Morgunblaðið - 03.11.1987, Blaðsíða 48
e*
48
V8G1 flaaMavðn ?, HuoAautÆua<í .aiaAjauuoHOM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1987
Ragnar Þór Jóns-
son — Minning
Viltu vera memm? Ég leit stór-
um augum á þennan grannvaxna
hrokkinhærða dreng sem stóð allt
í einu við hliðina á mér, sumar-
morgun einn árið 1963. Memm!?
Ég hljóp eins og fætur toguðu inn.
„Mamma, mamma, það er útlensk-
ur strákur úti í garði," kallaði ég.
Þannig bar fundum okkar
Ragga fyrst saman, og þar með
hófst óslitin vinátta okkar næstu
tuttugu og þrjú árin eða þangað
til fregnin um lát Ragga sprengdi
sig miskunnarlaust inn f raun-
veruleikann.
Ragnar Þór Jónsson eða Raggi,
eins og hann var alltaf kallaður
fæddist í Reykjavík 28. október
1956. Hann bjó fyrstu tvö árin
með foreldrum sínum, Ragnheiði
Gunnarsdóttur og Jóni Hilmari
Jónssyni hjá föðurforeldrum
sínum, þeim Jóni Hilmari Jónssyni
og Sigurlaugu Jónsdóttur. Til Ól-
afsvíkur ræðst faðir hans í vinnu
í tvö ár og þaðan til Keflavíkur í
eitt ár. Eftir það flytja foreldrar
Ragga aftur til föðurforeldra hans,
en slíta samvistum fljótlega upp
úr því. Hjá þeim afa og ömmu
dvaldi Raggi mikið, og var mjög
náið samband þeirra á milli, enda
augasteinn gömlu hjónanna frá
upphafi.
Raggi flytur á Hagamelinn 1963
eins og fýrr segir, en þá hefur
móðir hans búskap með Tryggva
Guðmannssyni. Með Tryggva eign-
ast Raggi ekki bara hjartahlýjan
föður, heldur einstakan vin og
traustan félaga. Á Hagamelnum
var aragrúi af krökkum, (enda
gatan uppnefnd Magamelur) á
svipuðu reki og Raggi. Hann féll
strax inn í hópinn því Raggi var
ljúfur að eðlisfari og átti gott með
að eignast vini. Við strákamir vor-
um hálfgerðir heimagangar heima
hjá Ragga, en báðir eldri bræður
hans, Hilmar Jónsson og Gunnar
Jónsson fluttu snemma að heiman.
Raggi fékk þá herbergið frammi,
sem varð nokkurs konar klúbbur
A
1
Skólavörðustíg 17a, sími 25115.
okkar félaganna, en foreldrar hans
voru einstaklega þolinmóð yfír rápi
okkar út og inn.
Snyrtimennska var honum í blóð
borin og var hann móður sinni stoð
og stytta í veikindum hennar en
hún átti við langvinn veikindi að
stríða. Raggi missir móður sína
tvítugur að aldri og var það mikill
missir því samband þeirra var mjög
náið.
Eftir Melaskólann og Hagaskól-
ann, þar sem Raggi útskrifast sem
gagnfræðingur árið 1973, nær
ævintýraþráin tökum á honum og
Fæddur 11. júní 1911
Dáinn 22. október 1987
Hann afí okkar, Ólafur Guðjóns-
son, er dáinn, hann lést 22. okt. sl.
Afí var fæddur á Eyrarbakka en
ólst að mestu upp í Vestmannaeyj-
um. Árið 1939 giftist hann Stefaníu
Guðmundsdóttur, og bjuggu þau
lengst af á Tunguvegi 5 í Hafnar-
fírði. Þau eignuðust þijú böm.
Hann afí er dáinn, því var erfítt
að trúa, hann sem var alltaf svo
hress þegar við komum í heimsókn
á Tunguveginn og ávallt tilbúinn
að glettast við okkur. En skjótt
skipast veður í lofti, hin alvarlegu
veikindi hans höfðu sín áhrif. Þegar
við lítum til baka til þeirra mörgu
ánægjustunda er hann veitti okkur
er margs að minnast og þá sérstak-
lega þeirrar hlýju og þeim kærleik
er hann ávallt sýndi okkur, fyrir
þetta og ótalmargt fleira viljum við
þakka.
