Morgunblaðið - 03.11.1987, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1987
John Kenneth Galbraith:
Af stýrum kreppu með
markvissri stjórnun,
vaxtalækkun og aukn-
um ríkisútgjöldum
New York, London, Reuter.
JOHN Kenneth Galbraith,
hinn kunni bandaríski hag-
fræðingur, sagði að afstýra
mætti kreppu í Bandaríkjun-
um með markvissri stjórnun,
vaxtalækkun og auknum
ríkisútgjöldum.
Galbraith sagði að spákaup-
mennska væri ein megin ástæðan
fyrir verðfalli á verðbréfamörkuð-
um að undanfömu. „Þetta er eins
og í spilavíti, það kemur fyrr eða
síðar að því að kjánamir tapa pen-
ingum sínum," sagði Galbraith,
er hann svaraði spumingum hag-
fræðinga, sem þátt tóku í pall-
borðsumræðum í Bard College í
New York-ríki.
Galbraith sagði að afstýra
mætti kreppu með virkri stjómun,
þar með talið forseta sem væri
með á nótunum.
James Tobin, Nóvelsverðlauna-
hafí í hagfræði, sagðist sammála
Galbraith og hvatti til þess að
skattar yrðu hækkaðir og halli á
fjárlögum minnkaður til þess að
bæta ástand bandarískra efna-
hagsmála. Hann varaði þó við
aðgerðum sem lækkuðu kaupmátt
almennings meira en þörf krefði.
Tobin gagnrýndi stefnu stjómar
Reagans í efnahagsmálum en
hrósaði Alan Greenspan, banka-
stjóra seðlabanka Bandaríkjanna,
fyrir að lækka vexti.
Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, hefur tjáð
Reagan forseta að Bandaríkja-
menn verði að draga stórlega úr
fjárlagahalla til þess að stöðva
megi ringulreið á verðbréfamark-
aði um heim allan. Þetta kemur
fram í brezka blaðinu Observer í
fyrradag og sagði blaðið að hér
væri um að ræða íhlutun og af-
skiptasemi af bandarískum mál-
efnum, sem ætti sér engin
fordæmi.
Maraþon í Nýju-Jórvík
Reuter
Þátttakendur í New York maraþon-hlaupinu
stöðvuðu alla umferð bifreiða um Verrazano-
brúna við upphaf hlaupsins i gær. Fjöldi þátttak-
enda er ókunnur en af myndinni að dæma skipta
þeir þúsundum.
Þingi kínverska kommúnistaflokksins lokið:
Aldraðir harðlínumenn víkja
fyrir yngri umbótasinnum
ERLENT
Peking’, Reuter.
ÞRETTÁNDA þingi kfnverska
kommúnistaflokksins lauk á
sunnudag og voru gerðar róttæk-
ar breytingar á stjóramálaráði
og miðstjóra flokksins. Deng
Xiaoping, leiðtogi flokksins, vék
úr miðstjórninni en fullvíst er
talið að Deng, sem er 83 ára að
aldri, verði valdamesti maður
Kína þar tíl hann safnast til feðra
sinna. Almennt er Utið svo á að
eldri harðlínumenn hafi vikið
fyrir yngri mönnum, sem hUð-
hollir eru umbótastefnu Dengs
og Zhaos Ziyang forsætisráð-
herra, sem mun vafalítið taka
við stöðu Dengs sem leiðtogi
kínverska kommúnistaflokksins.
Deng vék einnig úr stjómmála-
ráði flokksins en vegna breytinga
á stjómarskránni, sem samþykktar
Rcuter
Deng Xiaoping (til vinstri), leiðtogi kínverska kommúnistaflokksins,
og Zhao Ziyang forsætisráðherra greiða atkvæði á flokksþinginu-
þinginu, sem lauk á sunnudag.
Vestur-Þýskaland:
Karl Bretaprms og Díana
í opinberri heimsókn
Vestur-Berlín, Reuter.
KARL krónprins Breta og Díana
prinsessa komu tíl Bonn í gær i
upphafi opinberrar heimsóknar
þeirra tU Vestur-Þýskalands.
Þau munu dvelja í sex daga f
Þýskalandi og meðal annars
heimsækja Miinchen, Hamborg og
Köln.
Þau hjón, Karl og Díana, komu
til Bonn í gær, þar sem forseti
Vestur-Þýskalands, Richard von
Weizsácker, og Helmuth Kohl
kanslari tóku á móti þeim. Fyrir-
hugað er að Karl og Díana dvelji í
Vestur-Þýskalandi í sex daga og
gera má ráð fyrir að blaðamenn
fylgi þeim hvert fótmál.
Undanfarið hafa breskir fjölmiðl-
ar verið uppfullir af sögusögnum
um að hjónaband þeirra standi höll-
um fæti. Við komuna til Vestur-
Þýskalands var ekki annað að sjá
en allt væri í „lukkunnar velstandi"
hjá þeim hjónum. Er prinsinn ávarp-
aði breska landgönguliða í Vestur-
Berlín skjallaði hann konu sína og
brosti hún kankvís við ummæli hans
um að hún væri „fegursti ofursti
Breta".
voru á þinginu, mun hann áfram
gegna stöðu formanns hermála-
nefndar flokksins, sem tryggir
honum mikil völd. Er litið svo á að
með þessu muni áhrifa hans gæta
innan flokksins allt þar til yfír lýk-
ur. Hins vegar vakti athygli að
Deng þurfti á aðstoð að halda er
hann hugðist standa upp úr stól
sínum er flokksþinginu því hann
hefur ævinlega virst heilsuhraustur
með afbrigðum.
