Morgunblaðið - 04.10.1987, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1987
31
Bandalag íslenskra sérskólanema:
Mótmæla söluskatti
á skólamötuneyti
Á FUNDI Framkvæmdastjórnar
Bandalags íslenskra sérskóla-
nema 28. september síðastliðinn
var samþykkt ályktun þar sem
því er harðlega mótmælt að
skólamötuneytum skuli fram-
vegis vera gert að greiða 10%
Samnorrænt
námsefni um
norræna sam-
vinnu og um-
hverfismál
NÁMSGAGNASTOFNUN og ís-
landsdeild Norðurlandaráðs hafa
gefið út tvö hefti með námsefni
fyrir 8. og 9. bekk grunnskól-
anna um norræna samvinnu og
umhverfismál. Heftin sem komin
eru út heita í norðri og eru stað-
færðar þýðingar á heftum úr
heftaröðinni Nordpá sem gefin
eru út af Norðurlandaráði.
Út eru komin 11 hefti af Nordpá
og eru þau um ýmis efni, þar á
meðal stríðs- og eftirstríðsárin á
Norðurlöndum, þróunaraðstoð og
fíkniefni. Nordpá er fyrsta útgáfan
á samnorrænu námsefni og er á
dönsku að einu undanskildu, en í
því eru kaflar á dönsku, norsku og
sænsku.
Þau tvö ^ hefti sem gefin hafa
verið út af í Norðri bera yfirskrift-
ina Ógnun við nátturu Norðurlanda
og Samvinna Norðurlanda. Náms-
gagnastofnun sér um dreifingu
íslensku heftanna en þýðandi er
Sigurlín Sveinbjamardóttir, náms-
stjóri í dönsku.
Bilun í leiðslu,
ekki ljósi
ÁSTÆÐA þess að þota Flugleiða
þurfti að snúa aftur til lendingar
í Palma á Spáni aðfaranótt
þriðjudagsins sl. var sú, að bilun
varð í leiðslu í hreyfli hennar.
Það var því ekki rétt, sem kom
fram í frétt Morgunblaðsins á
miðvikudag, að aðvörunarljós
hefði bilað.
Þegar þotan var komin á loft og
á leið heim til íslands kviknaði að-
vörunarljós, sem benti til þess að
eldur væri í hreyfli. Þá var snúið
við til Palma og lent þar aftur. Kom
í Ijós að leiðsla, sem leiðir heitt loft
frá hreyfli til annarra kerfa þotunn-
ar, hafði bilað. Aðvömnarkerfi
skynjaði hitann sem þá myndaðist
og því kviknaði aðvörunarljósið.
Eftir bráðabirgðaviðgerð í Palma
var þotunni flogið til ísiands, þar
sem lokið var við viðgerð.
söluskatt eins og reglugerð sem
fjármálaráðherra hefur gefið út
gerir ráð fyrir. í ályktuninni seg-
ir að þessi skattlagning sé
einungis lítill hluti þeirrar
neysluskattlagningar sem dunið
hafi yfir landsmenn frá því nú-
verandi rikisstjórn tók við stjórn-
artaumunum.
í ályktuninni mótmælir Fram-
kvæmdastjórnin harðlega allri
skattlagningu á nauðsynjavörar.
Stjómin ályktar að þannig skatt-
lagning komi langverst niður á þeim
sem minnst hafi auraráð, svo sem
láglaunafólki, öldraðum, öryrkjum,
einstæðum foreldram og náms-
mönnum í framhaldsnámi. Nú sé
svo komið að framfærslulán Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna sé
tæpar 26 þúsund krónur á mánuði
fyrir einstakling í leiguhúsnæði og
fyrir þessa upphæð sé námsmanni
ætlað að borga húsaleigu á almenn-
um markaði, greiða fyrir fæði,
klæði og annan tilfallandi kostnað.
Þessa upphæð telur stjómin ger-
samlega úr takti við raunveraleik-
Evrópuför Bush lokið:
Fann mikinn
stuðning við
samkomulag
risaveldanna
Brttsscl, Reuter.
