Morgunblaðið - 03.11.1987, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1987
47
Jómfrúræða Hreggviðs Jónssonar:
Islenska þjóðín
er í vanda stödd
HÉR Á eftir fer jómfrúræða
Hreggviðs Jónssonar (B.-Rn.)
flutt við utandagskrárumræður
um efnahagsaðgerðir ríkis-
stjórnarinnar 15. október sl.
Hæstv. forseti. Það er ekki að
ástæðulausu sem þessi utandag-
skrárumræða hefur verið hafín
hér í dag. Fjárlagafrv. ríkisstjóm-
arinnar hefur verið lagt fram eins
og alþjóð veit. Þar er boðuð ný
stefna sem sérstaklega er beint
að hinum launalægstu, þeim sem
hafa það lakast, þeim sem hafa
minnstar tekjumar og síst skyldi
ráðist á. Söluskatturinn á mat-
væli þýðir hjá fjögurra manna
fjölskyldu að skatturinn er nálægt
því að vera heil mánaðarlaun
þeirra sem lægstu launin hafa og
þau em aðeins tekin af matvcæl-
um einum saman á einu ári. Og
nú í dag er að koma inn um bréfal-
úguna bifreiðaskattur sem er
lagður á þann mikla fjölda bifreiða
sem ef til vill efnalítið fólk hefur
keypt sér í þeirri von að það gæti
rekið bfl. Hæstv. forseti. Ég spyr:
Er þetta refsing Alþfl. til launa-
fólksins í landinu?
íslenska þjóðin er í vanda stödd.
Stöðugir erfíðleikar í áratugi hafa
sett mark sitt á íslenskt efna-
hagslíf. Þjóðarbúið hefur marg-
sinnis orðið fyrir alvarlegum
áföllum. Góðæri hafa verið illa
notuð og ómarkviss stjóm þjóð-
félagsins hefur leitt til þess
gífurlega vanda sem nú er staðið
frammi fyrir. Síðustu mánuðir
síðustu ríkisstjómar og þeir fyrstu
hjá núv. ríkisstjóm munu reynast
þjóðinni dýrir. Sá árangur sem
náðist með eins konar þjóðarsátt
í efnahagsmálum hefur nú glatast
og nú situr ríkisstjóm Þorsteins
Pálssonar með alþýðuflokksform-
anninum, hæstv. fjmrh., ásamt
helsta efnahagssérfræðingi
íslenskra stjómvalda, hæstv.
viðskrh. og dómsmrh., og útbýr
nýja skatta á alþýðu landsins.
Árás Alþfl. á launafólk mun ekki
gleymast. Sú lausn ríkisstjómar-
innar að skattleggja þjóðina ber
vott um skammsýni. Sú lausn mun
þegar til lengri tíma er litið leiða
til minnkandi áhuga þjóðarinnar
til athafna. Ríkisstjóm íslands er
að gefa þjóðinni deyfílyf.
Þá fyrst mun taka steininn úr
í skattheimtu á næsta ári þegar
staðgreiðslukerfíð tekur gildi. Það
verður ekki glæsilegt ástandið á
aþýðuheimilunum fyrstu mánuði
næsta árs þegar staðgreiðslukerf-
ið kemst í fullan gang samhliða
því að innheimt verða fasteigna-
gjöld og innheimta trygginga-
gjakia hefst.
Það er ljóst að mikill innflutn-
ingur þessa árs mun knýja fram
gengisfellingu innan fárra mán-
aða. Fram hjá þessari staðreynd
verður ekki litið. Það er einnig
ljóst að með síðustu aðgerðum
ríkisstjómarinnar í efnahagsmál-
um er hún að bijóta kjarasamn-
ingana og jafnframt að kalla yfír
sig ófrið á vinnumarkaðnum. Og
það verður að teljast dæmalaust
að nokkur ríkisstjóm lýsi nánast
stríði á hendur launþegum. Og
það sem meira er, að Þorsteinn
Pálsson hamrar í síbylju á fast-
gengisstefnu að því er virðist án
nokkurs tilgangs nema vegna þess
að hann hefur fullyrt að tilgangs-
laust væri fyrir aðila vinnumark-
aðarins að biðja um gengisfell-
ingu. Það mætti halda að aðilar
vinnumarkaðarins hefðu ráðið
óstjóminni í efnahagsmálum þjóð-
arinnar síðustu mánuði. Því fer
fjarri því að á vinnumarkaðnum
hefur verið tiltölulega friðsamt á
þessu tímabili.
Það er marklaust hjal hjá ríkis-
stjóm íslands að setja fram
rekstrarafgang í fjárlögum. Það
er álíka gáfulegt og þegar Qmrh.
