Morgunblaðið - 20.11.1987, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 20.11.1987, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987 13 Lævislegt ofbeldi eftirBaldur Ingólfsson „Hávaði er ofbeldi“ stendur í Hugleiðingum um hávaða á 71. síðu Morgunblaðsins 12. nóvember og er þar auðvitað átt við hávaða, sem er framleiddur sjálfs sín vegna. Af fleiri greinum í sama blaði, bæði í dag og áður, er auðséð, að mönnum er loksins nóg boðið, og það er mikið fagnaðarefni, að nú hillir undir stofnun samtaka um hávaða- vamir. Það er ekki ætlunin að ijalla hér um þá hávaðamengun, sem allir þekkja og hijáir menn allt of víða, heldur lævíslegt ofbeldi, sem símnotendur eru beittir og þeir eru vamarlausir fyrir. Það gerist nefni- lega æ oftar, þegar hringt er í síma og hefur verið svarað, en bið verður á að símtalið heíjist, að í gang fer í símanum einhvers konar sjálfvirk spiladós, sem hljómar afar óþægi- lega. Stundum virðist hún eiga að spila lag, en það er jafnan svo falskt og hjáróma, að símnotandinn flýtir sér að leggja á. Þetta veldur tíma- sóun, því að í flestum tilfellum þarf að hringja aftur í von um að losna við þetta sjálfvirka apparat, en það er tilvfljun, hvort það tekst. Svona spiladósarglamur er ekki einungis hvimleitt vegna ljótleika síns, held- ur er það líka truflandi fyrir þá, sem em búnir að búa sig undir símtal og þurfa að einbeita sér að því, oft með gögn til að styðjast við fyrir framan sig. Hvaða hlutverki er þessu spila- dósarfargani ætlað að gegna? Er engin leið til að losna við þennan flanda? Ef til vill er þetta aðeins eitt dæmi í viðbót um þær gervi- þarfir, sem íslendingar em svo ginnkeyptir fyrir og láta troða uppá sig hugsunarlaust. Ur því að ég er að tala um síma: Er ekki tími til kominn að fólk taki almennt upp þann sið að kynna sig í síma? Hafa menn ekki tekið eftir því, hve óþægilegt er að tala við fólk, sem maður veit engin deili á? 'Ef símnotanda, sem hefur kynnt sig, verður það á að vitja nafns viðmælanda síns, em viðbrögðin iðulega eins og í sögunni um bónd- ann, sem ferðamaður kom til og kynnti sig fyrir sem Sigurð Jóns- son, en bóndi svaraði: „Það getur vel verið að þú heitir Sigurður og sért Jónsson, ég þekki þig ekki.“ Höfundur er menntaakólakennari eindabúnaður íeindaviikiun ÁhugatólKum Þannig er hægt aö búa til *nHlibmtæ"ian'a?na,a : Æ • BttevandSn-n“™m I ^gSunandthWtsem _ I hægteraöveijaur. • rateinda- Fullkomin ■ á ýmsum SS'Smtn^mum leiðbeiningum. Hér er kjörið gaman fyrir virkjann á heimiiinu. F‘,l' setttilsamsetningar rafein<— leiðbeiningum. Aitt sem þart er ahu< Þetta er Kjorio tó m stu n d ag am a m skammdeginu. s .UTAVERSLUN " SÆTÚNI 8- sattotótyM* VUTINGAHAIIARVEISLIIR í DOMIIS MEDICA * , ? m Veitingahöllin hefur nú tekið að sér rekstur salanna í Domus Medica og getur nú boðið viðskiptavinum sínum uppá glæsilega að- stöðu fyrir 50-250 manna veislur og mannamót. í Domus Medica sem og í Veitingahöllinni sjálfri í Húsi verzlunarinnar er eingöngu boðið uppá fyrsta flokks mat og þjónustu á öllum sviðum: ÁRSHÁTÍÐIR BRÚÐKAUPSVEISLUR SÍÐDEGISBOÐ ERFIDRYKKJUR AFMÆUSVEISLUR RÁÐSTEFNUR HÁDEGISFUNDI ALMENNAFUNDl GLÆSILEGTÚRVALAFVEITINGUM MARGSKONAR HLAÐBORÐ BLÖNDUÐ HLAÐBORÐ FISKIHLAÐBORÐ STEIKARHLAÐBORÐ SMURT BRAUÐ PINNAMAT HEITIR RÉTTIR EFTIR VALI JÓLATRÉSSKEMMTANIR Tðkum nú við pöntunum á jólatrésskemmtanir íDomusMedica. DOMllS MEDICA Símar 685018-33272.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.