GEORGE Bush, varaforseti
Bandaríkjanna, sagði i lok tíu
daga ferðar sinnar til sex ríkja
í Evrópu að hann hefði fengið
mikinn stuðning við væntanlegt
samkomulag Bandaríkjamanna
og Sovétmanna um upprætingu
meðaldrægra og skammdrægra
kjarnorkuflauga. Aftur á móti
væru bandamenn Bandaríkja-
manna yfir sig hrifnir af
væntanlegu samkomulagi.
Bush sagði eftir fund með Norð-
ur-Atlantshafsráðinu í Bríissel í
gær að samkomulag risaveldanna
hefði verið helsta umræðuefnið.
„Ég komst að því að samkomulag
ríkir um upprætingu flauganna.
Menn era ekki yfir sig hrifnir, en
vonir standa til að samkomulag
takist," sagði Bush.
Búist er við að George Shultz,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
og Eduard Shevardnadze, utanrík-
isráðherra Sovétrílqanna, gangi frá
endanlegu samkomulagi þegar
Shultz fer til Moskvu um miðjan
þennan mánuð.
Bush heldur í dag til Washington
eftir för til Ítalíu, Póllands, Vestur-
Þýskalands, Frakklands og Bret-
lands, auk Belgíu.
MALVERKA-
sýning
á málverkum eftir Sigurö Krlstjánsson,
listmálara, í Eden Hveragerði,
dagana 23. sept — 6. okt.
ann og í raun fáránlega þegar haft
sé í huga að í lögunum um Lána-
sjóð íslenskra námsmanna frá 1982
sé kveðið á um að lánað skuli til
eðlilegrar framfærsu námsmanns
meðan námstími stendur.
Af þessu telur Framkvæmda-
stjómin að ljóst megi vera að hvers
konar neysluskattur á nauðsynja-
vörar komi mjög illa niður á
námsmönnum. Fjármálaráðherra
hefði með ákvörðun sinni um að
leggja söluskatt á skólamötuneyti
sýnt í verki hug sinn til íslenskra
námsmanna. Þessi skattlagning
verði mun óréttlátari þegar haft sé
í huga að af keyptum aðföngum til
skólamötuneyta sé greiddur sölu-
skattur og því sé íjármálaráðherra
í raun að tvískattleggja fæði náms-
manna.
Framkvæmdastjómin lýsir yfir
miklum áhyggjum með þróun á
framfærslumöguleika íslenskra
námsmanna meðan á námi stendur.
Verði ekkert að gert hverfi fjöldi
námsmanna frá námi á næstunni
og megi raunar þegar sjá þess
merki í aðsókn að Háskóla Islands,
því hún hafi dregist saman um 11%
frá því í fyrra samkvæmt fyrstu
tölum.
Að lokum segir í ályktuninni að
Bandalag íslenskra sérskólanema
ætli ekki að fylgjast með þessari
þróun aðgerðalaust. Námsmönnum
verði að skapa möguleika á að fram-
fleyta sér á lánum frá Lánasjóði
íslenskra námsmanna og fram-
færslulánin verði því að hækka.
WordPerfect
Fjölbreytt og vandað námskeið í notkun ritvinnslu-
kerfisins WordPerfect. Forritið er á íslensku og með
íslensku orðasafni.
Dagskrá:
★ Helstu grundvallaratriöi í DOS.
★ Byrjendaatriði i WordPerfect.
★ Helstu skipanir við textavinnslu.
★ Verslunarbréf og töflusetning.
★ Dreifibréf.
★ Gagnavinnsla.
★ islenska orðasafnið og notkun }:
★ Umræður og fyrirspurnir.
Tími: 6.-9. október ki. 13-16.
Innifalin í námskeiðsgjaldinu er nýja WordPerfect bókin.
VR og BSRB styðja sina til þátttöku á námskeiðinu.
Innritun í símum 687590 og 686790.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28
Leiöbeinandi:
;; .......1 ,;
Matthias Magnússon,
rithöfundur
Libby>
Stórgóða tómatsósan
« AUK hf. 103.2/SlA