Morgunblaðið - 19.11.1987, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 19.11.1987, Qupperneq 64
64 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987 fclk f fréttum Rambó er einmana og dapur þessa dagana. Hann er óskup dapur og ein- mana þessa dagana hann Sylvester Stallone og segist sakna Gittu sinnar. „Ég er eins einmana -og Rambó, líf mitt er álíka gleðis- nautt. Ég er alltaf umkringdur lífvörðum mínum og hef ekki sam- band við neina aðra að heitið getur," segir hann. Nokkuð er nú um liðið síðan þau hjónin skildu og hefur Gitta blómstrað síðan hún losnaði úr fjötrum hjónabandsins. Þau hjónin munu vera sammála um að það hafi verið orðið helvíti líkast, en engu að síður vill Sylvester fá Gittu til baka. Hún hefur ekkert látið hafa eftir sér um ummæli fyrrum eiginmanns síns og lifir í lystisemd- um praktuglega. Fyrst eftir skilnað- inn leitaði Stallone sér huggunar hjá fegurðadísum og kókaínsmygl- urum, en hefur nú snúið baki við þeim og grátbænir sína fyrrverandi um að koma til sfn. „Heyrðu mig, það er verið að spila uppáhaldslagið okkar.“ Þeir voru grafalvarlegir á svip félagarnir, með brilljantíngreitt hárið og sólgleraugu af dekkstu gerð. DAN SMENNING Morgunblaðið/ Bjöm Haraldsson Eitthvað hefur hún ruglast i dansfræðunum, stúlkan, eða dansar maður indverskan Hans við „La Bamba"? Snertur af Grease- æði w Ikjölfar kvikmyndarinnar „La Bamba“ hefur gamla góða rokk- æðið skotið upp kollinum á nýjan leik. Nú á dögunum hélt Nemenda- félag MH „Grease"— ball í Útópíu og þar voru þessar myndir teknar. Margt var um manninn á ballinu og mátti sjá marga í fatnaði og hártísku sjötta áratugarins. RABBAÐ VIÐ PÉTUR ÞORBJÖRNSSON í FAXAMARKAÐNUM Þeir sögðu að það væri kannski pláss fyrir mig á Alþingi að voru fáir á ferli föstudags- morguninn sem Fólk í fréttum brá sér í Faxamarkaðinn til að fylgj- ast með fískuppboðinu sem er þar daglegur viðburður. Ætlunin var að spjalla aðeins við Pétur Þorbjörns- son, gamlan togaraskipstjóra, en hann býður upp fiskinn og hefur gert allar götur síðan uppboðin í Faxamarkaðnum hófust, fyrripart sumars. „Elskan mín, þú átt ekkert að vera að tala við mig, ég er bara eins og hver annar verkamaður hér,“ sagði hann þegar hugmyndir um við- tal voru fyrst reifaðar við hann. Hann bætti þvf við að það hefðu verið frekar fáir að kaupa í þetta sinn, þó að föstudagar hefðu stund- um komið vel út. Fyrripartur vikunn- ar væri bestur, þá væri verðið hærra og svo mætttu fleiri. Finnst þér ekkert erfitt að standa hér uppi á morgnana og kalla yfir mannskapinn, kemur það aldrei fyrir að eitthvað fari úrskeiðis, var fyrsta spumingin til hans. „Nei, nei og ég hef ekki tekið eft- ir því en viðskiptavinimir verða kannski varir við það. Maður sér það á brosinu ef eitthvað hefur farið úr- skeiðis, en ég held að það gerist mjög sjaldan. Hér kom þó einu sinni maður á uppboð og bauð í fiskinn. Hann var búinn að bjóða í þrjár stæð- ur þegar farið var að athuga hann og þá hafði hann ekki lagt inn neina bankatryggingu fyrir þvi sem hann var að kaupa, heldur lagði hann inn ávísun sem engin innistæða fannst fyrir. Við urðum náttúrulega að bjóða fiskinn upp aftur og þá fór hann á mun hærra verði." Hef aldrei áður unnið í landi Nú hafa heyrst sögur um mann sem var að klóra sér í, höfðinu með skilt- inu og vissi ekki fyrr en honum voru slegin nokkrir kassar af karfa, gerðist þetta hjá ykkur? „Ekki hjá okkur, en það hefur komið fyrir að ég hef haldið áfram að telja og menn hafa haldið spjald- inu á bringunni. Þá hef ég auðvitað byijað að telja upp á nýtt, en við höfum ekki látið þá taka fiskinn heldur áminnt mennina um að halda spjöldunum á lofti. Við emm enga stund að laga svona mistök." Hvað gerirðu annað en að bjóða upp? „Allt sem til fellur hér í húsinu, ég tel héma og svo er ég bara eins og hver annar verkamaður. A dag- inn fylgist ég með þegar er verið að setja í kör og sé um að það sé gert sómasamlega. Fiskurinn er fluttur hingað á bflum frá Granda og settur inn í stæðumar. Hingað er ég mættur klukkan hálfsjö á morgnana, það er ekkert nýtt fyrir mér að vakna snemma, áður en ég byxjaði hér var ég tog- araskipstjóri og þá var ég jafnvel vakandi allan sólarhringinn. Ég hef aldrei unnið í landi áður.“ Hann var þá spurður hversvegna hann hefði verið settur í að kalla upp, er hann kannski svona mál- glaður? Ekki vildi hann viðurkenna það, sagði að þá hefði vantað upp- boðshaldara, „þegar ég réði mig hingað var ég spurður hvort ég vildi ekki taka þetta að mér. Ég sagðist skyldi gera það svona til reynslu og hef hangið í þessu, ekki veit ég hvað gerðist ef ég myndi hætta si- svona.“ Hveijir em það sem hingað koma? „Þetta em yfirleitt alltaf sömu mennimir, sumir em eingöngu með karfann og aðrir með þorskinn, nú og svo era náttúmlega fisksalamir þeir kaupa aðallega ýsu og kola. Hinir em frá frystihúsunum á Suð- vesturhominu og smáverkendur, þetta era menn vestan af Snæfell- nesi og alla leið austan frá Þorláks- höfn.“ Finnst þæg’ilegra aö kalla tölurnar upp Erað þið í Faxamarkaðnum í sam- kepgni við markaðinn í Hafnarfirði? „Ég held að það sé aldei hægt að komast hjá því að það sé ein- hver samkeppni, en ekki að það skapi neina illsku. Þeir hafa meiri Morgunblaðið/Bjami „Tuttugu og þrjár, tuttugu og þijár og fimmtiu, tuttugu og fjór- ar..“ Pétur býður upp í Faxamarkaðnum. Við tölvuna er Ólafur E. Ólafsson. „Ég tel héraa og síðan er ég eins og hver annar verkamaður," seg- ir Pétur Þorbjömsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.