Morgunblaðið - 03.11.1987, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1987
43
STI& 1 2 3 H 5 (o 7 8 9 10 u 12 VINhl. RÓÐ
•/ L. L TUBOJEVIC CTogésl) 2CTS 1 A /i '/z 7z 7z i 7z i i i i 8
2 X TIMMfíN (No/lancfi') Z(,30 ’/l É o i i 7z i i Zz Zz 7z i 7/z
3 A. £>ELJfíVSKy(£ovHr) 2030 /l i Y/7< 0 i 7z 7z i 0 7z i i T
H V. KOKOHNOl (Svis) 2(30 /i O i VY// O, 7l 7i O /z i i i (o
5 P. NIKOL/C (TPffós/av/u) 2 (20 Zl 0 0 i /// 7z i i /z 7i O i (o
(o P. POPOVICLJJfjés/Mu) 2S(0 Zz /l tz 'h /i y// V/Y/ i o 7z Zz i /z (o
7 JÓNflNN NJflpTfíKSON 2S50 O o A 7z 0 0 y/A Y/// i i /z 7z i 5
g N. CN0P7(T*g/arN;) 2(20 A 0 O i 0 i 0 /// i /z i 0 5
9 O. TVfíNOVIC (JUgósl) 2S3S O 7z i /4 7z 7í 0 0 w /z 7z 1 S
10 V. Sfí LOV(Sovéir) 257S 0 lz % O 7z 7z 7z 7z /z //// m O i H/z
H 5, GrLI&ORICCJjgJl) 2S2S O /z O O i 0 7z O Zz i WA Y/N 1 HZi
12 S. pflfíPTfíNOVIC CJJj) 2SOS 0 0 0 0 O 7l O i 0 O 0 m Vk
Heimasigur í Belgrad
Skák
Margeir Pétursson
Júgóslavneski stórmeistarinn,
Ljubomir Ljubojevic, vann Jó-
hann Hjartarson i siðustu umferð
Invest-bankaskákmótsins sem
lauk á laugardaginn. Þar með
tryggði Ljubojevic sér sigur á
mótinu, hann hlaut 8 vinninga
af 11 mögulegum. Jan Timman
varð annar með 7‘/2 v. og Alex-
ander Beljavsky þriðji með 7 v.
Jóhann Hjartarson var efstur
þegar mótið var hálfnað, en
seinni hluta þess var hann sem
heillum horfinn og hlaut aðeins
hálfan vinning úr siðustu fimm
skákunum. Hann endaði í 7-9.
sæti ásamt Short og Ivanovic
með fimm vinninga. Sá árangur
nægði Jóhanni til að halda stig-
um sínum.
Það var mikil spenna í loftinu
þegar síðasta umferðin var tefld,
því fyrir hana voru þeir Ljubojevic
og Timman jafnir og efstir. Jóhann
bauð Júgóslavanum jafntefli
snemma skákarinnar, en hann
hafnaði. í miðtaflinu varð
Ljubojevic síðan nokkuð uggandi
um sinn hag og bauð því jafntefli,
en nú hafnaði Jóhann. En strax
eftir það urðu honum á mistök og
með glæsilegri taflmennsku tókst
Ljubojevic að ná frumkvæðinu og
sigra, þrátt fyrir að hann væri í
miklu tímahraki.
Popovic veitti landa sínum á
meðan dygga aðstoð með því að
halda jafntefli við Timman. Önnur
úrslit í síðustu umferðinni urðu þau
að Nikolic vann Korchnoi og Marj-
anovic vann sinn fyrsta og eina
sigur á mótinu gegn Short. Jafn-
tefli gerðu Beljavsky og Salov,
Gligoric og Ivanovic.
Hér heima eru vafalaust margir
sorgmæddir yfír niðurstöðunni hjá
Jóhanni, en því má ekki gleyma að
hann var fyrst og fremst að afla
sér reynslu fyrir væntanlegt áskor-
endaeinvígi við Viktor Korchnoi.
Þá tók Jóhann sér frí frá skákinni
eftir millisvæðamótið í Szirak og
var því ekki sérlega bjartsýnn fyrir
þetta geysisterka mót í Belgrad.
Jóhann getur dregið mikinn lærdóm
af þessu móti, mun meiri en ef
hann hefði reynt að ljúka mótinu
með baráttulausum jafnteflum.
Auk Jóhanns voru tveir aðrir
ungir skákmenn á mótinu, sem
einnig voru að afla sér reynslu fyr-
ir áskorendakeppnina. Jóhann
stóðst fyllilega samanburðinn við
þá Short og Salov og gott betur,
því þeir komu aldrei nálægt topp-
baráttunni á mótinu.
