Morgunblaðið - 20.11.1987, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987
11
Raunsæi og kímni
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Á sýningunni UM á Kjarvals-
stöðum árið 1983 sýndi óþekktur
Akureyringur nokkrar myndir
sem athygli vöktu og þóttu minna
sterklega á myndstíl Errós.
Nú hefur þessi ungi maður,
Lýður Björnsson að nafni, komið
upp sýningu í vestri gangi Kjarv-
alsstaða og sýnir þar 19 málverk.
Það hafa orðið allnokkrar breyt-
ingar á myndum hans frá fyrr-
nefndri sýningu og þannig rétt
glittir í áhrif frá Erró á stöku
stað. En í stað þess eru komin
önnur áhrif frá ýmsum ofurraun-
sæismálurum eins og t.d. Aust-
urríkismanninum Hellnwein.
Þegar þess er gætt að Lýður er
einungis kvöldskólalærður í
myndlistinni verður tæknilegur
árangur hans að teljast verður
allrar athygli. En stefni menn á
ofurraunsæi eins og það gerist
sannast í heiminum í dag kostar
það eðlilega margfalt meiri þjálf-
un en hægt er að fá í kvöldskóla.
Það kemur greinilega fram í
vinnubrögðum Lýðs, að hann á
ýmislegt eftir ólært tæknilega séð
þrátt fýrir að margt sé vel gert.
Hugmyndaheimur Lýðs er um
margt óþroskaður og bamalegur
þótt smellinn geti virst í fyrstu —
ekki nægilegur broddur
kímninni.
Lýður virðist einna helst vera
að segja launkímna smásögu í
hverri einustu mynd sem hann
málar og á þann hátt að frásagn-
arlegt og leikrænt innihald
myndanna vekur hjá skoðandan-
um jafnvel meiri heilabrot en
myndræn útfærsla þeirra.
Sumt í myndum Lýðs minnir á
súrrealisma, svo sem málverk
„Vinnufat gömlu vændiskonunn-
ar“, sem er í gerð sinni heillegasta
verkið á sýningunni, frásögnin
klár og umbúðalaus í hijúfleika
sínum.
Hvemig sem á allt er litið er
Lýður Bjömsson ákaflega kynleg-
ur kvistur á vettvangi íslenzkrar
málaralistar, sem verður næsta
fróðlegt að fylgjast með í framtí-
ðinni.
Hremmingar á ögurstund
Myndlistarkonan Jóhanna *■
Kristín Ingvadóttir er einn þeirra p|
ungu málara sem vakið hafa at-
hygli og umtal á síðustu ámm.
Jóhanna hefur haldið nokkrar
einkasýningar og tekið þátt í mörg-
um samsýningum og nú er hún
fram til 24. nóvember með litla
sýningu á nýjum málverkum í Gall-
erí Borg við Pósthússtræti. Það
hafa ekki orðið neinar stökkbreyt-
ingar á myndstíl Jóhönnu síðan hún
kom fyrst fram opinberlega en
myndstíll hennar þróast þó með
jöfnum og hægum stígandi.
í augnablikinu og eftir þessum
myndum i Gallerí Borg að dæma
þá er það hin svonefnda tilvistar-
kreppa sem á hug hennar allan og
á það ekki aðeins við um dimma
og þungbúna liti, sem hún er þekkt
fyrir að nota óspart heldur og einn-
ig yfírbragð myndanna sem er í
Undir
regn-
boganum
í Hafnargalleríi, Hafnarstræti
4, stendur nú yfír sýning á klippi-
myndum úr heimi sagna og
ævintýra sem ómaksins vert er að
sjá og skoða.
Er hér um að ræða 30 klippi-
myndir eftir Ragnheiði Gests-
dóttur, sem löngu hefur getið sér
gott orð fyrir lýsingar bóka. Ragn-
heiður hefur tekið einfaldleikann
og skýra framsetningu mynd-
rænna atriða í þágu sína við
myndlýsingar, hafnar fullkomlega
allri tilgerð, flóknum tæknibrellum
og grófum ýkjum. Aðallega fæst
hún við myndskreytingar bania-
bóka enda er sýningin tileinkuð
bömum, sem þó æskilegast er að
séu í fylgd með fullorðnum svo sem
það heitir!
