Morgunblaðið - 19.11.1987, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987
41
Drög að þjóðhagsspá VSÍ fyrir árið 1988:
2% rýmun viðskiptakjara
Vinnuveitendasamband ís-
lands hefur látíð frá sér fara
drög að þóðhagsspá fyrir árið
1988 og var hún kynnt fjölmiðl-
um á blaðamannafundi í gœr.
Hún fer hér á eftír i heild.
Á síðustu vikum hafa komið fram
nýjar aðstæður og viðhorf í efna-
hagsmálum hér á landi. Af þessum
sökum var það mat Vinnuveitenda-
sambands Islands að nauðsynlegt
væri að endurmeta horfur um fram-
vindu mikilvægustu þátta efna-
hagsstarfseminnar svo gleggri
mynd fengist af horfunum fyrir
komandi ár.
Ólafur Davíðsson hagfræðingur
hefur haft forystu um gerð þeirrar
álitsgerðar, sem hér fer á eftir en
hún var lögð fram og rædd ítarlega
á fundi framkvæmdastjómar VSÍ
síðdegis á þriðjudag.
Útflutningfsfram-
leiðsla
Ákvarðanir um hámarksafla ein-
stakra fisktegunda á árinu 1988
liggja enn ekki fyrir. Hafrann-
sóknastofnun hefur lagt til að
þorskafli á næsta ári verði 300
þús. tonn og aðilar í sjávarútvegi
virðast sammáia um að nauðsynlegt
verði að draga úr þorskafla á næsta
ári. Hér verður miðað við 345 þús.
tonna þorskafla samanborið við
áætlaðan 390 þús. tonna afla á
þessu ári. Reiknað er með nokkurri
aukningu á ýsu- og karfaafla en
óbreyttum afla af öðrum tegundum,
þó heldur minni loðnuafla. Samtals
felur þetta í sér um 6% samdrátt
sjávarafurðaframleiðslu en í þjóð-
hagsáætlun fyrir árið 1988 var
miðað við óbreytta framleiðslu frá
þessu ári. Að öðru leyti eru forsend-
ur um útflutningsframleiðslu þær
sömu og í þjóðhagsáætlun.
Niðurstaðan er sú að vöruút-
flutningur dragist saman um
rúmlega 4% en í þjóðhagsáætlun
var gert ráð fyrir V2% aukningu.
Viðskiptakjör
í þjóðhagsáætlun var miðað við
óbreytt viðskiptakjör á næsta ári.
Lækkun á gengi dollars gagnvart
Evrópumyndum að undanfömu.
hefur þegar rýrt viðskiptakjör
þjóðarinnar. Að mati sölusamtaka
fiskvinnslunnar er ekki unnt að
búast við hækkun afurðaverðs á
Bandaríkjamarkaði og reyndar
talið gott ef núverandi verð hald-
ast. Hins vegar gæti náðst einhver
hækkun í Rússlandi. Verð í Bret-
landi gæti hækkað á næstunni en
sú hækkun verður tímabundin og
verð mun aftur lækka. Verð á áli
hefur nú lækkað eftir mikla hækk-
un á árinu.
Miðað við núverandi gengi doll-
ars gætu viðskiptakjör orðið um
2—3% lakari á næsta ári en á
þessu ári. Hér verður engu spáð
um framvindu gengis á alþjóða-
markaði en miðað við 2% rýmun
viðskiptakjara á árinu 1988.
Þjóðarútgjöld
Einkaneysla er veigamesti
þáttur þjóðarútgjalda og ræðst
hún fyrst og fremst af þróun
kaupmáttar. Tiltækar vísbending-
ar um tekjubreytingar á þessu ári
gefa til kynna að kaupmáttur
tekna um næstu áramót verði ívið
minni eða svipaður og að meðal-
tali á árinu 1987. Hér er þó
töluverð óvissa. Kaupmáttur tax-
takaups verður þó mun minni
enda eru nú horfur á að vísitala
framfærslukostnaðar hækki um
10% frá 1. september (rauða strik-
ið í samningunum) til áramóta.
