Morgunblaðið - 04.10.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1987
25
Hús Meitilsins hf. í Þorlákshöfn, en timbrið í burstimar var fengið
úr Lefolii-húsunum.
Eldsvoðinn í Þorlákshöfn:
Söguleg hús
orðin að rústum
SALTFISKVERKUNARHÚS MeitUsins hf. í Þorlákshöfn, sem gjöreyði-
lagðist í bruna aðfaranótt mánudags og greint var frá í Morgunblaðinu
á þriðjudag, átti sér alllanga sögu. Það var árið 1950 að Kaupfélag
Amessinga lét rífa gömul verslunarhús á Eyrarbakka og flytja úr þeim
timbur til Þorlákshaf nar til að nota í byggingu nýs saltf iskverkunarhúss.
Verslunarhúsin á Eyrarbakka, sem
höfðu verið í eigu Kaupfélags Ámess-
inga í um 10 ár þegar þau voru rifin,
áttu sér næstum tveggja alda sögu.
Eyrarbakki var lengi eini verslunar-
staður þriggja sýslna á Suðurlandi
og stærsta verslunarsókn landsins á
einokunartímabilinu 1602 - 1787.
Það var ekki fyrr en kaupfélagið
opnaði verslun á Selfossi og eignaðist
húsin, sem Eyrarbakki lagðist af sem
helsti verslunarstaður Suðurlands.
Sögu húsanna má rekja allt til tíma
einokunarinnar, en þá var fyrsta
verslunarhúsið úr timbri reist á Eyr-
arbakka. Upphaflega mun hafa verið
Verslunarhús Lefolii-verslunar á Eyrarbakka.
Burstimar loguðu glatt i eidsvoðanum
um eitt aðalhús að ræða, en síðar
bættust við fleiri hús og verslunin
stækkaði. Um miðja átjándu öld voru
húsin endurbyggð og fleimm bætt
við. Þannig stóðu þau óbreytt fram
yfir aldamótin 1800. Um miðja
nítjándu öld tók J.R.B. Lefolii við
rekstri verslunarinnar, en húsin voru
uppfrá því kennd við hann. Lefolii
endurbætti húsin og stækkaði auk
þess sem hann lét bæta fimmta hús-
inu við.
Lefolii rak verslunina til ársins
1920, en þá tók Kaupfélagið Hekla
við. Kaupfélag Ámessinga eignaðist
húsin í kringum 1940. KA rak aldrei
verslun á staðnum heldur notaði hús-
in sem pakkhús fyrstu árin. Kaup-
félagið flutti þá sjálft inn vömr með
skipum til Eyrarbakka. Þeim inn-
flutningi var þó fljótlega hætt og
kaupfélagið fékk sendar vömr frá
Reykjavík. KÁ var þá að heíja versl-
un og útgerð í Þorlákshöfn og þar
sem húsin á Eyrarbakka stóðu ónotuð
vom þau rifín.
Þetta var árið 1950, en það ár
ákvað_ Meitillinn, nýstofnað hlutafé-
lag KÁ, SÍS og fleiri aðila, að byggja
saltfískverkunarhús. Steyptir vom
upp veggir og ofan á þá reistar fímm
burstir. Timbrið í burstimar var feng-
ið úr gömlu Lefolii-húsunum á
Eyrarbakka.
Þetta hús Meitilsins í Þorlákshöfn
var alla tíð notað sem saltfískverkun-
arhús auk þess sem ýmislegt fleira
er tengdist starfsemi Meitilsins var í
húsinu. Þar var t.d. geymd skreið,
en húsið hentaði vel sem skreiðar-
geymsla sökum þess hversu vel
loftaði gegnum timbrið, að sögn Ben-
edikts Thorarensen hjá Meitlinum.
Þegar húsið brann á vom í því 100
tonn af saltfiski tilbúin til útflutnings
og auk þess talsvert af veiðarfærum.
ALLT I HAUSTVERKIN
Á HEIMILIÐ, í BÁTINN, BÚSTAÐINN OG GARÐINN.
OLÍULAMPAR OG LUKTIR, GAS-
LUKTIR, GAS- OG OLÍUPRÍMUS-
AR, HREINSUÐ STEINOLÍA,
OLÍUOFNAR, ARINSETT, ÚTI-
GRILL, GRILLKOL OG VÖKVI,
RAFHLÖÐUR, VASAUÓS.
FATADEILDIN
SLOKKVITÆKI OG REYKSKYNJ-
ARI, VATNSBRÚSAR OG FÖTUR.
HANDVERKFÆRI, RAFMAGNS-
VERKFÆRI TIL ALLRA MÖGU-
LEGRA OG ÓMÖGULEGRA NOTA.
GARÐYRKJUVERKFÆRI í ÖLL
STÖRF, HJÓLBÖRUR, SLÖNGUR,
SLÖNGUKLEMMUR, SKÓFLUR
ALLSKONAR, STUNGUGAFFLAR,
KARTÖFLUGAFFLAR.
FÚAVARNAREFNI, LÖKK, MÁLN-
ING - ÚTI-, INNI- - MÁLNING-
ARÁHÖLD, HREINLÆTISVÖRUR,
KÚSTAR OG BURSTAR.
HLIFÐARFATNAÐUR, REGNFATNAÐUR,
GÚMMÍSTÍGVÉL HÁ OG LÁG, PEYSUR,
BUXUR, SKYRTUR, NORSKU ULLAR-
NÆRFÖTIN, GARÐHANSKAR.
Ánanaustum, Grandagarði 2, sími 28855.
FANAR,
FLAGGSTANGARHÚNAR
SILUNGANET, NÆLONLÍNUR,
SIGURNAGLAR, ÖNGLAR, SÖKK-
UR, GIRNI ALLSKONAR.
VATNS-OLÍUDÆLUR.
KEÐJUR, MARGAR GERÐIR, OG
VÍRAR, GRANNIR OG SVERIR.
OG í BÁTINN EÐA SKÚTUNA
BJÖRGUNARVESTI FYRIR BÖRN
OG FULLORÐNA, ÁRAR, ÁRAKEF-
AR, DREKAR, KEÐJUR, AKKERI,
VIÐLLEGUBAUJUR, KJÖLSOG-
DÆLUR. ALLUR ÖRYGGISBÚN-
AÐUR. ÖLL SMÁVARA FYRIR
SKÚTUNA, BLAKKIR O.M.FL.
BÁTALÍNUR.