Morgunblaðið - 03.11.1987, Page 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1987
Unnið við pökkun á síldinni.
Morgunbladið/Ágúst Blöndal
Neskaupstaður:
Fryst af fullum krafti
Neskaupstað.
SÍLDARFRYSTING er hafin af
fuUum krafti í frystihúsi Síldar-
vinnslunnar og er unnið á
vöktum allan sólarhringinn.
Jafnhliða er venjulegri fisk-
vinnslu haldið áfram.
Einnig er hafín söltun á síldar-
flökum. Gert er ráð fyrir að Japanir
kaupi um 6.000 tonn af frystri síld
á þessari vertíð og má því búast
við að mun meira verði fryst hér
en síðasta haust. Þá keyptu Japan-
ir á milli 1.200 og 1.300 tonn og
var um helmingur af því magni
frystur hér. - Ágúst
19. júní frum-
sýnt í Sindrabæ
Höfn, Hornafirði.
LEIKFÉLAG Horaafjarðar frum-
sýnir 19. júní í Sindrabæ miðviku-
daginn 4. nóvember næstkom-
andi.
19. júní er verk systranna Kristín-
ar og Iðunnar Steinsdætra og er
skrifað fyrir útvarp. Sýningin er þó
lítið breytt frá flutningi í útvarpinu,
aðeins hefur verið bætt inn sjö
söngvum. Söngtextar eru þeirra
systra, en Jóhann Móravek, skóla-
stjóri tónskólans á Höfn, hefur samið
lögin.
Leikendur eru tíu og aðalhlutverk-
ið er i höndum Elísu Jónsdóttur.
Leikritið fjallar í léttum dúr um bar-
áttu kvenna við að losna úr viðjum
gamalla hefða.
Leikstjóri og höfundur sviðsmynd-
ar er Oktavía Stefánsdóttir. Hún
hefur sett upp nítján sýningar, þar
af níu í Danmörku. Oktavía dvaldi
í Danmörku eftir að hún útskrifaðist
úr Leiklistarskóla Þjóðleikhússins,
en kom heim 1983. Oktavia starfar
á vegum Bandalags íslenskra leik-
félaga vítt og breytt um landið.
Þetta er fertugasta sýning Leik-
félags Homaifyarðar, en á þessu
leikári eru tuttugu og fímm ár liðin
frá stofnun þess. Leikendur eru á
ýmsum aldri, ungir og aldnir. Elsta
kempan er Gísli Arason, en í ár eru
liðin sextíu ár frá því hann sté fyrst
á svið.
Verkið tekur tvær stundir í flutn-
ingi.
- JGG
Morgunaðið/Jón G. Gunnarsson
Úr 19. júní, verki sem frumsýnt verður nk. miðvikudag á Höfn.
Kaupmannahöfn:
Tólf skólasystur sýna textíl-
verk hjá Lyngby Kunstforening
Skólasysturnar sem mættar voru við opnun sýningarinnar. Þær standa við verk Margrethe Mörke-
berg; „Fjöll“.
Erik Andreasen og frú. Margrethe Mörkeberg í miðjunni. Verk
Herdísar Tómasdóttur til vinstri og Ólafar Einarsdóttur til hægri.
Jónshúsi, Kaupmannahöfn.
NÝLEGA var opnuð sýning á
textilverkum 12 skólasystra úr
Myndlista- og handfðaskóla ís-
lands hjá Lyngby Kunstforen-
ing, Lyngby Hovedgade 26A.
Eru þær aUar útskrifaðar 1985.
Nefnist sýningin Nordsus, Þytur
úr norðri, og mun standa út
októbermánuð.
Við opnun sýningarinnar talaði
Erik Andreasen, formaður Listafé-
lags Lyngby, og kvað hann Dani
hugsa um stórbrotið landslag .er
þeir heyrðu fsland nefnt. Hann
rakti aðdraganda sýningarinnar,
en ein skólasystranna er dönsk,
Mar-
grethe Mörkeberg. Hún tók með
sér hinar listakonumar og þakkaði
formaðurinn, að þær vildu og gátu
komið.
Halldóra Thoroddsen flutti
þakkarávarp fyrir hönd þeirra 12.
Þær hafa notið einlægrar gestrisni
félagsmanna og annarra og eru
þakklátar og stoltar af að fá að
sýna hjá svo góðu fólki. Nefndi
Halldóra sérstaklega Erik Andrea-
sen formann, Henrik Jensen, svo
og Margrethe og fjölskyldu henn-
ar, sem þær dvöldu allar hjá, en 9
voni mættar með verk sín.
í sýningarskrá, sem Lyngby
Kunstforening lét gera, eru skóla-
systumar taldar upp í þessari röð,
hin elzta fædd 1943, en sú yngsta
1961. Hafa þær margar eigið verk-
stæði heima nú.
Herdís Tómasdóttir á 2 verk,
annað heitir Land, hitt er án titils
og eru þau unnin úr ull og hör
með koparþræði og hrosshári.
Herdís tók þátt í sýningu á Bol-
virki 1984 og í Listahátíð kvenna
1985.
Halldóra Thoroddsen sýnir
mynd, sem hún nefnir parís (leikur
bama) og nafnlaust verk úr bóm-
ull með ísaumi, málun og applíker-
ingu. Halldóra hefur sýnt í
Listasafni Hafnarfjarðar, Gallerí
Borg og á samnorrænni sýningu í
Reyiq'avík 1986.