Hér verður miðað við áðumefnt
kaupmáttarstig tekna um áramót
og gert ráð fyrir 1% aukningu
einkaneyslu á næsta ári, þ.e. í
hátt við fólksfjölgun. Hér togast
þó margt á.
í kjarasamningum verður sótt
á um að bæta kaupmáttarrýmum
taxtakaupsins á síðustu mánuðum
ársins auk „leiðréttinga fyrir þá
sem ekki hafa notið launaskriðs".
Náist þetta fram verður kaup-
máttur á næsta ári — að öðru
óbreyttu — meiri en hér er reikn-
að með. Á móti þessu kemur að
verðbólga færi þá ört vaxandi,
sem óhjákvæmilega rýrir kaup-
mátt, auk þess sem samdráttur
útflutningstekna hlýtur að leiða
til þess að kaupmáttur tekna
minnkar þegar fram í sækir. Ytri
aðstæður gefa þannig til kynna
að kaupmáttur muni minnka.
Jafnyel þótt svo verði, er ekki víst
að það komi strax fram í minnk-
andi einkaneyslu.
Forsendur um samneyslu eru
hér þær sömu og í þjóðhagsáætl-
un, þ.e. 2% aukning. Svipað gildir
einnig um fjármunamyndun. í
þjóðhagsáætlun er gert ráð fyrir
að íjárfesting atvinnuveganna
aukist um rúmlega 1%, íbúða-
byggingar aukist um 7% og
opinberar framkvæmdir dragist
saman um 2%. Samtals þýðir
þetta 1,5% aukningu fjárfesting-
ar. Að svo stöddu er ekki ástæða
til að breyta þessari spá í meginat-
riðum en hér verður þó miðað við
heldur meiri aukningu eða 2,5%,
þ.e. að aukning fjárfestingar
hjaðni heldur hægar en gert var
ráð fyrir í þjóðhagsáætlun.
Niðurstaðan er sú að þjóðarút-
gjöld vaxi um 1,5% á næsta ári.
Utanríkisviðskipti
Eins og áður sagði er hér reikn-
að með að vöruútflutningur
dragist saman um rúmlega 4% á
næsta ári.
Miðað við 1,5% aukningu þjóð-
arútgjalda og verðlags- og
gengisforsendur þjóðhagsáætlun-
ar (18% verðbólgu milli áranna
1987 og 1988 og fast gengi) eykst
vöruinnflutningur um a.m.k. 5%.
Þetta, ásamt 2% versnun við-
skiptakjara, felur í sér að vöru-
skiptin snúast úr 1400 milljóna
króna afgangi á árinu 1987 í nær
4700 milljóna króna halla á árinu
1988. Reyndar eru nú líkur á að
vöruskiptajöfnuðurinn á árinu
1987 verði óhagstæðari en áður
var áætlað og hallinn á næsta ári
yrði þá enn meiri en hér er sýnt.
Afgangur á þjónustuviðskipt-
um, án vaxta, er áætlaður 2000
milljónir króna á þessu ári en
hann minnkar á næsta ári þar sem
útgjöld vaxa meira en tekjur þeg-
ar genginu er haldið föstu. Gæti
afgangurinn orðið um 1500 millj-
ónir króna á næsta ári.
Vaxtagreiðslur til útlanda
(nettó) nema um 5800 milljónum
króna á þessu ári og í þjóðhagsá-
ætlun er reiknað með 6300 millj-
ónum króna á næsta ári. Þessi
fjárhæð gæti orðið eitthvað lægri
vegna lækkunar á gengi dollars
og lækkunar vaxta, e.t.v. um 6000
milljónir króna.
Samkvæmt þessu yrði við-
skiptahallinn á næsta ári 9,2
milljarðar króna en í þjóðhagsá-
ætlun var gert ráð fyrir 4,4
milljarða króna halla. Hallinn yrði
þá nær 4% af landsframleiðslu
samanborið við 1,2% á þessu ári
(verður þó líklega meiri). Þetta
er svipaður halli og var að meðal-
tali árin 1981 til 1986, þegar
erlendar skuldir þjóðarbúsins fóru
ört vaxandi.
