Morgunblaðið - 03.11.1987, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1987
59
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
/\jt 1/wyw/ flw\ UfrW’UH
Fyrirferðarlitill lampi
LUMINESTRA*
Ríkisbankar og einkabankar
Til Velvakanda.
6. ágúst síðastliðinn birtist hjá
Velvakanda smá pistill um banka-
mál og fleira. Ekki dettur mér i
hug að þetta greinarkom hafi ver-
ið tilefni þess að dr. Þorvaldur
prófessor Gylfason skrifaði grein
í Morgunblaðið viku seinna um
ríkisbankarekstur og enn síður að
greinin hafí verið skrifuð að til-
hlutan Morgunblaðsins. Nú ætla
ég, áttræður maður og óskóla-
genginn, ekki að fara að deila við
hálærða menn, ritstjóra, prófess-
ora, doktora né aðra, en allir sem
lásu grein Þorvaldar komust ekki
hjá því að sjá að ýmislegt er við
hana að athuga.
Nú kemur það fram í grein Þor-
valdar, eins og áður í Morgun-
blaðinu, að allur vandinn við
bankarekstur sé að þeir séu einka-
bankar. Það er sanngjöm krafa
að Iesendur blaðsins fái skýringu
á því hvers vegna 238 einkabankar
í Bandaríkjunum urðu gjaldþrota
á aðeins 18 mánuðum fyrst einka-
bankarekstur á að vera einhvers
allsheijar tiygging fyrir góðri
stjóm. Eins gæti það verið fróðlegt
fyrir íslenskan almenning að fá
upplýsingar um hvort fátækt fólk
tapaði spariskildingum sínum í öll-
um þessum gjaldþrotum. Hér á
ísaköldu landi treysta flestir ríkis-
bönkum best fyrir sínum skilding-
um.
Að velta sér upp úr Útvegs-
banka- og Hafskipsmálinu og kalla
það rök gegn ríkisbönkum er
hvorki réttmætt né drengilegt.
Bankastjórar Útvegsbankans eru
heiðarlegir menn sem síst af öllu
vildu valda bankanum tjóni. Þetta
var slys og óheppni. Þar að auki
er Útvegsbankinn ekkert gjald-
þrota fyrirtæki, margfalt meira
virði en hann er boðinn fyrir. Öll
sala á honum fyrir sama og ekkert
er alger vitleysa, nánast geðbilun.
Sjálfur getur bankinn grætt aftur
það sem hann hefur tapað og sýn-
ir sig þegar slegist er um að fá
hann keyptan, augljóslega ekki til
að tapa á honum. Hitt gæti aftur
verið hagkvæmt að sameina hann
Landsbankanum þegar pólitískar
aðstæðurjeyfa.
Allir íslendingar eru aðeins
240.000 eða nokkum veginn jafn
margir og íbúar Árósa, sem er lítil
borg í litlu landi, Danmörku, með
öðmm orðum, við erum eitt
minnsta sjálfstæða ríkið í veröld-
inni. Því er samanburður og
viðmiðun við Portúgal, Spán,
Prakkland, Ástralíu eða Banda-
ríkin og aðrar stórþjóðir alveg út
í hött. Og það eru haldlítil rök að
eitthvað, sem kann að vera gott
og gilt hjá öðmm þjóðum, henti
okkur íslendingum. Og það er
sannast sagna að margfalt fleiri
þjóðir geta tekið íslendinga sér til
fyrirmyndar heldur en þær sem
Islendingar þurfa að sækja fyrir-
myndir til og það á flestum sviðum.
Þrátt fyrir fámenni þjóðarinnar
þarf að vera hér einn stór og öflug-
ur banki og það á Landsbankinn
að sjálfsögðu að vera og það væri
vafalaust skynsemi og hagræðing
að sameina Útvegsbankann Lands-
bankanum með tíð og tíma en sala
á Útvegsbankanum er fjarstæða.
Að ríkisbankamir séu pólitískir
bankar er þvert á móti sannleikan-
um, hitt væri sönnu nær að allir
hinir bankamir væm það og að
ríkisbönkunum sé illa stjómað og
af ábyrgðarleysi er mgl og ósann-
indi. En það ætti að vera öilum
að meinalausu að vélstjórar, að-
ventistar, verkalýðsfélög, sam-
vinnumenn, kaupmenn og
iðnrekendur reki banka ef það
getur gengið og einhveijir treystu
þeim til að geyrtia og ávaxta pen-
inga sína. Hitt er svo brýn nauðsyn
að sett verði betri og skynsamlegri
bankalöggjöf og að okurlánastarf-
semi verði bönnuð með öllu í hvaða
formi sem er.
Það er gott og blessað þegar
ungir menn fara út í heim og afla
sér mikillar þekkingar og mannast
á heimsins hátt.' Hitt væri líka
gott ef þeir heimkomnir gætu
fundið sér veglegra verk að vinna
en að koma ríkisbönkum í eigu og
umráð peningaaðalsins í Sjálfstæð-
isflokknum. Hann á nóg og ræður
nógu miklu og ekki á það bæt-
andi. En hvað sem öllu öðm líður
er eitt víst, að þegar Jón Baldvin
og Jón Sigurðsson koma fram með
tillögu sína á Alþingi um að selja
Landsbankann og Búnaðarban-
kann og að veralegum hluta til
erlendra aðila, þá þurfa þeir þing-
menn, sem greiða því atkvæði,
ekki að ómaka sig aftur í franiboð.
