Morgunblaðið - 03.11.1987, Page 14

Morgunblaðið - 03.11.1987, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1987 Lelkllst Jóhanna Kristjónsdóttir eikfélag Hafn- arfjarðar frumsýndi Spanskfluguna í Bœjarbíói: Ljós: Einar S. Guðmundsson. Leikmynd og leikstjóm: Davíð Þór Jónsson OFT hefur í umsögnum um sýningar áhugaleikhópa verið flallað um hversu mikilvægt starf leikfélög í minni byggðarlögum gegni og hversu augljós sé sú kátína og gleði, sem einkenni þessar sýningar. Misjafnt er þó, hvaða póll er tekinn í hæðina og misjafn leikrænn metnaður. Oft velja félögin á litlu stöðunum að taka til sýninga létt stykki, sem eru vænleg til aðsóknar og vin- sælda og er það í hvívetna skiljan- legt sjónarmið. Enda getur vel heppnaður gamanleikur eða farsi fyllt listrænar kröfur og verið samtimis til óblandinnar skemmt- unar. Einatt hafa áhugamannale- ikhópar færzt í fang stærri og viðameiri verkefni og árangurinn stundum verið eftirminnilegur. Leikfélag Hafnarfjarðar var endurvakið fyrir fímm árum eftir Leikhópur Spanskflugunnar Pabbar í hverju horni nokkum svefn og sýnir hér Spanskfluguna, gamlan ærslaleik, sem oft hefur verið færður upp á leiksviði hér. Flækjan í Spansk- fíugunni er hefðbundin en til þess að hún nái til áhorfenda nú og virki ekki mjög gamaldags eða hallærisleg, hygg ég að snöfurleg- ur farsaleikur væri það sem skilaði beztum árangri. En þá þyrfti að beita markvissari leik- stjóm. Það stendur sýningunni fyrir þrifum, að framsögn leikara er ábótavant og hjá sumum mjög mjög óskýr. Svipbrigði lítt hamin. Staðsetningar tókust svona upp og niður, en ýmsar góðar hug- myndir leikstjórans í þeim komust þó til skila. í sýningum áhugaleikmanna á litlum stöðum vekur það eitt stundum mikla kátínu framan af sjá tiltekna íbúa á stöðunum uppi á sviði. Ég hélt að Hafnarfjörður væri orðinn flölmennari bær en svo að þetta væri jafn ráðandi og raunin var á frumsýningu.Slíkar undirtektir geta hjálpað lítt sviðs- vönum leikara en einnig er hætta á að farið sé út af sporinu og við- tökur ofmetnar. Leikarar léku af miklum ákafa og skemmtu sér konunglega. Katrín Þorláksdóttir hafði ágæta sviðsframkomu. Ársæli Pálssyni var fagnað mjög innilega í for- kostulegu hlutverki Tiedemeyers. Um hálf öld er frá því Ársæll sté fyrst á svið og ber hann aldurinn með reisn. Svipbrigði hans voru oft ágæt og hreyfíngar góðar. Gísli Guðlaugssón var fyrirtaks typa í Hinrik Meisel. Steinar Alm- arsson í hlutverki þjónustustúlk- unnar Maríu var jafnbeztur, að mínum dómi. Sýndi skemmtilegan leik og hugvitssemi í túlkun sinni, þótt framsögnin mætti vera betri. Áhorfendur skemmtu sér ekki síður en leikarar á frumsýning- unni. Ég hygg að Leikfélag Hafnaifyarðar muni fá aðsókn á þessa sýningu og þá er greinilega tilgangi náð. Næturæyintýri í eldhúsinu Revíuleikhúsið frumsýndi i Gamla Bíói: Sætabrauðskarlinn eftir David Wood Leikmynd og búningar: Stígur Steinþórsson Danshttfundur: Helena Jó- hannsdóttir Lýsing: Jóhann Pálmason Hyómsveitarstjórn: Sigurður Marteinsson Þýðandi: Magnea J. Matthías- dóttir Leikstjóri: Þórir Steingríms- son í ELDHÚSINU hjá stóra fólk- inu er komin nótt og karlinn