Morgunblaðið - 19.11.1987, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987
Rubbermai
9
®
Plastvörur
til heimilisnota
Heildsölubirgðir
JÓHANN ÓLAFSSON & CO. HF.
43 SUNDABORQ - 104 REYKJAVtK - SiMI 688 S88
Villibráð
Okkar vinsæla viIlibráðakvöld verður
föstudags-, og laugardagskvöld í Blómasal
Hótels Loftleiða.
Villibráðahlaðborð:
Villibráðaseyði, hreindýrapaté, sjávarréttapaté,
grafinn silungur.
Heilsteiktur hreindýravöðvi, ofnsteikt villigæs,
pönnusteikt lundabringa, smjörsteikt rjúpu-
bringa, ofnsteikt önd, hreindýrapottréttur.
Heit eplakaka, tvær tegundir af krapís með
ferskum ávöxtum
og að sjálfsögðu okkar rómaði sérrétta
matseðill.
Borðapantanir í síma 22322 — 22321
HÓTEL LOFTLEIÐIR
fLUGLEIDA
HOTEL
Um móttöku og dreifingu
á erlendu sjónvarpsefni
eftir Júlíus Sólnes
Höfundur síðasta Reykjavíkur-
bréfs fjallar þar um frumvarp til
laga um breytingu á útvarpslögum,
sem ég ásamt Guðmundi Ágústs-
syni hef lagt fram í efri deild
Alþingis. Frumvarpið gerir ráð fyr-
ir, að heimilt verði að koma upp
strengkerfum, loftnetskerfum, þar
sem hægt verði að dreifa hvers
konar sjónvarps- og útvarpsefni við-
stöðulaust til notenda, án þess að
um útvarpsrekstur sé að ræða, enda
fari engin dagskrárgerð fram á
vegum loftnetsfélags.
Höfundur Reykjavíkurbréfsins
fer allmörgum orðum um afleiðing-
ar þessarar breytingartillögu og
fjallar aðallega um þýðingarskyld-
una, þ.e. textun eða endursögn
þular á erlendu sjónvarpsefni yfír á
íslenzku, sem öllum íslenzkum út-
varpsstöðvum er skylt að viðhafa.
Er vitnað í ummæli þingmannanna
Halldórs Blöndal og Danfríðar
Skarphéðinsdóttur, sem fundu
frumvarpinu allt til foráttu af þess-
um orsökum. Danfríður misskildi
þó einnig megininntak frumvarps-
ins og taldi, að hér væri verið að
auka við frjálsan útvarpsrekstur.
Tjáði hún, að Kvennalistinn væri á
móti ftjálsum útvarpsrekstri og vildi
því ekki stuðla að þeirri aukningu,
sem frumvarpið fæli í sér.
Eftir nokkuð málefnalegar hug-
leiðingar um frumvarpið í
Reykjavíkurbréfínu missir höfundur
þess stjóm á sér undir lokin og
hefur upp mikið moldviðri og
skítkast í garð flutningsmanna.
Telur hann, að þeir séu andmenn-
ingarlegir og vilji græða á hemum
á Keflavíkurflugvelli, en það sé í
stefnuskrá Borgaraflokksins! Spurt
en hver græðir mest á verktaka-
starfsemi á Keflavíkurflugvelli og
hvað á slfkt skylt við dreifíngu á
sjónvarpsefni? Hveijir hafa nýverið
lagt til að lagður verði „aronskur"
skattur, 50 millj. kr., á verktaka-
starfsemi á Keflavíkurflugvelli?
Til að kynna lesendum Morgun-
blaðsins hvað vakir fyrir flutnings-
mönnum frumvarpsins, eru helztu
atriði greinargerðarinnar með því
rakin hér á eftir og enn fremur fjall-
að frekar um þýðingarskylduna.
Þótt undarlegt megi teljast, hafa
nýju útvarpslögin orðið til þess að
teíja tækniþróun á sviði fjarskipta-
tækni, sem byggir á lagningu
strengkerfa til þess að miðla boðum
og upplýsingum til notenda. Þessi
þróun hefur verið mjög ör í nálæg-
um löndum.
5. og 6. grein útvarpslaganna frá
1985 hafa verið túlkaðar á þann
hátt, að þær banni lagningu loft-
netskerfa til móttöku og dreifíngu
á erlendu sjónvarpsefni, nema út-
varpsstöð, að fengnu leyfi til
útvarpsrekstrar, sjái um kerfíð. Þar
með er komin skylda til þess að
þýða eða texta allt erlent sjón-
varpsefni, sem að sjálfsögðu er ekki
hægt í viðstöðulausri útsendingu.
Með þessu er komið í veg fyrir eðli-
lega framþróun á sviði upplýsinga-
tækni á íslandi. Aðangur að auknu
og fjölbreyttara sjónvarpsefni er
það, sem ryður brautina fyrir upp-
lýsingatæknina.