Alþfl. fyrir nokkrum árum fre-
staði flestum greiðslum ríkissjóðs
um tiltekin mánaðamót og stærði
sig svo af í fjölmiðlum að greiðslu-
staðan væri góð. Nei, þetta er
ólánssöm ríkisstjóm og lánlaus
þjóð að eiga slíka stjóm. Aðgerðir
hennar em slíkar að engu er líkara
en kerfísbundið sé unnið að því
að vinna allt til óhagræðis fyrir
þjóðina. Það er slæmt, jafnvel þó
um andstæðinga sé að ræða, því
framtíðarhagur þjóðarinnar er í
veði.
Það sem er verið að gera og
það sem verður að gera er að leita
samstarfs við aðila vinnumarkað-
arins um nýja þjóðarsátt. Það
verður að minnka beina skatt-
heimtu en taka í þess stað upp
neysluskatta. Það verður að stuðla
að meiri framleiðni í öllum at-
vinnugreinum og örva einstakl-
inga í þjóðfélaginu til athafna því
að einungis á þann veg verður
mögulegt að endurreisa efna-
hagslífíð. Ef þegnamir bregðast
við á þann veg að þeir sjá ekki
tilgang í því að beijast og bera
sanngjama umbun úr býtum mun
illa fara. Það þarf að beijast um
á hæl og hnakka, en ríkisstjómin
gerir rangt með því að segja þjóð-
inni stríð á hendur. Það verður
því að ná þjóðarsátt, en því miður
sýnist ríkisstjómin reyna allt ann-
að en það. Með ieyfí hæstv. forseta
ætla ég að lesa hér á eftir úr þjóð-
hagsáætlun fyrir árið 1988, úr
forsendum fjárlagafrv. 1988. í
þjóðhagsspá stendun
„Mikið góðæri hefur ríkt í
íslenskum þjóðarbúskap á þessu
ári. Framleiðsla hefur farið vax-
andi og stefnir jafnvel í meiri
hagvöxt í ár en í fyrra sem þó
var einstaklega gott ár. Þjóðar-
tekjur hafa aukist enn meira en
landsframleiðsla vegna batnandi
viðskiptakjara."
Þá segir enn fremur: „Á hinn
bóginn hefur sigið á ógæfuhliðina
varðandi verðbólgu og viðskipta-
halla. Verðbólgan frá upphafi til
loka árs stefnir nú í 25% saman-
borið við 13% í fyrra, en það var
minnsta verðbólga hér á landi á
heilu ári í hálfan annan áratug."
Og í athugasemdum með fjár-
lögum 1988 segir: „Til þess að
koma í veg fyrir að hagvaxtar-
Hreggviður Jónsson
skeiðið snerist upp í ofþenslu,
verðbólgu og viðskiptahalla hefði
þurft að grípa til strangra að-
haldsaðgerða í ríkisfjármálum og
peningamálum þegar í upphafi
ársins 1987. Sú staðreynd að ekki
var gripið til aðgerða fyrr en með
tilkomu nýrrar ríkisstjómar eftir
mitt árið veldur því að vandinn
sem við er að fást er verri viður-
eignar og kallar á stórtækari
aðgerðir en ella hefði verið nauð-
synlegt."
Hæstv. forseti: Ég spyr: Áfellis-
dómur á hvem og hveija er þetta?
Af hveiju hafa ijölmiðlamir ekki
yfír höfuð fjallað um þetta mál?
Hvar er þessi vandaða, ábyrga,
hlutlausa umfjöllun fjölmiðlanna
nú eða em þeir múlbundnir gömlu
flokkunum? í mesta góðæri sög-
unnar, mesta afla, með besta verð
fyrir hann, lágt olíuverð, hagstætt
gengi, stuðning aðila vinnumark-
aðarins og stuðning fjölmiðla
hefur alger óstjóm ríkt í fjármál-
um þjóðarinnár. Þetta er álit
núverandi ríkisstjómar á verkum
ríkisstjómarinnar á þessu ári.
Þetta er skjalfest í þeim þskj. sem
hér hafa verið lögð fram.
Borgarafl. fordæmir árás ríkis-
stjómarinnar á láglaunafólkið og
landsbyggðina, þessarar skatt-
píningarstjómar, sem er að refsa
almenningi fyrir óstjóm ríkis-
stjómarinnar í fjármálum 1987,
og þetta er einnig álit ríkissíjóm-
arinnar sjálfrar.
Hæstv. forseti. Við í Borgarafl.
erum sammála áliti núv. stjómar-
flokka á sjálfum sér. Það hefur
verið óstjóm í fjármálum þjóðar-
innar og ég spyn Hvemig eiga
þeir menn að sijóma landinu sem
geta ekki stjómað sjálfum sér?
FABIENNE
Rennur fram meö einu handtaki og verður 140 cm. breitt rúm
SUÐURLANDSBRAUT 22
S:36011
Notaðu símann þinn
beturl
Hringdu í Gulu línuna og
fáðu ókeypis upplýsingar
umvörurogþjónustu.
62'33‘88