Morgunblaðið - 14.10.1987, Page 1

Morgunblaðið - 14.10.1987, Page 1
88 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 232. tbl. 75. árg. MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Mikhail Gorbachev: Kerfið verður skorið niður Moskvu, Reuter. MIKHAIL Gorbachev, leiðtogi Sovétríkjanna, hét því í gær að skera skriffinnskuna í landinu niður við trog en tók fram, að hann væri ekki að boða menningarbyltingu á borð við þá, sem var í Kína á sínum tíma. Gorbachev lét þessi orð falla á fundi í Leningrad og sagði, að Sov- étríkin yrðu fyrir óskaplegu tjóni bæri herferð hans fyrir samfélags- legri og efnahagslegri endumýjun engan árangur. „Við höfum tekið upp nýjar stjómunaraðferðir og verðum nú að skera niður kerfið. Við eigum aðeins að halda þeim mönnum eftir, sem þörf er fyrir, en ég tel, að nú séu þeir allt að helmingi of margir," sagði hann. Gorbachev hét að reka burt þá embættismenn, sem stæðu í vegi fyrir umbótum, og sagði, að hér væm engin gamanmál á ferðinni heldur sjálf framtíð lands og þjóð- ar. Lagði hann þó áherslu á, að ekki yrði um að ræða neina menn- ingarbyltingu í líkingu við þá kínversku. Veik hann einnig að „hinum dimmu dögum" í sögu þjóð- arinnar og sagði, að hún og flokkur- inn hefðu þrátt fyrir allt lifað þá af. Nefndi hann ekki við hvaða at- burði hann ætti en hann hefur áður minnst á fjöldamorðin í tíð Stalíns. Búast sumir við, að hann muni gera þeim tíma betri skil áður en haldið verður upp á 70 ára afmæli byltingarinnar í næsta mánuði. New York Times: Varað við fjölgun sníkjudýra í fiski Bandaríska stórblaðið The New York Times birtir í dag frétt um sníkjudýr og orma í fiski og rekur umræðuna, sem orðið hefur um þessi mál í kjölfar uppákomunnar í Vestur-Þýskalandi. Er þar sagt, að sníkjudýrunum fari fjölgandi í fiski um allan heim og sé sérstak- lega varasamt að borða hráan fisk en japanskir réttir, sem gerðir eru úr honum, hafa verið mjög vinsælir vestra um skeið. Reuter. HEMSINS HÆSTIMAÐUR Mósambíkmaðurinn Gabriel Mondlane, sem er talinn vera hæsti maður í heimi, og kona hans, Maria, komu í gær til Suður-Afríku þar sem hann mun gangast undir aðgerð á mjöðm. Urðu læknarn- ir að byrja á því að lengja skurðarborðið þvi að Mondlane, sem er 42 ára gamall, er hvorki meira né minna en 2,46 metrar á hæð. Framkvæmda- stjóri NATO: Er þriðji maðurinn lausnin? Bonn, Reuter. Norðmenn geta sætt sig við þriðja frambj óðandann til emb- ættis framkvæmdastjóra Atlants- hafsbandalagsins til að hindra, að Vestur-Þjoðveijinn Manfred Wörner hreppi starfið. Var þetta haft í gær éftir norskum stjórnar- erindrekum en talsmaður norsku stjómarinnar ber á móti því. Norska stjómin, sem tilkynnti framboð Káres Willoch, fyrrum for- sætisráðherra, í ágúst sl. er sögð vera mjög óánægð með framkomu vestur-þýskra stjómvalda og fínnst sem þau hafi gefíð í skyn, að Wöm- er, fyrrum vamarmálaráðherra, sé ömggur með að fá embætti fram- kvæmdastjórans þegar Carrington lávarður lætur af því næsta sumar. ' Er það haft ónefndum embættis- mönnum norskum í Ósló og Bonn, að slagurinn milli Willochs og Wöm- ers kunni að skaða samskipti þjóðanna og því sé rétt að huga að þriðja frambjóðandanum. Sögðu þeir, að kominn væri tími til, að ein af smáþjóðunum í NATO fengi fram- kvæmdastjórann og því væri unnt að sættast á Leo Tindemans, ut- anríkisráðherra Belgíu. Per Paust, talsmaður norska ut- anríkisráðuneytisins, sagði í gær, að stjómin hefði ekki gert neinar sam- þykktir um þriðja frambjóðandann og ummæli embættismannanna væri ekki opinber stefna. í frétt blaðsins segir, að sníkju- dýmnum hafí fjölgað vegna aukinn- ar sela- og hvalagengdar og séu það slæmar fréttir fyrir bandaríska neytendur