Það hlýtur að vera óeðlilegt, að
nýju útvarpslögin þrengi möguleika
á móttöku útvarpsefnis frá því, sem
áður var. Fyrir 1985 hefði engum
dottið í hug að amast við lagningu
strengkerfa til að ná sendingum
erlendra sjónvarpsstöðva. Þess
vegna er spurt, hvað er ftjálst út-
varp? Þá er ekki úr vegi að geta
þess, að með lagningu loftnetskerfa
er verið að tryggja notendum betri
móttökuskilyrði fyrir íslenzku sjón-
varpsrásimar. I margra rása
strengkerfí myndu íslenzku rásim-
ar verða það fyrsta, sem dreift yrði.
Ekki er nú vanþörf á, því víða eru
móttökuskilyrði fyrir sjónvarp mjög
slæm. Jafnvel á höfuðborgarsvæð-
inu eru víða dökkir blettir, þar sem
geislar íslenzku stöðvanna eru veik-
ir, svo ekki sé talað um mjög slæm
móttökuskilyrði víða á landsbyggð-
inni.
Um strengkerfi
Samásastrengkerfí (coaxial)
hafa verið í notkun lengi, einkum
sem sameiginleg loftnetskerfí til
dreifíngar á útvarpsefni í fjölbýlis-
húsum eða í íbúðahverfum. Þótt
þessi kerfí séu mörg fremur ófull-
komin, hefur nýtt og betra lagna-
efni til slíkra kerfa gert það kleift
að víkka notkunarsvið þeirra.
Breiðbandskerfí er strengkerfí,
sem hefur þann eiginleika að geta
flutt mikið magn upplýsinga
samtímis á breiðu tíðnisviði fram
og til baka. Breiðbandskerfín opna
leiðir til nýrra fjarskipta, þar sem
hægt er að senda tölvuboð og alls-
kyns starfrænar upplýsingar fram
og til baka ásamt símtölum, hljóð-
varps- og sjónvarpsmerkjum frá
einum stað til annars. Eiga þau
eftir að valda byltingu í öllum
mannlegum samskiptum í okkar tíð.
Ljósleiðarar hafa gert það kleift
að senda mikið magn upplýsinga
eftir einum streng, en þar er átt
við síma, hljóðvarps- og sjónvarps-
merki og tölvuborð. Á næstu árum
er talið líklegt, að þróun verði í átt
að samruna síma- og strengkerfa
til flutnings á sjónvarps- og tölvu-
boðum ásamt símtölum. Póst- og
símamálastofnun vinnur nú að því
að tengja allar símstöðvar landsins
með ljósleiðarastrengjum.
Sjónvarpsdreifikerfi
Ef horft er til nágrannalandanna
er lagning slíkra strengkerfa hafín
af miklum krafti. Það er litið svo
•••••••
• •
MALNINGARVORUR
^ Við eigum ekki bara málningu heldur einnig
allt sem þú þarft til að koma henni á vegg,
loft og gólf. Sannkallaður litapakki hjá BB.
Júlíus Sólnes
„Eftir nokkuð málefna-
íegar hugleiðingar um
frumvarpið í Reykja-
víkurbréfinu missir
höfundur þess stjórn á
sér undir lokin og hefur
upp mikið moldviðri og
skítkast í garð flutn-
ingsmanna. Telur hann,
að þeir séu andmenn-
ingarlegir og vilji
græða á hernum á
Keflavíkurfiugvelli, en
það sé í stefnuskrá
Borgaraflokksins!
Spurt er: hver græðir
mest á verktakastarf-
semi á Kef lavíkurf lug-
velli og hvað á slíkt
skylt við dreif ingu á
sjónvarpsefni.“
BYGGINGAVOKOR HE
Suðurlandsbraut 4, Sími 33331 og Nethyl 2, Áitúnsholti, Sími 687447
••••••**«
á, að dreifing á erlendum og inn-
lendum sjónvarpsrásum sé undan-
fari upplýsinga- og boðveitukerfa.
Danska þjóðþingið samþykkti
árið 1985 lög um breiðbandskerfi
(hybrid net). Fyrsta verkefnið, sem
á að leysa með danska breiðband-
skerfínu, er einmitt að taka á móti
erlendum sjónvarpsdagskrám og
dreifa þeim um landið til notenda.
í lögunum er kveðið á um verka-
skiptingu milli dönsku póst- og
símamálastofnunarinnar, einstakra
sjálfstæðra símafélaga og loftnets-
félaga, sem hingað til hafa annazt
móttöku og dreifíngu á erlendu
sjónvarpsefni til notenda.
Það er athyglisvert, að dönsku
loftnetsfélögin hafa starfað um ára-
bil við að taka á móti þýzku
sjónvarpssendingunum og dreifa
þeim til notenda. í heilum bæjum
í Danmörku eru nær allar íbúðir,
jafnvel tugþúsundir, tengdar við
slík loftnetskerfi, sem í raun eru
ekki annað en ófullkomin streng-
kerfí. Þótt gert sé ráð fyrir að þessi
strengkerfí renni saman við breið-
bandsnetið, hafa loftnetsfélögin
þegar fengið heimild til þess að
dreifa erlendum sjónvarpssending-
um frá gervitunglum, enda hefur
aldrei verið litið á slík kerfí sem
útvarpsrekstur.
I Svíþjóð eru þessi mál öll lausari
í reipunum. Þar hefur Televerket