Morgunblaðið - 19.11.1987, Side 49

Morgunblaðið - 19.11.1987, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987 49 Motgunblaðið/Árni Sæberg Páll Ingi Pálsson sljómandi bifreiðaverkstæðis M. Guðbergssonar í dyrum verkstæðisins, þar sem allt eyðilagðist, meðal annars tveir bilar og 70—80 ný dekk. Morgunblaðið/Amór Ragnarsaon Jón Rósmann Ólafsson ekur sendibifreiðinni út úr verkstæði brenn- andi frystihússins og nær er dráttarvélin sem einnig tókst að ná út. Þetta eru einu verðmætin sem náðist að bjarga úr fiskverkuninni. um að opna verkstæðið til að ná út gaskútunum en þá var orðið svo heitt inni að reykkafaramir þurftu að snúa frá. Þannig að ekki náðist að bjarga neinu," sagði Páll Ingi. Fyrirtækið var fyrir brunann búið að kaupa annað hús fyrir starf- semina og bjóst Páil Ingi við að starfsemin yrfi nú flutt þangað. Hann sagði að eignimar hafí verið tryggðar, en kvaðst ekki geta gert sér grein fyrir hvað tjónið sé mikið. Baldvin Njálsson eigandi Nesfísks f rústum fiskverkunarhúsa sinna. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Hraðfrystihús Gerðabáta. Síðar rak ísstöðin hf. það og nú síðast Nes- fískur hf. Segir Friðrik að tvisvar áður hafí komið upp eldur í þessu húsi, í bæði skiptin í tfð Hraðftysti- húss Gerðabáta. „Hrundi eins og spilaborg“ Baldvin Njálsson fiskverkandi f Garði á Nesfísk hf. ásamt fjölskyldu sinni. Hann sagðist í gær vera að byija að átta sig á hlutunum. Hann var að leggja drög að þvf að fá tjón- ið metið og vildi ekkert segja um hvað það gæti verið mikið. Hann flutti fískverkun sína í þessi hús fyrir um ári, en þá hafði engin starf- semi verið þar um tíma. Þama hefur Unvin x rn w A tvinA nnll fi m! Morgunbtaðið/Ámi Sæberg íiaiui UIVU oaiwiaivvci auu, nokkra skreiðarverkun og vemlega ftystingu. Hann hefur verið að byggja fyrirtækið upp á þessu ári og var nýbúrinn að setja upp stóran lausfrysti. „Þetta var farið að snúast vel hjá okkur en svo sjáum við þetta hrynja eins og spilaborg," sagði Baldvin. Hann sagði að eignimar hefðu allar verið tryggðar og einnig hefði hann verið með rekstrarstöðv- unartryggingu. Hann sagði að framtíðin væri óráðin, hún færi meðal annars eftir því hvemig tiyggingamálin fæm. En hann sagðist vera að vinna að því að geta haldið starfseminni áfram og huga að enduruppbyggingu. Meðal annars kæmi til greina að ljúka byggingu fískverkunarhúss sem byijað er á við hlið þess gamla og skemmdist ekki í eldinum nú. Baldvin kom á staðinn í fyrri- nótt, fljótlega eftir að eldsins varð fyrst vart. Hann sagði í gær að þá hafí bara verið lítill eldur nálægt ftystiklefanum. „Það hvarflaði ekki að okkur að bjarga lyftara og ýms- um verðmætum út úr öðmm hlutum hússins. Síðan varð allt húsið eitt Ingiþór Geirsson slökbviliðsstjóri eldhaf á stuttum tíma og lftið hægt að gera, enda vomm við beðnir um að opna ekki hurðimar. En það var þó mesta mildi að enginn skyldi slasast, slökkviliðsmennimir vom allan tímann f stórhættu," sagði Baldvin Njálsson. Óku bíl út úr brennandi húsinu Starfsmenn Nesfísks náðu að bjarga bíl og tækjum út úr verk- stæði fyrirtækisins á síðustu stundu. Jón Rósmann Ólafsson ók út sendibifreið og einnig tókst að ná út dráttarvél, lyftara og ýmsum smærri áhöldum, meðal annars gas- kútum. Jón Rósmann sagði í gær að reykur hefði verið kominn um allt og eftir að þeir vom búnir að ná þessu út hefði þeim verið bannað að fara aftur inn. Siguijón Kristinsson verkstjóri hjá Nesfiski sagði að húsið hafí verið fullt af físki. í fískmóttökunni 1 rústunum. hafi 10—15 tonn beðið verkunar og frystiklefínn fullur út úr dymm af fullunninni vöm af ýmsum gerð- um. Einnig hefði verið töluvert af saltfiski í húsinu. Hann sagði að 40—50 manns hafí verið í vinnu hjá fyrirtækinu, frá Garði, Sand- gerði og Keflavík og einnig 5 Bretar. „Reyndum að opna verkstæðið“ í syðri enda fískverkunarhús- anr.a var bílaverkstæði M. Guð- bergssonar. Það brann til gmnna og eyðilagðist allt sem í því var, meðal annars