Morgunblaðið - 19.11.1987, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987
j
una, einhver lá á henni þar til við
fórum til dyra. Það reyndist vera
Páll Þorsteinsson sjómaður sem
þama átti leið um og sá eld í frysti-
húsinu," sagði Amór Ragnarsson
sem býr ásamt Qölskyldu sinni að
Gerðavegi 31, skammt frá Nes-
fiski. Dagný Hildisdóttir kona hans
hringdi strax í neyðamúmerið og
lét lögregluna vita um eldinn.
Amór segist hafa farið út og þá
hafí eldurinn í frystihúsinu litið
sakleysislega út. Lögregla og
slökkvilið kom fljótlega á staðinn
og sagði Amór að þeir hafi haft
fulla stjóm á hlutunum til að byija
með. Suðaustan átt var og hafi
reykurinn þá ekki staðið á sitt hús.
Hann kvaðst þó hafa farið með fjöl-
skylduna úr húsinu og fært bíla
sína til á lóðinn til öryggis. Síðan
hafi sprenging orðið um klukkan
4.20 og upp úr því hafí eldurinn
magnast upp og breiðst út um allt
húsið. „Upp úr klukkan 5 í morgun
jókst vindurinn og snerist í aust-
norðaustan og þá varð virkilegt
bál, og réði slökkviliðið ekki við
neitt. Þá stóð húsið okkar í reykjar-
mekki og neistaflugi, svo ég sá
ekki í það í tvo klukkutíma," sagði
Amór.
Svaf 13 metra
frá eldinum
„Ég svaf við opinn glugga og
vaknaði við reykinn. Þegar ég leit
út sá ég eldtungur koma út með
hurðinni á frystihúsinu," sagði Frið-
rik Ámason vélgæslumaður í
frystihúsinu, en hann býr einn í
húsi sem stendur alveg við frysti-
húsið. Svefnherbergi hans snýr út
að þeim hluta hússins sem eldurinn
kom upp og em aðeins 13 metrar
á milli. Hús Friðriks fylltist af reyk
og sóti.
Friðrik sagðist hafa hringt strax
í slökkviliðið og um það leyti sem
hann var að ljúka símtalinu hafí
dyrabjöllunni verið hringt og Páll
Þorsteinsson verið að vekja sig.
Friðrik fór út og ætlað inn í vélasal-
inn til að athuga málin en þá var
reykur kominn þar um og bannaði
lögreglan honum að fara inn. Hann
sagðist hafa farið inn til sín aftur
og tekið nauðsynlegustu föt með
sér í lítilli ferðatösku. Ekki hefði
verið hægt að eiga við annað. Þeg-
ar Morgunblaðsmenn vom á ferð-
inni um hádegið var Friðrik ekki
búinn að fara inn í húsið, enda rauk
enn úr rústunum, og sagðist halda
til hjá systur sinni í Keflavík.
Friðrik er vélgæslumaður í frysti-
húsinu og hefur haft þann starfa
með höndum síðan 1950. Hann
sagðist hafa farið um fiskvinnsluna
rétt fyrir klukkan tólf kvöldið áður
og slökkt á öllum vélum vegna þess
að fyrirhugað var að taka raf-
magnið af hverfinu klukkan 12. Þá
hafi ekki borið á neinu óeðlilegu.
Þegar Friðrik hóf störf í þessum
fiskverkunarhúsum hét fyrirtækið
Morgunblaðið/Amór Ragnarsson
Lögreglumaður ræðir við menn sem einna fyrstír komu á staðinn.
Myndin var tekin 10—15 mínútum eftír að eldsins varð fyrst vart,
skömmu áður en slökkviliðið kom á vettvang. Hægra megin sést
hluti fiskverkunarhúsa Nesfisks og eldurinn sem ekki var mjög
mikill í fyrstunni og vinstra megin er hús Friðriks Ámasonar, sem
stendur í 13 metra fjarlægð frá eldinum.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Tveir bílar sem voru í viðgerð á bílaverkstæðinu gereyðilögðust. Þar voru einnig gaskútar sem menn
óttuðust að spryngju. Myndin var tekin I gær og eru gaskúturinn og bíllinn þannig útleiknir að þeir
gætu hafa verið að ryðga útí í áratugi.
