Morgunblaðið - 19.11.1987, Blaðsíða 76
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Framtíð
ER VIÐ SKEIFUNA
aaaa $ SUZUKI
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Viðræðum
VSÍ og VMSÍ
slitið í dag?
SAMKVÆMT heimildum Morg-
unblaðsins verður viðræðum
Verkamannasambands íslands,
Vinnuveitendasambands íslands
Og VinnnmAlaRflmhnnHa sam-
vinnufélaganna um kjarasamn-
inga fyrir næsta ár slitið í dag,
að minnsta kosti að sinni, en
samningafundur hefur verið
boðaður klukkan tvð f dag.
Fundur framkvæmdastjómar
VMSÍ hefur verið boðaður fyrir
samningafundinn. Heimildir Morg-
unblaðsins herma að VMSÍ telji
tilgangslaust að halda viðræðum
áfram vegna dræmra undirtekta
vinnuveitenda við kröfum sam-
bandsins.
Átta bílar
skemmdust
í óhappi
á Kringlu-
mýrarbraut
ÁTTA bifreiðar skemmdust
meira eða minna þegar maður
missti stjórn á bifreið sinni á
Kringlumýrarbraut í gær. Bif-
reið mannsins lenti á sjö
kyrrstæðum bifreiðum og
skemmdi þær og sumar mikið.
Óhappið varð skömmu eftir kl.
15 í gær. Maðurinn ók bifreið sinni
suður eftir. Kringlumýrarbraut-
inni, en af ókunnum ástæðum
missti hann stjóm á henni. Bifreið-
in fór því hægra megin út af
brautinni, upp á grasbala og loks
að bifreiðastæðum við Suðurver.
Þar skall hún utan í sjö kyrrstæð-
ar bifreiðar og skemmdust fjórar
verulega, en hinar minna. Þar með
var för bifreiðarinnar ekki á enda,
því hún stöðvaðist ekki fyrr en hún
var aftur komin út á Kringlumýr-
arbraut og var þá illa farin.
Ökumaður bifreiðarinnar var
fluttur á slysadeild, en ekki slösuð-
ust aðrir, fyrir utan mann sem sat
í einni kyrrstæðu bifreiðanna og
fékk á sig högg. Sem fyrr segir
er ekki vitað enn hvað olli því að
maðurinn missti stjóm á bifreið-
inni með þessum afleiðingum.
Morgunblaðið/Július Siguijónsson
Loftmynd af brunarústum Nesfisks i Garði og aðstæðum. Næst á myndinni eru íbúðarhúsin Gerðavegur 31 og 33 (t.v.). Ofan við þau eru
fiskverkunarhúsin. Frystiklefinn er lengst til hægri (þakið sigið) en talið er að i honum eða í salnum við hliðina (rústimar) hafi eldurinn
komið upp. Húsin era svo til alveg fallin suður til verkstæðanna sem eru lengst til hægri á myndinni. Veggirnir á stóra húsinu á upp-
fyllingunni eru hluti af nýbyggingu sem ekki skemmdist i brunanum.
Frystihús Nesfisks brann í Garði:
Tjón yfir 100 milljónir,
50 manns missa viimima
Tólf miklir eldsvoðar í f iskverkunarhúsum á áratug
TALIÐ er að á annað hundrað milljóna króna tjón hafi orðið i Garði
i fyrrinótt er fiskverkunarhús Nesfisks hf. brunnu til grunna. Mikið
var af físki i húsunum, bæði óunnum og fullunnum afurðum. Einnig
tæki og búnaður í fiskverkunarhúsunum og bifreiða- og hjólbarða-
verkstæði sem var sambyggt. Allt eyðilagðist, nema ein bifreið og
eitthvað af tælgum sem tókst að bjarga út úr verkstæði frystihúss-
ins. Unnið er að rannsókn á upptökum brunans. Á annan tug
stórbruna hafa orðið á fískverkunarhúsum hér á landi á áratug.