Og í raun er þetta sýning fyrir
böm á öllum aldri, opin og fölskva-
laus og þannig frá henni gengið
að hún hlýtur að koma við hjartað
á margri hrifnæmri sálinni.
Myndir Ragnheiðar eru í óvenju
listrænum búningi og má nefna
Ragnheiður Gestsdóttir
hér myndaraðir eins og t.d. „Sköp-
unin“, „Þumalína“ og „Næturgal-
inn“ en tvær síðastnefndu
myndaraðimar em gerðar við æv-
intýri H.C. Andersen.
Hvort sem Ragnheiður notar
einfalda og hófsama liti eða spenn-
ir þá upp, samræmir hún þá með
miklum ágætum — hefur hér litróf-
ið fullkomlega á valdi sínu. Það
er eiginlega alveg sláandi hve rök-
rétt Ragnheiður er í vinnubrögðum
sínum og víst er að hér getur
margur lært af, — gengið í smiðju
hennar með dtjúgum árangri því
að myndimar eru svo blessunar-
lega lausar við alla sýndarmennsku
og tilbúin ofnotuð formmynstur.
Og þó er naumast hægt að kalla
myndir hennar frumlegar í sjálfu
sér en þær eru svo bamslega fersk-
ar og vel útfærðar að myndmálið
hrífur í hæsta máta...
Jóhanna Krístin Ingvadóttir
bölmóðara lagi.
Ekki þarf þetta beinlfnis að bera
vott um þunglyndi heldur einfald-
lega mikla ást á þessu mjmdefni
og litatónum. Svart er og mögulegt
að nota án þess að það skírskoti
til þunglyndis og persónulegra
hremminga svo sem allir málarar
vita.
Þegar best lætur magnar Jó
hanna fram dulúðugan ófreskan
seið, sem af öðrum heimi og þó eru
myndir hennar mjög svo jarðbundn-
ar og nálægar okkur í tíma og rúmi.
Myndefni sitt sækir Jóhanna í
nánasta umhverfi sitt hveiju sinni
og stílfærir það á sinn sérstaka
hátt og þannig má segja að þær
séu að meira og minna leyti sjálf-
hverfar. Þetta kemur vel fram í
myndunum „Afturhvarf" (1) og „Á
báðum áttum" (7), sem er úti í
glugga. Ein myndanna „Setið á
stólnum" (2) minnir merkilega mik
ið á Emst Ludvig Kirchner, hinn
ágæta málara „Die Briicke“-hóps-
ins en litimir eru fullkomlega
listakonunnar enda virðist mér
þetta framar öðru ósjálfráð tilviljun.
Mjmdin „Stúlka með ávexti" er
mjög vel máluð og sýnir ýmsar af
bestu hliðum Jóhönnu og það gerir
einnig stærsta myndin á sýningunni
„Á ögurstundu" (10) sem komin í
rétt umhverfi myndi trúlega eflast
að áhrifum.
Þótt ekki séu nema ellefu mynd-
ir á þessari sýningu þá býr hún
yfir krafti, sem verður meiri við
nánari skoðun og magnast við end-
urteknar heimsóknir í sýningarsal-
inn...
Leður
LUX
Þýsku homsófamirog sófasett-
in í leður-lúx efnunum eru *
komin aftur á hreint ótrúlega
láguverði.
Sjáið til dæmis sófasettið
tiérá myndinni
tegund: Padúa 3+2+1.
Það kostar kr. 69.860.-
Fæsteinnig 3+1+1
ákr. 64.180.-
Í7fallegum litum.
Það borgar sig að líta til okk-
arstraxídag.
Utborgun með Visa og Euro í
12mánuði.
húsgagnaAöllin
REVKJAVlK