað sér að Japanir kunni
að meta að maður sýni þeim þá til-
litssemi og virðingu að búa eins og
þeir vilja búa.“
— Hvaða augum heldur þú að
Japanir hafi litið á heimsókn konu
f embætti þjóðhöfðingja, sem að
auki var talsmaður flögurra annarra
landa?
„Þeim hefur eflaust þótt það svo-
lítið einkennilegt þvf í Japan er ekki
til siðs að konur láti að sér kveða á
opinberum vettvangi. Þær era hvorki
boðnar með til málsverða né til við-
ræðufunda.
1 þessu sambandi er gaman að
geta þess að þegar ég var í Tókýó
óskuðu flórar konur eftir að hitta
mig. Þær vom talsmenn víðtækra
kvennasamtaka sem em nýstofnuð
og þær nefna „Silkileiðina" eins og
sú langa leið var nefnd sem silki-
kaupmenn fóm á öldum áður frá
Austurlöndum til Vesturlanda. Þessi
samtök em að velta fyrir sér hvem-
ig konur í Japan eigi að taka sín
skref í átt til jafnréttis. Þetta vom
skemmtilegar konur."
Japanskeisari
geðþekkur maður
— HvemigkomJapanskeisariþér
fyrir sjónir?
„Það var mikil lífsrejmsla að hitta
Japanskeisara. Hann er 84 ára gam-
all maður sem hefur orðið fyrir svo.
feykilega mikilii rejmslu í lífinu.
Maður getur ekki ímjmdað sér
hvemig það er að lifa með það alla
ævi að hafa verið gert að taka sið-
ferðislega ábyrgð á þáttöku Japana
í heimsstyijöldinni.
En hann er ákaflega geðþekkur
maður og ku aldrei hafa talað við
nokkum erlendan mann án þess að
minnast á friðinn. Það er hans hjart-
ans mál. Samtal okkar var ákaflega
hlýtt og faliegt. Það snerist um mik-
ilvægi þess að halda vörð um
þjóðararfinn og jafnframt að halda
vöku sinni fyrir öllu sem getur kom-
ið mannkjminu til góða og orðið þvi
til hamingjuauka. Við töluðum einn-
ig um tækninýjungar, um að sofna
aldrei á verðinum og að nota frelsið
með aga.
Hann er hámenntaður maður og
var vel upplýstur um ísland. Hann
gerði sér líka grein fyrir hve margt
er líkt með eldQallaejjunum Japan
og íslandi. Þetta var indæl stund sem
við áttum saman.“
— Þarf þjóðhöfðingi að vita
margt um landið sem hann heim-
sækir?
„Já, það er nauðsyniegt að lesa
heima. Ég er þeirrar skoðunar að
það besta sem maður getur gert til
Tæplega 15 þúsund
sóttu Kvikmyndahátíð
Morgunblaðið/Bjarni
Baldvin Páll Rúnarsson, Gunnar Þorvaldsson og Hreinn Gylfason á
leið yfir Reykjaveg.
TÆPLEGA 15.000 manns sóttu
Kvikmyndahátíð, að sögn tals-
manna hennar, en hátíðinni
lauk í gær. Aðstandendur búast
við að endar nái saman. Eigandi
kvikmyndahússins hefur falast
eftir fjórum myndanna til sýn-
ingar áfram en ekki er ljóst
hvort samningar náist.
Á Kvikmyndahátíð fyrir tveimur
árum urðu sýningargestir 17.000.
Sigurður Sverrir Pálsson í stjóm
hátíðarinnar sagði í samtali við^
blaðið að gert hefði verið ráð fyrir
minni aðsókn nú vegna aukins
framboðs sjónvarpsefnis. „Talið
er að aðsókn kvikmyndahúsa hafi
minnkað um 35% við tilkomu
Stöðvar tvö. Við getum því vel við
unað.“
Sigurður Sverrir sagði að vegna
samninga við rétthafa hefði orðið
að hætta sýningum á mörgum
myndanna þrátt fyrir mikla að-
sókn. Fjórar myndir á hátíðinni
vom sóttar af rúmiega þúsund
manns. Það voru myndimar Komi
ogsjáið, Nautabaninn, Hún verður
að fá það og Down by law.
Sækja ársfund Alþjóða-
bankans og gjaldeyrissjóðsins
FÍB og Samviiuiuferðir Landsýn:
Samvinna um rekstur ferðaskrifstofu
FELAG islenskra bifreiðaeig-
enda og Samvinnuferðir-Land-
sýn hafa gert samkomulag um
rekstur ferðaskrifstofu FÍB.
Sam vinnuferðir-Landsýn hefur
gerst hluthafi f FFÍB og mun
framvegis annast rekstur skrif-
stofunnar i nánnm tengslum við
FÍB
t fréttatilkynningu frá aðilunum
segir m.a:
„Síðustu ár hefur rekstur ferða-
skrifstofu FÍB staðið í járaum og
skipaði aðalstjóm félagsins nefnd
til að styrkja rekstrargmndvöll
skrifstofunnar svo að unnt væri að
veita félagsmönnum flölbreyttari
þjónustu og fyrirgreiðslu en áður.
Hefur nú náðst samkomulag við
Samvinnuferðir-Land8ýn og var
það samþykkt einróma á landsþingi
FÍB, sem haldið var 12. september
síðastliðinn. Veitir samkomulagið
félagsmönnum FÍB sama rétt og
öðrum aðildarfélögum Samvinnu-
ferða-Landsýnar. Hefur verið
ákveðið að FFIB geri átak f þjón-
ustu við Qölmennan hóp svokaliaðra
„„Flug og bíll ferðalanga" og verð-
ur haft náið samband við systurfé-
lög FÍB í Evrópu. Einnig mun FFÍB
áfram veita félagsmönnum allá al-
menna ferðaþjónustu."-------------
í ÞESSARI viku er haldinn árs-
fundur Alþjóðabankans og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í
Washington og sækja hann full-
trúar 150 aðildarríkja þessara
stofnana. Af íslands hálfu eru
aðalfulltrúar Jón Sigurðsson
viðskiptaráðherra og Jóliannes
Nordal seðlabankastjórí.
Norðurlöndin fímm hafa náið
samstarf sfn á milli f þessum stofri-
unum og er á þeirra vegum flutt
ein sameiginleg ræða við umræður
um starfsemi hvorrar stofnunar
um sig. Um málefni bankans fljrt-
ur Palle Simonsen, Qármálaráð-
herra Dana, ræðu Norðurianda,
en um málefni sjóðsins Jón Sig-
urðsson viðskiptaráðherra.
Vopnafjörður:
Skip steytti
áskeri
FÆREYSKT saltflutningaskip
steytti á skeri i höfninni í Vopna-
firði á mánudagsmorgun og sat
þar fast fram yfir hádegi.
Ekki er talið að skipið hafí
skemmst mikið við óhappið. Það
losnaði þegar aftur flæddi, lagðist
að bryggju og losaði saltfarminn.