Morgunblaðið - 04.10.1987, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1987
KENMNGIN,
SAMKYNHNEIGÐ
OG SKÍRNIN
1.
Er það í samræmi
við kenningu
kirkjunnar að líta á
það sem stendur í
Mósebókum eða
öðrum ritum
Gamla
testamentisins
sem aigiit lögmál
til skilyrðislausrar
eftirbreytni?
2.
Er samkynhneigð
synd, sem útilokar
mann frá
kirkjunni?
3.
Hver er afstaða þín
til skírnarinnar? Á
að líta á skírn
ómálga barns sem
kukl?
Björn Björnsson
Ábyrgð á hegðun
en ekki á
hneigðum
— segir Björn Björnsson
prófessor í guðfræðideild
háskólans
Er það í samræmi við kenningu
kirkjunnar að líta á það sem stend-
ur í Mósebókum eða öðrum ritum
Gamla testamentisins sem algilt
lögmál til skilyrðislausrar eftir-
breytni?
Fráleitt tel ég að svo sé. — Jesús
sagði, að hann væri ekki kominn
til þess að niðurbijóta lögmálið
heldur til þess að uppfylla það.
Sjálfur kenndi hann í orði og verki,
hvers eðlis sú uppfylling væri. Hann
greindi skarpt á milli ákvæða lög-
málsins, fann sum þeirra léttvæg,
önnur ófrávíkjanleg. Dæmi um hin
fyrri gætu verið boð og bönn varð-
andi helgi hvíldardagsins, en
boðorðin tíu um hin síðari. Aðspurð-
ur sagði hann, að allt lögmálið og
spámennirnir hvíldu á aðeins tveim-
ur boðorðum: „Elska skalt þú
Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta
þínu, allri sálu þinni og öllum huga
þínum.“ Þetta er hið æðsta og
fremsta boðorð. Annað er þessu líkt:
„Þú skalt elska náunga þinn eins
og sjálfan þig.“
Við annað tilefni ávítaði hann
fræðimenn og farísea fyrir að hirða
ekki um það, sem „mikilvægast er
í lögmálinu, réttlæti, miskunn og
trúfesti".
Jesús Kristur er sjálfur mæli-
kvarði á gildi boða og banna
lögmáls Gamla testamentisins. Þess
vegna höfum við Nýja testamentið.
Er samkynhneigð synd, sem úti-
lokar mann frá kirkjunni?
Þessari spumingu má að mínum
dómi svara stutt og laggott: Nei,
synd útilokar ekki menn frá kirkj-
unni. Ef ekki væru syndugir menn
væri engin kirkja. Allt frá fyrstu
tíð hefur boðskapur kirkjunnar átt
brýnast erindi við og átt vísasta
áheym hjá þeim, sem kannast við
að þeir eru syndugir menn. „Ekki
þurfa heilbrigðir læknis við, heldur
þeir, sem sjúkir eru. Ég er ekki
kominn til að kalla réttláta, heldur
syndara." Þau voru orð Jesú.
Kirkjan er samfélag manna, sem
bej-a fram tvær játningar,, sem við.
Einar Sigurbjörnsson
nánari skoðun er aðeins ein: „Vík
frá mér, herra, því að ég er syndug-
ur rnaður," — „Þú ert Kristur,
Drottinn, sonur hins lifanda Guðs.“
— Að játast Kristi er ákall og bæn
um fyrirgefningu syndanna.
Þetta gildir um alla menn, og er
þá ekki spurt um stöðu þeirra eða
stétt, kynferði, hörundslit, aldur,
eða — kynhneigð þeirra.
Hitt er svo annað mál, að vilji
menn stunda þá iðju að safna glóð-
um elds að höfðum samkynhneigðra
með biblíuvitnunum, þá má benda
á, að sú góða bók gefur þeim, sem
gagnkynhneigðir eru, ekkert tilefni
til að vera með mikla kokhreysti.
Yfir þeim er oft og einatt felldur
þungur áfellisdómur vegna þess að
þeir — þótt gagnkynhneigðir séu —
víkja sér undan þeirri ábyrgð að
lifa siðprúðu kynlífí. Af marggefnu
tilefni, og nú hin síðustu misseri
vegna lífsnauðsynlegra varna gegn
eyðni, er full ástæða til þess að
leggja hina þyngstu áherslu á, að
það er kynhegðun manna fremur
en kynhneigð þeirra, sem mestu
máli skiptir. Á hegðun sinni bera
menn alla jafnan fulla siðferðislega
ábyrgð, á hneigðum sínum ekki.
Hver er afstaða þín til skírnarinn-
ar? A að líta á skírn ómálga barns
sem kukl?
Skímin er kröftugt tákn, en um
leið yfírlýsing um náð Guðs, sem
elskar manninn að fyrra bragði, án
nokkurs atbeina af hans eigin hálfu.
Aldrei er þetta tákn skírara eða
yfírlýsingin sannari en þegar
ómálga bam er borið til skírnar.
Að nefna kukl í sömu andrá er
hryggileg glámskyggni á ást Guðs.
Kirkjan er
samfélag syndara
— segir Einar
Sigurbjörnsson prófessor
í gnðfræðideild háskólans
Er það í samræmi við kenningu
kirkjunnar að líta á það sem stend-
ur í Mósebókum eða öðrum ritum
Gamla testamentisins sem algilt
lögmál til skilyrðislausrar eftir-
breytni?
I Fjallræðunni segir Jesús, að
hann sé ekki kominn til þess að
afnema lögmálið eða spámennina,
heldur til þess að uppfylla það.