Það kom á daginn á þessu móti
að sumir íslenskir fjölmiðlamenn
hafa ekki ennþá lært að það á ekki
að hrósa sigri fyrr en að leik lokn-
um. Að ætlast til viðtala og þátttöku
í sjónvarpsþáttum þegar keppni
stendur sem hæst hlýtur að flokk-
ast undir skort á almennri tillits-
semi. Það er líklega orðinn einn
þáttur þess að vera góður skákmað-
ur að kunna að bíta af sér frétta-
hauka í miðrju móti. Má væntanlega
fara að meta þann hæfíleika til svo
sem 10 Elo-stiga.
Að sögn Leifs Jósteinssonar, sem
aðstoðaði Jóhann á mótinu, var
mikil stórmótsstemmning í hinni
gríðarlega stóru Sava-ráðstefnum-
iðstöð þar sem mótið fór fram.
Þúsundir áhorfenda sóttu mótið,
enda skákáhugi á fáum stöðum
jafnmikill og í Júgóslavíu. Sjón-
varpið á staðnum sinnti mótinu
mjög vel og klykkti út með klukku-
stundarlöngum þætti á laugardags-
kvöldið.
Um einstök úrslit vísast til með-
fylgjandi töflu, en við skulum nú
líta á skákir Jóhanns í tveimur
síðustu umferðunum:
Hvitt: Jan Timman
Svart: Jóhann Hjartarson
Kóngsindversk vörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - g€ 3. Rc3 -
Bg7 4. e4 - d6 5. f3
Saemisch afbrigðið, sem er uppá-
haldsvopn Timmans gegn Kóngs-
indverskri vöm.
5. - 0-0 6. Be3 - a6 7. Bd3 -
Rbd7 8. Rge2 — c5 9. 0-0 — cxd4
10. Rxd4 - e6 11. Dd2 - d5
Hugmynd Jóhanns hefur ekki
áður sést í þessu samhengi, en hún
er þó þekkt í Saemisch-afbrigðinu,
eftir 6. - Rbd7 7. Bd3 - c5 8.
Rge2 — cxd4 9. Rxd4 — e6 10.
0-0 d5. Þótt Jóhann hafí eytt tíma
í að leika a7-a6 virðist það ekki
skipta veruleg a máli.
12. exd5 - exd5 13. Hadl
Það þýðir ekkert fyrir hvít að
reyna að vinna peð, því eftir 13.
cxd5 — Rb6 er staðan í fullkom
nu jafnvægi. Timman verður því
að sætta sig við uppskipti á öllum
miðborðspeðunum.
1 3. - dxc4 14. Bxc4 - Dc7 15.
Bb3 - Rc5 16. Bc2 - Re6 17.
Bb3 - Rc5 18. Bc2 - Re6 19.
Rb3!? *
Eftir talsvert þóf ákveður Timm-
an að tefla til vinnings, þótt hann
hafi hér haft mun lakari tíma og
staðan ekki sérlega spennandi.
Nú hefði Jóhann liklega átt að
leika 19. - Hd8 20. Df2 - Hxdl
21. Hxdl — b5 og er þá mjög ná-
lægt því að hafa jafnað taflið. í
stað þess gefur hann kost á drottn-
ingauppskiptum sem færa hvíti
töluverða pressu.
19. - b5? 20. Dd6! - Dxd6 21.
Hxd6 - He8 22. Hfdl - Bf8 23.
H6d2 - Hb8 24. Ra5 - b4 25.
Ra4 - Hb5 26. Rc4 - Rc7 27.
Bf2 - Rcd5?
Þegar hér var komið sögu var
Jóhann orðinn mjög tímanaumur
og eftir þennan slæma leik verður
taflinu ekki bjargað. Með 27. —
Hd5! hefði hann hins vegar slegið
tvær flugur í einu höggi, létt á stöðu
sinni og jafnffamt afstýrt hættunni
sem felst í því að láta báða hrókana
standa á biskups-línunni a4-e8.
Þannig hefði Jóhann haldið ein-
hvetjum möguleikum á að ná
jafntefli.
28. Rab6 - Rxb6 29. Rxb6 - Ha5
30. Rc4! - Hh5 31. Ba4
Vegna slæmra staðsetninga
svörtu hrókanna vinnur hvítur
skiptamun fyrir ekki neitt.
31. - Be6 32. Bxe8 - Bxc4 33.
Ba4 - Ha5 34. Bb3 - Bxb3 35.
axb3 - Be7 36. Hc2 - Rd5 37.
Hcd2 - Rf4 38. Be3 - Re6 39.