Bruninn hjá Nesfiski hf. í Garði;
Tjónið áætlað á annað
hundrað milljónir króna
LJÓST er að á annað hundrað
miiyóna króna tjón varð þegar
fiskverkun Nesfisks hf. i Gerða-
hverfi f Garði brann til kaldra
kola í fyrrinótt. Fiskverkunarhús
fyrirtækisins brunnu og nær allt
sem i þeim var, ásamt bifreiða-
og hjólbarðaverkstæði, sem var
í hluta húsanna. Ekki urðu slys
á mönnum, en slökkviliðsmenn
voru hætt komnir f spreningu
sem varð f brunanum.
Eldurinn kom upp laust fyrir
klukkan 3.30 f fyrrinótt. Sjómaður
sem átti leið um hverfíð varð fyrst-
ur var við eldinn, vakti upp fólk í
nálægu íbúðarhúsi og var þaðan
látið vita um eldinn. 50—60 manns
úr slökkviliðunum á Suðumesjum
börðust við eldinn en ekki varð við
neitt ráðið eftir að sprenging varð
við frystiklefa hússins, og er helst
talið að ammoníakskútur hafi
sprungið af völdum hitans. Níu
manns búa í þremur húsum í ná-
grenni fiskverkunarhúsanna og
yfirgaf fólkið hús sín. Ein íjölskyld-
an var flutt á sjúkrahús vegna ótta
við reykeitrun. Ekki varð tjón á
nágrannahúsunum, nema hvað þau
fylltust af reyk og brunalykt, ásamt
bílum og öðrum nálægum hlutum.
Eitt íbúðarhúsið stendur alveg við
fiskverkunarhúsin og eru aðeins um
13 metrar frá svefnherbergisglugga
þess að þeim hluta frystihússins
sem eldurinn kom upp.
Rannsóknarlögreglumenn frá
Keflavík unnu í gær að rannsókn á
upptökum eldsins og liggja niður-
stöður ekki fyrir. Talið er að
eldurinn hafi komið upp við frysti-
klefa. Rafmagnið var tekið af
hverfinu vegna viðgerða um mið-
nætti og sett aftur á um klukkan
þrjú um nóttina, en eldsins varð
vart um hálfri klukkustund síðar.
Nesfískur er í fískverkunarhús-
um sem áður voru í eigu ísstöðvar-
innar hf. og þar áður í eigu
Hraðfrystihúss Gerðabáta. Fisk-
verkunarhúsin eru nálægt tvö
þúsund fermetrum að stærð, bæði
nýleg og gömul, og eru þau öll tal-
in ónýt. Búið var að steypa grunn
og veggi nýbyggingar við fiskverk-
unarhúsin og skemmdist hún ekki.
Brunabótamat allra húsanna er
Úr fiskmóttökunni þar sem
10—15 tonn af fiski biðu verkun-
ar.
tæpar 65 milljónir kr. Töluvert var
af tækjum í fískverkunarhúsinu og
bflaverkstæðinu, meðal annars nýr
lausfrystír. Einnig var mikið af
físki, bæði fullunnum afurðum og
óunnum. Ekki er búið að meta tjón-
ið en að öllu þessu metnu er talið
líklegt að það sé eitthvað á annað
hundrað milljónir kr.
40—50 manns hafa haft atvinnu
sína hjá Nesfiski hf. Eigendur fyrir-
tækisins eru að athuga með að
he§a vinnslu í öðru húsi sem fyrst
og gæti hluti fólksins fengið vinnu
þar. Þá eru þeir famir að huga að
uppbyggingu fyrirtækisins á ný, en
engar ákvarðamir hafa þó verið
teknar um það.
„í reykjarmekki
og neistaflugi“
„Við vöknuðum upp við dyrabjöll-
Morgunblaðið/Árni Sæbeig
Slökkvíliðsmenn við vinnu á þaki Nesfisks hf. snemma í morgun.
Eru þeir að ijúfa gat á þakið og sprauta vatni inn til að slökkva eld.