í Gauksklukkunni fer á stjá, kvef- aður og rámur og ber upp vandræði sín við þau herra Salta og frú Pipru. Á eldhúsborðinu liggur Sætabrauðskarlinn, ný- bakaður.en rænulaus. Þau blása í hann næturandanum og reynist þetta hinn kátasti og skemmti- legasti náungi, sem hressir aldeilis upp á stemninguna. Sætabrauðskarlinn er úrræða- góður og eftir umræður og húllumhæ er ákveðið að hann reyni að bijótast um langan veg upp á næstu hillu til að ná í ögn af hunangi í þeirri von, að það geti hresst við galið í Gauk von Kúkku. En á efri hillunni ræður ríkjum Gamla hlussan. Þar býr hún í tekatli og er heimarík í meira lagi og skapstygg. Inn í þennan hóp kemur svo Sláni Mús, sem öUum stendur ógn af. Ekki nóg með það að hann hrelli þau og hrekki, heldur eru þau öll dauðhrædd við hann og svo er útlit fyrir að Sláni ætli að gera sér litið fyrir og éti Sæta- brauðskarlinn. Eru nú góð ráð dýr. Eins og vera ber í ævintýra- leikjum greiðist úr öllu í lokin, músin hirist i sinni holu, Gamla hlussan er orðin góð og glöð, kallinn i gauksklukkunni lendir ekki á haugunum og Sæta- brauðskarlinn sleppur við að vera snæddur í bráð. Og una nú allir glaðir við. Sýningin er hressilega unnin og hélt athygli ungra áhorfenda frá upphafí til enda. Leikendum tókst prýðilega að fá krakkana til að taka þátt i leiknum og inn- lifunin mátti stundum ekki öllu meiri vera. Þórir Steingrímsson, leikstjóri, hefur unnið prýðisgott verk og hefur líka ágætt lið með sér. Leikmjmd Stígs Steinþórs- sonar var skemmtilega unnin og til þess fallin að örva imyndunar- aflið. Þýðing Magneu Matthías- dóttur hljómaði ágætlega, en mér fannst að vísu óþarfí að láta karl- inn í klukkunni sletta þýsku inn á milii. Það hafði að því er séð varð ekkert uppá sig. Heilmikil músik er í leiknum, söngur og dans og var það vel heppnað. Sætabrauðskarl Ellerts Ingi- mundarsonar vakti fögnuð hjá áhorfendum, og að makleikum. Léttar og fimar hreyfíngar, svip- brigði eðileg og skýr framsögn, ásamt með hæfílegri útsjónar- semi i að leysa vandamálin í eldhúsinu. Grétar Skúlason var Sláni mús og var hæfilega grimmúðlegur til að kalla fram viðbrögð, en ekki svo ógnvekj- andi að vekti skelfingu. Bjarni Ingvarsson og AJda Amardóttir voru herra Salti og frú Pipra og léku óþvingað og elskulega. Þór- arinn EyQörð var hinn ólukkulegi Gauksklukkukarl, sem er að far- ast i hálsinum. Framan af var eins og Þórarinn ætti I nokkrum vandræðum með sig, en náði sér á strik mætavel. Saga Jónsdóttir var Gamla hlussan, ágætt gervi og hressileg persóna, án ýkjuláta. Þetta var i hvívetna sýning sem óhætt er að mæla með. Leik- stjóri hefur ekki fallið í þá gryfju að láta gauraganginn ráða, eins og mér fínnst stundum brenna við í bamasýningum. Þó vantar sannarlega ekki að sýningin sé lífleg. Hún ber vott um góðan skilning aðstandenda hennar á hvemig á að búa efnið til flutn- ings svo að böm skemmti sér. Krakkar á öllum aldri ættu að sjá Sætabrauöskarlinn. Þau eiga með honum og félögum hans skemmtilega stund. Ellert Ingimundarson f hlutverki Sœtabrauðskarlsina og Saga Jónsdóttir sem Gamla hlussan

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.