Margs er að minnast
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þem' tregatárin stríð.
Birting af-
mælis og
minningar-
greina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð i
Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á I miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
hann heldur til sjós, en Raggi hafði
verið messagutti á Árna Friðriks-
syni hafrannsóknarskipi í sumar-
leyfum. Raggi var vel liðinn til sjós
enda ósérhlífínn til vinnu og ávallt
boðinn og búinn til verka. Hann
vann sig upp í bátsmannsstöðu,
þá aðeins nítján ára sem var ótrú-
legur árangur. Eftir að Raggi
hættir til sjós fer hann að vinna í
Herrahúsinu, meðan hann er að
átta sig á hlutunum. Árið 1979
ákveður hann að fara út til náms
og heldur til Danmerkur árið eftir.
Hann vinnur eitt ár en byijar síðan
í Nordisk Handelsskolen í Ár-
húsum, þar kynnist hann sambýlis-
konu sinni, Hanne Thomvig, sem
hann bjó með til dauðadags.
Þér Hanne Thomvig, Tryggva,
Gunnari, Hilmari, Jóni Grétari,
Jóni Hilmari Jónsssyni og öllum
aðstandendum, vinum og kunn-
ingjum Ragga, færi ég mínar
dýpstu samúðarkveðjur.
Engin orð fá lýst þeim trega er
heltekur mann, né verður bætt það
tómarúm í lífí okkar, þegar svo
góður drengur og kær fellur frá.
Við, sem vomm svo lánsöm að
kynnast Ragnari, höfum öll misst
mikið, en hluti af hjarta okkar
verður alltaf helgaður Ragga.
Minningin lifír.
Júlíus Bjarnason
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir alit og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
V. Bríem.
En nú kveðjum við afa í hinsta
sinn, hann er farinn.
Við erum þakklát fyrir samver-
una við hann og minningin um
góðan afa mun lifa í hugum okkar.
Góður Guð gefí ömmu styrk á þess-
um erfiðu tímum.
Jónas, Berglind og Úlfar.
Hann afí okkar, Ólafur Guðjóns-
son, er dáinn. Löngum og erfiðum
veikindum hans er nú lokið.
Gott var að sitja hjá afa og hlusta
hversu blíðlega hann talaði við okk-
ur og strauk okkur um kinn. Aldrei
mátti skamma böm f návist hans.
Það þýðir ekki, sagði hann alltaf,
heldur bara tala rólega til þeirra
og leiðbeina þeim. Allir krakkar
virtust vilja vera í návist hans vegna
þeirra blíðu sem hann sýndi bömum
jafnan.
Tómarúm hefur myndast. En við
vitum að afa líður vel núna á himn-
um.
Elsku afa okkar þökkum við allar
samverustundimar sem við áttum
með honum. Þær em ógleymanleg-
ar.
Guð blessi minningu hans.
Ólafur og Davfð Guðjónssynir
Reykjavíkurdeild RKÍ heldur
námskeið í
skyndihjálp
Það hefst þriðjudaginn 3. nóv. kl. 20 f Ármúla
34, (Múlabæ) og stendur yfir í 5 kvöld.
Skráning í síma 28222. Námskeiðsgjald er
kr.1000.-
Leiðbeinandi verður Guðlaugur Leósson.
Öllum heimil þátttaka.
Athygll skal vakln 6 því, að Raykjavlkurdeildin útvegar kennara
til að halda námskelð fyrlr skóla, fyrlrtækl og aðra, sem þess óska.
Rauöi Krosslslands
mita
Mögnuð
ljósritunarvél
Mita DC 152Zereinstök Ijósritunarvél ámjög góöu veröi. Þessi vél hefur
runniö út hjáokkursvo rétt erað hafasamband strax. Þú gerirekki betri
kaup.
stiglaus minnkun/stækkun
mötun úrtveim bökkum
framhjáhlaup
16 eintök á mínútu
pappírsstærðir A6 til A3
— sjálfvirk lýsing
— möguleikar á 4 litum
— einföld notkun, lág bilanatíðni
— sjálfvirkni
— traust (Djónusta
Verð kr.
189.800,
FJOLVAL HE
Ármúla 23 Sími 688650
Söluumboð: Hallarmúla 2
Minning:
Ólafur Guðjóns-
son bifvélavirki