Hd5 - Ha2 40. Hbl - Bf6 41.
Kfl - Hxb2 42. Hxb2 - Bxb2
43. Ke2 — h5 44. Kd3 og svartur
gafst upp.
Hvitt: Jóhann Hjartarson
Svart: Ljubomir Ljubojevic
Slavnesk vörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rf3 -
d5 4. Rc3 - c6 6. e3 - Rbd7 6.
Bd3 - Be7
Hér er miklu oftar leikið 6. —
dxc4 7. Bxc4 — b5, en það af-
brigði hefur ekki reynst svarti vel
upp á síðkastið, svo Júgóslavinn
velur rólega og fáséða leið.
7. 0-0 — 0-0 8. e4 — dxe4 9. Rxe4
- b6 10. b3 - c5 11. Bb2 - Bb7
12. De2 — cxd4 13. Rxd4 — Rc5
14. Rxc5 — Bxc5 15. Rf3 — Dc7
16. Re5 - Had8 17. Hadl - Hd6
18. Rg4 — Rxg4 19. Dxg4 — f6
20. Bc2 - De7 21. Hxd6 - Bxd6
Hér bauð Ljubojevic jafntefli sem
Jóhann hafnaði, en nú tekur hann
fljótlega skakkan pól í hæðina.
Næsti leikur hans virðist t.d. ekki
þjóna miklum tilgangi, eðlilegra var
22. Hdl, eða strax 22. h4!? *“
22. Hel?! - e5 23. h4 - Hd8 24.
h5 - Bb4 25. He2?
Hér hefði staðan verið u.þ.b. í
jafnvægi eftir 25. Hdl. Nú nær
svartur frumkvæðinu.
25. - Dd7! 26. Bf5 - Ddl+ 27.
Kh2 - Bd2!
Þessi óþægilegi leikur kom Jó-
hanni í opna skjöldu. Svartur hótar
nú óþyrmilega 28. — Bf4+ sem
vinnur samstundis.
28. Be6+ - Kh8 29. Bd5 - Bf4+
30. g3 - f5! 31. Dh4
Kasparov náði naumlega jafntefli
Það munaði ekki miklu að
Gary Kasparov, heimsmeistari,
tapaði sjöundu skákinni, þegar
biðstaðan var tefld áfram á laug-
ardaginn var. Hann lenti í mjög
óvirkri vörn í endatafli, en
Karpov tókst ekki að finna vinn-
inginn. Eftir mikið kapphlaup,
þar sem báðum tókst að vekja
upp drottningu, endaði skákin
með jafntefli.
Biðskákin tók §órar klukku-
stundir og var æsispennandi á að
horfa, því Karpov tefldi stíft til
vinnings og Kasparov varð að taka
margar erfíðar ákvarðanir. Fyrir
bið hafði hann þráast við að skipta
upp á drottningum, en fljótlega eft-
ir bið varð hann að sætta sig við
það.
Karpov virtist tefla endataflið
mjög vel og á góðri leið með að
innbyrða vinninginn, en í kringum
70. leik sögðu aðstoðarmenn Kasp-
arovs að hann væri enn í rannsókn-
um þeirra nóttina áður og
niðurstaðan hefði orðið sú að staðan
væri jafntefli. Fréttamaður Reuters
fréttastofunnar bar þetta undir
Raymond Keene, enska stórmeist-
arann og skákbókahöfundinn, sem
vildi meina að svarta staðan hefði
hangið á bláþræði allan tímann.
Keene sagðist eins geta trúað því
að Kasparov gæti gengið á vatni
og því að hann hefði séð svona langt
í biðstöðurannsóknum sínum.
Við skulum nú líta á ganginn í
þessari merkilegu biðskák. Fyrri
hluti skákarinnar birtist í hér í
Morgunblaðinu sl. laugardag.
Svart: Gary Kasparov
• bcdcfgh
Hvítt: Anatoly Karpov
42. Dh5+ - Kg7 43. Hf4
Karpov beitir þeirri leikaðferð
sem stungið var upp á hér í Morgun-
blaðinu á laugardaginn. Svarleikur
Kasparovs er þvingaður, því hann
verður að hafa auga með h6-reitn-
um.
43. - Dd2 44. Hg4+ - Kf8 45.
Df5 - Dcl+ 46. Kh2 - Dc7+ 47.
Df4
Fyrir bið þráaðist Kasparov við
að skipta upp á drottningum, en
nú kemst hann ekki hjá því lengur.
47. - Dxf4+ 48. Hxf4 - Ke8 49.
Kgl - a6 50. Kf2 - Kd7 51. Ke2
- Kd6
51. — b5? gekk ekki vegna 52.
a5 - Bc3 53. Hxh4 - Bxa5 54.
