Morgunblaðið - 08.11.1987, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987
Horft yfir athafna-
svæði Rannsóknar-
stöðvarinnar á
Mógilsá í Kollafirði.
Ljósmynd/Mats Vibe Lund
Rannsóknarstöðin á Mógilsá:
Viðhorf — áætlun — markmið
Rannsóknarstöð
Skógræktar ríkisins að
Mógilsá er miðstöð allrar
rannsóknarstarfsemi
skógræktar á fslandi. Hún
var reist fyrir gjafafé, sem
Ólafur V. Noregskonungur
færði fslendingum á ferð
sinni hingað árið 1961, en
fénu skyldi varið til að efla
skógrækt hér á Iandi.
Bygging stöðvarinnar
hófst síðan 1964, en hún var
vígð 15. ágúst 1967.
Rannsóknarstöðin átti því
20 ára afmæli síðastliðið
haust og var þess minnst
mejð viðeigandi hætti.
f tilefni afmælisins færði
norski skógræktarstjórinn
stöðinni að gjöf fjárupphæð
sem verja á til námsdvalar
fyrir einn starfsmann
stöðvarinnar í Noregi á
viðlíka stofnun í hálft ár.
Af þessu og fjölmörgu
öðru má segja að Norðmenn
geri ekki endasleppt við
okkur fslendinga þegar um
er að ræða eflingu
skógræktar hér á landi.
Um starfsemina á Mógilsá mætti
sjálfsagt skrifa langt mál. Segja
má að þar hafi skipst á skin og
skúrir — stundum vel tii tekist en
í öðrum tilvikum niður. Hér fengu
Islendingar fyrst reynslu af rekstri
slfkra vísindalegra rannsóknar-
stöðva á skógræktarsviðinu.
Reyndar var fyrsta tijáræktarstöð
sett á laggimar hér á landi á Akur-
eyri 1899, en aðalhlutverk hennar
var að rækta plöntur upp af fræi
erlendis frá, þar sem loftslagi og
jarðvegi svipaði til þess sem hér
gerist.
Árangurinn var hins vegar ekki
metinn skipulega fyrstu áratugina
og seinfengin almenn starfsreynsla
kom í stað rannsókna á vexti og
viðgangi tijánna.
Það var því sannarlega tímabært
að heíja vísindalega rannsóknar-
starfsemi á þessu sviði hérlendis
þegar rekstur stöðvarinnar á Móg-
ilsá hófst.
Árið 1958 var fyrsti tilrauna-
stjóri Skógræktar ríkisins skipaður
en starfssvið hans var þröngt fyrstu
árin. Áhersla var lögð á saman-
burðartilraunir og skrásetningu
reita, þar sem hægt var að rekja
uppruna tijánna auk veðurfars-
rannsókna.
Reglugerð fyrir rannsóknarstöð-
ina á Mógilsá var staðfest af
landbúnaðarráðherra árið 1968 og
samkvæmt henni á stöðin fyrst og
fremst að vinna að verkefnum sem
hafa hagnýtt gildi fyrir skógrækt
og tijárækt í landinu.
Stöðin er nú sérstök deild innan
Skógræktar ríkisins, en lýtur stjóm
5 manna, sem skipuð er af land-
búnaðarráðherra til fjögurra ára í
senn. Nú eiga sæti í stjóminni
Sveinbjöm Dagfínnsson, ráðuneyt-
isstjóri í landbúnaðarráðuneytinu,
Sigurður Blöndal, skógræktarstjóri,
Þorsteinn Tómasson, forstjóri
Rannsóknarstofnunar landbúnaðar-
ins, Indriði Indriðason, tilrauna-
stjóri á Tumastöðum í Fljótshlíð og
Hulda Valtýsdpttir, formaður Skóg-
ræktarfélags íslands.
Rannsóknarkerfíð sem unnið er
eftir í tilraunastöðinni á Mógilsá er
þríþætt.
I fyrsta lagi eru afmörkuð rann-
sóknarverkefni sem taka tiltölulega
stuttan tíma, eða 1—5 ár.
í öðru lagi eru reglulegar mæl-
ingar, sem gera þarf með vissu
millibili í mörg ár.
Og í þriðja lagi er vöktun, þ.e.
einfalt kerfí, sem notað er til að
skrásetja árlega reynslu af tijá- og
skógrækt um allt land.
