Morgunblaðið - 19.11.1987, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987
57
Viðauki við skákþátt
eftirJón G. Briem
Það er ánægjulegt hvað umfjöllun
um skák hefur aukist í dagblöðunum
sem og öðrum fjölmiðlum. Þjóðvilj-
inn, DV og Morgunblaðið hafa lengi
verið með fasta skákþætti. Auk
hinna föstu þátta eru sífellt að auk-
ast fréttir af skák, svo og önnur
skrif, ýmist til fióðleiks eða til
skemmtunar. Ég les þessa þætti alla
mér til gagns og ánægju. Sérstak-
lega hef ég orðið gaman af að lesa
skákþætti þeirra Helga Ólafssonar
í Þjóðviljanum, Jóns L. Amasonar í
DV og Margeirs Péturssonar í Morg-
unblaðinu. Þessir þremenningar
hafa að mínu mati allt sem þarf til
að skrifa góða þætti. I fyrsta lagi
eru þeir mjög góðir skákmenn og
eiga því auðvelt með að skýra skák-
ir sem eru nú uppistaðan í flestum
skákþáttum. í öðru lagi skrifa þeir
mjög lipran stíl þannig að efnið verð-
ur áhugavert fyrir lesendur. Og í
þriðja lagi sýnist mér augljóst að
þeir skrifa um skák af brennandi
áhuga. Skrif þeirra eiga mikinn þátt
í að vekja og viðhalda áhuga fólks
á skákinni.
í skákþætti Margeirs Péturssonar
í Morgunblaðinu miðvikudaginn 11.
nóvember sl. vakti hann máls á atr-
iði sem er mjög áhugavert. Hann
gat þess að þótt Taflfélag Reykjavík-
ur bæri höfuð og herðar yfir önnur
skákfélög í landinu þá hefðu menn
úr öðrum félögum sigrað á haust-
móti þess þrjú undanfarin ár.
Haustmót félagsins er jafnframt
meistaramót þess. Hver ætli sé
ástæðan fyrir þessu? Getur verið að
veldi félagsins sé ekki eins mikið og
menn hafa talið? Ekki held ég að
það sé skýringin. Félagar í Taflfé-
lagi Reykjavíkur hafa aidrei staðið
sig betur en undanfama mánuði.
Heimsmeistaramir tveir, Hannes
Hlífar og Héðinn Steingrímsson, eru
báðir í Taflfélagi Reykjavíkur. Norð-
urlandameistarinn, íslandsmeistar-
inn og sá sem vann hinn glæsta sigur
í Gausdal í sumar er félagi í Taflfé-
lagi Reykjavíkur. Sá er reyndar
skákþáttarhöfundur Morgunblaðs-
ins, Margeir Pétursson. Sigurvegar-
inn á millisvæðamótinu í Zsirak í
sumar er félagi í Taflfélagi
Reykjavíkur. Það var auðvitað Jó-
hann Hjartarson. Einn af hinum
ungu og efnilegu skákmönnum fé-
lagsins náði áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli tvívegis í sumar. Það
var Þröstur Þórhallsson. Þá er óget-
ið glæstra sigra í sveitakeppnum,
sem félagar í Taflfélaginu hafa unn-
ið. Og síðast en ekki síst er hin
frækna Ólympíuskáksveit íslands
eingöngu skipuð félögum í Taflfélagi
Reykjavíkur. Það er því augljóst að
ekki skortir skáksnillingana í félag-
ið. En hver er þá skýringin á því
að þeir sigra ekki á haustmóti félags-
ins, sem jafnframt er meistaramót
þess? Hún er augljós. Þeir tóku ekki
þátt í því. Hitt er aftur á móti ekki
augljóst af hvetju þeir tóku ekki
þátt í mótinu. Skýringamar geta þó
verið eðlilegar og í flestum tilvikum
held ég að svo hafí verið. Þorri allra
bestu skákmanna félagsins var
ýmist rétt að ljúka keppni í landsliðs-
flokki á Skákþingi Islands eða að
tefla á alþjóðlegu skákmóti í Ólafs-
vík. En ekki er þó víst að þátttaka
í þessum tveimur skákmótum skýri
fjarveru allra sem maður bjóst við
að sjá á meistaramóti félagsins.
Getur verið að eitthvað sé að í starf-
semi félagsins? Eitthvað sem valdi
fjarveru betri skákmanna frá þessu
móti? Hvað gerir félagið til að laða
bestu skákmennina til þátttöku í
skákmótum á vegum þess? Eins og
fram kom í skákþætti Margeirs Pét-
urssonar voru verðlaun hærri á
þessu móti en nokkm sinni fyrr.
Verðlaunin jöfnuðust á við þau sem
eru á alþjóðlega skákmótinu í
Njarðvík, sem nú stendur yfir. Fé-
lagið kemur því að þessu leyti til
móts við óskir bestu skákmanna
þess. Hvað annað gerir félagið fyrir
þá bestu? Það heldur annað hvert
ár alþjóðlegt skákmót í Reykjavík.
Reykjavíkurskákmótin, sem haldin
eru í samvinnu við Skáksamband
íslands, hafa orðið til mikils gagns
fyrir alla íslenska skákmenn. Og í
sumar hófst nýr kafli í starfi félags-
ins. Það tók í fyrsta sinn þátt í
Jón G. Briem
„Haustmót Taflfélag's
Reykjavíkur varð
kveikjan að þessum
skrifum. Eitt af mörgu
ánægjulegu við haust-
mótið var að þátttaka
var óvenju mikil."
Evrópukeppni taflfélaga. Tólf bestu
skákmenn félagsins mynduðu
keppnishóp þann sem skyldi tefla í
þessu móti. Keppnin fer fram á u.þ.
b. tveggja ára fresti og vonandi
verðúr framhald á þátttöku félagsins
í henni.