Landsframleiðsla,
þjóðartekjur
Niðurstaða framangreindra
forsenda er sú að landsframleiðsla
dragist saman um rúmlega 1% á
næsta ári og þjóðartekjur um nær
2% vegna versnandi viðskiptakj-
ara.
Niðurlag
Þau drög að þjóðhagsspá fyrir
árið 1988, sem hér eru sett fram,
eru reist á þremur meginforsend-
um:
1. Þorskafli verði 345 þúsund
tonn.
2. Viðskiptakjör versni um 2%.
3. Kaupmáttur tekna verði svip-
aður á árinu 1988 og við lok
ársins 1987. Kaupmáttur tax-
takaups verði mun minni.
Allar eru þessar forsendur afar
óvissar enda liggja hvorki fyrir
ákvarðanir um afla né líkiegar
niðurstöður kjarasamninga.
Þó er ljóst að efnahagsforsend-
ur eru nú um margt aðrar en
miðað var við í þjóðhagsáætlun
og við mótun efnahagsstefnu
ríkisstjómarinnar fyrir næsta ár.
Einnig má nefna að almennt er
nú gert ráð fyrir minni hagvexti
í heiminum á næsta ári en áður
var spáð, vegna verðhruns á
hlutabréfum.
Mestu máli skiptir að nú stefnir
í langtum meiri halla á utanríki-
sviðskiptum þjóðarinnar en áður
var reiknað með. Stjómvöid hljóta
því að þurfa að endurmeta efna-
hagsstefnuna í ljósi breyttra
viðhorfa. Þessar breyttu forsend-
ur hljóta einnig að liggja til
grundvallar kjarasamningum fyr-
ir næsta ár.
Hér að framan hafa verið sett
fram drög að þjóðhagsspá fyrir
árið 1988 miðað við tilteknar for-
sendur. Hér hefur eingöngu verið
Qallað um útflutningsframleiðslu,
viðskiptakjör, þjóðarútgjöld, við-
skiptajöfnuð, landsframleiðslu og
þjóðartekjur. Hér er ekki ijallað
um verðbólgu og afkomu atvinnu-
vega enda verður að ijalla um
slíkt í tengslum við aðra þætti,
svo sem efnahagsstefnu ríkis-
stjómarinnar, sem til athugunar
verða á næstunni.
Olafur Davíðsson:
Endurmeta
þarf efnahags-
stefnuna
„Það sem við erum að gera er
að ganga út frá þremur forsend-
um; aflanum, viðskiptakjörunum
og kaupmættinum. Á þessum
þremur forsendum setjum við
upp þetta þjóðhagsdæmi. Auðvit-
að eru þessar forsendur óvissar.
Um sumt hefur ákvörður ekki
verið tekin, eins og um aflann,
en við teljum hins vegar að það
sé augljóst að efnahagsforsend-
ur í dag séu það breyttar frá því
sem iagt var til grundvallar þeg-
ar rikisstjórnin mótaði efnahags-
stefnu sína að það hljótí að kalla
á það að ríkisstjórnin meti stöð-
una upp á nýtt,“ sagði Ólafur
Daviðsson, framkvæmdastjóri
Félags íslenskra iðnrekenda.
Hann sagði að vinnuveitendur
teldu nauðsynlegt að þetta kæmi
fram meðal annars vegna þeirra
samningaviðræðna sem væru í
gangi. Þeir teldu nauðsynlegt að
gera grein fyrir þessum breyttum
aðstæðum, en þeir væru ekki að
setja fram verðbólguspá, enda væri
það ógemingur nema í samhengi
við mat á stöðu atvinnuvega og
efnahagsstefnu og hugsanlegar
efnahagsaðgerðir stómvalda.
