Morgunblaðið - 19.11.1987, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987
47
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
/ gömlum „viskubrunni“ segir:
Einn plægir, annar sáir,
en hvorugur veit hvör hlýtur.
— sígilt sannmæli —
Þannig er lífið og hefur verið frá
upphafi vega. Því er okkur skylt,
sem og forfeðrum okkar, að búa vel
í haginn fyrir næstu kynslóð. Við
gerum það m.a. með því að sjá til
þess að böm okkar nærist vel, svo
þau nái eðlilegum þroska.
í meðfylgjandi rétti er ágæt nær-
ing:
Hawaii-kjúklingnr
með ananasgrjónum
1 kjúklingur,
3 matsk. hveiti,
1 tsk. salt,
3 matsk. matarolía,
1 bolli spændur (crushed) ananas,
1 bolli barbecue-sósa,
'/2 tsk. engifer,
1 matsk. kartöflumjöl.
1. Kjúkljngurinn er skolaður vel
og þerraður og hlutaður í 8 hluta.
Hveitið ásamt salti er blandað í
plastpoka og em kjúklingastykkin
hrist með hveitinu og þau hveitihjúp-
uð.
2. Matarolían er hituð á pönnu
og eru kjúklingastykkin brúnuð í
feitinni á öllum hliðum. Síðan er
mestu af feitinni hellt af pönnunni
og er 1 bolli barbecue-sósa og 1
bolli (ca. 250 g) ananasspænir ásamt
engifer sett með kjúklingnum á
pönnuna. Lok er sett yfir. Kjúkling-
urinn soðinn í sósunni í 40 mínútur.
3. Ef þessi sætsúra sósa þykir
of þunn þá er kartöflumjöl hrært
út með örlitlu vatni og sósan jöfnuð.
Salti er bætt við ef þurfa þykir.
Ef barbecue-sósan er ekki til stað-
ar þá fylgir hér uppskrift:
1 lítil dós tómatkraftur,
3/4 bolli vatn,
1 sítróna, safínn,
20 g smjörlíki,
1 lítill laukur saxaður,
V2 tsk. paprika,
1 matsks. Worcesterhire-sósa,
1 tsk. sykur,
salt.
Þessu er öllu blandað saman í
pott og hitað að suðu.
Ananasgijón eiga mjög vel við
þennan sæt-súra kjúkling.
1 laukur saxaður,
25 g smjörlíki,
U/4 bolli gijón,
2V2 bolli vatn,
V2 tsk. salt,
V2 tsk. karrý,
V2 t§k. oregano,
1 bolli spændur ananas.
1. Smjörlíkið er hitað á pönnu og
er saxaður laukurinn látinn mýkjast
upp í heitri feitinni, Gijónunum er
bætt út í og þau steikt með þar til
þau eru orðin hvít að lit.
2. Vatn, salt, karrý, oregano og
ananas er sett með gijónunum, lok
látið á pottinn og gijónin soðin í 15
mínútur.
Ath. 432 g dós af ananas nægir
bæði í kjúklingaréttinn og gijóna-
réttinn.
Verð á hráefni er hagstætt
þessa dagana:
1 kgkjúklingur kr. 299,00
1 dós ananas . kr. 77,90
kr. 376,90
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Indversku tónlistarmennimir Sankar Prasad Chowdhury sem leikur
á tabla, Debi Prasad Chatteijee sítarleikari, og Probir Bharacharya
sem leikur á tampura. Á myndina vantar Deba Prasad Banerjee
flautuleikara.
Tónleikar í þágu
heimsfriðar
FJÓRIR indverskir tónlistar-
menn, þeir Debi Prasad Chatt-
eijee, Deba Prasad Baneijee,
Sankar Prasad Chowdhury og
Probir Bharacharya, héldu tón-
leika i þágu heimsfriðar á
Kjarvalsstöðum laugardaginn
14. nóvember síðastliðinn. Þeir
fluttu svonefnda Gandharva tón-
list en Gandharva Veda er sá
þáttur hinna forau vedísku
fræða sem fjallar um tónlist,
hljóð og lirynjandi.
Maharishi Mahesh Yogi, sem er
upphafsmaður svokallaðrar inn-
hverfrar íhugunar, hefur nefnt árið
1987 „ár heimsfriðar" og að hans
tilstuðlan verða 300 Gandharva
tónleikar haldnir í þessum mánuði
í öllum heimsálfum. Eftir honum
er haft að Gandharva tónlistin leggi
mikilvægan skerf af mörkum til að
skapa heimsfrið, hún endurreisi
jafnvægi og samstilli huga, líkama,
hegðun og umhverfí. íslenska íhug-
unarfélagið sá um framkVæmd
tónleikanna og að sögn Ara Hall-
dórssonar hjá Kennslumiðstöð
félagsins voru um hundrað manns
á tónleikunum.
JlUUUESTUIIE
_____Verðlækkun____
á nýjum vetrarhjólbörðum!!
Vegna óvæntrarlækkunar á síðustu sendingunni af BRIDGESTONE„ÍSGRIP“vetrarhjól-
börðum getum við nú boðið þá á enn lægra verði en áður.
Dæmi um verð:
Stærð Verð
155SR 13 W03 Kr. 3.127,-
165SR 13 W03 Kr. 3.441,-
175SR 14 W03 Kr. 4.091.-
175/70 SR 13 W02 Kr. 3.431.-
185/70 SR 14 W02 Kr. 4.220.-
STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR FRÁ OFANGREINDUM VERÐUM ER 7%
en að auki getum við boðið mjög hagstæð greiðslukjör:
VILDARKJÖR VÍSA eða EUROCREDIT:
Lág eða engin útborgun — og jafnar mánaóarlegar greiðslur allt upp í 8 mánuói!
Stuðlaðu að öryggi þínu og þinna í umferðinni í vetur — nýttu þér hagstætt verð
okkarog greiösluskilmála og kauptu NÝJA úrvals vetrarhjólbarða undir bílinn!!
f DEKKJAMARKAÐURINN, 1
í Nýja Bílaborgarhúsinu,
Fosshálsi 1,
Sími 68 12 99