Morgunblaðið - 03.11.1987, Síða 1
80 SÍÐUR B
249. tbl. 75. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1987
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Bretland:
Nýrformað-
ur íhalds-
flokksins
Lundúnum, Reuter.
MARGARET Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, skýrði frá
þvi í gær að valinn hefði verið
nýr formaður íhaldsflokksins,
eftir nokkrar deilur um hver
skyldi hreppa hnossið. Það er
Peter Brook, sem á sæti í stjóm
Thatchers, en 'til þessa hefur lítið
farið fyrir honum. Ekki er þó
talið að hann verði lengi formað-
ur.
Brook tekur við embættinu af
Norman Tebbitt, sem hefur verið
formaður hans undanfarin ár. Tebb-
itt hyggst hætta afskiptum af
stjómmálum til þess að geta sinnt
konu sinni betur, en hún varð öryrki
eftir sprengjutilræði IRA á næst-
síðasta flokksþingi íhaldsmanna í
Brighton. Honum var boðið ráð-
herraembætti í stjóminni, en hann
kaus frekar að stsirfa í einkageiran-
um.
Upphaflega stóð til að Young
lávarður tæki við af Tebbitt, en
hann afþakkaði það.
Talið er að Brook verði ekki lengi
í formannssæti, eða þar til endur-
skipulagningu flokksins lýkur.
Brook, fyrrverandi blaðamaður með
efnahagsmál að sérgrein, er nú ráð-
herra. Hann hefur fjárhag þeirra
ríkisstofnana, sem ekki hafa eigin
tekjur, á sinni könnu, en það þykir
fremur veigalítið embætti.
Lenín bónaður Reuter
Hátíðahöld vegna byltingarafmælisins era nú í algleymi austur í
Sovétríkjunum. Hér á myndinni má sjá hvar lögð er síðasta hönd á
veggmynd af byltingarleiðtoganum Vladimir I. Lenín.
Kína:
Framkvæmdanefnd
flokksins yngist
Peking, Reuter.
KÍNVERSKI kommúnistaflokkurinn kaus í gær nýja framkvæmda-
nefnd flokksins, en hún er í raun valdamesta stofnun hans. í nefndinni
sitja fimm menn og fara þeir með stefnumótun flokksins. Fyrir utan
það að nýju mennirair eru talsvert yngri en þeir sem viku þykir eftir-
tektarvert að umbótasinnar fara þar fremstir í flokki.
í stjómmálanefnd flokksins, sem
í sitja 18 manns, hafa umbóta-
sinnamir talsverðan meirihluta og
þykir þetta gefa til kynna að áhrifa
Deng Xiaoping muni gæta í Kína
enn um sinn, þrátt fyrir að hann
hafi sagt af sér öllum áhrifastöðum.
Zhao Ziyang, forsætisráðherra,
var kjörinn framkvæmdastjóri
flokksins og virðist hann því hafa
tryggt framtíð sína sem eftirmaður
Dengs. Voru enda þrír helstu stuðn-
ingsmenn hans allir hækkaðir í tign.
Meðalaldur miðstjómar flokksins
hefur talsvert lækkað og er nú 55,2
ár í stað 59,1 áður. Fjöldi gamalla
kommúnista fór að fordæmi Dengs
og iét af störfum, en stjómmálaskýr-
endur á Vesturlöndum telja að hár
aldur valdamanna þar eystra hafi
mjög háð öllum framförum í Kína.
Fréttamenn I Peking veittu því
athygli að að þessu sinni var ekkert
um skrúðgöngur og flugeldasýning-
ar þegar tilkynnt var um manna-
breytingamar, en frá byltingu hefur
það verið fastur liður, þegar um
róttækar breytingar í forystuliði
flokksins hefur verið að ræða.
Sjá ennfremur frétt á síðu 28.
Markaðurinn:
Dalur fellur enn,
en verðbréf hækka
New York-borg, Reuter.
í GÆR féll Bandaríkj adalur enn
{ verði, en á verðbréfamarkaðin-
um bar það til tíðinda að hlutabréf
hækkuðu. Óttast hafði verið að
nú yrði um þriðja „svarta mánu-
daginn" að ræða, en svo varð
ekki. Fall dalsins er rakið til
Byltingarafmæli Sovétríkjanna:
V onbrigði á Vesturlönd-
um með ræðu Gorbachevs
Markaði ekki þau þáttaskil, sem talið haf ði verið
Moskvu, Reuter.
í GÆR flutti Mikhail Gorbachev, Sovétleiðtogi, hátiðaræðu í tilefni
af 70 ára afmæli byltingar kommúnista þar í landi. í ræðunni sagði
hann að nauðsynlegt væri fyrir Sovétmenn að líta á „sársaukafull tíma-
bil“ í sögu rfldsins og gagnrýndi hann stjórn Jósefs Stalin nokkuð.