Ólafur sagði það nauðsynlegt að
ríkisstjómin tæki til endurmats
flárlagafrumvarpið, láns^áráætlun
og aðrar aðgerðir í efnahagsmálum,
sem þegar hefðu verið teknar eða
boðaðar og hvort þær væra nægi-
legar í ljósi þessara breyttu for-
sendna til þess að ríkisstjómin
næði þeim markmiðum sem hún
hefði sett sér. Þrátt fyrir hallalaus
fjárlög væri niðurstaðan í þjóð-
hagsáætlun sú að viðskiptahallinn
yrði 4,4 milljarðar. Nú stefndi í
yfír níu milljarða halla og það væri
greinilegt að hallalaus fjárlög væra
ekki lengur nóg og það þyrfti veru-
legan afgang til þess að vinna gegn
þessum halla og sá afgangur þyrfti
að fást vegna útgjaldalækkunar.
„Það fer eftir því hvem veg geng-
isfelling næði fram að ganga,"
sagði Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSÍ, aðspurður
um hveiju gengisfelling myndi
breyta. „Ef gengisfelling gengi í
gegnum allt efnahagskerfið þá
stæðum við eftir í óbreyttri stöðu.
Spumingin um gengi í þessu dæmi
hlýtur að fela í sér mat á því hvort
hægt sé að breyta raungenginu
þannig að það skrúfí ekki upp allt
verðlag um leið,“ sagði Þórarinn.
Ólafur ísleifsson:
Erfitt ef
ekki ógerlegt
að viðhalda
kaupmætti
„Niðurstöður þessarar álits-
gerðar koma mér ekki á óvart.
Frá því að þjóðhagsáætlun var
lögð fram hafa ytri skilyrði þjóð-
arbúsins verið að breytast til hins
verra. Það er sýnt að það þarf
að draga úr sókn í mikilvæga
fiskstofna. Fiskverð fer ekki
lengur hækkandi á erlendum
markaði og fall dollarans rýrir
viðskiptakjör og skapar útflutn-
ingsgreinum sérstakan vanda,“
sagði Ólafur ísleifsson, efna-
hagsráðunautur rikisstjórnar-
innar, er Morgunblaðið innti
hann álits á þjóðhagsspá VSÍ.
„Þessar breytingar fela það í sér
að mjög erfitt ef ekki ógerlegt er
að ná því markmiði, sem ríkisstjóm-
in hafði sett sér, að viðhalda
kaupmætti ársins 1987 á árinu
1988. Samtök á vinnumarkaði
hljóta að taka mið af þessum
breyttu ytri skilyrðum. Ríkisstjómin
þarf fyrir sitt leyti að fylgja fast
fram aðhaldsaðgerðum þeim sem
hún hefur ákveðið. Hæst ber að
hvika hvergi frá því markmiði að
ríkisbúskapurinn verði rekinn án
halla á næsta ári og að útlánaþróun
í bankakerfínu verði innan skap-
legra marka," sagði Ólafur.
„Fastgengisstefnan ásamt að-
haldi í rfkisfjármálum og peninga-
málum er nú sem fyrr forsenda
þess að verðbólga hjaðni. Fastgeng-
isstefnan hlýtur á hveijum tíma að
vera metin í ljósi þeirra ytri skilyrða
sem þjóðarbúinu era sett. Henni er
fyrst og fremst ætlað að setja at-
vinnulífinu umgjörð og skapa
aðhald að kostnaðarþróun, en það
hlýtur að vera forgangsverkefni að
ná verðbólgunni niður," sagði Ólaf-
ur.
Þröstur Ólafsson:
Óraunhæft að
ganga út frá
núverandi
dollaragengi
„Þetta er ekki I fyrsta skiptí
sem við fáum að sjá svona plagg.
Við höfum fengið nýjar spár á
hvetju hausti þegar við höfum
ætiað að fara að semja, sem hafa
átt að gefa til kynna að árferði
og framtíðarhorfur væru allar
miklu dekkri heldur en talað
hefur verið um. Þetta kemur
okkur þvi ekki á óvart,“ sagði
Þröstur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Dagsbrúnar, aðspurður um
þjóðhagsspá VSÍ.
