Morgunblaðið - 20.11.1987, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987
39
Borgarfjörður:
Utgerð hafin
frá Reykholti
Kleppjárnsreykjum.
FYRSTA skipið er nú komið í
Reykholt, það er matsveinninn i
héraðsskólanum í Reykholti sem
fest hefur kaup á trefjaplastbát,
„Sóma 800“.
Amþór Sigurðsson í Brennubæ
festi kaup á bát þessum á Dalvík
nú fyrir skömmu, og hyggst gera
hann út til að bytja með frá Ólafs-
vík eða Amarstapa, en annars er
það óráðið hvar hann rær, „líklega
þar sem eitthvað verður að hafa.
Það eru 40 tonn af fiski sem veiða
má á þessa báta á ári og er þetta
Tónleikar
á ísafirði
KOLBEINN Bjamason flautu-
leikari og Páll Eyjólfsson gítar-
leikari halda tónleika í sal
Grunnskólans á ísafirði laugar-
daginn 21. nóvember kl. 17.00.
A efnisskrá em tónverk eftir
m.a. G.F. Hándel, Atla Heimi
Sveinsson, John Speight og Hjálmar
H. Ragnarsson. Annað verka
Hjálmars, Bagatellur fyrir flautu
og gítar, er nýtt af nálinni.
Helgina 28.-29. nóvember spila
þeir Páll og Kolbeinn síðan á Akra-
nesi og Stykkishólmi.
hin besta sumarvinna og skemmti-
leg útivera eftir alla innivemna á
vetuma," sagði Amþór. Báturinn,
sem ekki hefur fengið nafn ennþá,
er búinn öllum helstu tækjum, svo
sem 2 lóran C, dýptarmæli, radar
og talstöðvum. Fjórar tölvustýrðar
handfærarúllur fylgja bátnum.
Það em nokkur tímamót í Reyk-
holti þetta haustið, hefðbundinn
búskapur var aflagður og var öllu
sauðfé frá félagsbúinu slátrað nú í
haust, og hefur presturinn, séra
Geir Waage, mikinn áhuga á að
leggja jörðina undir skógrækt, er
verið að leita að stuðningi við skjól-
beltaræktun til að byrja með því
það er auðveldara að rækta nytja-
skóg í skjóli en á berangri.
Mannlífið hér er annars nokkuð
gott og félagsmálin farin að hafa
sinn tíma, kórar famir að æfa,
brids-spilarar famir að stokka og
svo_ mætti lengi telja.
A laugardaginn ætlar Ung-
mennafélag Reykdæla að halda sinn
árlega gleðifund, en það er nokkurs-
konar árshátíð félagsins, fimmtíu
ár em síðan þessi hefð hófst í starf-
semi félagsins. Þar verður margt
til skemmtunar, að venju fá allir
skuldlausir félagar að sjálfsögðu
frítt á skemmtunina. Happdrætti
verður og em 10 ferðavinningar í
boði.
— Bemhard
Bók um
systkinaröð
ÚT ER komin hjá Emi og Örlygi
bókin Systkinaröðin mótar
manninn eftir dr. Kewin Leman
í þýðingu Guðmundar Þorsteins-
sonar.
Á bókarkápu segir m.a.: Víst er
að staða okkar í röð systkina (eða
systkinaleysi) mótar okkur öll með
afgerandi hætti og hefur varanleg
áhrif á allt okkar líf. Þessi bók er
bmnnur upplýsinga, sem geta
hjálpað þér að bæta samskipti þín
við aðra, hagnýta þér styrk syst-
kinaraðarinnar og bæta úr veikleik-
um hennar, og njóta þeirrar
sérstöðu sem Guð gaf þér. Systkina-
röðin er hlýleg, fyndin, einlæg og
skemmtileg aflestrar, og hún hjálp-
ar þér jafnframt að þekkja sjálfan
Dr. Kevin Leman
mmm
þig betur og að sjá samskipti þín
við aðra í skýrara Ijósi.
