Morgunblaðið - 19.11.1987, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987
Tjörniii og um-
hverfi hennar
eftir Margréti
Thoroddsen
Það olli mér miklum vonbrigðum,
þegar ég sá að allir Sjálfstæðismenn
sem einn í borgarstjóm Reykjavíkur
hefðu samþykkt að reisa ráðhús við
Tjömina, þessa perlu Reykjavíkur.
Hafa þeir enga tilfinningu fyrir feg-
urð fjamarinnar og hinni fögru
umgjörð hennar, með röð virðu-
legra, gamalla timburhúsa?
Ég veit ekki betur en flestir dái
Tjömina og umhverfi hennar. Út-
lendingar, sem hér hafa komið,
undrast að við skulum eiga slíkan
unaðsreit í miðri höfuðborginni.
Svo á að fara að troða nýtísku-
legri byggingu í suðvesturhomið,
þar sem ekkert pláss er, svo byggja
þarf út í Tjömina og þar með skerða
hana töluvert.
Hvað með lífríki Tjamarinnar,
ef byggja á þrefalda bílageymslu
neðanjarðar? Hvað með alla bílaum-
ferðina og blessuð börnin, sem
venja komur sínar niður að Tjörn á
Margrét Thoroddsen
góðviðrisdögum til að gefa fuglun-
um brauð?
Mér er það óskiljanlegt hvers-
vegna ráðhúsið þarf endilega að
vera í miðbæ Reykjavíkur — er
ekki hægt að finna því annan hent-
ugri stað? Teikningin af ráðhúsinu
sem slíku getur verið ágæt, en ég
álít að það myndi sóma sér betur
á opnu svæði, þar sem nóg land-
rými væri.
Eins og allir vita er fjöldi fólks
á einkabílum og svo ætti borgar-
stjóri ekki að vera í vandræðum
með að skipuleggja strætisvagna-
ferðir að ráðhúsinu, þó það væri
spölkom frá miðbænum.
Það er ósk mín og von, að borgar-
yfirvöld skoði hug sinn betur og
hætti við framkvæmdir á þessum
stað, svo við megum varðveita
þennan unaðsreit í hjarta borgar-
innar.
Höfundur er viðskiptafræðingvr.
Bók um Astu
grasalækni
ÖRN og priygur hafa gefið út
bókina Asta grasalæknir, lif
hennar og lækningar — og dul-
ræn reynsla, sem Atli Magnússon
blaðamaður skráði.
í kynningu útgefanda segir m.a.
„Ásta Erlingsdóttir hefur frá unga
aldri iðkað hin gömlu fræði
íslenskra grasalækna, sem geymst
hafa með ætt hennar í margar aldir.
En hví fær þessi lækningakunn-
átta lifað svo góðu lífi, nú á dögum
hátækni og vísindahyggju? Því
svara þrettán einstaklingar hér í
bókinni, fólk sem enginn þarf að
gmna um trú á _ einhver hindur-
vitni. Með hjálp Ástu grasalæknis
hafa sumir þeirra öðlast nýja lífstrú.
Einum hefur hún forðað frá örkuml-
um, öðmm hefur hún gefið þrótt
til þess að heyja erfitt stríð við sjúk-
dóma sem taldir vom ólæknandi —
og sigrast á þeim. Frásagnir þeirra
allra em á eina leið. Allur vafi er
þeim íjarri.
Dulargáfur hafa löngum fylgt
hennar fólki og hún rekur hér ýms-
ar frásagnir því til staðfestingar og
ræðir um eigin andlega reynslu."
Bókin um Ástu er filmusett hjá
Alprent, prentuð hjá Prentstofu G.
Benediktssonar en bundin í Amar-
felli.
Stöð 2:
Ríflega
27.000
myndlyklar
seldir
YFRI 3.000 myndlyklar seldust
þá 30 daga sem afmælistilboð
Stöðvar 2 stóð og var það mun
betri sala en búist var við að
sögn Jóns Gunnarssonar, sölu-
stjóra. Áskrifendur eru rúmlega
27.000 á landinu og verður
dreifikerfið væntanlega aukið til
muna í nóvember og desember.
„í afmælistilboðinu var boðin frí
áskrift og heimsendingaþjónusta og
virtist það ýta við mörgum," sagði
Jón. Hann sagði að tekist hefði að
útvega fleiri lykla hjá framleiðenda
en upphaflega stóð til og því ekki
verið hörgull á þeim.
í nóvember og desember verður
aukið við dreifikerfið og hefjast þá
útsendnigar á Stokkseyri, Eyrar-
bakka, Þorlákshöfn og Hveragerði
ásamt nágrannabyggðum. Enn-
fremur í Borgamesi, ísafirði,
Blönduósi, Sauðárkróki og Húsavík
auk sex staða á Austfjörðum, sem
Sjónvarpsfélag Austurlands sér um
dreifingu til. Sent er í gegnum
dreifikerfi Pósts- og síma.
íSfH &TDK
\cnn\ HRE|NN
WSIMWhuómur
Bang og Olufsen sýning
. > .■ v
alla þessa viku
Komdu og kynntu þér
Bang & Olufsen
hljómtækin,
hátalarana,
sjónvörpin og
myndbandstækin.
SKIPHOLTI
SIMI29800