tveir bflar sem þar vom til viðgerðar, áhöld og tæki til bifreiða- og hjólbarðavirðgerða, varahlutir og vömbirgðir, m. a. 70—80 ný dekk. Páll Ingi Pálsson sem sér um rekstur verkstæðisins sagðist hafa komið á staðinn um klukkan 4.30 og þá hafí verkstæðið verið orðið fullt af reyk. „Við reynd- „Prísum okkar sæla að missa ekki mann Á milli 50 og 60 slökkviliðsmenn börðust við eldinn hjá Nesfíski í Garði í fyrrinótt með 7 slökkvibfl- um. Ingiþór Geirsson slökkviliðs- stjóri hjá Branavömum Suðumesja stjómaði liðinu. Hann sagði f gær að tilkynning um eldinn hafí borist til slökkviliðsins, sem er með höfuð- stöðvar í Keflavík, klukkan 8.23 og slökkviliðið verið komið á staðinn 12—15 mínútum síðar. Hann sagði að þá hefði sá hluti hússins sem eldurinn kom upp í verið alelda staftianna á milli og allhvass vindur þvert í gegnum á húsið. Kallað hefði verið eftir aðstoð frá Slökkvi- liði Miðneshrepps og slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli. Bflamir vom drifnir niður á bryggju við húsið til að dæla upp sjó og slökkvistarf strax hafíð. „Skömmu síðar, þegar mennimir vom komnir upp á þak og víða um svæðið varð öflug sprenging undir þannig að þakið af hluta hússins sprakk upp. Menn þeyttust til og einn fékk plötu á sig. Hann slapp þó betur en á horfð- ist og megum við prísa okkar sæla að hafa ekki misst mann f þessum látum," sagði Ingiþór. Ingiþór sagði að 50—60 slökkvi- liðsmenn hefðu unnið við slökkvi- störf en það hefði ekki verið við neitt ráðið. Við sprenginguna hafí eldurinn blossað upp og borist með ógnarkrafti út um allt húsið. Eftir þijá tfma hafí húsið allt verið fallið. Taldi hann að meiri mannskapur hefði engu breytt, en þeir hefðu ef til vill getað bjargað einhveiju ef þeir hefðu komið fyrr á staðinn. Slökkviliðsmenn vom á staðnum allan daginn f gær og unnu við að slökkva í glæðum eldsins. Vonir um áfram- haldandi starfsemi „Þetta hefur gífurieg áhrif á at- vinnuna hér, því Nesfískur var stærsta atvinnufyrirtækið með 40—50 manns í vinnu," sagði Jón .Hjálmarsson formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Gerðahrepps. „En menn binda vonir við að hægt verði að koma starfseminni aftur f gang.“ Jón efaðist um að hægt yrði að útvega öllu fólkinu aðra vinnu á stundinni og ljóst að einhver vand- ræði yrðu, jafnvel þó Nesfiskur gæti hafíð einhveija starfsemi f öðra húsi og ráðið einhvem hluta fólksins þangað. Sagði hann að verkalýðsfélagið mjmdi fylgjast með framvindu málsins og gerapað sem í þess valdi stæði til að hjálpa fólkinu. Háskóla- fyrirlestur á vegnm læknadeildar PRÓFESSOR Alec Garner frá University of London heldur fyr- irlestur á vegum læknadeildar Háskóla íslands i Eirbergi á Landspítalalóð föstudaginn 20. nóvember. Fyrirlesturinn nefnist „Pathology of the Diabetic Eye“. Fyrirlesturinn hefst kl. 14.30 og er öllum heimill aðgangur. 5 '■ Grafík í Duus-húsi HLJÓMSVEITIN Grafík hefur gefið út sina fimmtu hjjómplötu og nefnist hún „Leyndarmál". Hljómsveitin kynnir efni plöt- unnar í Duus-húsi i kvöld. Hjjómsveitina skipa: Rafn Jóns- son trommuleikari, Baldvin Sig- urðsson bassaleikari, Hjörtur Howser hljómborðsleikari, Rúnar Þórisson gítarleikari og Andrea GylfadÓttir söngvari. Símon H. ívarsson gitarleikari og dr. Orthulf Prunner orgelleik- ari. Gítar- og orgelleikur á Hvammstanga SÍMON H. ívarsson gítarleikaVi og dr. Orthulf Prunner orgelleik- ari halda tónleika í Hvamms- tangakirkju laugardaginn 21. nóvember kl. 14.00. Einnig leikur Símon fyrir matargesti á Verts- húsinu Hótel Hvammstanga föstudagskvöldið 20. nóvember. Á tónleikunum leika þeir félagar verk eftir J.S. Bach, A. Vivaldi og" J. Rodrigo af nýútkominni hljóm- plötu þeirra. Þeir verða einnig með hljóðfæri sem nefnist clavicord og segir í fréttatilkynningu að það hafi verið uppáhaldshljóðfæri J.S. Bachs og mikið eftirlæti Mozarts. Á þessi tvö hljóðfæri leika þeir verk eftir C. Scheidler og Beethoven.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.