Morgunblaðið - 04.10.1987, Page 43

Morgunblaðið - 04.10.1987, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1987 43 LETTARISAGA Bókmenntir Erlendur Jónsson NÝ SAGA. Tímarit Sögufélags. 1. árg. 109 bls. Ábyrgðarmaður: Eggert Þór Bernharðsson. Sögu- félag, 1987. Sögufélagið hefur lengi sent frá sér ársritið Sögv sem hefur farið sístækkandi með árunum í réttu hlutfalli við fjölgun sagnfræðinga og aukin umsvif félagsins. Nú hefur gamla Saga sprengt utan af sér rammann og Ný Saga hafíð göngu sína. Er þetta nýja rit verulega frá- brugðið hinu gamla, bæði að efni og þó ekki síður að útliti. En Ný Saga er, hvað snið og frágang varð- ar, í stíl við önnur tímarit sem gefin eru hér út þessi árin og vinsælda njóta; myndskreytt, glæsileg; og létt — að svo miklu leyti sem efnið gef- ur tilefni til. Rit af þessu tagi keppa um útbreiðslu og athygli þessi árin og gera því hvort tveggja til að höfða til hins almenna lesanda: að hampa frægðarpersónum — fólki sem talað er um og allir kannast við og skírskota þannig til þess sem allir vita deili á; og taka fyrir málefni sem forvitni vekja þá stundina. Ný Saga getur að sönnu ekki fylgt þeim út í æsar hvað þetta varðar þar eð hún hlýtur að flytja, eðli málsins sam- kvæmt, efni sem varðar liðna tíð. En jafnvel þess háttar efni má reifa svo að það höfði til samtímans og veki forvitni með þeim sem lifa fyrir andartakið. Ný Saga stefnir á þau mið að því er best verður séð. Því hefur ritið leitað til Indriða G. Þorsteinssonar svo dæmi sé tekið. Hann á hér stutt- an þátt sem hann nefnir „Eigi skal höggva". Indriði er í hópi snjallari dálkahöfunda og vanur að segja álit sitt á hveiju sem er. í þætti sínum fer hann í sjónhending yfír íslands- söguna og skemmtir lesendum með sínu kjammikla orðfæri. Leiðsögn hans er fróðleg en þó fyrst og /remst upplífgandi — vegna stílsins! Ég ræð það af orðum Indriða að hann hall- ist að Herúlakenningu Barða Gumundssonar. Djörf þótti kenning sú þegar Barði setti hana fram fyrir hér um bil hálfri öld. En býsna lífseig hefur hún orðið eigi að síður. Ætli ástæðan sé ekki meðal annars sú að hún fellur svo vel að sjálfsmynd þeirri sem Islendingar vilja gera sér: það er að vilja hvorki vera Skandín- avar né hluti neinnar annarrar heildar, heldur sér og einir, sjálfum sér líkir og engum öðrum; stakur þjóðflokkur sem leiddist í Noregi og hélt því til lands sem var nógu langt frá öðru byggðu bóli? Indriða er tamara að skrifa um dægurmál sem brenna á vörum þá stundina en fræðileg málefni sem útheimta grúsk og yfirlegu. En hann hefur alltaf eitthvað til málanna að leggja, hvað sem hann tekur fyrir. Og þótt hann nú hverfi þama í ald- ir aftur skiptir hann hvorki um rás né bylgjulengd en tálar mjeð þeirri rödd gem allir kannast við. Og þann- ig næt hann einatt til lesenda: að hann ræðir um hvaðeina eins og það sé óðru meira áríðandi þann daginn; komi hveijum og einum við og sé þess eðlis að á því verði að hafa ein- hveija skoðun. Meðal annars efnis í þessari Nýju Sögu nefni ég þátt Heimis Þorleifs- sonar, Á Heimdalli 1898 -r varð- gæsla og veisluhöld. Líkast til telst það ekki lengur tilfinningamál, og enn síður dægurmál, en í hinum fyrstu þorskastríðum við Breta varð gömlum sjómönnum, og raunar öll- um sem létu sig þjóðarhag varða, tíðrætt um slælega framgöngu Dana meðan þeim bar að gæta landhelg- innar íslensku. Sagt var að þeir hefðu þá eytt meiri tíma í landlegur með dansleikjum og veisluhöldum en til gæslu með ströndum fram sem þeim var þó trúað fyrir. Og það sem verra var: það hefði allt verið með ráði gert og vísvitandi — til að styggja ekki breska heimsveldið sem dröttnaði á höfunum og keypti danska svínakjötið! í þætti Heimis kemur fram að hið fyrrtalda átti að Indriði G. Þorsteinsson minnsta kosti við rök að styðjast. Danir eru (svo maður sletti dönsku) selskapsmenn miklir og kunna að meta hvaðeina sem til munaðar og gleðskapar horfir; mat og drykk jafnt sem fagrar konur. Og íslensk- um höfðingjum mun að sínu leyti hafa þótt ekki lítil tilbreyting í komu þessara borðalögðu fyrirmanna. En einkennisbúningar voru þá í heiðri hafðir í samræmi við vald þeirra sem báru þá! Þegar þessu er nú loks öllu ljóstrað upp sannast hið fomkveðna að sjaldan lýgur almannarómur. Hið síðar talda, að Danir hafi viljandi lokað augunum fyrir landhelgis- brotum Breta, verður síður á þá borið. Sú er sögð ætlun forráðamanna þessarar Nýju Sögu að hafa í ritinu fasta þætti þar sem menn geti skipst á skoðunum um fræðileg efni. Þess konar þættir kunna að verða bæði fróðlegir og áhugaverðir en þeir eiga öðru fremur að ná til hins breiða hóps almennra lesenda. Sagnfræðingar (með prófi) munu nú orðið skipta tugum ef ekki hundr- uðum! Ritstjórar þessarar Nýju Sögu eru hvorki fleiri né færri en níu tals- ins. Og áhugamenn um söguleg málefni eru ótrúlega margir. Þeir fyrirflnnast í öllum starfsgreinum og á öllum aldri. Þess hefur Sögufé- lagið fengið að njóta á undanfömum árum. Hvort þessi Nýja Saga á eftir að ná út fyrir raðir þeirra og kom- ast á vinsæidalistann, það er að segja í hendur hins óbreytta lesanda sem leitar eftir afþreyingu og umræðu- efni til að drepa tímann og teljast viðræðuhæfur í sinn hóp — það er svo annað mál. Það mun reynslan ein leiða í ljós. Stýrikerfið MS-DOS Góð þekking á stýrikerfinu MS-DOS erforsenda þess að geta notað PC-tölvur með góðum árangri. Á námskeiðinu erfarið rækilega í allar helstu skipanir kerfisins. Sérstaklega er farið í notkun harðra diska. Lelðbelnandl: Oskar B. Hauksson, verkfræðingur Tími: 7.-9. október kl. 13-17. VR og BSRB styðja sína félaga til þátttöku á námskeiðinu. Innritun í símum 687590 og 686790. Tölvufræðslan Borgartúni 28 wíiá % Al: besta stað við Bæjarhraun. Ein glæsilegasta sérverslun landsins sinnar tegundar í stórglæsilegu nýju og helmingi stærra húsnæði. Þar bjóðum við flest til að innrétta heimilið — allt eftir þínum óskum. Gólfteppi Gólfdúka Hreinlætistæki Blöndunartæki Gólfflísar Yeggflísar Parket { Málningarvörur ofl.ofl. Ekki eru allar ferðir til fjár en ferð í Fjörðinn borgar sig. BÆJARHRAUN 16 HAFNARFIRÐI SIMI 53140 & g ■IL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.