Morgunblaðið - 08.11.1987, Blaðsíða 1
120 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
254. tbl. 75. árg.
SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Byltingarhátíð í Sovétríkjunum:
Valdamenn boða
aukna vígvæðingu
Moskvu, Reuter.
70 ár voru í gær liðin frá bylt-
ingu kommúnista í Rússlandi.
Var þess að veiyu minnst með
hátíðlegum hætti og mikilli her-
sýningu á Rauða torginu í
Moskvu. Dmitiri Yazov, varnar-
málaráðherra Sovétríkjanna,
sagði í ræðu að ríki Vesturlanda
vildu tryggja sér yfirburði á
sviði vígbúnaðarmála.
Yazov sagði að herafli Sovétríkj-
anna væri á varðbergi gagnvart
„sérhverri ógnun“. „Yfírvöld hafa
gripið til viðeigandi ráðstafana til
að efla herafla landsins til að
tryggja að ekki verði reynt að
raska friðsamlegu lífí okkar,"
sagði hann. Kvað hann fyrirhugað-
an fund leiðtoga risaveldanna í
Bandaríkjunum í næsta mánuði
mjög mikilvægan en bætti við að
„afturhaldssamir heimsvalda-
sinnar“ freistuðu þess enn að
tryggja yfírburði sína á sviði
vígbúnaðarmála. Voru orð vamar-
málaráðherrans túlkuð á þann veg
að með þessu væri hann hann að
veitast að geimvamaráætlun
Bandaríkjastjómar.
Á leiðtogafundinum í Banda-
ríkjunum munu þeir Ronald
Reagan Bandaríkjaforseti og Mik-
hail S. Gorbachev Sovétleiðtogi
ræða ágreining ríkjanna varðandi
túlkun ABM-sáttmálans um tak-
markanir gagneldflaugakerfa sem
Sovétmenn segja að taki fyrir bein-
ar tilraunir með geimvopn. Að
auki verður fækkun langdrægra
Iqamorkueldflauga til umræðu en
á fundinum í Reykjavík á síðasta
ári náðu leiðtogamir munnlegu
samkomulagi um að stefna að
helmings fækkun þeirra.
Sjá ennfremur „Skuggi
Stalíns" á bls. 52.
Bandaríkin:
Hvelja Ginsburg til
að draga sig í hlé
Washington, Reuter.
RÁÐHERRA i stjórn Ronalds
Reagan Bandaríkjaforseta hefur
hvatt Douglas Ginsburg, sem út-
nefndur hefur verið til embættís
dómara í hæstaréttí Banda-
rikjanna, til að draga sig í hlé
og lýsa yfir þvi að _hann óski
ekki eftir þvi starfi. Ástæðan er
sú að Ginsburg skýi-ði frá þvf á
föstudag að hann hefði neytt
fikniefnisins marijuana á yngri
árum.
William Bennett, menntamála-
Nicaragua:
Kontra-skæruliðar
ast á vopnahlésviðræður
fall-
Mexfkóborg, Miami, Managua, Reuter.
LEIÐTOGAR kontra-skæruliða í
Nicaragua hafa fallist á að eiga
viðræður við stjórnvöld um
hvemig koma megi á vopnahléi
í landinu. Daniel Ortega, forseti
Nicaragua, lagði tíl, að Miguel
Obando y Bravo kardináli yrði
milligöngumaður i viðræðunum
og samþykktu leiðtogar skæra-
liða það á aðfaranótt laugardags.
Talið er að með þessu hafi nokk-
uð aukist líkur á þvi að friðar-
áætlun Oscars Arias, forseta
Costa Rica og handhafa friðar-
verðlauna Nóbels, nái fram að
ganga.