sem aðra. Kemur þar fram, að vitað sé um 50 sýkingartil- felli f Bandarílq'unum en að talið sé, að 30 milljónir manna um allan UNESCO: Auknar Ukurá kjöri M’Bows Paris, Reuter. í GÆR jukust líkurnar á, að Amadou M’Bow, umdeildur framkvæmdastjóri UNESCO, Menningarmálastofnunar Sam- einuðu þjóðanna, verði kjörinn í embættið í þriðja sinn. Vantar hann aðeins þijú atkvæði upp á endanlegt kjör. í fyrstu tveimur atkvæðagreiðsl- unum fékk M’Bow 18 atkvæði en 23 í gær og helsti mótframbjóðandi hans, spænski lífefnafræðingurinn Federico Mayor, fékk í gær 18 og tvöfaldaði fylgi sitt. Fjórða at- k\'æðagreiðsian fer fram í dag en í þeirri fímmtu, sem hugsanlega verður í kvöld, verður kosið á milli tveggja efstu. A Vesturlöndum ríkir mikil óánægja með M’Bow og hafa Bandaríkjamenn, Bretar og Singap- ore-búar sagt sig úr stofnuninni. Danir, Vestur-Þjóðveijar, Hollend- ingar og Belgar hafa hótað því sama verði M’Bow kjörinn og Is- lendingar og Finnar hafa einnig látið að því liggja. heim séu sýktar. Séu einkum þijár físktegundir varasamastar, þorsk- ur, Kyrrahafslax og önnur fiskteg- und til, sem einnig lifír í Kyrrahafí. í blaðinu eru raktar ýmsar verk- unaraðferðir og haft eftir sníkju- dýrafræðingum, að í þessum efnum geti enginn verið öruggur nema fískurinn sé frystur vel eða soðinn. Þá var minnst á eitt sérstakt tilfelli í San Francisco og var þar um að ræða japanska réttinn „sushi" en hann er gerður úr hráum fiski og hefur átt sívaxandi vinsældum að fagna sl. áratug. Friðarverðlaun Nóbels: V erðlaunaveiting- unni almennt fagnað San Jose, Reuter. „ÞETTA er mesti gleðidagur í lífi minu,“ sagði Oscar Arias Sanchez, forseti Costa Rica, sem Reuter VETURINN BOÐAR KOMUSÍNA Fyrstu spjóar haustsins féllu í gær i Sviss og þykir það heldur með fyrra fallinu. Kýrnar i Lenzerheide, sem er i austanverðu landinu, létu sér þó ekki bregða enda öllu vanar frá siðastliðnu sumri, sem var bæði kalt og votviðrasamt. íbúarnir á þessum slóð- um hafa hins vegar nokkrar áhyggjur af fannkomunni og óttast, að veturinn verði harður. í gær hlaut frið- arverðlaun Nóbels. Fékk hann þau fyrir framlag sitt til friðar í Mið- Ameríku og hefur veiting- unni almennt verið fagnað og hún talin geta aukið líkumar á ®*car Ariaa framgangi frið- aráætlunar Ariasar og fjögurra annarra forseta í þeim heimshluta. „Við vorum öll sofandi þegar útvarpið sagði frá tíðindunum og vissum ekkert fyrr en nokkrum stundum síðar,“ sagði Silvia Elena Arias, tíu ára gömul dóttir forset- ans. „Hann var að sjálfsögðu ánægður en hringdi samt í allar áttir til að vera viss um, að þetta væri ekki gabb." Verðlaunaveitingunni var fagnað ákaflega í Costa Rica og í gær var um fátt annað rætt í fjölmiðlunum. Stjómarandstæðingar sem stuðn- ingsmenn Ariasar voru sammála um, að hún yki líkumar á, að frið- aráætlunin frá 7. ágúst næði fram að ganga og í sama streng tóku talsmenn annarra ríkisstjóma í Mið-Ameríku og Samtaka Amerík- uríkja. Var ekki síst farið lofsam- legum orðum um hana í Nicaragua. Ronald Reagan Bandaríkjafor- seti óskaði Ariasi tii hamingju með verðlaunin og sagði, að hann hefði átt þau skilin fyrir að hafa mtt leið- ina til friðar í Mið-Ameríku. Ýmsir repúblikanar aðrir hafa þó gagn- rýnt veitinguna ,og sagði t.d. Jack Kemp, sem sækist eftir útnefningu sem forsetaframbjóðandi, að hún væri mistök því að friðaráætlun Ariasar og annarra myndi ekki leiða til friðar í Nicaragua. Demókratar hafa hins vegar hrósað norsku nóbelsnefndinni í hástert fyrir „framúrskarandi val“ og segja þeir, að ákvörðunin sé í raun áfall fyrir Reagan, sem hafí kallað friðaráætlunina „alvarlega gallaða". Sjá bls. 30.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.