Hh6 og hvítur vinnur peð og hefur
jafnframt tekist að mjmda sér
frípeð.
52. Kd3 - Kc5 53. Hc4+ - Kd5
54. Hc7! - a5
Hjá þessu varð ekki komist,
hvítur ætlaði hvort eð var að leika
55. Ha7. Nú á svartur ekki lengur
möguleikann b6-b5 og staða hans
er því orðin alveg óvirk.
55. Hc4 - e5 56. Hg4 - Be7 57.
Hg7! - e4+ 58. Ke3 - Bc5+ 59.
Ke2 - Bd4 60. Hg5+ - Kc4
Þegar hér var komið sögu í skák-
inni var áhangendum Kasparovs
ekki farið að lítast á blikuna. Það
er ljóst að svartur hlýtur að missa
a.m.k. eitt peð og mótspil hans á
drottningarvæng virðist ek\d líklegt
til árangurs. En nú upphefst mikið
þóf, Karpov vill ekki taka strax af
skaríð, og eyðir miklum tíma í að
velta fyrir sér ýmsum möguleikum.
61. Hf5!? - Kc3!
Eini leikurinn í stöðunni. 61. —
Kb4? væri mjög slæmt vegna 62.
Hf4 og hvítur vinnur tfma, miðað
við það hvemig skákin teflist.
62. Hh5 - Kc4 63. Hf5 - Kc3
64. Hg5 - Kc4 65. Hh5 - Bf6
66. Hb5 - Bd4 67. Hh5 - Bf6
68. Hh6 - Bd4 69. Hxh4
Hvftur hefði getað stytt sér leið
til að fá upp þessa stöðu með því
að leika strax 61. Hh5 — Bf6 62.
Hh6 — Bd4 63. Hxh4, en vildi gefa
Kasparov færi á að leika af sér.
69. - b5 70. axb5 - a4 71. Hxe4
- a3 72. b6 - a3 73. Hxd4+ -
Kxd4 74. b7 - al=D 75. b8=D
Það hefur orðið gjörbreyting á
landslagi stöðunnar og skyndilega
er komið upp drottningarendatafl
þar sem hvítur hefur peði meira.
Almennt eru slík endatöfl með
drottningu og peði gegn drottningu
unnin, t.d. tókst mér að svíða eitt
slfkt af sovézka stórmeistaranum
Juri Razuvajev á móti í Moskvu í
sumar. En þá var frípeðið komið
lengra og Razuvajev kom ekki
kóngi sínum f veg fyrir það. Vöm
Kasparovs í þessu endatafli byggist
einmitt á því.
75. - Da6+ 76. Kf2 - Df6+ 77.
Kgl - Ke4! 78. Db4+
Engu betra var 78. Dbl+, því
svartur þolir drottningakaup: 78. —
Kf4! 79. Dfl+ - Kg5 80. Dxf6+ -
Kxf6 81. Kf2 Kg6! og hvftur getur
ekki náð hinu svonefnda fjarlæga
andspæni.
78. - Kf5 79. Del - Dd4+ og
hér bauð Karpov jaftitefli, sem
heimsmeistarinn að sjálfsögðu þáði.
Nú ákveður Ljubojevic að fóma
hrók og gífurlegar flæki’ir fylgja L
kjölfarið. Það er hins vegar stór
spuming hvort hið rólega framhald
31. — Hd7! hefði ekki nægt til nokk-
uð ömggs vinnings.
31. - Bxg3+!? 32. Kxg3 - Hxd5
33. cxd5 - Dxd5 34. Db4!
Þvingað, því ekki gekk 34. Dc4
- Df3+ 35. Kh4 - Bd5! 36. Dc8+
— Bg8 o.s.frv .
34. - Df3+ 35. Kh4 - h6
36. He3?? ,
Hér var þvingað að leika 36.
Bxe5. Framhaldið hefði þá væntan-
lega orðið 36. — Dhl+ 37. Kg3 —
Dg2+ 38. Kh4 - Dg5+ 39. Kh3 -
Dxh5+ 40. Dh4! - Df3+ 41. Dg3
— Dhl+ 42. Dh2 og það er ekkv
að sjá að svartur eigi meira en jafn-
tefli.
36. - Dxf2+ 37. Hg3 - Dh2+
38. Hh3 - Df2+ 39. Hg3 - Kh7!!
40. Kh3 - Dfl+ 41. Kh4 - Dhl+
42. Hh3 - Dgl 43. Hg3 - Dh2+
44. Hh3 - Dxb2 45. Dc8 - Df2+
og hvítur gafst upp.