„Við höfum fallist á viðræðumar
og viljum hefja þær sem fyrst,"
sagði Adolfo Calero, einn sex leið-
toga samtaka skæruliða, sem
nefnast „Andspymuhreyfíng Nic-
aragua". Calero gagnrýndi á hinn
bóginn stjóm sandinista fyrir að
neita að sleppa öllum pólitískum
föngum í landinu lausum og aflétta
neyðarlögum. Daniel Ortega til-
kynnti á föstudag að 1.000 pólitísk-
um föngum yrði veitt frelsi, en
leiðtogar kontra-skæruliða telja að
15.000 manns dvelji innan fangels-
ismúra í Nicaragua vegna stjóm-
málaskoðana sinna. Segja þeir þetta
vera í ósamræmi við friðaráætlun
Oscars Arias sem miðar að því að
koma á vopnahléi í þremur ríkjum
Mið-Ameríku; Nicaragua, E1
Salvador og Guatemala. Þá vilja
skæruliðar að viðræðumar verði
ekki eingöngu bundnar við vopna-
hlé heldur verði einnig tekið á
pólitískum deilumálum. „Það er frá-
leit skoðun að unnt sé að semja um
vopnahlé án þess að ræða hina
stjómmálalegu hlið máisins," sagði
Adolfo Calero.
Miguel Obando y Bravo kardín-
áli hefur gagnrýnt stjóm sandinista
harðlega og fognuðu leiðtogar
skæmliða því, að Ortega hefði út-
nefnt hann til að gegna starfí
málamiðlara í viðræðunum. Sagði
Calero hann vera einstakan mann
og unnanda frelsis og lýðræðis.
Friðaráætlun Arias forseta gekk
í gildi á fímmtudagskvöld og rann
þar með út sá frestur sem stríðandi
fylkingum í löndunum þremur hafði
verið settur til að hefja vopnahlés-
viðræður.
ráðherra Bandaríkjanna, skoraði í
gær á Ginsburg að draga sig í hlé
sökum þessa máls. Skýrði Bennett
Reagan forseta frá því að hann
hygðist gera þetta og sagði ónafn-
greindur embættismaður að forset-
inn hefði ekki lagst gegn því.
„Forsetinn hvorki hvatti né latti
Bennett til að koma þessari áskomn
á framfæri," sagði embættismaður-
inn. í fréttum bandarísku sjón-
varpsstöðvarinnar CBS var hins
vegar fullyrt, að Reagan hefði sam-
þykkt að þrýst yrði á Ginsburg um
að draga sig í hlé. Þingmenn þurfa
að staðfesta þá ákvörðun Reagans,
að velja Ginsburg til starfans og
hefur verið ákveðið að hann svari
spumingum dómsmálanefndar öld-
ungadeildarinnar í næsta mánuði.
Ginsburg sagði á föstudag að
hann hefði neytt marijuana nokkr-
um sinnum á sjöunda og áttunda
áratugnum. Reagan forseti sagði
að þetta breytti engu um hæfni
Ginsburgs til að gegna starfí hæsta-
réttardómara. Ginsburg hefði aldrei
verið eiturþræll heldur hefði hann
freistast til þess að prófa að neyta
fíkniefna líkt og margt ungt fólk á
þessum tíma.
UNESCO:
Mayor var kosinn
París, Reuter.
SPÁNYERJINN Frederico Mayor
var í gær kjörinn framkvæmda-
stjóri Menningarmálastof nunar
Sameinuðu þjóðanna (UNESCO).
Allsherjarþing UNESCO staðfesti
þar með þá ákvörðun framkvæmda-
stjómarinnar að mæla með Mayor. í
atkvæðagreiðslunni í gær hlaut May-
or 142 atkvæði, er. sjö ríki greiddu
atkvæði gegn honum. Eftir harðvít-
ugar deilur í framkvæmdanefndinni
náðist um það samstaða ! síðasta
mánuði að tilnefna Mayor til embætt-
is framkvæmdastjóra UNESCO og
tekur hann við stöðunni af Senegal-
búanum M’Bow, sem sóttist eftir
endurkjöri, en var hafnað.