Morgunblaðið - 04.10.1987, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1987
41
Skímin felur í sér hlutdeild í dauða
og upprisu Jesú Krists og sakra-
menti skímarinnar er einungis
hægt að þiggja einu sinni.
Kirkjan getur ekki samþykkt það
viðhorf að ungbamaskímin verði
ógild ef skímarþeginn, kominn til
vits og ára, afneitar trúnni, og þess
vegna þurfi að skíra aftur komist
hann til trúar á ný. Undirstaðan í
umíjöllun kristinna manna um
merkingu skímarinnar er játningin
um frumkvæði og alvald guðs; sú
játning fer veg allrar veraldar ef
skím er endurtekin og þar með
bresta einnig undirstöður kristinnar
trúar.
Vilji menn sem reyna afturhvarf
til trúar tjá það eða staðfesta opin-
berlega, þá er unnt að gera það
með einhveijum öðmm hætti en
misþyrma heilagri skírn. Þeir menn,
eða þeir hópar sem iðka endurskím
taka sér vald sem enginn kristinn
söfnuður eða maður getur haft, að
ógilda verkan sakramentisins.
Iðkun endurskímar er dæmi um
það sem mætti kalla geðþóttakrist-
indóm; þar er reynsla og íhugun
kirkjunnar í gegnum aldir dæmd
og léttvæg fundin og biblíurökum
umsnúið að geðþótta.
Jesús er Drottinn. Það er játning
guðspjallanna. Iðkun endurskírnar
er í mótsögn við þennan vitnisburð
er guðspjöllin flytja okkur.
Aldrei laus undan
kærleiks-
skyldunni
— segir Þórir Stephensen
Dómkirkjuprestur
Er það í samræmi við kenningu
kirkjunnar að líta á það sem stend-
ur í Mósebókum eða öðrum ritum
Gamla testamentisins sem algilt
lögmál til skilyrðislausrar eftir-
breytni?
Að lútherskum skilningi eru rit
Biblíunnar ekki öll lög að jöfnu. Þar
fer eftir því „hversu þau boða
Krist". Hins vegar er litið á Gamla
testamentið, sem gmndvallarrit
Nýja testamentisins. Jesús Kristur
mótmælti ýmsu í lögmáli gyðinga
svo sem endurgjaldslögmálinu um
„auga fyrir auga og tönn fýrir
tönn“. A öðmm stað segir hann:
„Miskunnsemi þrái ég, en ekki
fóm.“ Kristur leggur aftur mikla
áherslu á boðorðin 10 og tvíþætta
kærleiksboðorðið um elskuna til
Guðs og náungans og segir beinlín-
is, að á því byggist allt lögmálið
og spámennimir. Niðurstaðan er
því í orðum Páls postula: „Kærleik-
urinn er fylling lögmálsins."
Kærleikurinn hefur hvergi opin-
berast okkur eins sterkt og í lífí
og kenningu Krists. Þess vegna er
það boðun hans, sem er hið eina
sanna lögmál dagsins í dag, en
ekki Mósebækur.
Er samkynhneigð synd, sem úti-
lokar mann frá kirkjunni?
Jesús talar hvergi um samkyn-
hneigð eða varar við henni. Ætla
má, að hann hefði gert það, hefði
hann talið hana útiloka menn frá
Guðsríkinu. í 18. kap. 3. Mós. er
lögmálsboð gegn samkynhneigð.
Við vitum, að það er til vegna þess,
að í Baalsdýrkun Kanveija, sem
ísraelsmenn þurftu sífellt að veija
sig fyrir, var samkynhneigðin notuð
til opinberrar fijósemisdýrkunar og
þótti skömm á meðal gyðinga.
Flest teljum við samkynhneigð
ekki hið rétta eðli, því væri hún
ríkjandi ástand, mundi mannkynið
deyja út. Nútímavísindi þekkja ekki
orsakir þessara hneigða. Sumir
rekja þær til erfða, aðrir til áhrifa
frá umhverfi. Þar er þó ekkert vitað
með vissu. Hveijir erum við þá að
dæma slíka menn, hvað þá að for-
dæma þá og fyrirlíta? Hví þá ekki
einnig aðra, sem örvhentir eru eða
litblindir? Við megum gjarnan
minnast afstöðu Jesú til hórseku
konunnar og orðanna, sem sögð
voru af öðru tilefni um Krist: „Hann
tekur að sér syndara og samneytir
þeim.“
Við erum aldrei laus undan kær-
leiksskyldunni við náunga okkar.
Því erfiðara sem hann á, þeim mun
Iggispis
—
Þegar eg er oroin stor ætla
ég að vinna á dagheimili, en það
er bara svo langt þangað til.
