Morgunblaðið - 08.11.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987
47
Vélasamstæðan Gíslína er nefnd
í höfuðið á framleiðslustjóran-
um, Gísla Guðmundssyni. Á
myndinni er einnig Sóiveig
Sveinsdóttir gjaldkeri.
Ekki er skemmtilegt að vinna með brennda og sótuga pappíra.
ingar þetta í flimtingum, satt best
að segja er heimilisfangið
grípandi."
Unnið með sót-
uga pappíra
Hvaða tjón var tilfinnanlegast?
„Rannsóknarstofan okkar sem
brann alveg. Þar fóru gögn sem
tekur langan tíma að vinna upp
aftur. Við höfum af því mestar
áhyggjur í dag hvemig við eigum
að koma eðlilegri vömþróun aftur
af stað. Rannsóknarstofan hefur
verið stolt fyrirtækisins. Ég held
að mér sé óhætt að segja að við
séum með stærstu rannsóknar-
stofu í einkaeign hérlendis."
En bókhaldið og aðrir nauðsyn-
legir pappírar, brunnu þeir? „011
fylgiskjöl brunnu en fjárhags- og
sölubókhaldið yar inn á tölvu. Ör-
yggiseintök voru geymd í banka-
hólfi. Skrifstofan gat þess vegna
starfað óhindrað eftir að við kom-
um henni undir þak. Reyndar er
ekki fyrir það að synja að við erum
stundum að vinna með hálf-
brennda og sótuga pappíra. Við
spaugum með það að stærsti
kostnaðarliður á skrifstofunni sé
handsápa."
En nú lentu allar tölvur fyrir-
tækisins í eldinum, hafði það engin
áhrif á reksturinn? „Það gekk
ótrúlega fljótt að kippa því í lið-
inn, það var búið að útvega okkur
nýjar eftir tvo daga.“
Hvað brann fleira? „Tjónalistinn
er ansi langur, annars er það
merkilegt að í dag er mér ofar í
huga það sem brann ekki. Gjald-
kerinn okkar, hún Sólveig Sveins-
dóttir, rétt náði að loka peninga-
skápnum áður en hún forðaði sér.
Ég var spenntur þegar skápurinn
var opnaður eftir brunann. Þama
vom pappírar upp á tugi milljóna
• þeir vom óskaddaðir."
Húsnæðið er ekki
„klæðskerasniðið“
Er húsnæðið sem Málning hf.
keypti á Punahöfða alveg eftir
ykkar þörfum? Hentar það ykkar
framleiðslu og rekstri? „Satt best
að segja er það ekki „klæðskera-
sniðið" fyrir okkur. Fyrir bmnann
mánudaginn þrettánda voram við
byrjaðir á að hanna nýjar fram-
leiðslurásir og skipuleggja upp-
setningu véla, það sem vantaði var
lóð undir og hús utanum. Þessa
dagana emm við að ákveða hvem-
ig við ætlum að haga uppbygging-
unni.“
Síðustu mánuðir hljóta að hafa
verið óvanalegir. Hvað er Stefáni
Guðjohnsen framkvæmdastjóra
efst í huga eftir þessa lífsreynslu?
„Fyrst og fremst þakklæti til for-
sjónarinnar fyrir að enginn skyldi
slasast í eldsvoðanum. Ennfremur
þakklæti til alls starfsfólksins sem
hélt tryggð við okkur þrátt fyrir
það að þurfa að vinna verk sín við
mjög erfíðar aðstæður. Ég nefni
sérstaklega Gísla Guðmundsson
framleiðslustjóra sem hafði það
erfíða hlutverk að koma fram-
leiðslunni af stað eftir branann."
vurumiðstOð
loindex
Skútuvogi 4. Sími 37100.
Tandex.
Danski tannburstinn
er kominn til
íslands.
Danir, finnar, svíar og
norðmenn nota Tandex
tannbursta.
Nú er einnig hægt að kaupa þá á
íslandi.
Tandex tannburstinn er orðinn
„heimsfrægur á Norðurlöndum"
fyrir lögun skaptsins, sem liggur
frábærlega vel í hendi og fyrir koll-
ótta lögun burstanna.
Tandex framleiðir tannbursta með
mjúkum, í meðallagi mjúkum og
hörðum burstum, fyrir ungbörn,
börn og unglinga og fyrir fullorðna.
Tandex tannbursta getur þú fengið
með lituðum sköptum og hvítum
burstum og með hvítum sköptum
og lituðum burstum. Þú getur líka
fengið Tandex tannþráð og tann-
stöngla.
Líttu við í næstu búð og heilsaðu
upp á nýju, sterku, dönsku tann-
burstana.