Morgunblaðið - 30.09.1987, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1987
45
Viðræðunefndin og dýralæknarnir að loknu samkomulagi um skilyrði fyrir sláturleyfi.
Hótel Stykkishólmur:
Tíu ára afmælis minnst
með sérstöku helgartilboði
Stykkishólmi.
HÓTEL Stykkishólmur hefur
nú starfað í 10 ár. í tilefni af
tímamótum þessum heimsótti
fréttaritari hótelstjórann, Sig-
urð Skúla Bárðarson, til að
athuga hvernig þessa áfanga
yrði minnst.
Sigurður Skúli sagði að fyrst
og fremst yrði afmælisins minnst
með því að bjóða upp á áhugavert
helgartilboð sem verður í gildi til
nóvemberloka. „Tilboðið er fólgið
í gistingu í tvær nætur með morg-
unverði fyrir 1900 krónur á mann.
Vandað verður til matargerðar og
bryddað upp á ýmsum nýjungum
svo sem sjávarréttarkvöldi, villi-
bráðakvöldi og svo framvegis.
Einnig verður leikin lifandi tónlist
á laugardögum. Þessir helgar-
pakkar eru kjörið tækifæri fyrir
þá sem vilja njóta hvíldar og afs-
löppunar í góðu umhverfi hér við
Breiðafjörðinn," sagði Sigurður
Skúli.
Ennfremur sagði Sigurður
Skúli: „Ég vil taka það fram að
þó þessi laugardagskvöld séu að
ýmsu sniðin fýrir ferðamenn þá
eru bæjarbúar og aðrir velkomnir
á hótelið. Þetta er ekki síður tæki-
færi fyrir íbúa nágrannabyggð-
anna að eyða hér helginni,
sérstaklega með tilliti til bættra
samgangna."
Hótelstjórinn sagði að lokum að
helgarpakkamir væru til sölu á
öllum ferðaskrifstofum í
Reykjavík, auk þess sem hægt
væri að panta á Hótel Stykkis-
hólmi.
— Arni.
Sigurður Sigurðarson sagði í
upphafi fundarins að hann væri
kominn til að heyra rök fyrir því
að sláturhúsið starfaði áfram. Hann
kvaðst einnig vilja hitta forsvars-
menn hússins og ræða við þá um
það sem þyrfti að gera til að undan-
þága kæmi til greina. Hann fór
nokkrum orðum um aðstæður í slát-
urhúsinu og þær kröfur sem gerðar
eru til sláturhúsa.
Hörður Þorsteinsson í Nykhól
benti á að verið væri að nýta göm-
ul hús og gerði samanburð á
gjöldum sem húsið greiddi við þau
og þeim sem Sláturfélag Suður-
lands greiddi. Um þetta mál sagði
Hörður að mætti hafa hendinguna:,,
Eins og graðpening hendir vom/
að reka sig hvers á annars hom.“
Hann skoraði á Sigurð að leysa
málið og sagði„Við erum skilamenn
hér og þú ert drengur góður."
Einar Kjartansson frá Þórisholti
sagði sláturhúsið hafa veitt þá sam-
keppni sem dugði til þess að enn
væri slátrað í Vík og þá samkeppni
þyrfti enn. Fyrirtækið skapaði tals-
verða vinnu umfram sláturtíð sem
munaði um í fábreyttu atvinnulífi.
Hann benti á að góður frystir væri
í húsinu og íjárrétt. Tímasetning
lokunarinnar væri óheppileg,
rekstraraðilum hefði ekki verið gert
viðvart fyrr en sláturtíð nálgaðist.
Fyrirtækið hefði því verið búið að
búa sig undir slátrun. Það væri
þess vegna erfitt fyrir það að standa
við skuldbindingar sínar. Hann
skoraði á Sigurð að veita húsinu
þá umsögn sem dygði til að það
fengi að starfa áfram.
Undir þessi rök Einars Kjartans-
sonar tóku fundarmenn og Guð-
bjartur Pálsson framkvæmdastjóri
sláturhússins sagði að húsið væri
búið að vera ef leyfí fengist ekki.
Menn bentu á að Vík þyrfti á öllu
öðru að halda en gjaldþroti fyrir-
tækja.
Ami Johnsen benti á að fordæmi
væri fyrir starfsemi húsinu í því
ástandi sem það væri. Eðlilegan
aðlögunartíma þyrfti að veita til að
gera nauðsynlegar breytingar til
framtíðar, atvinnusköpun væri í
húsinu sem ekki væri að finna ann-
ars staðar og að við lokun töpuðu
bændur umtalsverðu fé auk þess
sem hún þrengdi kost byggðarinn-
ar.
