Morgunblaðið - 03.11.1987, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 03.11.1987, Blaðsíða 62
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1987 62 OGILDI LOTTOUTDRATTURINN: Fæ ég þá ekki neinn viiuiing? - spurði 11 ára „milljónamæring- ur“ eftir ógilda útdráttinn Stiflan afdrifaríka, sem kostaði íslenska Getspá um 6 milljónir króna. GUÐMANN Sigurgeir Magnús- son, 11 ára, var einn hinna þriggja sem voru með fimm rétt- ar tölur eftár fyrri dráttinn i Lottóinu á laugardaginn, sem siðan var lýstur ógildur. Hann sagðist vera ánægður með ákvörðun íslenskrar Getspár, þó að hann fái 1,3 milijónum króna minna i sinn hlut en hefði orðið ef fyrri útdrátturinn hefði verið gildur. Guðmann fylgdist með útdrætt- inum í sjónvarpinu hjá móðurbróð- ur sínum, Sigurgeir Guðmanns- syni, þar sem hann var í heimsókn. Hann sagðist ekki hafa séð mistök- Útdráttarfyrirkomulagi breytt „Vinningshafar“ í ógilda útdrættínum fá bætur STJÓRN íslenskrar Getspár hefur ákveðið að þeir sem voru með réttar tölur í fyrri út- drætti Lottósins nú á laugar- daginn, sem lýstur var ógildur, skuli fá borgaða sömu fjárhæð og vinningshafar í seinni út- drættinum, sem fór fram á löglegan hátt. Dómsmálaráðuneytið hefur beðið íslenska Getspá að breyta fyrirkomulagi við útdrátt í Lottóinu þannig að eftirlits- menn geti séð mistök um leið og þau gerast, en á laugardag- inn urðu mistökin ekki Ijós fyrr en eftir að beinni útscndingu lauk. Það má telja vist að breytt fyrirkomulag við útdrátt i Lottóinu komi til framkvæmda þegar næsta laugardag. Mistökin við talnaútdráttinn hjá Lottóinu á laugardaginn urðu þannig að 10 kúlur sátu eftir fastar í kúlugrindinni og duttu ekki ofan í snúningshólfið, eins og þær áttu að gera. Vilhjálmur Vilhjálmsson hjá Islenskri Getspá sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að lottóvélin hefði starfað eins og henni er ætlað að gera, en það hefði aldrei komið fyrir áður að kúlumar hafí stíflast í þau 200-300 skipti sem vélin hef- ur verið notuð. Hvorki kynnamir né Hjalti Zóp- haníasson, fulltrúi dómsmála- ráðuneytisins, voru í aðstöðu til að sjá mistökin á meðan á útsend- ingu stóð, en margir sjónvarps- áhorfendur sáu þau og hringdu nokkrir til sjónvarpsins. Þegar málið var athugað eftir að útsend- ingu lauk, uppgötvuðust kúlumar sem urðu eftir, og lýsti Hjalti þá útdráttinn ógildan, og ákveðið var að draga aftur. Alls voru rúmar 6,8 milljónir í pottinum fyrir fyrsta vinning í Lottóinu, og hinir þrír „vinnings- hafar“, sem vom með 5 tölur réttar eftir ógilda útdráttinn, hefðu því hver fengið tæpar 2,3 milljónir í sinn hlut. í seinni út- drættinum voru sjö manns með 5 tölur réttar, og fékk hver þeirra um 980.000 krónur í_ vinning. Samkvæmt ákvörðun íslenskrar Getspár fá þeir sem vom með réttar tölur í fyrri umferðinni einnig 980.000 krónur í sinn hlut. Sama regla gildir gildir um þá sem vom með 3 og 4 rétta í ógilda útdrættinum. Mistök hörmuð í fréttatilkynningu frá Islenskri Getspá segir: „Stjómin harmar þau mistök sem urðu við útdrátt í Lottó 5/32 laugardaginn 31. október