Úr umferðinni í Reykjavík
miðvikudaginn 18. nóvember 1987
Árekstrar bifreiða: 31
í þrem tiivikum varð slys á fólki.
Kl. 8.26 varð gangandi vegfarandi fyrir bíl á Tryggvagötu.
Kl. 15.08 varð umferðaróhapp á bifreiðastæði við Suðurver er bifreið
lenti á sjö mannlausum bifreiðum. Talið er að veikindi ökumanns
hafi valdið að svo fór.
Kl. 19.35 varð gangandi vegfarandi fyrir bíl á mótum Bústaðavegar
og Háaleitisbrautar.
Radarmæling: 16 ökumenn kærðir.
Ökumaður var sviptur ökuréttindum á staðnum, en kl. 18.04 ók hann
vestur Sætún og kom inn í radargeisla sem sýndi 111 km/klst. hraða.
Leyfður hámarkshraði á Sætúni er 50 km/klst. Aðrir ökumenn sem
fóru of hratt um Sætún mældust á 81—88 km/klst hraða og allt þar
á milli. Um Kringlumýrarbraut var kært fyrir 95 km/klst. hraða.
Einn ökumaður var kærður fyrir að aka mót rauðu ljósi á götuvita
og annar fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu við gatnamót.
Kranabifreið fjarlægði 11 bifreiðir fyrir ólöglega stöðu.
Klippt voru númer af 4 bifreiðum fyrir vanrækslu á að færa til skoðun-
arx
Einn ökumaður var grunaður um ölvun við akstur í miðvikudagsum-
ferðinni.
Samtals: 43 kærur fyrir umferðarbrot.
Frétt frá lögreglunni í Reykjavík.
Amþór Sigurðsson í bátnum sínum sem hefur ekki hlotið nafn ennþá. Morgunblaðið/Bemhard Jóhannesson
Skoðanakönnun Helgarpóstsins og Skáíss:
Mest fylgisaukmng-
hjá Kvennalistanum
KVENNALISTINN fengi rúm 15% atkvæða og 10 þingmenn kjörna
ef gengið yrði til kosninga í dag samkvæmt niðurstöðum skoðana-
könnunar Helgarpóstsins og Skáíss. í kosningunum síðastliðið vor
fengu konumar 10,1% atkvæða og 6 þingmenn kjöraa. Borgaraflokk-
urinn tapar talsverðu fylgi samkvæmt könnuninni, en lítil hreyfing
er á fylgi annarra flokka. Vegna tæknilegrar skekkju í tölvuvinnslu
hjá fyrirtækinu Skáís birtust rangar niðurstöður í frétt Helgarpsósts-
ins í gær hvað varðar fylgi Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðisflokkur-
inn er þar sagður vera með 25,9% fylgi á landsvísu, en er í raun
samkvæmt könnuninni með 29,8% fylgi að því er forsvarsmenn
Skáiss staðfestu í samtali við Morgunblaðið í gær. Samkvæmt því
bætir flokkurinn við sig 2,6% fylgi frá síðustu kosningum, en þá
fékk hann 27,2% atkvæða og 18 menn kjörna. Skoðunakönnunin var
gerð um síðustu helgi og ef marka má niðurstöður hennar hefur
Kvennalistinn bætt við sig mestu fylgi frá þvi í kosningunum síðast-
liðið vor.
Borgaraflokkur fengi nú 7,0%
atkvæða og 3 menn kjöma, en fékk
10,9% og 7 menn kjöma í síðustu
kosningum. Auk Sjálfstæðisflokks-
ins bæta Framsóknarflokkur og
Alþýðuflokkur lítillega við sig í
þessari könnun. Framsókn fengi nú
19,9% atkvæða og 14 þingmenn,
en fékk 18,9% og 13 þingmenn í
kosningunum. Alþýðuflokkur fengi
nú 16,3% atkvæða en var með
15,2%, og þingmannatala hans
LÖGREGLAN í Reykjavík óskar
eftir að hafa tal af ökumanni
jeppa, sem var ekið inn á Snorra-
braut á mánudagskvöld, í veg
fyrir fólksbQ, sem sveigði frá og
lenti á grindverki.