Önnur verkefni eru erfðarann-
sóknir, vaxtarrannsóknir, skóg-
vemd gagnvart skordýrum og
sveppum, ræktunartilraunir og ýms
verkefni, sem flokkast undir grunn-
rannsóknir.
Þá er enn ógetið fræðslustarf-
semi, með útgáfu bæklinga eða
greinaskrifum. Loks er þess að geta
að rannsóknarstöðin sér um öflun
og dreifíngu á öllu tijáfræi sem
gróðrarstöðvar Skógræktar ríkisins
og skógræktarfélaganna nota í upp-
eldisreitum sínum. Fylgst er með
fræfalli og fræi safnað eða það
pantað erlendis frá þegar þörf kref-
ur. Starfsmenn stöðvarinnar veita
einnig einstaklingum, skógræktar-
félögum og skógarvörðum ráðgjöf,
þegar þess er leitað.
Forstöðumaður stöðvarinnar er
Þórarinn Benedix, skógfræðingur,
en helsti aðstoðarmaður hans er Jón
Gunnar Ottósson, skordýrafræðing-
ur. Auk þeirra starfa við stöðina
tveir sérfræðingar og þrír ófaglærð-
ir ársmenn. Þess utan má geta þess
að rannsóknarstöðin rekur ýmis til-
raunasvið í reitum víðs vegar um
land og er þar aðallega um teg-
unda- og kvæmatilraunir að ræða
auk vaxtamælinga. Almennir
starfsmenn Skógræktar ríkisins
afla gagna í þeim tilvikum. Ræktun
tilraunaplantna er í umsjá ræktun-
arstjóra, sem jafnframt stjómar
ræktun skógarplantna í gróðrar-
stöð, sem rekin er í tengslum við
rannsóknarstöðina.
Nýlega var lögð fram rannsókn-
aráætlun fyrir rannsóknarstöðina á
Mógiisá fyrir árin 1988—92, sem
er hiuti af langtímaáætlun Rann-
sóknarráðs um rannsóknir i þágu
atvinnuveganna.
Þar er fyrst gerð grein fyrir
mótandi viðhorfum gagnvart skóg-
rækt á íslandi og tilgreindir þrír
meginþættir.
I fyrsta lagi vaxandi áhersla
stjómvalda að græða upp gróður-
snautt land með tijám og mnnum
og bæta land sem er í verra ástandi
en gróðurskilyrði gefa tilefni til.
í öðm lagi má nefna þann góða
árangur sem fengist hefur bæði af
fríðun birkiskóga og ræktun nýrra
skóga með innfluttum tegundum.
I þriðja lagi hafa breyttir búskap-
arhættir áhrif á viðhorf til skóg-
ræktar sem búgreinar.
í fjórða lagi hefur sannast að
ræktun skjólbelta bætir gróðurskil-
yrði og er til skjóls fyrir menn og
fénað, en ákvæði um styrki til rækt-
unar þeirra hefur nú verið lögfest.
í fímmta og síðasta lagi hefur
áhugi á útilífi aukist til muna und-
anfarin ár, fólk sækir í skóglendi á
ferðalögum um landið. Kröfur um
heppileg svæði til útivistar mun
hafa vemleg áhrif á þróun skóg-
ræktarmála á næstu ámm. Aukin
áhersla verður lögð á að friða natt-
úmskógana samfara ræktun nýrra
skóga til útivistar.
Þetta em helstu atriði í þeim
kafla áætlunarinnar sem ber yfír-
skriftina Mótandi viðhorf.
í 2. kafia, þar sem §allað er um
þjóðfélagsleg markmið, segir að
hlutverk skógræktar á íslandi sé
fjórþætt, nefnilega: verndun jarð-
vegs og gróðurlenda, landbætur,
fjárhagslegur ávinningur í formi
timburs og annarra afurða og
efling atvinnu í dreifbýli.
Við vemdun jarðvegs og gróður-
lenda er áhersla lögð á að vemda
skóglendi, sem er í bráðri hættu —
að vemda land þar sem skógur
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
IJr Hallormsstaðaskógi. Rannsóknarstöðin rekur ýms tilraunasvið víðsvegar um land og starfsmenn
Skógræktar ríkisins afla gagna I mörgum tilvikum. Tilrau nastarfið er þvi virkt í flestum landshlutum.