síðastliðinn. Ljóst er að fyrri útdrátturinn var ógildur, þar sem tölumar 32 sem draga átti úr vom ekki til staðar, enda úr- skurðaði eftirlitsmaður dóms- málaráðuneytisins hann ógildan. Er útdrátturinn fyrst gildur að hann sé samþykktur af honum. Hins vegar telur stjóm íslenskrar Getspár ekki ósanngjamt, miðað við aðstæður, að þeir aðilar sem vom með réttar tölur við fyrri útdráttinn hljóti sömu fjárupphæð og þeir sem vom með réttar tölur við síðari útdráttinn, og sam- þykkir að greiða þeim samkvæmt því. Stjóm íslenskrar Getspár áréttar að greiðslur þessar em án nokkurrar viðurkenningar á bótaskyldu. Þessar sérstöku greiðslur fara fram á skrifstofu Islenskrar Getspár, en ekki hjá umboðsmönnum." Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins munu ekki vera til neinar reglur um tilvik eins og þetta, en í reglum frá dómsmála- ráöuneytinu segir að vinningar skuli borgaðir eftir gildum út- drætti, og að kæmfrestur sé einn mánuður. Vilhjálmur Vilhjálms- son hjá íslenskri Getspá sagði að sér hefðu ekki borist neinar kæmr og að hann ætti ekki von á að neinn myndi kæra, enda hefðu þeir „vinningshafar" úr ógilda útdrættinum sem hann vissi um verið ánægðir með lausn mála. Ólafur Walter Sigurðsson, skrifstofustjóri í dómsmálaráðu- neytinu, tjáði Morgunblaðinu í gær að ráðuneytið hefði farið þess á leit við íslenska Getspá að fyrir- komulagi við útdrátt í Lottóinu yrði breytt. Vilhjálmur Vilhjálms- son hjá íslenskri Getspá sagði að það væri ljóst að breytingar yrðu gerðar fyrir næsta útdrátt á laug- ardaginn kemur, en það væri eftir að ræða við sjónvarpið og fleiri aðila um nákvæma tilhögun þeirra breytinga. Breytingamar verða væntanlega í því fólgnar að stað- setningu eftirlitsmanna verður breytt, þannig að þeir geti fylgst nákvæmlega með útdrættinum um leið og hann fer fram. Lokaniðurstaðan úr Lottói 5/32 Réttar tölur úr fyrri út- drættinum í Lottói 5/32, sem var lýstur ógildur, eru: 3, 11, 18, 20, 32. Réttar tölur úr seinni út- drættinum eru: 4,6,19,30,31. Vinningsupphæðir eins og þær hefðu verið ef fyrri út- drátturinn hefði verið gildur eru eins og hér segir: 5 tölur réttar - kr. 2.284.734; 4 réttar - kr. 2.089; 3 réttar - kr. 192. Vinningsupphæðir eins og þær eru eftir seinni útdrátt- inn: 5 tölur réttar - kr. 979.172; 4 réttar - kr. 1.852; 3 réttar - kr. 165. Þeir sem hafa 3 eða fleiri tölur réttar úr annað- hvort fyrri eða seinni útdrætt- inum fá borgað þá upphæð sem gildir fyrir seinni útdrátt- inn. Guðmann Sigurgeir Magnús- son, sem vann 2,3 milljónir, tapaði þeim aftur, en fær nú tæpa milljón út úr Lottóinu. in, þegar talnakúlumar stöðvuðust áður en þær duttu niður í snún- ingshólfið. Guðmann varð að vonum ánægður með vinninginn, og hringdi strax til vinar síns og skíðafélaga til að segja honum tíðindin. Vinurinn trúði sögunni tæplega, en Sigurgeir sagði við hann að Guðmann myndi bjóða honum til Austurríkis á skíði. Þegar þeir frændur komu úr símanum var verið að draga í ann- að sinn í sjónvarpinu, og þegar þeim varð ljóst hvað var að gerast varð Guðmanni að orði: „Fæ ég þá ekki neitt?" Guðmann