Li Xiannian forseti og fleiri aldr-
aðir harðlínumenn munu einnig
seljast í helgan stein. Þeir eru flest-
ir komnir yfír áttrætt og börðust
með Maó er hann leiddi kommún-
ista til valda í Kína. Þeir víkja nú
fyrir mönnum sem numið hafa
marxísk fræði á skólabekk. „í
stjómmálaráðainu sitja nú fulltrúar
hins nýja Kína, menn sem hafa
verið formælendur umbótastefn-
unnar bæði á sviði stjómskipunar
sem efnahagsmála," sagði vest-
rænn stjómarerindreki í Kína. Sjö
nýir menn voru kjömir til setu í
stjómmálaráðinu er þar sitja 18
fulltrúar. Þykir sýnt að vænta megi
mikilla breytinga i kjölfar þess að
Deng tókst að taka sex fyrrum
byltingarmenn með sér út úr ráðinu.
„Niðurstaðan er mikill sigur fyrir
Deng Xiaoping og ósigur fyrir Deng
Liqun og fylgismenn hans,“ sagði
kínverskur blaðamaður í viðtali við
Reuters-fréttastofuna. Deng Liqun
er fyrrum áróðursmeistari flokksins
og einn helsti leiðtogi harðlínu-
manna. Hann missti sæti sitt í
miðstjóm flokksins.
Li Ruihan, borgarstjóri Tianj-
ing-borgar, þykir vera dæmigerður
fyrir þá menn sem nú hafa komist
til aukinna áhrifa í Kína. Hann er
53 ára gamall og hefur verið lofað-
ur mjög fyrir að hafa leitað eftir
aukinni flárfestingu erlendra fyrir-
tækja í Tianjing, sem er mikil
iðnaðarborg. Þykir sýnt að áhersla
hafi verið lögð á að velja hæfa
stjómendur og tæknikrata til auk-
inna áhrifa í kínverska kommún-
istaflokknum. Nýju mennimir eru
allir taldir fylgismenn umbóta-
stefnu Dengs og Zhaos Ziyang, sem
þykir einnig hafa treyst mjög stöðu
sína. Ákvörðun Dengs að segja
sæti sínu lausu í miðstjóm flokkins
þykir sýna að hann treysti Zhao
fyllilega til að taka við sem leiðtogi
flokksins.
Rúmlega 90 fulltrúar létu af
störfum i miðstjóm flokksins en
ákveðið var að fækka stjómar-
mönnum um 34. 175 fulltrúar sitja
nú í miðstjóminni og em rúmlega
60 þeirra nýliðar.
Reuter
Karl Bretaprins og Díana ásamt vestur-þýsku forsetahjónunum, Ric-
hard og Marianne von Weizsficker.
Brasilía:
Ofsahræðsla grípur um
sig vegna geislavirkni
Goiania, Reuter.
GÍFURLEGUR ótti hefur gripið um sig meðal íbúa borgarinnar
Goiania í Brasilfu vegna geislavirkni sem slapp út í andrúmsloftið
í septembermánuði. Fjórir hafa látist af völdum geislunar og 60 eru
alvarlega veikir. Slysið hefur einnig haft alvarlegar afleiðingar fyr-
ir efnahag Goias-fylkis og einkum íbúa Goiania.
Slysið varð er sorphreinsunar-
menn tóku tækjabúnað sem notaður
hafði verið við geislalækningar frá
lækningastofu einni í borginni.
Opnuðu þeir tækið og reyndist það
innhalda cesíum, sem er geislavirkt
efni. Tveir þeirra sem létust voru
bomir til grafar í blýkistum á mánu-
dag í síðustu viku. Átök bratust
út er í kirkjugarðinn var komið því
þar höfðu íbúar hverfísins safnast
saman og kröfðust þeir þess að lík
hinna látnu yrðu meðhöndluð sem
kjamorkuúrgangur.
„Almenningur er gjörsamlega
móðursjúkur," sagði Donald Binns,
sem framkvæmt hefur geislamæl-
ingar á íbúum borgarinnar. „Fólk
telur að geislavirkni sé lík bráðsmit-
andi sjúkdómi og að menn geti
andað henni að sér,“ sagði hann.
Fólk hefur flúið híbýli sín í ná-
grenni öskuhauganna þar sem
lækningabúnaðurinn var brotinn
upp og geisaVirknin slapp út. Frétt-
ir herma að atvinnurekendur hafí
krafíst þess að starfsfólk sem þar
býr fínni sér nýtt húsnæði ella verði
það rekið úr starfí.
Komið hefur verið upp bráða-
birgðasjúkraskýli fyrir utan knatt-
spymuvöll borgarinnar og hafa
rúmlega 75.000 manns komið
þangað í geislunarmælingu. Reynist
viðkomandi ekki hafa orðið fyrir
geislun fær hann afhent sérstakt
vottorð þar að lútandi. „Þetta er
algert bijálæði en í hinum ýmsu