Morgunblaðið - 20.11.1987, Side 28

Morgunblaðið - 20.11.1987, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987 Júgóslavía: Ríkisstjórnin hvött til að endurskoða aðgerðirnar — vegna verkfalla og ólgu meðal verkamanna Reuter Heilsað að hætti innfæddra Anna Bretaprinsessa hefur undanfarna þijá daga verið á ferða- lagi um Thailand. Á miðvikudag heiðraði hún með nærveru sinni flóttafólk frá Laos, sem dvelst í búðum í norðausturhluta Thai- lands. Svo sem myndin sýnir þótti prinsessunni við hæfi að heilsa viðstöddum að hætti innfæddra. fyrradag, hvöttu þeir til, að alríkis- stjómin endurskoðaði hug sinn til efnahagsaðgerðanna. Felast þær fyrst og fremst í launa- og verð- stöðvun en þó ekki fyrr en að undangenginni 70% hækkun eða „leiðréttingu" á verði helstu nauð- sjmja. Ríkisfréttastofan Tanjug sagði, að komið hefði til verkfalla á 12 stöðum í Makedóníu og víða lét héraðsstjómin undan og veitti verkamönnum kauphækkun. Vegna þess em margir famir að efast um árangurinn af efnahagsaðgerðun- um. Zivko Serafimovski, aðstoðarat- vinnumálaráðherra í Makedóníu, sagði í gær, að lágmarkslaun verka- manna yrðu hækkuð úr 39.500 dínörum, rúmum 1.100 ísl. kr., í 84.000, rúmlega 2.400 ísl. kr. Sagði hann, að þetta væri fyrst og fremst gert með hagsmuni þeirra lægst- launuðu í huga og skoraði jafnframt á alríkisstjómina að flýta fyrir að- stoð við Makedóníumenn, sem væru snauðastir allra landsmanna. Auk launa- og verðstöðvunarinn- ar var gengi dínarsins fellt um nærri fjórðung til að ýta undir auk- inn útflutning. Verðbólga í Júgó- slavíu er nú um 135% og erlendar skuldir nema 20 milljörðum dollara. Belgrad, Reuter. RÁÐAMENN í Makedóníu, fá- tækasta héraði Júgóslavíu, hafa beðið Branko Mikulic forsætis- ráðherra að taka ákvörðun stjóraarinnar um launa- og verð- stöðvun til endurskoðunar. Launþegar i héraðinu hafa brugðist við efnahagsaðgerðun- um með verkföllum og mótmæl- um. Á fundi, sem leiðtogar kommún- istaflokksins í Makedóníu héldu í Mannránið á Spáni: Ræningjamir láta ekkert í sér heyra Estepona, Spáni, Reuter. EKKERT heyrist frá ræningjum Utlu stúlkunnar, Melodie, á Spáni. Þeir hafa ekki haft sam- band síðan á þriðjudag, skömmu fyrir þann tíma sem afhenda átti lausnargjaldið. Lækkuðu þeir lausnargjaldið úr 13 milljónum Bandaríkjadollara í 5 mUljón dollara. Litla stúlkan hefur nú verið í haldi í 11 daga. Ræningjamir hafa ekki haft samband við foreldra litlu telpunn- ar, líbanska auðkýfínginn Raymond Nakachian og konu hans sem er kóreönsk, síðan á þriðjudag. Þá hótuðu þeir að svelta bamið ef lausnargjaldið ekki yrði greitt. Einnig lækkuðu þeir lausnargjaldið, sem þrátt fyrir lækkunina er hið hæsta sem farið hefur verið fram á á Spáni. Svínalijöt er okkar sérgreln Komið og kynnist kjötinu okkar í KRINGLUNNI KRINGLUNNI SÍMI689555 Við bjóðum heitan mat í sérflokki allan daginn alla daga. Nú mælum við með svínasteikum, krydduðum, kryddlegnum og fylltum, tilbúnum á pönnuna eða í ofninn. Sovétríkin: Boris Yeltsin. Yeltsin fengið nýtt embætti Moskvu, Reuter. BORIS Yeltsin, sem nýlega