Morgunblaðið - 03.11.1987, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1987
37
\í
Fiskverkun KEA í Grímsey:
Börðumst við að bægja
eldmum frá næstu húsum
— sagði Hannes Guðmundsson verkstjóri
EITT af fiskverkunarhúsum
Kaupfélags Eyfirðinga í Grímsey
brann til kaldra kola síðastliðið
sunnudagskvöld og er tjón metið
á 8 til 10 milljónir króna. Eldsins
var fyrst vart um kl. 19.30 á
sunnudagskvöld og var búið að
ráða niðurlögum eldsins laust
eftir miðnætti, að sögn Hannesar
Guðmundssonar, verkstjóra í
frystihúsinu. Eldsupptök eru
ókunn, en grunur leikur á að
kviknað hafi í út frá rafmagni.
„Sonarsonur minn og nafni,
Hannes Arnar Gunnarsson, hringdi
í mig þegar hann sá eldinn blossa
upp. Hann var þá staddur heima
hjá sér en hefur gott útsýni yfir
hafnarsvæðið," sagði Hannes. „Við
þustum niður eftir og fljótlega voru
allir liðtækir menn komnir á stað-
inn. Við höfum verið hátt í 20 við
slökkvistörf. Nokkrum mínútum
áður höfðu beitingamenn verið við
störf hér í næsta húsi og urðu þeir
ekki varir við neitt óvanalegt."
Gamla búðin
Húsið, sem löngum hefur gengið
undir nafninu „Gamla búðin", var
steinsteypt tveggja hæða hús, alls
um 200 fermetrar. Gólf og milli-
veggir voru hinsvegar úr timbri og
þakið bárujámsklætt. Húsið var
byggt árið 1944 og fór verslun
kaupfélagsins ffam í húsinu fram
undir 1960. Þá var húsinu breytt í
fískverkunarhús og var lengi vel
eitt af aðalfískverkunarhúsum KEA
í Grímsey.
Búnaður björgunar-
sveitarinnar brann
Á neðri hæð hússins var unnið
við saltfískmat og pökkun og á efri
hæðinni fór fram ísframleiðsla auk
þess sem þar var varahlutageymsla
og umbúðalager. Nýlega var keypt
ný tölvuvigt frá Marel, sem einnig
brann, auk flatningsvélar og flök-
unarvélar. í húsinu geymdi björgun-
arsveit SVFÍ allan sinn búnað, svo
sem flotgalla, fluglínur, byssu og
önnur tæki. Engu varð bjargað og
mun búnaður björgunarsveitarinnar
hafa verið ótryggður. Nýlegur
björgunarbátur var hinsvegar
geymdur annars staðar og mun
hann því vera það eina sem björgun-
arsveitin í Grímsey á eftir.
„Við vorum að metá fisk fyrir
helgi, bæði á fímmtudag og föstu-
dag, og átti að halda þeirri vinnu
áfram í gær. Hátt í tíu 10 tonn af
saltfíski voru inni 1 húsinu, sem er
hálf önnur milljón króna í verð-
mæti. Við börðumst lengst af við
að bægja eldinum frá nærliggjandi
húsum og notuðum gröfu til að rífa
logandi austurhluta hússins niður
svo eldurinn Iæstist ekki í næsta
hús, sem var samfast hinu brenn-
andi húsi. Hvass vindur var að
vestan, 8 til 9 vindstig. Þar er til
húsa kæligeymsla fyrir físk, véla-
verkstæði og kjötfrystigeymslur
okkar," sagði Hannes og hann
bætti því við að þær hefðu allar
verið fullar af nýju kjöti, þar sem
sláturtíð er nú nýlokið.
Sjórínn kom sér vel
Slökkvibúnaður í Grímsey er ekki
upp á marga físka, að sögn Hannes-
ar, en notuð var sjódæla auk þess
sem slanga var tengd í fiskverkun-
arhús rétt hjá. „Sjórinn kom að
Einar Þorgeirsson aðstoðarverk-
stjóri með „slökkvibíl“ Grímsey-
inga.
Þorlákur Sigurðsson oddviti i
Grímsey, Hannes Guðmundsson
verkstjóri, Kristján Ólafsson
kaupfélagsstjóri á Dalvík og
Helgi Haraldsson útibússtjóri
KEA í Grímsey.
Morgunblaðið/Guðmundur Svansson
Hannes Guðmundsson verkstjóri hjá Fiskverkun KEA í Grimsey.
Rannsóknarlögreglumenn frá Akureyri við störf i rústum Fiskverk-
unarhússins á mánudag.
góðum notum enda ekki nema
nokkrir metrar frá sjó og að húsinu
sem brann. Ef eldurinn hefði komið
upp að nóttu til, þegar allir eru í
fasta svefni, hefðu fleiri hús örugg-
lega farið, jafnvel öll húsalengjan
þama. Þá hefði fyrst verið vá fyrir
dyrum hjá okkur Grímseyingum."