Sigurður Sigurðarson fór nokkr-
um orðum um aðstæðurí slátur-
húsinu og sagði aðaleiganda þess,
Matkaup, ekki hafa lagfært nóg á
undanfömum árum til þess að það
réttlætti leyfi til slátrunar. Frystir
og ijárrétt væri gott en allt þar á
milli ófært til slátrunar.
Þessum fullvrðingum setts yfír-
dýralæknis mótmæltu fundarmenn
og bentu á að frá sláturhúsinu
þætti koma góð vara og að meðferð
kjötsins byggðist meira á starfs-
fólkinu en ytri umgjörðinni einni
saman. Undir lok fundarins til-
kynnti Sigurður að hann vildi fá
menn tilnefnda í viðræðunefnd við
sig^og Aðalstein héraðsdýralækni.
Áður en nefndin og dýralæknam-
ir ræddust við áttu þeir tal saman
einslega, kölluðu síðan nefndina
fyrir sig og kynntu þar skilyrði fyr-
ir því að slátrun gæti farið fram í
Sláturhúsinu í Vík hf. Að því búnu
hurfu þeir á braut en nefndin íhug-
aði tillögurnar og lagði síðan jáyrði
sín fyrir dýralæknana og skriflega
útfærslu á þeim skilyrðum sem sett
voru. Á þetta féllust dýralæknamir
og var þeim afhent undirskrifað
plagg þar sem fallist var á skilyrðin.
Þar með var löngum fundi um
sláturhússmálið lokið. Margir fund-
armanna biðu eftir niðurstöðum af
viðræðum við dýralæknana og var
öllum léttara í huga þegar þeir
hurfu á braut
Forsvarsmenn sláturhússins
sögðust hefjast strax handa við að
gera þær úrbætur sem beðið var
um auk þess sem þeir undirbyggju
sláturtíðina. Það er eigenda slátur-
hússins að kveða upp úr með
langtímalausn, hvort farið verður
út í það að gera átak varðandi húsa-
kost sláturhússins, þannig að það
þurfi ekki að starfa á undanþágu í
framtíðinni. í tengslum við slíka
ákvörðun er það mat manna í Vík
að fyrirtækið þurfi að taka ákvörð-
un um það hvort frekari úrvinnsla
afurða fari fram í húsinu en nú er,
verði á annað borð farið út í end-
umýjun húsakosts, en slíkt yrði
lyftistöng fyrir atvinnulífið í Vík.
Sig. Jóns.
Aðalsteinn Sveinsson héraðsdýralæknir, Sigurður Sigurðarson settur
yfirdýralæknir og Tómas Páísson fundarstjóri.
Kaupfélag Suðumesja
í Gríndavík:
Sláturleyf-
isveiting
gagnrýnd
Selfossi.
ÞAÐ væri engin slátrun þjá Kaup-
félagi Suðurnesja í Grindavík ef
settur yfirdýralæknir Sigurður
Sigurðarson hefði ráðið. Þetta
kom fram á fundi i Vík í Mýrdal
sem Sigurður hélt með bændum
og starfsfólki Sláturhússins í Vík
hf. hvar hann ræddi möguleika á
sláturleyfi fyrir húsið.
Á fundinum í Vík voru forsendur
í sláturhúsum bomar saman og veit-
ing á sláturleyfi til Kaupfélags
Suðumesja gagnrýnd. „Við þurfum
að fækka kofunum og bæta húsin,"
sagði Sigurður í umræðum um kröf-
ur til sláturhúsa. Hann kvaðst vilja
að sláturhúsi Kaupfélags Suðumesja
í Grindavík yrði lokað og sagði að
þar væri engin slátrun ef hann hefði
ráðið og sagðist ætla að gera sér
ferð til að kanna aðstæður til slátrun-
ar í Grindavík.
Sig. Jóns.
Bifreiða-
stillingar
Minni eyðsla, meiri
ending vélarinnar.
Sérhæfðir menn
og fullkomintæki.
BOSCH
mÓomröa-OQ
warahtuta þjónvata
B R Æ Ð U R N I R
ORMSSONHF
LAGMÚLA 9. SlMl 38820
Hamborg er heimsborg
- Hug og gisting - Hmmtudaga og sunnudaga
1-
1,.