Eldsins varð fyrst vart rétt fyrir
klukkan 3.30 I fyrrinótt. Sjómaður
sem þarna átti leið um vakti upp í
næstu íbúðarhúsum og lét vita um
eldinn. Fólk í þremur íbúðarhúsum
í nágrenni fyrirtækisins yfirgaf hús
sín, en eitt húsið er aðeins um 13
metra frá þeim hluta frystihússins
sem talið er að eldurinn hafi kvikn-
að. Reykur og sót barst inn í
íbúðarhúsin en ekki varð tjón á
þeim. Eldurinn virtist ekki mikill í
fyrstu en eftir að sprenging varð í
húsinu breiddist hann út af ógnar-
krafti um allt húsið. Allt að 60
menn frá slökkviliðunum á Suður-
nesjum börðust við eldinn með 7
slökkvibflum en ekki varð við neitt
ráðið og eftir þrjá tíma voru nær
öll húsin fallin. Ekki urðu meiðsli á
Viðskiptahallinn 9,2 millj-
arðar á næsta ári að mati VST
Óraunhæft að miða við núverandi gengi dollars, segir Þröstur Ólafsson
Viðskiptahallinn verður 9,2 mil(jarðar króna á næsta ári, sem er
nær 4% af landsframleiðslu, og er svipaður halli og var að meðal-
tali árin 1981-86, þegar erlendar skuldir þjóðarinnar fóru ört vaxandi.
Þetta kemur meðal annars fram i drögum að þjóðhagsspá, sem Vinnu-
veitendasamband íslands hefur látið gera. Þar segir ennfremur að
landsframleiðsla dragist saman um rúmlega 1% á næsta ári og þjóðar-
tekjur um nær 2% vegna versnandi viðskiptakjara. í þjóðhagsáætlun
Þjóðhagsstofnunar er hins vegar gert ráð fyrir 4,4 mil(jarða viðskipta-
halla og óbreyttum viðskiptakjörum.
Þröstur Ólafsson, framkvæmda-
sljóri Dagsbrúnar, segir að ekki sé
raunhæft að miða við núverandi
gengi dollars, eins og gert sé í
spánni, útflutningur þoli ekki þetta
gengi og ef dollar eigi eftir að lækka
meira þýði það gengisfellingu. Þórð-
ur Friðjónsson, forstjóri Þjóðhags-
stofnunar, segir að endurskoðun
þjóðhagsáætlunar sé ekki tímabær
ennþá og Ólafur ísleifsson, efna-
hagsráðgjafi ríkisstjómarinnar,
segir að þessar niðurstöður komi sér
ekki á óvart.
Þá segir einnig í þjóðhagsspá VSÍ
að ljóst sé að efnahagsforsendur nú
séu um margt aðrar en miðað var
við í þjóðhagsáætlun og við mótun
efnahagsstefnu ríkisstjómarinnar
fyrir næsta ár. Mestu máli skipti að
nú stefni í langtum meiri halla á
utanríkisviðskiptum þjóðarinnar en
áður var reiknað með. Stjómvöld
hljóti því að þurfa að endurmeta
efiiahagsstefnuna í ljósi breyttra við-
horfa og þessar breyttu forsendur
hljóti einnig að liggja til grundvallar
kjarasamningum fyrjr næsta ár.
Sjá nánar fréttir og viðbrögð á
bls. 41.
fólki í eldsvoðanum en slökkviliðs-
menn vom hætt komnir á þaki
húsanna þegar sprenging varð und-
ir. Rannsóknarlögreglumenn frá
Keflavík unnu við rannsókn á upp-
tökum eldisins, en niðurstöður
liggja ekki fyrir. Rafinagnið var
tekið af hverfinu um miðnættið og
sett aftur á um hálfri klukkustund
áður en fyrst varð vart við eld í
frystihúsinu.
Starfsmenn Nesfisks hf. hafa
verið um 50 og er fyrirtækið
stærsta atvinnufyrirtækið í bænum.
Forráðamenn verkalýðsfélagsins
hafa áhyggjur af atvinnuástandinu,
en gera sér vonir um að hluti starfs-
fólksins fái vinnu áfram hjá Nes-
fiski.
Bmninn hjá Nesfiski hf. í Garði
er tólfti eldsvoðinn í fiskverkunar-
húsum hér á landi á undanfömum
tíu ámm og em þá einungis þeir
stærstu taldir. Árið 1978 brann
Stemma á Höfn I Homafirði, 1979
Hraðfrystihús Stokkseyrar, 1983
Hraðfrystihús Hellissands og Hrað-
frystihús Keflavíkur, 1984 saltfisk-
verkun í Ólafsvík, Hraðfrystihúsið
Jökull á Raufarhöfn og Freyja á
Suðureyri, 1986 Hraðfrystihús
Stöðvarfjarðar og Hraðftystihús
Hellissands og það sem af er árinu
1987 fískverkun KEA í Grímsey,
Meitillinn í Þorlákshöfn og Nes-
fiskur í Garði.
Sjá frétt og viðtöl á bls. 48—49.