Morgunblaðið - 19.11.1987, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987
Rógburður og sérréttindabarátta
Blaðinu hefur borist eftirfarandi
frá stjóm Byggingafræðingafélags
íslands:
Að gefnu tilefni verður ekki leng-
ur orða bundist yfir þeim dylgjum
og rangfærslum í garð bygginga-
fræðinga er birst hafa í fjölmiðlum
að undanfomu frá arkitektum sem
telja sig þess umkomna að geta
sagt löggjafanum og dómstólum
landsins fyrir verkum.
Byggingafræðingar og
réttur þeirra til aðal-
uppdráttagerðar
Allt frá því að farið var að setja
lög um byggingamál hérlendis, hef-
ur engin ein stétt manna haft
einokun á rétti til aðaluppdrátta-
gerðar, þ.e.a.s. svonefndra bygg-
inganefndateikninga. Aftur á móti
var með lögum sem sett vom árið
1978 takmarkaður mjög réttur
manna til að árita og leggja slíka
uppdrætti fyrir bygginganefndir.
Sá réttur takmarkaðist við bygg-
ingafræðinga, byggingatæknifræð-
inga, verkfræðinga og arkitekta.
Eigi að síður hafa arkitektar alla
tíð reynt, bæði lejmt og ljóst, að
ná einokun á þessu sviði og notað
til þess vafasamar aðferðir. Liður
í baráttu þeirra var að höfða mál
gegn þremur byggingafræðingum
og félagsmálaráðherra, þar sem
þeir drógu óréttmæta sérréttinda-
baráttu sína fyrir dómstóla. Eins
og vænta mátti hafnaði hæstiréttur
þeirri málaleitan, og sætir það
reyndar furðu að þeir skyldu eyða
fé sínu og fyrirhöfn í jafn vonlausa
baráttu.
Byggingafræði
Nám í byggingafræði og arki-
tektúr eru mjög áþekk og er þar
einungis stigs munur á en ekki eðl-
ismunur. Ekki stoðar að bera saman
lengd náms, nema að virkur
námstími sé tekinn inn í myndina.
Sé þetta gert kemur í ljós að lengd
byggingafræðináms er mjög áþekk
námslengd annarra löggiltra hönn-
uða.
„Ef arkitektar væru
svo miklu hæfari en
by ggingafræðingar og
aðrir löggiltir hönnuðir
til starfans, þyrftu þeir
ekki á neinum sérrétt-
indum að halda, þeir
væru einfaldlega eftir-
sóttari.“
Leiðrétta ber þær rangfærslur
sem haldið hefur verið á lofti, að
eitt af þeim skilyrðum sem sett séu
fyrir inngöngu í arkitektaskóla sé
að viðkomandi hafí byggingafræði-
menntun. Staðreyndin er hins vegar
sú að til þess að komast að við slíka
skóla þurfa menn t.d. að hafa lokið
fyrri hluta byggingafræðináms, og
kallast það starfsheiti iðnfræðingur.
Mætti í framhaldi af því benda
þessu ágæta fólki á að kynna sér
staðreyndir málsins betur áður en
gerð eru upphiaup í fjölmiðlum með
rangtúlkunum og óbilgjömum árás-
um á ráðamenn og dómstóla
landsins.
Annars leiðir það af sjálfu sér
að allt tal um hæfni og menntun
fellur um sjálft sig, því á endanum
era það verkin sem tala skýrastu
máli en ekki stimpillinn sem við-
komandi hefur á rassinum.
Kjarni málsins
Málið snýst ekki um lengd náms
eða gæði þess, það snýst í raun og
vera um að hafa til hnífs og skeiðar.
Á undanfömum áram hafa út-
skrifast það margir arkitektar að
þeim hefur reynst erfitt að fá vinnu
við sitt hæfi. Til þess að ráða bót
á þessu hafa þeir reynt með öllum
tiltækum ráðum að ná einokun á
gerð aðaluppdrátta eins og að fram-
an greinir.
Ef arkitektar væra svo miklu
hæfari en byggingafræðingar og
aðrir löggiltir hönnuðir til starfans,
þyrftu þeir ekki á neinum sérrétt-
indum að halda, þeir væra einfald-
lega eftirsóttari. Það er ekki fyrr
en menn era famir að óttast um
hæfni sína, að ástæða er fyrir þá
að krefjast sérréttinda.
Sérréttindabarátta og rógburður
af þessu tagi samræmist ekki
nútíma hugsunarhætti. Nær væri
að efla samstarf löggiltra hönnuða
og stuðla þannig að bættri hönnun
mannvirkja.
Stjórn Byggíngafræðinga-
félags íslands.
Ingi Gunnar Þórðarson
formaður.
Rauðir
fletir í
Tónabæ
HLJÓMSVEITIN Rauðir fletir
heldur tónleika í Félagsmiðstöð-
inni Tónabæ í kvöld, fimmtudag-
inn 19. nóvember.
Hljómsveitin leikur lög af nýút-
kominni hljómplötu sinni „í góðum
draumi". Húsið opnar kl. 20.00.
||||l | |
Burkni í hvítri Keraruik-
pottahlíf-Kr. 295,-
Takmarkaðar birgðir.
AÖventu
skœyt-
ingarnar
Aðventan hefst
29. nóvember. Gerð
aðventuskreytingaergóður
siður á mörgum heimilum
við upphaf
jólaundirbúningsins.
kl.14-18.
m&st
___ Jölastjarnan
TTT IUMMMÍÍ HanerómissandiiÞessumá.s.ima.
____Bjóm um
interBofXi viða verold
y
Gróöurhúsinu við Sigtún, simi
Ótrúlega mikið úrval. Þú velur ur
fleiri hundruðum plantna.
Blómstmndi
Alpatós
Jólaœænt-Cypris
Kertamarkaöur
Kerti í þúsundataji, - hvergi meira urva.
jólin byrja í Blómavali .
FaglegÞel<l<in9-fa9le9ÞiónUSta]
u
______________g
68 90 70. Kringiunni, sími 68 97 70.