missti málið í smástund, en tók tíðindun- um karlmannlega og með ró, sagði Sigurgeir. Þeir fóru síðan I ökuferð til að kæla sig niður eftir þessar snöggu og óvæntu breytingar sem höfðu orðið á flármálum Guð- manns á örfáum mínútum, og þegar foreldrar Guðmanns komu til að sækja hann seinna um kvöld- ið héldu þau fyrst að hann væri að gabba þau. Daginn eftir hafði Sigurgeir svo samband við íslenska Getspá, og fékk hjá þeim upplýsingar um að Guðmann myndi fá borgað sem samsvarar upphæð fyrsta vinnings í seinni útdrættinum. Guðmann sagði að honum hefði liðið vel eft- ir þær fréttir, og að hann væri mjög ánægður með ákvörðun ís- lenskrar Getspár. Guðmann sagð- ist vera að hugsa um að fara á skíði til Austurríkis, en hann hefði enn ekki ákveðið hvað hann ætlaði að gera við afganginn af vinnings- fénu. Guðmann og fjölskylda hans ætla ekki að kæra útdráttinn, og Guðmann hefur fullan hug á að halda áfram að spila I Lottói. „Þetta var Salómonsdómur, en þetta hristir vonandi upp í þeim svo þeir sofí ekki á verðinum“ sagði Sigurgeir Guðmannsson. Benóný sjötugur í DAG, þriðjudaginn 3. nóvember, er sjötugur einn kunnasti og vinsæl- asti skákmaður landsins, Benóný Benediktsson. Benóný dvelst nú á Borgarsjúkrahúsinu í Reykjavík, en hann er Húnvetningur. Jtb Benóný ávann sér sæti í meist- araflokki Taflfélags Reykjavíkur 25 ára gamall 1943 og varð skákmeist- ari Reylqavíkur 1956 og 1962. Hraðskákmeistari íslands varð Benóný 1947 og 1953. Hann varð víðfrægur fyrir jafnteflisskákir sínar við rússnesku skákmeistarana Taimanov og Ilivitski á Guðjóns- '*■' mótinu 1956. Wgm Grindavík: Þjófar stórskemma íbúð Benóný Benediktsson Grindavík. MIKIÐ tjón var unnið á ný- byggðri íbúð í Grindavík að- faranótt síðastliðins laugardags. Innbrotsþjófar skildu eftir heita vatnið á fullu rennsli með þeim afleiðingum að vatnsskemmdir nema hundruð þúsunda króna. íbúðin er ein af fjórum sem stjóm verkamannabústaða í Grindavík hefur haft í smíðum í tveimur hús- um við Ásvelli 4 til 6 undanfama mánuði. Brotist var inn í eina íbúð- ina og fundu þjófamir þar Iykla að öllum íbúðunum sem þeir síðan notuðu. í fjórðu íbúðinni létu þeir ekki nægja að stela verkfæram frá byggingarverktakanum heldur sneru í sundur blöndunartæki í eld- húsi, settu tappann í vaskinn og skrúfuðu frá heitavatnskrananum á fullt. Þá var tappinn einnig settur í vaskinn á salemi og skrúfað frá. Þegar smiðimir komu á laugar- dagsmorguininn mætti þeim heldur ófögur sjón. íbúðin var öll á floti og í gufubaði, málning og veggir og famir að bólgna og teppi og gólf- dúkar gegnblautir. Trésmíðafyrirtækið Grindin sf. í Grindavík hefur haft íbúðimar í smíðum og átti að afhenda þær samkvæmt samningi 1. nóvember, en einungis átti eftir að fá menn frá Húsnæðismálastofnun til að taka þær út. Tjónið á íbúðinni, sem er ekki að fullu komið fram, nemur hundraða þúsunda króna og lendir það á verktakanum. Lögreglan í Grindavík lýsir eftir vitnum að mannaferðum í kringum húsið um- rædda nótt því málið er enn óupplýst. Kr.Ben.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.