Verðum að
endurbyggja
Níu starfsmenn unnu að stað-
aldri í húsinu síðustu daga, en þegar
best lætur eru starfsmenn þar um
fímmtán talsins. Hannes bjóst ekki
við að starfsmennimir yrðu at-
vinnulausir, heldur yrði fískmatið
fært í annað hús til að byrja með.
Nauðsynlegt væri þó að festa kaup
á nauðsynlegustu tækjum. Útibúið
í Grímsey heyrir undir Kristján ól-
afsson, kaupfélagsstjóra á Dalvík.
Hann sagði í samtali við Morgun-
blaðið að Ijóst væri að byggja þyrfti
fyrirtækið upp aftur þótt hann
gæti ekki tímasett neitt að svo
stöddu. Húsnæðið mun hafa verið
tryggt hjá Brunabótafélaginu upp
á eina og hálfa milljón króna auk
þess sem fyrirtækið var með birgða-
og innbústryggingu. Auk Kristjáns
komu rannsóknarlögreglumenn frá
Akureyri til Grímseyjar I gær og
fulltrúar frá tryggingafélögum.
Ráðið í „svartar
stöður“ á Kristnesi
- segirBjarni
Arthursson
framkvæmda-
stjóri
„VIÐ ERUM með allar stöður
settar og vel það. Við höfum
hinsvegar brugðið á það ráð
að ráða i svokallaðar „svartar
stöður“ þar sem við höfum ekki
fengið að manna deildir okkar
eins og gerist á nýjum stofnun-
um. Okkur vantar 25 stöðu-
heimildir svo vel eigi að vera,
aðallega fyrir sjúkraþjálfara
og hjúkrunarfræðinga. Krist-
nesspitali hefur nú þegar
heimildir fyrir 54 stöðugildum,
en alls starfa við spitalann hátt
i 80 manns,“ sagði Bjarni Art-
hursson f ramkvæmdastjóri
Kristnesspitala i samtali við
Morgunblaðið.
Hjúkrunarfræðing-ar
á biðlista
Bjami sagði að eldri stofnanir
virtust ekki njóta þeirrar athygli
Qárveitingavaldsins sem nýrri
stofnanimar nytu. „Nýju stofnan-
imar fá fleiri stöðugildi á meðan
þær eldri gleymast I kerfinu og
nú er svo komið að þrlr hjúkmna-
rfræðingar eru á biðlista eftir
vinnu hjá okkur." Bjami sagði að
Kristnesspítali greiddi starfsfólki
sínu aðeins ríkistaxta og ekkert
umfram það. Hinsvegar væri
starfsmönnum séð fyrir sérstök-
um starfsmanna- íbúðum gegn
vægri leigu miðað við það sem
gerðist á almennum markaði.
Sérstök sljórn
Stjóm Kristnesspítala heyrir
undir stjómamefnd ríkisspítal-
anna. Til eru þeir menn sem vilja
fá stjóm Kristnesspítala undir
sömu stjóm og er yfír Fjórðungs-
sjúkrahúsi Akureyrar. Hinsvegar
álítur Bjami að koma þurfí á sérs-
takri stjóm yfír Kristnesspítala.
„Sljóm FSA á fullt í fangi með
að byggja upp eigið sjúkrahús og
fá til þess fjármagn svo að ég
held að Kristnesspítali sæti í ná-
kvæmlega sömu súpunni og nú
ef við féllum undir stjóm FSA.
Stjómarmenn ríkisspítalanna eru
hinsvegar fyrst og fremst að
hugsa um það sem gerist fyrir
framan nefíð á þeim á Landspít-
alalóðinni og gleyma öðm á
meðan."
Þurfum 13 milljónir
Launakostnaður Kristnesspít-
ala fyrir árið 1988 gerir ráð fyrir
um 50 milljónum króna, annar
rekstrarkostnaður er áætlaður
16,6 miHjónir króna og gert er ráð
fyrir að ffamkvæmt verði fyrir
alls 13 milljónir á næsta ári. Á
yfirstandandi ári fékk spítalinn 4
milljónir króna í framkvæmdafé.
Bjami sagði að ástæðulaust væri
að vera svartsýnn strax þar sem
ekki væri búið að úthluta því fé
á milli einstakra stofnana sem
ríkisspítalamir fengu fyrir næsta
ár. Bjami sagði að I nýlegri heil-
brigðisáætlun væri mjög mikill
þungi lagður á endurhæfínga-
starfsemi og hjúkmnardeildir.
„Þetta em þær brautir sem við
sinnum fyrst og fremst og trúi
ég ekki öðm en að spítalinn fái
sómasamlega fyrirgreiðslu þar
sem við emm að byggja upp í
samræmi við nýju heilbrigðisáætl-
unina og þjónum landinu öllu.“