Utan Sovétríkjanna þykir mönnum ræðan þó ekki hafa skipt neinum
sköpum í sögu Sovétríkjanna, eins og sumir höfðu búist við. Þá gagn-
rýndi hann þá, sem fara vildu of geyst i breytingar á stjómkerfinu.
Er talið að hann hafi beint orðum sínum til Boris Yeltsin, flokksleið-
toga i Moskvu, sem hótaði fyrir skemmstu að segja af sér ef ekki
yrði gengið lengra í fijálsræðisátt. í bandaríska blaðinu The New
York Times var getum að þvi leitt, að tvístig Sovétmanna um ieið-
togafund nú á dögunum hafi mátt rekja til þessa máls.
í fyrstu mun hafa staðið til að taka
afsagnarhótun Yeltsin alvarlega, en
eftir nokkurra daga þóf var ákveðið
að hann myndi sitja áfram í stjórn-
málaráði Sovétríkjanna, sem er
eiginleg ríkisstjóm þeirra.
í bandaríska blaðinu The New
York Times sagði að mál þetta hefði
vakið nokkum kurr í kommúnista-
flokknum og af þeim völdum hefði
óvissa sú, sem var um væntanlegan
leiðtogafund risaveldanna, orðið.
Sjá nánari frétt um hátiðaræðu
Gorbachevs á síðu 29.
þeirrar trúar gjaldeyrismiðlara
að vestræn iðnríki séu enn á þvi
að hann megi við frekara falli.
Litlu munaði að Bandaríkjadalur
setti nýtt met, þegar lágt verð er
annars vegar, en hann kostar nú um
1,70 vestur-þýsk mörk. Gagnvart
japanska jeninu féll hann enn frekar
og hefur aldrei verið jafnlágur í verði
frá stríðslokum.
Þegar verðbréfamarkaðir vom
opnaðir í gær féllu bréf fyrst nokkuð
í verði og töldu menn þá hrakspár
um áframhaldandi verðfall vera að
rætast, en ekki leið á löngu þar til
verðið mjakaðist upp að nýju.
Bandaríska tímaritið Forbes gerir
árlega skrá yfir 400 auðugustu ein-
staklinga í Bandaríkjunum og væri
hún gerð nú myndu a.m.k. 38 falla
út af henni, að sögn blaðsins. Skrá-
in var síðast gerð í september.
í ræðunni ræddi Gorbachev nokk-
uð fortíð Sovétríkjanna og gagnrýndi
meðal annars stjómartíð Jósefs
Stalín. Sagði hann að mörg afdrif-
arík „mistök" hefðu átt sér stað, en
tók þó fram að Stalín hefði ekki ver-
ið alls vamað. Nefndi hann sam-
yrkjubúskapinn, sem dæmi um það,
og sagði hann hafa verið „óumdeilan-
legt framlag til baráttunnar fyrir
sósíalisma".
Viðbrögð við ræðunni utan Sovét-
ríkjanna hafa verið frekar dræm.
Viðbrögð helstu Sovétfræðinga á
Vesturlöndum vom yfirleitt á þann
veg, að ræðan sýndi glögglega að
Gorbachev ætti við ramman reip að
draga þegar flokkurinn og skrifker-
amir væm annars vegar. Gengu
sumir svo langt að segja að leið-
toginn hefði einfaldlega pakkað
saman spilunum þegar kom að sögu
Sovétríkjanna.
„Að segja að Stalín hafi gert ,mik-
il pólftísk mistök1 er ekkert nýtt;
Kmshchev gerði það á sínum tírna,"
segir Karl van het Reve, prófessor
við Leiden-háskóla í Hollandi. „Ég
heyrði ekkert athyglisvert í ræðu
hans.“
Gorbachev fann að Boris Yeltsin,
flokksleiðtoga í Moskvu, eins og fyrr
er nefnt. Sá hótaði að segja af sér
á dögunum ef ekki yrði gengið lengra
í framfaraátt. Er sagt að hann hafi
gagnrýnt Gorbachev á fundum
stjómmálaráðsins fyrir að hafa ýtt
undir persónudýrkun á sjálfum sér.
Frelsisher-
menn leita
lækninga
Um helgina var þessuin
þremur frelsishermönn-
um frá Afganistan flogið
með flugvél til Banda-
ríkjanna þar sem þeir
eiga að gangast undir
uppskurði vegna áverka,
sem þeir hlutu i bardög-
um við sovéska innrásar-
liðið i heimalandi sínu.
Þetta eru fyrstu Afgan-
irnir, sem fara vestur i
þessum tilgangi, en á
næstunni er fyrirhugað
að auka þessa flutninga.
Reuter