En
....okkur á4 Hamraborg vantar
sem fyrst fóstrur, þroskaþjálfa,
og / eða starfsmann í 75% starf,
til stuðnings hreyfihömluðum
börnum á yngri deild. Starfið er
krefjandi, þroskandi, ánægjulegt
og krefst þess að viðkomandi
geti unnið sjálfstætt. Einnig
þurfum við að bæta við fóstru
eða starfsmanni á yngstu deild-
ina. Á Hamraborg er góð vijinu-
aðstaða, góður matur og hresst
og gott starfsfólk sem býður þig
velkominn til starfa með okkur.
Ef þú hefur áhuga skalt þú ekki
hika við að hringja og spjalla við
forstöðumanninn í síma 36905.
HAMRABORG
DAGHEIMILI GRÆNUHLÍÐ 24 REYKJAVÍK
r
sterkar kallar hann á kærleika okk-
ar. Svar mitt er því nei.
Hver er afstaða þfn til skírnarinn-
ar? A að líta á skím ómálga barns
sem kukl?
Þeir sem tala um ungbamaskírn
sem „kukl“ eru endurskírendur, þ.e.
þeir sem aðhyllast skím fullorðinna.
En við eigum næg rök fyrir ung-
bamaskírn, bæði söguleg og trú-
fræðileg, sem hér er of langt mál
upp að telja. En ég vísa til greinar
eftir dr. Sigurbjöm Einarsson þá
trúfræðiprófessor við Háskóla Is-
lands., Hún nefnist Skírn — ung-
bamaskím og birtist í tímariti hans
Víðförla, 1. hefti, 5. árg. 1951.
Ungbamaskím er inntökuathöfn
í söfnuð Krists og er ein af feg-
urstu, og ásamt altarisgöngunni,
önnur af mikilvægustu athöfnum
kirkjunnar. Þá taka elskandi for-
eldrar þá ákvörðun að helga Kristi
barn sitt, líf þess og hugsun. Þeir
taka um leið á sig þá skyldu að ala
barnið upp í trausti til hjálpar Guðs
og stefnu á hugsjónir Krists, sem
af öllum okkar á meðal em viður-
kenndar að vera hinar göfugustu
sem lífið hefur nokkru sinni eign-
ast. Skírnarvottarnir og hinn kristni
söfnuður sem heild eru svo til þess
kallaðir að veita þessu stuðning
sinn. Síðar kemur svo fermingin
sem sjálfviljug staðfesting bamsins.
Þannig er þetta a.m.k. hugsað í
fullri einlægni af kirkju okkar. Og
við höfum ekki viljandi amast við
því eða gert lítið úr því, þegar aðr-
ar greinar kristinnar kirkju hafa
viljað framkvæma þetta með öðram
hætti og af öðram röksemdum. Við
höfum gjarnan sagt, að einlægnin
skipti öllu máli. Guð mundi meta
hana mest.
STADIA
Kynningartilboð: 2 pör af Stadia Hi Tec
á aðeins kr. 2.800, ótrúlegt en satt.
Aðeins á eftirtöldum stöðum:
Sportbúð Óskars, Keflavík
Kaupf. Eyfirðinga, Akureyri
Sportvík, Dalvík
Skagfirðingabúð, Sauðárkróki
H-Búðin, Garðabæ
Akrasport, Akranesi
Sportbúð Kópavogs, Kópavogi
Versl. Sig. Pálma., Hvammstanga
Borgarsport, Borgarnesi.
AF-Heildverslun,
Lágmúla 5,
Sími 68 99 11.
Suðurveri og Hraunbergi
^^Erfii byrjandi?
Ertu í góðu formi?
Þarftu að fara í megrun?
Jogœ'itel- .
LÍKAM5RÆKT OG MEGRUtl
Fyrir konur á ollum aldri. Flokkar sem hæfa öllum.
2.KERFI
FRAMHALD5FLOKMR
Lokaðir flokkar. Þyngri tímar, aðeins fyrir vanar.
3.KERFI
■ RÓLEGIR TÍMAR
H Fyrir eldri konur, eða þær sem þurfa að fara varlega.
I 4.KERFI
■ MEGRUHARFLORRAR
B Fjórum sinnum í viku fyrir þær sem þurfa og vilja missa
1 aukakílóin núna.
'S.KERFI
FYRIR UMGAR OG HRE5SAR '-----
Teygju - þrek - jazz.
Eldfjörugir tímar með
léttri jazz-sveiflu.
ttýjar perur / öllum
ávallt ífararbroddi
Idtímar
Suðurveri, sími 83730 Hraunbergi, sími 79988
s