Morgunblaðið - 07.10.1987, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1987
Kumm
verður haldið í
Súlnasal Hótel Sögu
föstudagskvöld
9. októl
Fjöldasöngur
— sjón-
varpssýnirr
fránárrT^
sKeiöinusT
sumar.
Húsið verður opnað kl. 19.30 fyrir matargesti.
Miðar seldir og borð tekin frá á Hótel Sögu
milli kl. 5 og 7 á fimmtudag, sími 20221.
Miðar einnig seldir við innganginn.
Starfsþjálfun fatlaðra:
Stökkpallur út í frekara nám
Morgunblaðið/Sverrir
Aðstandendur Starfsþjálfunar fatlaðra ( húsnæðinu að Hátúni 10
A. Guðrún Hannesdóttir forstöðumaður, Margrét Margeirsdóttir,
i Ingimundur Friðjónsson og Arnþór Helgason sem skipa stjórn starfs-
I þjálfunarinnar.
STARFSÞJÁLFUN fatlaðra tók
til starfa i gær 7. oktober. Starfs-
þjálfunin, sem hét áður Skóli
fatlaðra, hefur legið niðri í rúmt
ár. Hún er starfrækt í húsnæði
Öryrkj abandalags íslands að
Hátúni 10 A og hófu fjórtán fatl-
aðir einstaklingar á aldrinum
sautján ára til rúmlega fimmtugs
nám. Um áramótin munu svo
bætast við fleiri nemendur.
Skóla fatlaðra var komið á fót
árið 1983 að tilstuðlan Rauða kross
íslands, Öryrlq'abandalagsins,
Stjómunarfélags íslands og Sam-
taka endurhæfðra mænuskaddaðra.
Sá Rauði kross íslands um rekstur
og stjómun hans, auk þess sem
hann flármagnaði reksturinn ásamt
nokkrum félagasamtökum. Starf-
semi starfsþjálfunarinnar lá niðri
síðastliðinn vetur, meðan fram fór
endurskipulagning á rekstri hennar.
Nýjar starfsreglur kveða á um
að Oryrkjabandalag íslands beri
ábyrgð á rekstri starfsþjálfunarinn-
ar, en Félagsmálaráðuneytið beri
Qárhagslega ábyrgð. I stjóm
Starfsþjálfunar fatlaðra eiga sæti
tveir fulltrúar Öryrkjabandalagsins,
þeir Ingimundur Magnússon rekstr-
arfræðingur og Amþór Helgason
formaður ÖBÍ og einn fulltrúi frá
Félagsmálaráðuneytinu, Margrét
Margeirsdóttir deildarstjóri, sem er
jafnframt formaður stjómarinnar.
Fimmtán manna fulltrúaráð er ráð-
gefandi fyrir stjómina. Forstöðu-
maður starfsþjálfunarinnar er
Guðrún Hannesdóttir, námsráð-
gjafi. Auk Guðrúnar munu Siguijón
Einarsson, Helga Bjömsdóttir, Jó-
hann B. Kristinsson og Jón Gíslason
kenna við skólann. Kennd verður
íslenska, enska, bókfærsla, verslun-
arreikningur, tölvufræði og sam-
félagsfræði og er ætlast til að
nemendur fylgist að í kennslunni.
Námið er þijár annir og verður
síðasta önnin ætluð til starfsnáms.
Á fundi sem aðstandendur starfs-
þjálfunarinnar efndu til, kom fram
að þetta nám væri einkum ætlað
þeim sem hefðu lent í slysum og
þörfnuðust endurhæfíngar. Eftir að
endurhæfíngu lyki á Grensási, tæki
ekkert við, starfsþjálfuninni væri
ætlað að gera fólki kleift að he§a
framhaldsnám og að stunda almenn
þjónustustörf. Hún kenndi fólki að
takast á við lífíð á nýjum grund-
velli. Bentu aðstandendumir í því
sambandi á að tölvur hefðu valdið
byltingu í málefnum fatlaðra, þar
sem þær gerðu mörgum kleift að
tjá sig skriflega. Því væri lögð
áhersla á að nýta tölvur sem mest
í náminu.
Skíöaskólinn í Kerlingarfjöllum.
Námskeið fyrir ríkisstarfsmenn
Stjómsýslufræðsla ríkisins var sett á fót haustið 1986 af fjár-
laga- og hagsýslustofnun f samstarfi við Endurmenntunamefnd
Háskólans.
Hlutverk hennar er að bæta rekstur ríkisstofnana með mark-
vissu fræðslustarfi um árangursríka stjómsýslu.
Nú hafa um 700 ríkisstarfsmenn sótt þessi námskeið en við
erum rétt að byrja.
Næstu námskeið sem haldin veröa í október og nóvember eru:
Reglur um meðferð mála í stjómsýslunni 13. og 14. okt.
Ætlað þeim sem fjalla um ákvörðun um meðferð og afgreiðslu
mála hjá ríkinu.
Mat á vinnu ríkisstarfsmanna 15. og 16. okt.
Eru til leiðirtil að meta betur vinnu starfsmanna í þinni stofnun?
Mat á íjárfestingarvalkostum 27. okt.
Hvemig metum við arósemi hjá ríkinu og forgangsröðum verkefnum?
Ráðningar og laun nóv.
Meðferð launamála hjá ríkinu og starfsemi launadeildar.
Að skrifa skýrslu 9-12. nóv.
Hvernig skrifa má skýrslu á markvissan, skýran og lipran hátt.
Stefnumótun og starfsáætlanir ríkisstofnana 13. nóv.
Leiðir til markvissara starfs hjá ríkisstofnunum og auðveldara endurmats.
Bókhald, grunnnámskeið 16.-18. nóv.
Starfsmannaviðtöl 17. og 18. nóv.
Leió til að virkja starfsmenn og meta árangur í starfi.
Bókhald ríkisins, uppbygging og notkun 19. og 20. nóv.
Fjárlagagerð 23. og 24. nóv.
Vandaður frágangur á fjárlagaiillögum er forsenda þess að þær
fái eðlilega umtjöllun. Hér færðu slíka kennslu.
Ríkisstarfsmenn eru hvattir til að kynna sér námskeiðin.
Kynningarbæklingur fyrir haustönn fæst á öllum ríkisstofnunum
og hjá Endurmenntunarnefnd HÍ, Simi 91-23712.
A\\W
í tilefni af
&& komu fyrstu sendingar
FUNAI
myndbandstækja til íslands
bjóöum viö sérstakt
kynningarverð á takmörkuðu
magni af VHS Funai VCR 4800
* HQ (high quality) kerfl
* Þráölaus fjarstýrlng
* 4 þátta/14 daga upptökumlnnl
* 12 ráslr
* Hraöupptaka
* Rakavarnarkerfi (Dew)
* SJálfvlrk bakspólun
FJölhæft minnl
Vörumarkaðurinn
J KRINGLUNNI S:685440
Vegna mikillar aðsóknar er nauðsvniegt að
panta tímanle^a. St jornsvsliifriertsla ríkisins.