Morgunblaðið - 20.11.1987, Qupperneq 33
33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987
Jarðgöng í Ólafsfjarðarmúla:
Utboð að loknu forvali
Lengstu göng á landinu
ÁKVEÐIÐ hefur verið að bjóða út framkvæmdir við gerð jarðganga
í gegnum Ólafsfjarðarmúla. Væntanlegur verktaki verður valinn í
mai næstkomandi að lokinni forvalskönnun en reiknað er með að
sprengingar fyrir jarðgöngunum geti hafist síðarihluta sumars. Jarð-
göngin ásamt forskálum eru um 3,4 km og verða þetta lengstu veggöng
á landinu en Strákagöng og göngin við Oddsskarð eru um 700 metr-
ar. Að sögn Hreins Haraldssonar yfiijarðfræðings hjá Vegagerð
ríkisins, eru göngin síðasta og jafnframt stærsta verkefnið á óvegaá-
ætlun frá árinu 1980 þar sem vegagerðinni var falið að kanna úrbætur
á þremur slysastöðum, i Óshlíð, Olafsvíkurenni og Ólafsfjarðarmúla.
verðan hluta veggjanna til að styrkja
þá,“ sagði Hreinn.
Auk jarðganganna verður lagður
vegur að göngunum beggja vegna,
samtals tæpir 3 km. Gert er ráð fyr-
ir að vegurinn og göngin verði um
20 m neðar í Múlanum en núverandi
vegstæði og verður munninn í 120
m hæð við Dalvík en í 70 m hæð
við Ólafsfjörð.
Framtíð Nesfisks hf. í Garði:
Hlýir straumar hvetja
okkur til áfram-
haldandi starfsemi
- segir Baldvin Njálsson, einn af
eigendum fyrirtækisins
Garði.
Enn liggur ekkert fyrir hvað olli
brunanum i Nesfiski hf. í Garði
aðfaranótt miðvikudagsins. Að
sögn Óskars Þórmundssonar,
lögreglufulltrúa, sem hefur yfir-
umsjón með rannsókn málsins
hefur ýmislegt komið fram en
að svo komnu máli vildi Óskar
ekkert tjá sig nánar um málið.
Hreinsun svæðisins hófst i býtið
i gærmorgun og var unnið við
hreinsunina allan daginn.
Tæplega tuttugu manns hófu
störf í rústum Nesfisks í gærmorg-
un og voru mættir flestir þeir
karlmenn sem störfuðu við fyrir-
tækið, auk nokkurra stúlkna. Þá
voru ijórir vörubflar í stanslausum
flutningum og einbeittu hreinsunar-
menn sér að því að fjarlægja
bárujámið af þaki og hliðum húss-
ins. Þá má geta þess að björgunar-
sveitin Ægir lánaði vörubíl sem hún
á auk ökumanns. Hreinsunin gekk
mjög vel, hvorttveggja var að góður
starfsandi var og veðurblíða.
Ejöldi annarra manna var að
störfum í rústunum, lögregla kann-
aði orsök brunans, menn frá hita-
veitunni og rafveitunni voru að
störfum, auk fjölda aðila frá trygg-
ingafélögum. Oddviti Gerðahrepps,
Finnbogi Bjömsson, hafði strax
samband við eigendur Nesfisks hf.
og bauðst til að veita þeim alla þá
aðstoð sem hann gæti.
Baldvin Njálsson, einn eigenda
BÍL:
Listamanna-
þing á laug-
ardaginn
BANDALAG íslenskra lista-
manna, BÍL, gengst fyrir lista-
mannaþingi laugardaginn 21.
nóvember. Þingið verður haldið
í B-sal Hótel Sögu og hefst kl.
15.00.
Listamannaþing BÍL em haldin
annað hvert ár. í þetta sinn er
umræðuefnið helgað spumingunni:
„Er skapandi vitund í hættu?" Flutt
verða framsöguerindi og em ræðu-
menn Njörður P. Njarðvík rithöf-
undur, Steinunn Þórarinsdóttir
myndhöggvari, Stefán Öm Stefáns-
son arkitekt, Kristín Jóhannesdóttir
leikstjóri og Amór Benónýsson leik-
ari.
Að loknum framsöguræðum
verða fijálsar umræður.
Nesfisks hf., stóð fremstur í flokki
hreinsunarmanna í allan gærdag.
Hann sagði að nú væri 'að kanna
leiðir til áframhaldandi fískverkun-
ar, Útvegsbankinn hefði boðið
eigendunum til leigu fískverkunar-
hús, sem hann keypti á nauðungar-
uppboði í sumar, Ásgeir hf., og
hefðu þeir átt fund með banka-
mönnum í gær. Hann sagðist ætla
að kanna hvort hægt væri að hefja
rekstur á ný í húsnæðiísstöðvarinn-
ar hf. sem hann rak fískverkun sína
í áður en hann keypti Nesfisk.