Orðasambapdið „lögmálið ,og spá-
Halldór Gröndal
mennirnir" var um daga Jesú notað
sem heiti á þeim rithluta Biblíunn-
ar, sem við kristnir menn nefnum
Gamla testamentið. Lögmálið er að
fínna í Mósebókum og er kjarni
þess boðorðin 10, sem Jesús dró
saman í tvöfalda kærleiksboðorðið:
Elska skaltu Drottin Guð þinn af
öllu hjarta, sálu og mætti þínum
og náunga þinn eins og sjálfan þig.
Báða þáttu þessa boðorðs er raunar
að finna í Móesbókum, þótt þeir séu
þar ekki felldir saman. Hvað Jesús
á við með að uppfylla lögmálið,
kemur fram í Fjallræðunni og ann-
ars staðar í kenningu hans og
breytni: Að uppfylla lögmálið er að
framganga í skilyrðislausum kær-
leika, ekki aðeins gagnvart vinum
sínum, heldur og óvinum. Það ítrek-
ar Páll postuli, er hann segir, að
allt lögmálið sé uppfyllt í þessu
boðorði: Þú skalt elska náunga þinn
eins og sjálfan þig. Það var í sam-
ræmi við þessa túlkun sína á
boðorðum Móselaga, að Jesús gekk
fram með ákveðnu frjálsræði and-
spænis lögmálinu, læknaði á
hvíldardegi og taldi, að sitthvað
væri að athuga við fyrirmælin um
hreina og óhreina fæðu, svo að
dæmi séu nefnd.
Jesús setti mönnum fyrirmynd
eða reglu til að fara eftir. Utfrá
boðskap og breytni Jesú hafa
kristnir menn frá öndverðu álitið,
að lögmálið þurfí túlkunar við mið-
að við kærleiksboðorðið og aðstæð-
ur hveiju sinni.
Að Jesús uppfyllir spámennina
merkir, að hann er sá sem öll fyrir-
heiti Gamla testamentisins rætast í.
Kenning kirkjunnar er þar með
sú, að Jesús er lykillinn til skilnings
á Gamla testamentinu bæði lögmál-
inu og öðrum vitnisburði. Jesús er
ljósið, sem lýsir upp sali þess, svo
að hægt er að ganga þar um og
rata. Og svo skært ljós er Jesús,
að kjaminn kemur fram, þegar því
er brugðið á staði í Gamla testa-
mentinu, en hismið hlýtur að
brenna.
Er samkynhneigð synd, sem úti-
lokar mann frá kirkjunni?
Ég held, að það sé ekki til nein
sú synd, sem útiloki mann frá kirkj-
unni. Kirkjan er samfélag syndara.
Það er einmitt önnur uppistaðan í
sjálfsvitun kristinna manna að vita
sig syndara frammi fyrir Guði. Hin
uppistaðan í sjálfsvitund þeirra er
tijúin.eða yitundin upj fyrirgefningu:
Ólafur Oddur Jónsson
syndanna fyrir Krist. Á grundvelli
hennar leitast kristnir menn við að
feta veg helgunarinnar og á þeim
vegi styðjast þeir við ákveðnar regl-
ur sem viðmiðun í lífí sínu og eru
þær helstu boðorðin 10. Þau mynda
vamargarð um samskipti fólks, líka
kynhegðun.
Helsta boðorðið viðvíkjandi kyn-
hegðun fólks er sjötta boðorðið: „Þú
skalt ekki drýgja hór!“ Ég man
ekki í svipinn eftir neinni betri út-
skýringu á því en útskýringu
Lúthers, sem er á þessa leið: „Vér
eigum að óttast og elska Guð, svo
að vér lifum hreinlega og siðlega
í orðum og verkum ..." Sjötta
boðorðið minnir okkur með öðrum
orðum á, að það leiði af trúnni á
Guð, að við tölum og breytum hrein-
lega og siðlega! Þetta held ég sé
nokkurn veginn aðalefnið í kenn-
ingu Biblíunnar um þetta. Hún
mælir gegn hvers konar saurug-
leika, en hvetur til hins gagnstæða.
Þar er því talað gegn fjöllyndi og
saurlífi, en áhersla lögð á hrein-
lyndi og siðsemi.
í Biblíunni er litið svo á, að heil-
brigðu og eðlilegu ástalífi verði
aðeins lifað milli karls og konu inn-
an vébanda hjónabandsins. Undir
það hefur kirkjan tekið á öllum öld-
um og í samræmi við það álit er
niðurlagið á áðurgreindri skýringu
Lúthers þetta: „ og sérhver hjón
elski og virði hvort annað.“
Þess vegna flokkast líka samkyn-
hneigð í Biblíunni undir afbrigðilega
kynhegðun og telur Páll postuli
hana þess konar breytni, sem menn
hljóti að_ láta af, ef þeir gerast
kristnir. Á grundvelli ummæla hans
var stundum litið svo á, að samkyn-
hneigð væri refsivert athæfi.
Reyndar voru kristnir menn ekki
einir um þetta, heldur hafa verið
til hliðstæðar reglur í öðrum þjóð-
félögum en kristnum.
Nú á dögum eru menn reiðubún-
ir til þess að líta þetta mildari
augum og skilja samkynhneigð öðr-
um skilningi. Það leiðir og af því,
að menn hafa hlustað á raddir sam-
kynhneigðra og fengið þar með
nýja innsýn í mál þeirra. Það álít
ég jákvæða þróun og held, að sam-
kynhneigð sé ásamt ýmsu öðru
atriði, sem menn verða að gera upp
við samvisku sína. En samviskan
getur ekki verið æðsti dómarinn,
heldur samviskan upplýst af orði
puðs. Því verða samkynbneigðir ■