Sigríður Kristinsdóttir á eitt ull-
arveggstykki á sýningunni, sem
hún nefnir Kona, en stöllur hennar
skrifa „quinde" og dregur það at-
hygli að sér í hlýjum rauðum lit.
Olöf Einarsdóttir sýnir spjald-
vefnað úr hrosshári, létt og fallegt
verk. Hún gat ekki komið með í
þessa ferð fremur en Sigríður og
Helga.
Þuríður Dan Jónsdóttir er með
tvær þrykkmyndir, báðar án titils.
Hún hefur tekið þátt í samsýningu
í Bolvirki og á Listahátíð kvenna.
Verk Helgu Kristmundsdóttur
heitir Nótt og er unnið úr ull og
silki. Hún vann hér í Höfn sem
postulínsmálari hjá Konunglegu
postulínsverksmiðjunum
1978-82.
Jóna Sigríður Jónsdóttir sýnir
þrykk á segldúk og er mynd af
verkinu, sem er án titils, í sýning-
arskrá.
Guðrún Kolbeins vann sitt verk
úr ull, hör og nælon og nefnir það
Samspil. Hún hefur eins og fleiri
stöllur hennar sýnt í Bolvirki og á
Listahátíð kvenna.
Ólöf Nordal er yngst listakvenn-
anna. Verk hennar úr bómull og
hrosshári nefnir hún Equinox
(jafndægur). Hún hefur haldið sýn-
ingu í Slunkaríki á ísafírði.
Mynd af vefnaði Báru Guð-
mundsdóttur skreytir einnig
sýningarskrána. En hún á tvö mjög
eftirtektarverð veggteppi á sýning-
unni, er þar á mynd af flatfíski
og/eða fugli, en hún nefnir þau
aðeins Form.
Elísabet Þorsteinsdóttir vinnur
úr ull og hör og skreytir með hross-
hári. Nefnir hún verk sín Haust
og Norðurljós, en hið síðara hefur
einnig verið kallað 39° vegna hita-
sóttar vefarans, er hún óf það.
Margrethe Mörkeberg á tvö
verk á þessari sýningu, sem hún
raunar gerði að veruleika. Heitir
annað þeirra Fjöll og er í bak-
grunni á meðfylgjandi mynd af
Hstakonunum, en hitt nefnir hún
ísland ’87 og eru þau bæði ofin
af ull og hör með hrosshársívafi.
Heildarsvipur sýningarinnar er
góður og einstök verk njóta sín
vel. Er um sölusýningu að ræða
og hefur eitt verkanna selst. Má
telja hrosshárið áberandi þátt í
myndunum. Þær skólasystur róma
mjög allar móttökur og fyrir-
greiðslu, bæði hér og heima, t.d.
hjá Flugleiðum, og styrkur fékkst
hjá menntamálaráðuneytinu.
Lyngby Kunstforening sér þeim
fyrir sýningarstað og -skrá að
kostnaðarlausu og félagið greiðir
einnig undir verkin heim að sýn-
ingu lokinni.
Eftir hátfðlega athöfn við opnun
sýningarinnar bauð Lyngby Kunst-
forening listakonum til kvöldveizlu
á Sophienholm, en það er gamall
herragarður í fögru umhverfí, sem
fyrir löngu hefur verið breytt í vin-
sælt sýningarhús og veitingastað.
Þar barst talið að áframhaldandi
sýningum á verkum íslenskra lista-
manna á vegum félagsins og hafa
forráðamenn þess áhuga á að efna
til íslenzkrar samsýningar á Sophi-
enholm næsta haust, en þá hefur
Lyngby Kunstforening sýningar-
salina til umráða októbermánuð.
Starf félagsins stendur með mikl-
um blóma og eru fleiri hundruð
virkir félagar. í húsnæði þess eru
sýningar allt árið og félagið skipu-
leggur einnig skoðunarferð til
útlanda.
Margrethe Mörekeberg er eini
Daninn í þessum hópi vefjarlista-
manna og verður því fyrir að
spyija hana, af hveiju hún lauk
námi frá Myndlista- og handíða-
skóla Íslands með þeim hinum.
Margrethe kom til íslands eftir
nám í Dansk Haandarbejdssemin-
arium og ætlaði að vinna hjá
vefara, en af því varð ekki. f stað-
inn fór hún í sveit, fyrst að
Torfufelli í Eyjafírði. Og svo fór
að hún dvaldi tvö og hálft ár á
íslandi og líkaði afar vel, bæði við
sveitastörfin og í Myndlista- og
handíðaskólanum. Þær 12, sem
útskrifuðust saman 1985, höfðu
þá þegar ákveðið að hittast í Dan-
mörku og halda sýningu og nú
varð sá draumur að veruleika.
Margrethe stundar nú nám við
Billedskolen í Kaupmannahöfn,
sem áður var staðsettur á Loll-
andi. Þar eru 150 nemendur og
er kennd teiknun, málun og högg-
myndagerð. Margrethe og maður
hennar, Morten Högsbro Holm, eru
í þann veginn að stofna vefnarðar-
verkstæði með eigin hönnun og
framleiðslu. — G.L. Ásg.