Óhappið varð skömmu fyrir kl.
23 á mánudagskvöld. Fólksbíl var
ekið norður Snorrabraut, á vinstri
akrein. Jeppinn ók austur Njálsgötu
Starfsemi
Hispania
hefst að nýju
STARFSEMI kvikmyndaklúbbs-
ins Hispania hefst að nýju
laugardaginn 21. nóvember.
Fyrsta kvikmynd vetrarins er
Hemám Albaníu, sem gerð var
árið 1983 og byggist á sögulegri
heimild frá lö öld.
Eftirtaldar kvikmyndir em vænt-
anlegar til sýningar í vetun „La
conquista de Albania" (A. Ungría)
í nóvember, „Con el viento solano"
(M. Camús) í desember, „Los golf-
os“ (C. Saura) í janúar, „Volver a
empezar" (J.L. Garci) í febrúar, „La
muerte de Mikel" (I. Uribe) I mars,
„E1 ángel exterminador" (L. Bunu-
el) í apríl og „E1 puente" (J.A.
Bárdem) í maí.
óbreytt, 10 menn. Alþýðubandalag
tapar einum manni samkvæmt
könnuninni, fengi nú 11,6% og 7
menn, en var með 13,4% og 8 menn
kjöma í kosningunum í vor. Aðrir
flokkar eða framboð næðu ekki
manni á þing ef marka má þessa
könnun.
Ríkisstjómin nýtur fylgis meiri-
hluta þjóðarinnar í þessari könnun
en samkvæmt henni styðja 56%
styðja stjómina. Er það nokkuð
og í veg fyrir fólksbílinn. Til að
forðast árekstur sveigði ökumaður
fólksbflsins honum frá og lenti við
það á grindverki. Ökumaður jepp-
ans stöðvaði, en ók síðan á brott.
Talið er að jeppinn sé stór, mikið
upphækkaður, blár að lit með hvítu
húsi. Hann er með R-númer og tel-
ur vitni að það byiji á tölustafnum
7.
Ökumaður jeppans er beðinn um
að hafa samband við slysarann-
sóknadeild lögreglunnar. Þá óskar
lögreglan einnig eftir að hafa tal
af vitnum.
minni stuðningur en kom fram í
sambærilegri könnun í ágúst síðast-
liðnum þegar 63,8% sögðust styðja
ríkisstjómina.
í könnuninni var valið handa-
hófsúrtak 1.008 einstaklinga yfir
allt landið samkvæmt tölvuskrá yfír
símanúmer.
SýninguRunu
að ljúka
SÝNINGU Rúnu Gísladóttur að
Kjarvalsstöðum lýkur á sunnu-
daginn. Á sýningunni era 104
myndverk, akrýl- og oliumálverk
og kUppimyndir.
Þetta er fyrsta einkasýning Rúnu
en hún hefur áður tekið þátt í
nokkrum samsýningum, m.a. FÍM-
sýningum 1981 og 1983, Kirkjulist-
arsýningu að Kjarvalsstöðum um
páska 1983 og „Reylcjavík í mynd-
list“ að Kjarvalsstöðum sumarið
1986.
Kökubasar og
kaffisala í
Hvítasunnu-
kirkjunni
KÖKUBASAR og kaffisala verð-
ur í Hvítasunnukirkjunni Ffla-
delfíu í Hátúni 2 laugardaginn
21. nóvember kl. 14.00.
Það er systrafélag Ffladelfíu sem
heldur basarinn í neðri sal kirkjunn-
ar.
Fólki gefst kostur á að setjast
niður yfir kaffibolla og ijómapönnu-
kökum sem verða á boðstólum.
AUur ágóði af sölunni rennur til
starfsemi systrafélagsins.
• •
Okumaður gefi sig fram