Ingi Jónsson
í»essir hringdu . .
Hraðahindranir
eru af hinu góða
„Fyrir nokkm var amast við
hraðahindmnum við gangbrautir
í grein sem birtist í Velvakanda.
Ég er ósammála höfundi greinar-
innar. Slysaskýrslur sýna að við
gangbrautir hafa einmitt oft átt
sér stað hömuleg slys. Aðgerðir
til að koma í veg fyrir slys hljóta
að vera af hinu góða og þar með
þessar hraðahindranir. Þar að
auki draga þessir tálmar úr um-
ferðarhraða í íbúðahverfum og er
það einnig af hinu góða."
Frábær dagskrá
hjá Stöð 2
Kristinn hringdi:
„Ég vil þakka Stöð 2 fyrir frá-
bæra dagskrá og hvetja stjóm-
endur þar til að halda áfram á
sömu braut. Þá langar mig til að
hvetja þá til að endursýna þáttin
um Barböm Steisand sem var
mjög góður þáttur."
Reiðhjól
Vínrautt tíu gíra kvenreiðhjól
var tekið við Hringbraut 100 fyr-
ir skömmu. Þeir sem orðið hafa
varir við hjólið em vinsamlegast
beðnir að hringja í síma 15286.
Áfram Jóhanna!
G.J. hringdi:
„Ég ég tek heilshugar undir
ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur fé-
lagsmálaráðherra sem hún flutti
á Alþingi sl. miðvikudag og birtist
í Morgunblaðinu föstudaginn 30.
október undir yfírskriftinni „Upp-
lausn á heimilum vegna aðstæðna
í húsnæðismálum". Gott hjá þér,
áfram Jóhanna! Orð í tíma töluð."
Ráðhúsið á réttum
stað
Sigríður hringdi:
„Ég vil taka undir sjónarmið
Reykvíkings sem skrifar grein í
Velvakanda föstudaginn 30. októ-
ber með yfirskriftinni „Tjamar-
bakkinn er rétti staðurinn fyrir
ráðhúsið". Það er engin eftirsjón
í bílastæðinu og bámjámshúsinu
þama því hvort tveggja skemmir
svip Tjamarinnar. Reyndar er allt
of mikið af fremur ljótum bám-
jámshúsum í miðbænum og mætti
byggja hann betur upp. Það er
ekkert menningarverðmæti fólgið
í öllum þessum gömlu bámjáms-
húsum, við emm í rauninni að
snobba niður fyrir okkur með því
að halda í þessa dönsku kofa.“
Keðjubréf
Kona hringdi:
„Ég hef fengið tíu kecjubréf á
skömmum tíma og I hveiju þeirra
er þess krafíst að ég sendi 20
eintök frá mér af hveiju þeirra.
Það væri dýrt að kaupa frímerki
á 200 bréf. í þessum bréfum vom
alls konar hótanir væri bréfíð
ekki sennt áfram en gylliboð ef
viðtakandi lét kúgast til þess.
Þessi bréf fóm öll beint í rasla-
tunnuna hjá mér. Sendingar sem
þessar eiga engan rétt á sér og
ætti fólk að sameinast um að
koma þeim úr umferð."
Skipta skoðanir
ellilífeyrisþega
ekki máli?
Sveinn Guðmundsson hringdi:
„Mig langar að gera athuga-
semd í sambandi við skoðana-
kannanir sem sífelt er verið að
gera um þessar mundir. í flestum
þeirra er fólk sem komið er yfír
67 ára aldur ekki haft með í úrtak-
inu. Þýðir þetta að skoðanir fólks
sem komið er á ellilaun skipti
ekki máli og ekki þurfí að taka
neitt tillit til þeirra. Það vantar
allt eftirlit með skoðanakönnun-
um hér á landi. Strangt eftirlit
þjrrfti að hafa með framkvæmd
þeirra."
Lindaá, ekki berg-
vatnsá
í bréfí hér í Velvakanda sl.
föstudag um sjónvarpsþáttinn
„Maður vikunnar“ varð misritun.
Þar sem stendur bergvatnsá átti
að standa lindaá.
— LUMINESTRA® lampinn frá OSRAM er aöeins 21 mm
á breidd. ^ mm
— Birtan er hin hlýja birta glóperunnar.
— Hægt er að tengja tlu lampa i röð. — Tilvalinn i skápa, innréttingar, og þar sem rými er lltið. — Litur: hvltur.
"É . OSRAM
w Ijóslifandi
orkusparnaður
Fæst i öllum helstu raftækjaverslunum og
kaupfélögum. Heildsölubirgðir:
t *
VIÍLIBK%ÐARDA GAR
I hádegi og á kvöliHn bjóöum viö
villibvádarhladbord í veitingasalnum
Lundi. Þad samanstcndur af:
- hreindýrapató
- gæstastroganoff
- hreindýrabuffi
- svartfugli
- lutida
\
tadreyktum sjóbirtingi
ogfleiri réttum, auk medlætis.
- Verd aðeins 960 kr.
- Salafbar innifalinn.
- Verjp vclkomin.
Sjgtúni 88, 105 Reykjavík Sími (91) 689000