Morgunblaðið - 19.11.1987, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987
7
Nemendur Hagaskóla skora á landbúnaðarráðherra:
Skipholtsmál:
Leigjandi, en
MAÐUR sá, sem nú situr í gæslu-
varðhaldi vegna mannsláts í íbúð
að Skipholti 40, leigði íbúðina,
en er ekki eigandi hennar.
Komið hefur fram að maður
þessi, sem er tæplega þrítugur, var
húsráðandi í íbúðinni, þar sem mað-
ekki eigandi
ur fannst látinn fyrir skömmu og
hefur hann játað að átök hafi átt
sér stað milli þeirra. Þar sem eig-
andi íbúðarinnar er einnig tæplega
þrítugur maður, er rétt að taka
fram að hann á hér engan hlut að
máli.
Bústaðakirkja:
Meira fé til landgræðslu
Einleikara-
prófstónleikar
Tónlistarskólinn í Reykjavík
heldur einleikaraprófstónleika í
Bústaðakirkju föstudaginn 20.
nóvember kl. 20.30.
Á efnisskrá tónleikanna eru þessi
verk: Kanon fyrir strengjasveit eftir
J. Pachelbel, Konsert í A-dúr fyrir
fíðlu og hljómsveit eftir W.A. Mozart
og Oktett eftir F. Mendelssohn fyrir
Qórar fiðlur, tvær lágfíðlur og tvö
selló. í fíðlukonsertinum eftir Mozart
leikur Hildigunnur Halldórsdóttir ein-
leik, en tónleikamir eru hluti af
einleikaraprófí hennar frá skólanum.
Stjómandi er Gunnar Kvaran.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
á nafni fyrirtækisins?
LOGREGLAN vinnur nú að rann-
sókn hassmálsins, sem kom upp
á mánudag. Sérstaklega er kann-
að, hvort fyrirtæki það, sem
innflytjendur fíkniefnisins not-
uðu sem skálkaskjól, hafi áður
flutt inn vörur og hvort þá hafi
einnig verið um fíkniefni að
ræða.
voru, hafa aldrei áður komið við
sögu fíkniefnalögreglunnar. Konan
er hins vegar betur þekkt þar, því
hún hefur verið kærð nokkmm
sinnum, bæði fyrir dreifingu fíkni-
efna og neyslu þeirra. Þau vom í
gær úrskurðuð í gæsluvarðhald til
5. janúar á næsta ári.
Hildigunnur HaUdórsdóttir fiðlu-
leikari.
W&KARNABÆR
Sr " barnadeild - Austurstræti22
250 NEMENDUR í 7., 8. og 9. bekk Hagaskóla hafa undirritað áskor-
un tíl Jóns Helgasonar landbúnaðarráðherra þar sem segir meðal
annars að ekki sé nægilegu fé varið tíl landgræðslumála og að þrátt
fyrir góða viðleitni sé gróður enn á undanhaldi aðaUega vegna fjár-
skorts Landgræðslunnar. Úr þessu megi bæta og þótt það kosti
útgjöld nú, muni það margborga sig siðar.
Asdís Jónsdóttir, Menja von ardóttir, allar í 9. bekk, afhentu
Schmalensee og Matthildur Sigurð- ráðherranum undirskriftarlistana í
Kópavogur:
Aðalfundur
sjálfstæðis-
félagsins
AÐALFUNDIJR Sjálfstæðisfé-
lags Kópavogs verður haldinn í
kvöld, fimmtudaginn 19. nóvem-
ber kl. 20.30 i Sjálfstæðishúsinu
að Hamraborg 1, 3. hæð.
Aðalræðumaður kvöldsins verður
alþingismaðurinn Eyjólfur Konráð
Jónsson. Eyjólfur er formaður ut-
anríkismálanefndar og í Fjárhags-
og viðskiptanefnd efri deildar al-
þingis. Eyjólfur Konráð Jónsson
Hassmálið:
Fíkniefni flutt inn áður
Á mánudag handtók lögreglan
tvo menn, 39 og 44 ára, og eina
konu, 30 ára, vegna innflutnings
og fyrirhugaðrar sölu á 10,7 kflóum
af hassi. Hassið var falið í málning-
ardósum, sem vom fluttar inn á
nafni fyrirtækis, sem var stofnað
fyrir nokkmm mánuðum. Maður-
inn, sem var skráður eigandi fyrir-
tækisins, vissi þó ekkert af þessum
innflutningi. Gmnur leikur á að
fyrirtækið hafi áður verið notað sem
skálkaskjól fyrir innflutning fíkni-
efna, en lögreglan vinnur nú að því
að rannsaka hvort svo hafí verið.
Mennimir tveir, sem handteknir
Kringlan:
Lokað á
sunnudögum
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi
sínum á þríðjudag að leyfa ekki
verslunum i Krínglunni að hafa
opið á sunnudögum í desember.
Forsvarsmenn Kringlunnar ósk-
uðu eftir því við borgarráð að þeim
yrði heimilt að hafa verslanimar
opnar milli kl. 13 og 17 á sunnudög-
um en þeirri beiðni var hafnað.
Sýnishornafokkarjgfötum
gær og ræddu við hann um landg-
ræslumál og hvað væri hægt að
gera til úrbóta í þeim efnum. Þær
sögðust hafa fengið hugmynd að
undirskriftasöfnuninni í landafræð-
itíma þar sem sýnt var fram á að
á landmámsöld hafi 65% landsins
verið gróið en nú aðeins 25% og
enn væri gróður á undanhaldi.
„Okkur blöskraði og ákváðum að
gera eitthvað í þessu til að vekja
athygli á málinu." Stelpumar
gengu einn dag á milli beklq'ar-
deilda og söfnuðu undirskriftum.
Þær sögðust vera mjög ánægðar
með viðtökumar. „Það tóku þessu
flestir mjög vel en einn og einn var
með bamaskap og fannst þetta
asnalegt," sögðu þær.
Ein hugmyndin um úrbætur sem
sett er fram í áskoruninni er „að
tekinn verði upp sá gamli siður að
fara með grunnskólanemendur út í
náttúmna til að gróðursetja tré og
aðrar plöntur. Það gefur þeim tæki-
færi til að kynnast náttúrunni á
nýjan hátt og er einnig ódýr leið
til að græða landið." Asdís segir
Morgunblaðifl/Ámi Sæberg
Ásdis Jónsdóttir, Matthildur Sigurðardóttir og Menja von Schma-
lensee afhenda Jóni Helgasyni landbúnaðarráðherra undirskriftir
250 nemenda í Hagaskóla.
að núna séu skólaferðalög bara far-
in ferðarinnar vegna og að kennarar
og aðrir verði miklu viljugri að fara
í ferðir sem hafi góðan tilgang.
Jón Heigason landbúnaðarráð-
herra sagði í samtali við Morgun-
blaðið að sér þætti jákvætt og
ánægjulegt að finna áhuga ungs
fólks á að græða og friða landið.
Ekki síst væri gleðilegt að það vijji
leggja fram vinnu í því skyni. Ráð-
herra sagði að að Skógrækt ríkisins
og Landgræðslan tækju sjálfsagt
fegins hendi starfskröftum þeirra
nemenda sem vildu leggja upp-
græðslu landsins lið.