Hann sagði að út af fyrir sig
væri rétt að talað væri um sam-
drátt í þorskafla, enda væri það
almennt mat að þar væri ofveiði
nú.
í öðra lagi væri gengið út frá þvi
í spánni að dollaragengi væri 36,85
krónur, sem væri lægsta gengi doll-
ars til þessa. „Ég er alveg sann-
færður um það að útflutningur til
Ameríku þolir ekki þetta gengi,
jafnvel þó laun breyttust tiltölulega
lítið. Það er því óraunhæft að gera
ráð fyrir þessu gengi á næsta ári,
jafnvel þó það sé þetta á því augna-
bliki sem spáin er gerð," sagði
Þröstur.
Hann sagði að þá væri ekki tek-
ið nægilegt tillit til þess í spánni
að útflutningsviðskiptin hefðu flust
í auknum mæli til Evrópu í kjölfar
lækkunar dollars á þessu ári.
Hann sagðist telja að alllangt væri
í það að gengi dollars næði jafn-
vægi. Þjóðvetjar spá enn meiri
lækkun, en Bandaríkjamenn telja
að komið sé nóg og að hann eigi
eftir hækka. „Ef dollarinn á eftir
að lækka meira, þá þýðir það geng-
isfellingu," sagði Þröstur.
Hann benti ennfremur á að í
spánni væri ekki gert ráð fyrir
neinni framleiðniaukningu í frysti-
iðnaðinum á næsta ári. „Við höfum
hamrað á að það þurfi að breyta
þessum iðnaði, sem er á ýmsan
hátt staðnaður. Ef hann ætlar að
vera gjaldgengur og geta keppt um
hráefni og vinnuafl, þá verður hann
að sýna mun meiri framleiðniaukn-
ingu en hann hefur gert og taka
stór stökk í þeim efnum. Vinnuveit-
endur virðast gera ráð fyrir að í
þessum efnum verði engu hnikað
til á næsta ári og þá jafnvel ekki
fyrr en einhvem tíma í blámóðu
tfmans," sagði Þröstur Ólafsson.
Þórður Fríðjónsson:
Ekkí búið að
taka ákvörðun
um hámarksafla
„Það er ekki búið að taka
ákvörðun nm hámarksafla. Það
verður gert fljótlega og það er
auðvitað alveg (jóst að ef ákveð-
inn verður minni hámarksafli,
en gert var ráð fyrir í þjóð-
hagsáætiun og ýmis rök mæla
með, þá þýðir það lakari við-
skiptajöfnuð. Það kallar á
viðbrögð af hálfu stjórnvalda,“
sagði Þórður Friðjónsson, for-
stjóri Þjóðhagsstofnunar að-
spurður um þjóðhagsspá VSÍ.
Hann sagði að munurinn á þjóð-
hagsáætlun og þóðhagsspá VSÍ
væri einkum sá að miðað væri við
minni afla. Annað væri í stórum
dráttum svipað, en miðað væri við
heldur lakari viðskiptakjör og held-
ur meiri einkaneyslu og kaupmátt.’
Niðurstaðan yrði því að viðskipta-
kjörin yrðu lakari.
Þórður sagði að þjóðhagsáætlun
yrði endurskoðuð innan tíðar, en
það væri ekki tímabært fyrr en
meira væri vitað um þróun gengis
dollars á gjaldeyrismörkuðum og
fyrirliggandi væri ákvörðun um
hámarksafla. Fyrr væri ekki grand-
völlur til endurskoðunar þjóðhagsá-
ætlunar.
„Þeir atburðir sem gerst hafa að
undanfömu á alþjóðavettvangi hafa
gert viðskiptakjörin lakari en reikn-
að var með. Ef dregið verður
veralega úr afla þá verður sam-
dráttur í landsframleiðslu og
þjóðartekjum á næsta ári. Þjóð-
hagshorfur verða þá mun lakari en
lágu til grundvallar þjóðhagsáætl-
un, fjárlagaframvarpi og mótun
efnahagsstefnu í haust fyrir næsta
ár,“ sagði Þórður ennfremur.