Af framanrituðu má sjá að Taflfé-
lag Reykjavíkur er ekki á neinni
niðurleið þótt utanfélagsmenn hafi
sigrað á haustmóti þess undanfarin
þrjú ár. Það má líka sjá að félagið
leggur mikla áherslu á að sinna þörf-
um betri skákmanna þess. Og það
gleymir auðvitað ekki hinum sem
skemmra eru komnir í íþróttinni.
Haustmót Taflfélags Reykjavíkur
varð kveikjan að þessum skrifum.
Eitt af mörgu ánægjulegu við haust-
mótið var að þátttaka var óvenju
mikil. Skákin nýtur greinilega mjög
mikilla vinsælda. Annað ánægjulegt
við mótið er sá fjöldi skákmanna úr
öðrum félögum öðrum en Taflfélagi
Reykjavíkur sem tók þátt í því. Það
er oft erfítt fyrir bestu skákmenn
félaga úti á landi að fá næga keppni
í sínum félögum. Til að taka fram-
förum þurfa þeir að geta att kappi
við bestu skákmenn landsins. Þá er
eðlilegt að þeir leiti í skákmót á
vegum Taflfélags Reykjavíkur.
Höfundur er formaður Taflfélags
Reykjavíkur.
AMSIRAD7MV
ViniSÆLUSTU TOL VUR í EVRÓPU í DAG
Nú getum við boðið þessar frábæru tölvur með aukabúnaði og forritum
á verði og greiðslukjörum sem aðeins AMSTRAD getur boðið.
EKKERT UT:
VILDARKJÖR ALLT AÐ 12 MÁN. OflO/* REST Á 6-8 MÁN.
SAMNINGUR ALLT AÐ 12 MÁN. EÐA CM /0 Út, SKULDABRÉFI.
Kr. 47.400.- Kr. 56.900.-
AMSTRAD PC 1512M AMSTRAD PC 1512M AMSTRAD PC 1512M AMSTRAD PRENTARI A4
1. drif 14“ sv/hv pergam. skjár. 2 drif. 14“ sv/hv pergam. skjár. Lita- 20 MB. HD. 14“ sv/hv pergam.skjár. DMP 3160. Hraði 160 stafir pr.sek.
Litaskjár auka kr. 17.900.- skjár auka kr. 17.900.- Litaskjár auka kr. 17.900.- NLQ gæðaletur, PC staðall.
OLLUM AMSTRAD PC 1512
TÖLVUNUM FYLGIR:
Mús-fsl. GEM forrltln: Graphic, Desktop og Þaint teikniforrit.
Ability forritin: Ritvinnsla, súlu- og kökurit, Reiknivangur, Gagnasafn
og Samskiptaforrit.
4 leikir: Bruce Lee, Dambuster, Wrestling og PSI 5T.C.
Kr. 86.570.- Kr. 95.980.- Kr. 32.500.-
AMSTRAD PC1640 ECD
14“ ECD hágæða litaskjár.
EGA, Hercules, CGA kort. 1 drif.
Mús og islenskuð GEM forrit.
AMSTRAD PC1640 ECD
14“ ECD hágæöa litaskjár.
EGA, Herkules, CGA kort. 2 drif.
Mús og íslenskuö GEM forrit.
AMSTRAD PC1640 ECD
14“ ECD hágæða litaskjár.
EGA, Herkules, CGA kort. 20MBHD.
Mús og íslenskuð GEM forrit.
AMSTRAD PRENTARI A3
DMP 4000. Hraði: 200 stafir pr. sek.
NLQ gæöaletur. PC staöall.
VIÐQERÐARÞJÓNUSTA: Tækniverkst. Gísla J. Johnsen. MÓTTAKA: AMSTRAD verslunin v/ Hlemm. NÁMSKEIÐ: Tölvufræðslan, Borgartúnl 56.
fvmukjA TILBOD: H AÐ fjárhagsbókhald, AMSTRAD PC1512 M 20 MB HD. KR. 119.900.- sölu-og^genrkerfi. AMSTRAD PC1640 ECD 20 MB HD. KR. 159.900,-
HÖFJUH OPNAD
STORGLÆSILEGA
FERMETRA VERSLUN VIO HLEMM.
/" AMSTRAD er breskt fyrirtæki með útibú um allan heim.
AMSTRAD framleiöir 21 gerð af tölvum auk hljómtækja og myndbanda.
AMSTRAD tölvur eru nú lang vinsælustu tölvur i Evrópu.
AMSTRAD hefur tvöfaldað veltuna árlega síðan 1983.
AMSTRAD hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir framleiðslu og markaössetningu.
AMSTRAD hefur nú opnað útibú í Bandaríkjunum. 800 tölvuverslanir þar selja nú AMSTRAD.
AMSTRAD markaössetur nýja byltingarkennda feröatölvu á ótnilega lágu verði i jan.’88.
AMSTRAD hefur boðaö 15-20 nýjungar á árinu 1988.
AMSTRAD framleiðir vöru, sem er tilbúin til notkunar, kostar litið en gefur mikiö.
Opið laugardaga kl. 10-16.
VERSLUN V/ HLEMM/S. 621122.
Bókabúd
TÖLVUDEILD
RlTltra Laugavegi 116,
a5a 105 Reykjavík,
s: 621122.
Akranes: Bókaskemman / Keflavík: Bókab. Keflav.
Akureyri: Bókav. Edda / ísafj. Hljómtorg
ÖLL VERÐ MIÐAST VIÐ STAÐGR. OG GENGIGBP 6. NÓV. '87.