Baldvin sagði að það virtist sem
mjög jákvæðir straumar væm í
kringum sig þessa stundina og hann
vildi láta reyna á það hvort það
væri í raun og vem þannig. Hann
sagði að þegar hann keypti þetta
fyrirtæki hefði hann fengið synjun
frá lánastofnunum og þurft að
leggja allt sitt undir. „Nú er okkur
ráðlagt að leggja inn umsókni í
Byggða- og Fiskveiðisjóð og sjá
hvað út úr því kemur. Þá þurfum
við einnig að sjá hvaða bætur við
fáum fyrir fyrirtækið en á meðan
hlýir straumar liggja að okkur emm
við bjartsýnir á framhaldið," sagði
Baldvin.
Arnór
Fósturfélag íslands:
Ráðstefna um
gildi dagvist-
ar fyrir börn
FÓSTURFÉLAG íslands stendur
fyrir ráðstefnu, sem hófst í gær
og lýkur i dag, um gildi dagvist-
ar fyrir börn. Á ráðstefnuna var
boðið fulltrúum frá öllum kaup-
stöðum á landinu, pólitískum
fulltrúum og norskum fyrirles-
ara, Berit Bae.
Ráðstefnan er að nokkm leyti
undirbúningur fyrir stóra fagráð-
stefnu sem félagið gengst fyrir 15.
og 16. apríl nk. Markmið hennar
verður að auka umræðu um gildi
dagvistar fyrir böm og raunar allt
samfélagið, að sögn Selmu Dóm
Þorsteinsdóttur formanns félagsins.
„Við ákváðum," sagði Selma Dóra,
„að fá einhvem góðan fyrirlesara á
ráðstefnuna frá öðm Norðurlandi
sem ynni að vísinda- og rannsókna-
störfúm innan dagvistarheimilanna
en þeir em fáir. Það varð úr að við
fengum Berit Bae, sem er lektor í
uppeldisfræði til þess að flytja er-
indi um nútímarannsóknir á þessu
sviði," sagði Selma Dóra.
Hreinn sagði að forvalsgögn með
helstu upplýsingum yrðu tilbúin í
næstu viku, fyrir innlenda- og er-
lenda aðila sem hafa hug á að bjóða
í verkið. „Með forvali fáum við upp-
lýsingar um væntanlega verktaka„“
sagði Hreinn. „Þeim er ætlað að
senda inn upplýsingar um fyrirtækin,
reynslu, fjárhagslegt bolmagn, tæki
og mannskap. Síðan verða þeir vald-
ir úr, sem við treystum til að vinna
verkið innan þeirra tlmamarka sem
sett em en mannvirkinu í heild á að
Ijúka á þremur ámm.“ Endanlegri
hönnun verður lokið í febrúar og þá
verður verkið boðið út til þeirra verk-
taka sem em taldir hæfír að mati
Vegagerðarinnar.
Jarðfræðikannanir hófust í Ólafs-
flarðarmúla árið 1981 og stóðu til
ársins 1984 en síðan hefur verið
unnið að hönnun verksins og athug-
unum á hversu nákvæm staðsetning
ganganna ætti að vera. „Það er búið
að ákveða alla megin þætti og allar
helstu rannsóknir liggja fyrir," sagði
Hreinn. „Göng í bergi em 3.130
metrar, en þar að auki em forskál-
ar, steypt göng við báða munna og
em þeir samtals 265 metrar. Göngin
í heild em því um 3,4 kflómetrar."
Gert er ráð fyrir einni akrein með
útskotum á 160 metra bili, fyrir bfla
að mætast við. Sagði Hreinn að
umferð um Múlann væri ekki það
mikil að hún réttlætti tvöfalda ak-
rein. Forskálar verða þó tvíbreiðir
og þeim möguleika haldið opnum að
sjálf göngin verði víkkuð út í framtí-
ðinni.
„Búast má við að styrkja þurfi
göngin töluvert en það er nokkuð
algilt í göngum í okkar bergi. Allar
aðstæður em svipaðar í Ólafsfjarðar-
múla og vom í Strákagöngum en
Oddskarð var nokkuð öðmvisi. Við
teljum þetta ekki vera neitt meiri-
háttar vandamál og höfum hugsað
okkur að notast við steypusprautu
sem reynst hefur mjög vel í jarð-
göngunum við Blönduvirkjun. Verður
steypu sprautað á allt loft og á tölu-
1
NÝI ÍSLENSKI HABITAT
MYNDALISTINN ER KOMINN
i i
I Vinsamlegast sendið mér islenska HABITAT myndalistann. |
NAFN
HEIMILI
X
L
J
habitat er heimiusverslun
KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF LAUGAVEGI13 SÍMI 91-625870