var vikið úr embætti leiðtoga sov- éska kommúnistaflokksins í Moskvu eftir að hafa gagnrýnt flokksforustuna, hefur verið fengið nýtt embætti innan valda- kerfisins. Sovéska fréttastofan Tass skýrði frá því á miðvikudag að Yeltsin hefði verið skipaður varaformaður byggingaráðs Sovétríkjanna, sem jafngildir stöðu ráðherra. Að sögn sérfræðinga er embætti þetta nokkuð valdamikið þó svo ekki sé unnt að leggja það að jöfnu við stöðu flokksleiðtoga í Moskvu. Byggingaráðið samræmir og skipu- leggur byggingaframkvæmdir í Sovétríkjunum en eitt helsta bar- áttumál Yeltsins í sínu fyrra embætti var að bæta húsakost í Moskvuborg. Eftir því sem fregnir herma ávann Yeltsin sér vinsældir Moskvubúa eftir að hann tók við embætti flokksleiðtoga þar fyrir tæpum tveimur árum af Viktor Grishin, sem hafði orðið uppvís að spillingu. Á þriðjudag var skýrt frá því í Moskvu að Yeltsin hefði verið flutt- ur í sjúkrahús sökum hjartveiki en orðrómur hafði verið á kreiki um að hann hefði safnast til feðra sinna. Óstaðfestar fréttir herma að Yeltsin hafí verið fluttur í sjúkrahús í síðustu viku eftir að hafa verið kallaður á fund þar sem honum var tilkynnt að honum hefði verið vikið úr embætti. Moskvubúar hafa margir hveijir lýst furðu sinni vegna þeirrar ákvörðunar flokks- forustunnar að reka Yeltsin og hafa borist fregnir af mótmælum þar í borg sökum þessa. Bankahneyksli í Noregi: MiIIjarða króna tap á hlutabréfabraski Ösló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins. VERÐFALLIÐ í kauphöllum víða um heim hefur orðið til að koma upp um bankahneyksli í Noregi. Den Norske Creditbank, DNC, hefur nú þegar tapað sem svarar tíl 1.160 miiy. ísl. kr. á verðfall- inu og á á hættu að tapa 4.640 miljj. ísl. kr. að auki. Tveir yfir- menn í bankanum hafa sagt af sér og verðbréfamiðlari verið rekinn. DNC hefur keypt mikið af hluta- bréfum í erlendum kauphöllum og í mars sl. var ráðinn til bankans franskur verðbréfamiðlari, sem var umsvifamikill á markaðnum í Wall Street. Bankinn setti sjálfur þak á þessi viðskipti, rúma tvo milljarða ísl. kr., en þegar upp var staðið kom í ljós, að hann átti hlutabréf fyrir nærri 12 milljarða ísl. kr. Eftir verð- fallið seldi hann hluta bréfanna og tapaði á því 1.160 millj. kr. og líkur eru á, að hann tapi 4.640 millj. kr. í viðbót. Verðbréfamiðlaranum franska var sparkað á fundi á þriðjudag en hann tekur ekki mark á uppsögn- inni. Segist hann ekki hafa gert annað en hann fékk fyrirmæli um. Tveir yfírmenn bankans sögðu af sér á miðvikuda, þar á meðal að- stoðarbankastjórinn, og bauðst aðalbankastjórinn einnig til að segja af sér þótt hann hafí ekki vitað um þessi viðskipti. Stjómin bað hann þó að sitja áfram og komast til botns í málinu. Þetta mál hefur valdið mikilli ólgu innan norska bankaheimsins og meðal viðskiptavina bankanna. Þykir það með ólíkindum, að banki, sem naut jafn mikillar virðingar og DNC, skuli hafa tekið þátt í braski af þessu tagi og þá þykir ýmsum spumingum ósvarað um starfsemi norska bankaeftirlitsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.